Morgunblaðið - 16.10.1966, Page 1
Sunnudagur 16. október
II
ÞRIÐJUDAGINN 25. október
verður sett í Havanna á Kúbu
Olympíumót í skák. Munu þar
leiða saman hesta sína 43 þjóð-
ir, og þar verða saman komnir
flestallir sterkustu skákmenn
heims. íslendingar munu senda
til leiks sex manna sveit, 'skip-
aða öllum sterkustu skákmönn-
um íslands, og segja fróðir
menn, að hér sé um sterkustu
sveit að ræða, sem teflt hefur
fyrir Islendinga á alþjóðlegu
skákmíti erlendis. Alls munu
nær 300 skákmenn tefla á
Kúbu þessa daga, sem mótið
sí >ndur yfir og mun mótinu
1 ika um 20. nóvember með
r saf jöltefli. þar sem allir þátt-
tekendur mótsins skipta á milli
s n 5400 manns. Teflt verður í
r'%m, og fer mótið fram í
st ru hóteli í Havanna, sem
he'tir „Hotel Havanna Libra“.
Þátttakendur fyrir hönd Is-
lands verða: Á fyrsta borði tefl
ir Friðrik Ólafsson, stórmeist-
ari, á öðru borði Ingi R. Jó-
hannsson, alþjóðlegur meistari,
á þriðja borði Guðmundur
Pálmason, á fjórða borði Frey-
sieynn Þorbergsson, og vara-
menn verða tveir, Gunnar Gunn
arsson og Guðmundur Sigur-
jónsson. Fyrirliði sveitarinnar
er Friðrik Ólafsson og farar-
st'ri Guðbjartur Guðmunds-
son, gjaldkeri Skáksambands
íslands.
Samkvæmt upplýsingum Guð
mundar Arasonar, formanns
S’áksambandsins hefur fjár-
söfnun til fararinnar gengið all-
sæmilega, en skáksambandið
hefur notið styrks frá borgar-
yfirvöldunum og fleiri aðilum
til fararinnar. Má því vænta
góðs árangurs af þessari för
þsirra félaga til Kúbu.
Blaðamaður Mbl. hitti þá fé-
laga nú á dögunum, þar sem
þeir sátu og spjölluðu yfir
kaffiboilum á einu kaffihúsa
borgarinnar. Þeir höfðu þá ver-
ið að ganga frá gjaldeyriskaup-
um og öðrum ferðaundirbún-
ingi, sem fylgir ferðum sem
þe ;um.
Á fyrsta borði teflir Frið-
rik Ólafsson fyrirliði sveitar-
innar. Við spyrjum Friðrik,
hvort þeir hafi æft mikið und-
ir keppnina, og hann svarar:
— Já, ég mundi segja, að
aldrei hafi verið æft eins vel
og nú.
— Veiztu um nokkra and-
stæðinga?
— Nei, ég veit ekki enn
hvernig einstaka sveitir verða
skipaðar, nema talið er víst að
heimsmeistarinn Petrosjan
verði á fyrsta borði Rússanna.
Þar sem þetta er riðlakeppni
er heldur ekki víst að við
teflum nokkurn tíma við þá.
— Hvernig er annars hlut-
fallið milli þín og Petrósjans
í þeim skákum, sem þið haíið
telft saman?
— Ef ég man rétt höfum við
telft saman 10 skákir og hef
ég tvo vinninga undir. Síðast
þegar við tefldum skildum við
jafnir í Los Angeles.
— Hvað viltu svo segja um
útlitið?
— Ég tel þetta vera sterk-
ustu sveit, sem teflt hafi á er-
lendym vettvangi og með tals-
verðri heppni kemst hún
kannski upp í A-flokk.
Á öðru borði teflir Ingi R.
Jóhannsson. Við spyrjum Inga
að því, hvernig æfingum hafi
verið háttað, og hann svarar:
— Við byrjuðum að æfa 6.
júní og héldum áfram allt til
3. október. Tefldar voru skák-
ir í tvær klukkustundir á dag,
tvisvar í viku, en þess á núlJi
var að sjálfsögðu mikill lestur.
Við tókum fyrir skákir og viss-
ar byrjanir, tefldum og . ædd-
um svo hinar ýmsu skákstöðiir
sem upp komu.
Hvernig leggst mótið ! þig?
— Ég held að það leggist
einna verst í mig af öllum, seg-
ir hann og brosir.
— Og það þrátt fyrir, að
hann sé sá eini, sem befur
konu sína með, skýtur Friðrik
inn í — það hlýtur að vera
dásamlegt að hafa hana með
til að hugga sig.
— Teflir frúnir?, spyrjum við
Inga.
— Nei, ég efast um, að hun
kunni mannganginn.
Á þriðja borði verður Guð-
mundur Pálmason. Við spyrj-
um Guðmund, hvort hann hati
einhverja hugmynd um nverjir
andstæðingar hans veröi, og
hann svarar:
— Hið eina sem ég veit er
að Tal verður á 3. borði í sveit
Rússanna, en þar eð hér er um
riðlakeppni að ræða kemur elcki
í Ijós fyrr en dregið verður í
riðla, hverjir mótherjar okkar
verða.
— Og þú ert bj artsýnn?
— Að því er ég held lendum
við aldrei í A.-flokki. Ég vil
vara við allt of mikilli bjart-
sýni. Þjóðum, sem taka þátt í
þessum mótum fjölgar stööugt
og róðurinn þyngist.
— Það er að sjálfsögðu bezt
að gera sér ekki of miklar von-
ir, og koma svo á óvart?
— Já, ef við komum jákvætt
á óvart.
— Hefur æfingatíminn ekki
verið strangur?
— Jú, hann hefur verið það,
sérstaklega, þegar maður þarf
að vera með hugann á fleiri
stöðum. Skákin grípur mann
sterkt, þegar maður gefur sig
henni á vald.
Á fjórða borði teflir Frey-
steinn Þorbergsson. Við höfum
orð á því í fyrstu, að hann sé
eini utanbæjarmaðunnn í sveit
inni, og hann segir:
— Já, ég er eini utanbæjar-
maðurinn og mér þykir slæml
að hafa ekki getað tekið þátt
í þessum samæfingum, sem
Friðrik hefur stjórnað. Æfing-
arnar hafa verið mjög goðar.
— Þú ferð ekki eingöngu lil
Kúbu til að tefla?
— Nei, Auk þess, sem ég
tefli verð ég fulltrúi íslands á
þingi Alþjóðaskáksambandsins,
sem einnig verður haldið á
Kóibu í sambandi við rnolið.
Þing F.I.D.E. (Fédération Int-
e.n„úonale des Echecs) akveð
ur ,hvar halda skal alþjóöleg
skákmót, olympíuskákmót og
heimsmeistarakeppni. Forseti
þess nú er Svíinn Folke Ro-
gard, en hann er lögfræðingur
að mennt.
— Mótið verður haldið á
stóru hóteli í Havanna?
— Já, hótelið er stórt og
glæsilegt, að minnsta kosti eft-
ir myndum að dæma. Það heit-
ir „Hotel Havanna Libra“ og
tekur á sjötta hundrað gesti,
enda veitir ekki af, þvi að þátt-
takendur munu vera nær 300
auk fararstjóra og annarra
gesta. Þátttökuþjóðirnar eru
rúmlega 40. Bandaríkjamenn
og V.-Þjóðverjar taka ekki þátt
í mótinu eftir því sem ég hef
heyrt.
— Þú ert bjartsýnn, er akki
svo?
— Jú, Við munum vissulega
keppa að því að komast upp
í A ,en þó má ekki gera sér
of miklar vonir. Allt getur olt-
ið á riðlaskiptingu.
Annar tveggja varammanna
er Gunnar Gunnarsson, íslands
meistari í skák í ár. Við spyrj-
um Gunnar hvernig hlutverk-
um sé skipt innan sveitarinnar
og hann svarar:
— Það er auðvitað fyrirúð-
inn, Friðrik Ólafsson, sem ræð
ur því, hvenær við varamenn-
irnir teflum. Það mun t’ara
eftir því, hvort einhver aðal-
manna á biðskák, sem þarf mik-
illar íhugunar við. Þá er gott
að geta létt á viðkomandi. Ann-
ars vildi ég segja, segir Gunn-
ar og brosir — eins og Guð-
björn Jónsson í KR sagði einu
sinni: „Þið skuluð ekkert vera
að hlífa okkur strákar. Við
varamennirnir erum alveg til-
búnir“.
— Hvernig verður keppni
hagað á mótinu?
— Teflt verður daglega frá.
kl. 16—21, þ.e.a.s. fimm Jclukku '
stunda skákir, hálfur þrjðji
tími á mann. Þessi skipan mun
almennt höfð á mótum Alþjoða
skáksambandsins. Biðskélcir
verða síðan tefldar á morgn-
anna frá því kl. 9 til kl. 13
dag hvern. Getur það oröið erf-
itt þeim, sem eiga biðskakir.
Yngsti maður sveitarinnar
19 ára gamall menntaskólane>ni
Guðmundur Sigurjonsson,
skákmeistari íslands 1965 er
annar varamaður. Við spyrjum
hann, hvort hann haii áður
telft á mótum erlendis og harin
svarar:
— Jú, ég tefldi á unglinga-
meistaramoti í Svíþjóð i lyrru.
— Og þar lagði nann af verli,
bætir Ingi við — efnilegasta
ungling Sovétríkjanna í skak,
skákmeistara Sovetrikjanna í
unglingaflokki.
— Hefur þú teltt rnikið I
menntaskólanum? spyrjum
við?
— Ekki svo mjög, það hefur
verið frekar dauft yfir skak-
lífi í menntaskólanum að und-
anförnu að minnsta kosti.
— Og mótið á Kúbu leggst
vel í þig?
— Já, já. Að minnsta kosti
vonar maður hið bezta.
í lokin ræðum við við Guð- a
mund Arason, formann Skák-
sambands íslands, og spyrjum
hann um undirbúning að þátt-
töku slands í Olympíuskákmót
inu á Kúbu. Guðmundur segjr:
— Við höfum kappkostað
að undirbúa þátttöku okkar
sem bezt, enda höfum við baft
góðan tíma. Við höfum einnig
fengið góða aðstöðu, en okkur
er ekki unnt að gefa nein loí-
orð. Til fararinnar höfum við
fengið alla sterkustu skákmetin
íslands.
Borið saman við sveitina,
sem fór á síðasta Olympiuskák
mót, sem haldið var í Tel Avív
og varð þar efst í C-flokki, var
meðalaldur hennar 21 ar, en
meðalaldur sveitarinnar, sem
nú fer til Kúbu er rúmlega
30 ár. Að okkar áliti er meiri
og betri árangurs að vænta
þeim mun eldri og þroskaðri
skákmenn sem við senduin. Mið
að við árangur Guðmunclar Sig
urjónssonar á móti unglinga- ^
meistara í Reykjavík held ég,
að allt lofi góðu um stvrkleika
sveitarinnar. Eins og ág sagði,
við lofum engu, en vonum að
allir geri sitt bezta.
Eftir að blaðamaður Mbl.
hafði átt viðtal við þá félaga
upphófust fjörugar am.atður
um skák og ýmislegt, sem
ýmist fór fyrir ofan garð tða
neðan hjá blaðamanninum,
vegna ónógrar kunnáttu í skák-
list. I miðjum umræðum segir
svo Ingi allt í einu:
— Ég var að lesa Vísi hér
rétt áðan og blaðaði þá í
stjörnuspá blaðsins. Við sljörnu
merk mitt stóð að nú hæfisl
sá tími, er ég gæti svalað met.n-
aðarþrá minni. Vonast eg til að *
Vísir reynist sannspár, annars
veit ég ekki hversu goður
spámaður hann er.
Þeir félagar fara af iandi
brott hinn 18. þessa mánaðar.
Þeim fylgja vafalaust beztu
óskir allra landsmanna, og von-
um við, að þeir verði sigur-
sælir í Havanna, þótt það se að
vísu ekki aðalatriðið að sigra,
heldur að taka þátt í kejijm-
inni, að minnsta kosti liafa
íþróttafréttaritarar einnvern
tíma sagt svo.
Skáksveitin, sem fer til Kúba. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, Friðrik Ólafs-
son og Freysteinn Þorbergsson. Aftari röð frá vinstri: Guðbjartur Guðmundsson, fararstjóri,
Guðmundur Pálmason, Ingi K. Jóhannsson og Guðmundur S igurjónsson. (Ljósm. Sv. Þovm).
#íí olympíaskókmemi
föram tU Rúbn