Morgunblaðið - 16.10.1966, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.10.1966, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagiir 16 okt. 1966 Vilja ekki fleiri síldar- og mjölverksmiðjur nema í samráði við samtök sjómanna EFTIRFARANDI samþykktir voru gerðir á þingi Sjómanna- samþands íslands: Um byggingu síldarverksmið.ja 5. þing Sjómannasambands íslands bendir á, að það hefir nú sýnt sig í reynd, að það var rétt stefna er síðasta þing mark- aði, að hagkvæmt væri að leysa hina svokölluðu veiðitoppa á síldveiðunum með aukningu þró- arrýmis verksmiðianna og hafa sérstök skip til síldarflutninga í verksmiðjur fjarri síldarmiðun- um, I stað þess að byggja sí- fellt fleiri og fleiri verksmiðjur. Þingið harmar því, að ríkis- valdið skyldi heimila að byggja þær tvær síldarverksmiðjur, sem nú eru í byggingu, þrátt fyrir ein- dregin tilmæli samtaka sjómanna, Sjómannasambands íslands og Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands er send voru sjá- varútvegsmálaráðuneytinu á sl. vetri um að ekki yrði leyft að byggja fleiri verksmiðjur í bili. Þingið bendir á þá staðreynd, að verksmiðju-kostnaðurinn er orðinn slíkur, að þrátt fyrir met- veiði í sumar hefir það tæplega Eyjólfur K. Sigurjónsson löggiltur endurskoðandi Flókagölu 65. — Simi 17903. GCSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8. Sími 11171. átt sér stað að skip hafi orðið að bíða löndunar og að mikið vantar á, að verksmiðjurnar fyrir norðan og austan hafi feng- ið nægilegt síldarmagn til bræðslu. Þingið beinir því þeim ein- dregnu tilmælum til ríkisstjórn- arinnar, að ekki verði leyft að byggja fleiri síldar- eða mjöls- verksmiðjur nema í samráði við samtök sjómanna, en á þeim og útvegsmönnum lendir að greiða verksmiðjurnar þótt féð til fram- kvæmdanna sé lagt fram af öðrum aðilum í byrjun. Um bátakjarasamninga Þingið telur að ekki verði kom ist hjá því, að endurskoða gild- andi bátakjarasamninga og felur því væntanlegri sambandsstjórn að kalla saman til ráðstefnu stjórnir og eða fulltrúa þeirra félaga sem aðilar eru að samn- ingunum. Þingið vill í því sam- bandi benda á eftirfarandi atriði er það telur sérstaklega þörf breytinga: 1. Að hlutaskiptin verði athug- uð og þá sérstaklega á bátum af stærðinni 30—50 smálestir. 2. að krafan um frítt fæði skip verja á bátum verði borin fram og henni fylgt fast eftir. 3. að kauptrygging hækki. 4. að slysatrygging verði hækk uð að mun og verði jafnhá trygg ing fyrir alla sjómenn, ourtséð frá því hvaða þátt sjómennsku þeir stunda. íiar vörur frá Hollandi Vetrarkápur, dragtir, nælonpelsar. Terylene kápur með loðfóðri. Rúskinnskápur, rúskinnsdragtír, rúskinnsjjakkar. Loðhúfur, töskur og hanzkar. Benharð Laxdal Kjörgarði. 5. að ákvæði um sumarleyfi síldarsjómanna verði komið inn í síldveiðisamninga í svipuðu formi og um gat í orðsendingu Sjómannasambandsins frá 19. maí 1965. 6. að hlutaskipti verði hækkuð til áhafnar á þeim síldveiðibátum er ekki hafa aflað sér hinna nýju kraftblakka og nýjustu síldarleit artækja. Um aukinn skatta- og útsvarsfrá- drátt fyrir fiskimenn: Þingið felur væntanlegri stjórn sambandsins enn á ný að vinna að því að fiskimenn fái aukinn frádrátt við álagningu skátts og útsvars og bendir á, í því sam- bandi, að eðlilegast sé, að skatt ar verði teknir jafnóðum af tekj- um, og er meiri nauðsyn á því fyrir fiskimenn en aðrar atvinnu stéttir, þar sem tekjur þeirra geta verið mjög misjafnar frá ári til árs. Um netafjölda í sjó. Þingið telur að nauðsynlegt sé, að reynt sé með öllum tiltækum ráðum, að koma í veg fyrir að bátar séu með fleiri net í sjó en heimilt er skv .gildandi reglu- gerð. Felur því þingið væntanlegri sambandsstjórn, að beita sér fyrir því að reglugerðin sé end- urbætt og gerð skýrari og ákveðn ari en hún er varðandi heimilað- an netafjölda og ákvæði sett í reglugerðina um stór viðurlög og sektir ef útaf er brugðið. Þá telur þingið og beinir því til væntanlegrar ráðstefnu um báta kjörin að reynt verði að koma í samninga strangari viðurlögum í kjarasamninga t.d. með upptöku afla úr veiðiferð til viðkomandi sjómannafélags ef út af er brugðið. Um ferskfiskmat. 5. þing S.S.Í. ítrekaði samþykkt ir síðasta þings sambandsins um kröfu um að matið sé framkvæmt um leið og fiski er landað og gerir kröfu til að matið sé fram- kvæmt í affermingarhöfn en sé það ekki gert, telur þingið að sjómenn eigi að gera kröfu til að allur aflinn sé reiknaður á verði 1. flokks. Þá telur þingið nauðsynlegt að sami matsmaður sé ekki lengi í sömu verstöð heldur sé þeim skint frá einni verstöð til annarr- ar eftir vissan tíma eftir því sem unnt er. Sannreynið með DATO á öll hvít gerfiefni Skyrtur, gardínur, undirföt ofl. halda sínum hvíta lit, jafnvel það sem er orðið gult hvítnar aftur, ef þvegið er með DATO. Um viðgerðarmenn síldarleitar- tækja. Þingið felur væntanlegri sam- bandsstjórn að vinna að því við sjávarútvegsmálaráðuneytið og aðra aðila, að á síldarleitarskip- unum svo og síldarflutningaskip- unum verði staðsettir menn er geti annast viðgerðir á síldar- leitartækjum svo og öðrum ná- kvæmum tækjum veiðiskipanna svo þau þurfi ekki að sigla til hafnar, oft langar leiðir, til að leita viðgerða og það jafnvel þótt um smábilanir sé að ræða. Um sölu á síld miðað við fitu. 5. þing Sjómannasambands ís- lands telur nauðsynlegt að at- hugað sé hvort ekki sé rétt, að samræma verði á síld til bræðslu þannig, að hætt verði að verð- leggja síld sérstaklega fyrir Suður- og Suðvesturland og í annan stað fyrir Norður- og Austurland, heldur verði unnið að því, að verðleggja síld eftir fitu á líkan hátt og gert er í Noregi enda verði Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins falið að annast reglulega fitumælingar og komið verði á mælingarkerfi sem bæði kaupendur síldar og seljendur geti treyst. Þingið felur væntanlegri stjórn sambandsins, að vinna að því að þessu fyrirkomulagi verði komið á, ef rétt sýnist að lokinni athugun. BOIMDEX BOIMDEX ER ÞAD BEZTA Vesturgötu 21,- Reykjavík - Sími 21600 Frá öryggismála- og allsherjar- nefnd. 5. þing S.S.f. minnir á fyrri samþykktir sínar um áskorun þess efnis að í samráði við sjó- mannasamtökin verði ráðnir í það minnsta tveir menn til skipa- eftirlitsins er hafi það verkefni að framkvæma skyndiskoðanir í skipum, sérstaklega með það í huga að hafa eftirlit með því, að öll öryggistæki séu í því lagi er lög og reglur mæla fyrir um. Þingið viðurkennir og þakkar jafnframt að ríkisstjórnin heíir að nokkru orðið við áskorunum þingsins í þessu efni með því að fyrrverandi skipstjóri hefir ver- ið ráðinn til eftirlits en skoðun þingsins hefir verið sú, að nauð synlegt sé, að minnst tveir menn séu ráðnir til þessa sér- staka eftirlits. Fundurinn skorar því hér með á viðkomandi ráðuneyti að s.iá svo um, að annar maður til við- bótar verði þegar í stað ráðinn til þess eftirlits og þá helzt mað- ur með þekkingu á vélum. í trausti þess að orðið verði við þessum tilmælum og áskor- unum bendir fundurinn á, að til þess eftirlitið verði að notum verði fjárveiting til skipaeftir- litsins að vera það rífleg að báð um þessum mönnum sé fengin bifreið til nauðsynlegra ferða- laga. Þingið skorar á stjórn S.S.f að beita sér fyrir því að komið verði upp trúnaðarmannakerfi samtakanna í sem flestum ver- stöðvum og á sem flestum skip- um sem verði eftirlitsmanni þess um til aðstoðar. 5. þing S.S.f. skorar á milli- þinganefndir þær sem nú fjalla um öryggismál sjófarenda að flýta störfum sínum sem mest og ítrekar í því sambandi fyrri samþykktir um ráðstafanir til þess að samband megi hafa við íslenzk fiskveiði- og flutninga- skip á ákveðnum tíma sólar hringsins, svo fylgst verði með hvar þau eru stödd hverju sinni, svo hjálp megi berast hið fyrsta, ef slys ber að höndum eða skipi hlekkist á. Þingið harmar það sleifarlag sem orðið hefir hjá Landssima íslands á því að útvega opnum skipum og minni vélbátum hent- ugar og ódýrar talstöðvar og endurtekur fyrri kröfur um að úrbætur á þessu sviði verði gerð ar hið fyrsta. 5. þing S.S.Í. skorar á skipa- eftirlit ríkisins, að fylgja fast eftir reglum um hleðslu síldar skipa, og krefst þess að mál sem rí. vegna ofhleðslu verði taf- arlaust tekin til dóms af þar til skipuðum dómstóli og vítir harð- lega þann drátt, sem orðið hefir á rekstri þeirra mála. Þá vill þingið benda á, að mjög tímabært er orðið að eftirlit sé haft með sjóbúnaði þeirra skipa, sem láta úr íslenzkum höfnum, það er að frá lestaropum sé geng- ið tryggilega svo og þilfarsfarraú 5. þing S.S.f. beinir þeim til mælum til borgaryfirvaldanna í Rvík, að þau beiti sér fyrir bygg- ingu sjómannastofu og verka- mannaskýlis á athafnasvæði hinn ar nýju Sundahafnar í Reykja- vík, og framkvæmdir hefjist það fljótt, að hún geti tekið til staifa um leið og höfnin verði tekin 1 Sjómannasamband íslands og notkun. Þá skorar fundurinn á Farmanna- og fiskimannasam- band íslands, að stuðla að þvl sameiginlega að komið verði upp mótökustöðvunum á Austurlándi Sjómannastofu í stærstu sildar- svo og Vestmannaeyjum og ví'ð- ar, þar sem mörg skip landa afla og eða hafa viðlegu. Þá vill þing- ið þakka hafnarstjórn Reykjavik ur fyrir framkvæmdir um land- ganga við togarabryggjurnar en bendir á að eins þarf að gera við þær bryggjur sem bátaflotmn liggur við í höfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.