Morgunblaðið - 09.11.1966, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.11.1966, Blaðsíða 26
6JV an v at y V ii ft* á+ á* á á* uiiiuvii*.uuagur y. nov. 'íyoo Oluggað í afrekaskrá Rvíkinga Á AFREKASKRÁ frjálsíþrótta- manna í Reykjavík á liðnu sumri kemur í ljós, að í kast- greinunum er árangurinn hvað jafnastur, en jafnframt má kannski orða það á annan hátt — að hann sé þar jafnlélegastur. í kastgreinum er mjög langur vegur frá því að nokkur Reyk- víkingur myndi með sínu bezta afreki í sumar komast á blað i nokkurri keppni erlendis. í kúluvarpinu er Guðmundur Hermannsson í sérflokki og meira en hálfum öðrum meter á undan næsta manni. En með sína 16.22 m skortir hann rúm- an hálfan meter á hið 16 ára gamla met Husebys, sem eit sinn var Evrópumet, en myndi nú ekki nægja til úrslitakeppni á nokkru stórmóti. Næstir Guðmundi koma Er lendur Valdimarsson 14.58, Jón Pétursson 14.48, Kjartan Guð- jónsson 14.37 — og síðan kemur rúmlega metersbil í kastlengd, en þá kemur Arnar Guðmunds- son (sonur Guðm. Hermansson- ar) með 13.32. Meðaltal 10 beztu er 13.747. í kringlukastinu er Erlendur Valdimarsson efstur á blaði í Reykjavík með 48.20, en síðan Þorsteinn Löve með 47.58, Jón í>. Ólafsson 46.56, Guðm. Her- mannsson 43.54 og Valbj. Þor- láksson 41.93. Meðaltal 10 bezt.u er 42.884. í spjótkasti hafa tveir náð 60 m köstum, sem í 2—3 áratugi hefur verið eins og einhver ó- yfirstíganlegur þröskuldur spjót Dynamo Kiev vann „tvöfolt" • Knattspyrnuliðið Dynamo Kiev vann „tvöfalt“ í sovézkri knattspyrnu í ár með því að vinna Torpedo Mskva í úrslitum bikarkeppninnar 2—0 í gær- kvöldi. Leikurinn fór fram í Moskvu og voru áhorfendur 60 þúsund. f hálfleik stóð 1—0. Kiev liðið hafði yfirburði í léiknum. Fyrr í sumar unnu þeir meistarakeppnina og höfðu tryggt sigur sinn þegar nokkrar umferðir voru eftir af keppn- inni — svo öruggir voru þeir. Næsta ár mun Kiev liðið taka þátt í Evrópukeppni meistara- liða, en hitt liðið í bikarúrslit- unum, Torpedo Moskva, mætir í Evrópukeppni bikarmeistara. kastara. Valbjörn er efstur með 63.91 m og Hjörgvin Hólm með 60.61. Næstir koma svo Kjartan Guðjónsson 58.82, Páll Eiriksson 57.35 og Gylfi Snær Gunnars- son 53.98 og Ólafur Guðmunds son 53.31. Meðaltal 10 beztu er 54.13 — og ná því þó aðeins 4 menn. f sleggjukastinu eru 50 metr- arnir álíka erfiðir okkar mönn um og 60 m í spjótkastinu. Að- eins tveir eru yfir 50 m Jón Magnússon 51.79 og Þórður B Sigurðsson 50.55. Næstir koma Þorsteinn Löve 48.85, Friðrik Guðmundsson 44.95 og Óskar Sigurpálsson 42.80 — og fleiri ná ekki meðaltali 10 bezti, sem er 42.604 m. Eins og sjá má þarf því átaks við í kastgreinunum til að gera afrekaskránna þannig að hún verði plagg sem æskilegt er að sýna út á við. Þarna sem svo víða annars staðar koma tug- þrautarmennirnir mjög við sögj, en þrautirnar eru okkar beztu greinar eins og vikið verður að síðar. Mega ekki ræða við blaðamenn ENSKA liðið Newcastle Utd að- varaði liðsmenn sína í gær og kvaðst mundi sekta þá um 100 pund, 12000 kr., ef þeir ættu við- töl við blaðamenn. Þetta er algjörlega nýr siður í enskri knattspyrnu. Það er orð- ið allalgengt að liðsmenn reki raunir sínar við blaðamenn ef þeir eru t.d. teknir úr A-Iiði um stund, og heimti á opinberum vettvangi að verða settir á sölu- lista. Það var forseti félagsins, Westwood lávarður, sem til- kynnti aðvörunina. Fylgdi hún í kjölfar óverulegrar deiiu milii félagsins og Lyn Davies mið- herjans, sem á dögunum var keyptur til Newcastle fyrir 80 þús. pund. Frúorleikfimi ÍR hefur byrjað æfingar fyrir kvenfólk í leikfimi. Frúarleik- fimi félagsins er í Langholts- skóla og eru æfingar á þriðju- dögum og fimmtudögum kl. 8,30. Kennari er Aðalheiður Helga- dóttir íþróttakennari. ffi :jyggf$m ðflugt starf hjá HSÞ 2 isl. met og 27 hérabsmet i frjálsum og 3 knattspyrnulið í keppni SUNNUDAGINN 23. okt. s.l. boðaði stjórn HSÞ til fundar að Laugum með formönnum sambandsfélaganna og fleiri gestum. Formaður HSÞ Óskar Ágústsson setti fundinn og tal- aði meðal annars um starfsemi sambandsins, fjármál og fl. Verður nú rakið það helzta sem kom fram á fundinum. Haldin voru 4 íþróttamót að Laugum og 1 íþróttamót í Kinn, þar sem vígður var nýr íþrótta- völlur, ennfremur tók HSÞ þátt í mörgum mótum utan hér- aðs. Á fundinum var lögð fram 10 manna afrekskrá í frjálsum íþróttum, kom þar fram að sett höfðu verið 27 héraðsmet, þar af 2 íslandsmet og 117 persónu- leg met. íslandmetin voru þessi: Sigríður Baldursdóttir setti met langstökki án atrennu stökk 2,52 og Lilia Sigurðardóttir setti met í 80 m. grindahlaupi, hljóp á 12.7. Knattspyrna var mikið stund- uð á félagssvæðinu voru send 3 lið á norðurlandamótið í II. deild og varð lið umf. Mývetn- ings í fyrsta sæti. Handknattleikur er lítið stund aður nema á Húsavík, sent var lið frá Völsung á íslandsmeist- aramót í II. flokki kvenna. Sundáhugi er mikill meðal unglinga í sýslunni og eigum við þar margt efnilegt sundfólk. Haldið var héraðsmót í sundi á Húsavík auk þess sem sundfólk okkar fór til keppni út úr hér- aði. Um 600 manns syntu á sund I stöðum sýslunnar í -norrænu ^ sundkeppninni. Haldið var bindindismót í Vagla skógi um verzlunarmannahelg- ! ina, ásamt öðrum aðilum úr ' Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum og Akureyri, tókst þetta mót mjög vel. Fjárhagur HSÞ er ekki sem beztur eins og er. Skuld er nú um kr. 17.600,00. Var mikið rætt um fjáröflunarleiðir og meðal annaxs útbýtti stjórn HSÞ á fundinum reglugerð fyrir æfi- | félaga HSÞ, hún er í aðalatrið- um á þá leið að allir þeir sem orðnir eru 65 ára geti gerzt æfifélagar HSÞ gegn 1000 kr. gjaldi. Margt fleira var rætt á fundinum m. a. um útgáfu árs- rits og fl. Dvöldu menn í góðu yfirlæti og rausnarlegar veiting- ar á heimili formanns til kl. 1, er fundi var slitið. Fram, Valur * og IX unnu ÞRÍR leikir í meistaraflokki karla í Rvíkurmótinu fóru fram í gærkvöldi. Úrslit urðu: Fram — Víkingur 15- 9 Valur — Þróttur 14-10 IR — KR 20-16 OFT má sjá góð tilþrif hjá ! handknattleiksstúlkunum. Hér er Fram-stúlka að skora ; lijá Ármanni. M0LAX BÚLGARÍA vann Júgóslavíu í knattspyrnulandsleik í Sofíu á sunnudag með 6-1. Sýndi heimaliðið mjög góðan leik og var Iið þeirra skipað 9 af þeim mönnum sem þátt tóku í HIM í sumar. Lyn varð norskur bikar- meistari í knattspyrnu. í úr- slitum lék liðið við Rosenborg (liðið sem tvívegis sigraði KR í fyrra með 3-1 í Evrópubikar keppni bikarmeistara). Lyn vann með 9-0 og sýndi yfir- burði á blautum og hálum velli. Lokomotiv (Leipzig) er komið í 3. umferð messu- borgarkeppni Evrópulanda. Sigraði liðið í gær belgiska liðið Liege með 2-1 á heima- velli þess í Liege. Fyrri leikn- um lauk með 0-0. Aveiro, Porúgal, 2. nóv — AP Frá því var skýrt í dag, að portúgalskur knattspyrnudóm ari og tveir línuverðir væru hér á sjúkrahúsi vegna meiðsla, sem þeir hefðu hlot- ið af hendi óánægðra knatt- spyrnuunnenda á mánudag. Fram hafði farið knattspyrnu leikur milli félaganna Estarr- eja og Alba, sem síðarnefnda liðið vann 1-0. Hópur stuðn- ingsmanna Estarreja sat síð- an fyrir dómaranum og línu- vörðunum, er þeir héldu burt frá vellinum með framan- greinum afleiðingum. Arangur í kastgreinum jafnastur, en slakur Opnum i dag kl. 1,00 með nýjum vörum í nýstandsettu húsnæði. Vara sú er skemmdist í bruna hefur verið seld og fer því engin brunaútsala fram. SKEIFAN Kjörgarði — Símar 16975 og 18580. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.