Morgunblaðið - 09.11.1966, Page 4

Morgunblaðið - 09.11.1966, Page 4
4 MORCUNBLADID Miðvikudagur 9. nðv. 1966 BÍLALEIGAN FERÐ SfAff 35135 OC 34406 5ENDU M MAGiMÚSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190 ff eftirioicun slmi 40381 - 8ÍM11-44-44 mmim Hverfisgötu 103. Daggjald 300 og 3 kr. ekinn km. Benzín innifalið. Sími eftir lokun 31100. LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzín innifalið í leigugjaldi Sími 14970 BIIALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Simi 35135. BILALEIGA S/A CONSTJL CORTINA Sími 10586. 'jz Vínveitingar og lögin J. J. skrifar; „Undanfarið hafa áfengis- var.damál unglinga verið mjög á dagskrá í blöðum, út- varpi og manna á milli Nú liggur fyrir Alþingi frum- varp um breytingar á áfengis- lögum. Þar virðist mér vera að alatriðið, að unglingar fái að- gang að vínveitingahúsum á laugardagskvöldum, allt að þremur í einu og eigi það að vera svokölluð „þurr kvöld“, eftir því sem sjö manna nefnd- in kallar það. Nefnd þessi hef- ur setið að störfum í tvö ár. Vafalaust er þar margt gott að finna. En sú ráðstöfun að af- henda unglingum nokkur vín- veitingahús á hverjum laugar- degi finnst mér furðuleg. 1 fyrsta lagi vegna þess, að það hefur sýnt sig, að bæði í Reykja vík og nágrenni hennar eru mörg hús opin, sem unglingar hafa aðgang að og eru án vín- veitinga. Allir, sem eitthvað þekkja til þessara mála vita, hvort þau eru eins vínlaus og til er ætlast. Nei, því miður er það sorgleg staðreynd að svo er ekki. Og þó að þessir sömu unglingar fengju vínhúsin til umráða yrði ástandið sízt betra. Einnig finnst mér frá- leitt að laða unglinga að þeim húsum, sem eru sérstaklega innréttuð fyrir vínveitingar og framleiðslu á mat, og eingöngu hafa verið ætluð fólki, sem hef ur náð lögmætum aldri, bæði innlendu og útlendu. Þætti mér ekfci undarlegt, að mörg- um útlendingum fyndist und- arlegt að fara hús úr húsi og fá ekki hinar algengustu veit- ingar. Unglingar, sem ég hefi átt tal af við um þessi mál, eru ekki hrifin af þessum breyting um og telja þær sízt til bóta. Einnig er það að athuga, að vínveitingahúsin eru alls ekki útbúin fyrir skemmtanahald unglinga, sem eru oft rúmfrek ari og fyrirferðameira eins og gengur með þann aldur. Einn- ig eru í öllum þessum húsum vínstúkur, sem eru í mörgum tilfellum allt að því heilar hæð ir. Þá er og það að athuga, að það er stórfelld athafnaskerð- ing fyrir veitingamenn að segja þeim fyrir verkum hvern ig þeir eigi að reka sín hús. Engum fyndist undarlegt þó að svona nokkuð kæmi fyrir í kommúnistaríkjum, en þar sem við lifum nú einu sinni í vestrænu lýð- ræðisríki er þetta furðu- legra. Þá er og mjög líklegt, að áfengisneyzla í heimahús- um myndi færast mjög í auk- ana, ef fólk fengi ekki aðgang að hinum almennu skemmti- stöðum. Veitingamönnum hef- ur verið veitt fullt leyfi og þeim sett skilyrði sem þeir hafa uppfyllt með því að leggja í mikinn kostnað. Ég held, að þetta margumtalaða unglinga- vandamál sé ekki eins alvarlegt og af er látið. Æskan í dag er mjög dugleg og myndarleg og yfirleitt til fyrirmyndar. Nú eru víða haldnar samkomur fyrir unglinga í skólum borgarinn- ar og einnig fá framhaldsskól- ar næg hús til árshátíða og annarra slíkra skemmtana. Ég vil að lokum fagna þeim um- mælum dómsmálaráðherra um að þörf væri á að byggja sama stað fyrir æskufólk. Það er eina raunhæfa í þessum mál- um, og ætla ég að vona að hæstvirtir alþingismenn hugsi sig vel um áður en þeir greiða atkvæði í þessu umrædda máli. J. J.“ Ég er ekki frá því að ein- hvers misskilnings gæti í brefi J. J.. í lagafrumvarpinu um breytingu á áfengislögunum stendur: „Hvert veitingahús, er vín- veitingaleyfi hefur, skal halda uppi fullkominni þjónustu án vínveitinga, a.m.k, eitt laugar- dagskvöld af hverjum fjórum, eftir kl. 8 síðdegis o.s.frv." Hér ekki talað um þrjú hús samtímis. En hafi mér sézt yfir eitthvað í frumvarpinu, sem bréfritari byggir mál sitt á, þá væri að sjálfsögðu fús til að leiðrétta það. Ennfremur reiknar bréfrit- ari aðeins með að unglingar sæki hina „þurru“ dansleiki, en aðstandendur frumvarpsins gera sér sennilega vonir um að fullorðið fólk muni engu að síður láta sjá sig þar. Hins veg ar greinir menn ljóslega á um það, hvort til sé „fullkomin þjónusta án vínveitinga“ eins og það er orðað í frumvarp- inu. ■jAr Suðurgata Bíógestur skrifar: „Elztu götur borgarinnar eru Aðalstræti og Suðurgata Saga þeirra nær hvorki meira né minna en aftur til þess tíma að Ingólfur Arnarson bjó búi Sínu við Aðalstræti! Þó svo sé er Suðurgatan enn eigi fær gangandi fólki í vætusamri tíð, nema þá í gúmmístígvélum og svo var á sunnudaginn. Svo sem kunnugir vita er gangstétt in aðeins öðru megin götunn- ar Þar sem hún liggur með- fram hinum gamla kirkjugarði borgarinnar. Þó gatan sé svona gömul, er gangstéttin á þessu svæði enn eins og hún. var um aldamótin og jafnvel lengra aftur. Á sunnudaginn var aur- bleytan slík á þessum kafla, að ógerningur, var að fara þar um án þess að vera í gúmmí- stígvélum eða skóhlífum. Strax og frostið fór úr jörðu, mynd- aðist skjódjúp aurbleyta á gangstígnum meðfram kirkju- garðinum. Það er sönnu nær að tala hér um gangstíg en gangstétt. Urðu vegfarendur að ganga eft ir sjálfri götunni innan um bíl ana sem þarna er oft og iðu- lega ekið í “loftinu" af tauga- spenntum ökumönnum. Heyrði ég það á tali gangandi fólks, sem var að koma úr Háskóla- bíói, að réttast væri að loká götunni vegna þessarar slysa- hættu. Þessum línum er komið á framfæri við lögreglu- og borg aryfirvöld í þeirri von að gerð ar verði ráðstafanir til þess að gera gangstíginn meðfram kirkjugarðinum, Suðurgötu- megin, færan gangandi á venju legum dönskum skóm í bleytu sem þurru veðri. ~ Kr. 2,50 á ekinn km. #■^^^300 kr. daggjald RAUÐARÁRSTÍG 3f SÍMI 220 22' Fjaðiir, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Sími 24180. BO SC H Háspennukefli 6 volt. 12 voit. Brœðurnir Ormsson Lágmuia 9* — Sinu 38820. Hafnarfjörður Okkur vantar nokkra verkamenn í Fiskiðjuverið. Mikil vinna framundan. — Hafið samband við verkstjórann, símar 50107 og 50678. Skrifstofustúlka Heildverzlun í Miðbænum óskar að ráða skrifstofustúlku til vélritunarstarfa. — Verzlunarskóla- eða hliðstæð menntun æskileg. — Umsóknir sendist afgr. Mbl, merkt: „8074“. Hafnarfjörður Stúlkur, 25—35 ára, óskast til iðnaðarstarfa til jóla. — Umsóknir sendist í pósthólf 150, Hafnarfirði. Jikriislofuhúsnæði óskast Okkur vantar skrifstofuhúsnæði 60—70 ferm. — Þarf ekki að vera í Miðborginni. — Gjörið svo vel að hringja í síma 14690. ítölsk Ieður kuldastígvél nýkomin. Sólveig Hafnarstræti 15. Mólningarverkstæði Óskum eftir manni á málningaverkstæði okkar. Sími 22240. Egill Vilhjálmsson hf. Framtíðarstaða Staða fulltrúa hjá Verzlunarráði íslands er laus til umsóknar. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og starfsferil, óskast sendar skrifstofu ráðsins, Laufásvegi 36, fyrir 13. nóvember nk. íbúð óskast ó leigu 4ra herb. íbúð óskast til leigu nú þegar. Upplýsingar veittar í síma 21484 frá kl. 9—5.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.