Morgunblaðið - 09.11.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.11.1966, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 9. nóv. 1966 MORCUNBLADIÐ 19 Erlingur Pálsson Kveðjn Fæddur: 3. nóv. 1895. Dáinn: 22. okt. 1966. En orðstírinn lifir, þótt maðurinn deyi. ÞO NOKKUÐ sé nú liðið frá andláti og jarðarför míns kæra yfirmanns og félaga, Erlings Pálssonar, fyrrverandi yfirlög- regluþjóns, þá langar mig samt með örfáum línum að færa hon- um mína hinztu kveðju á þess- um degi, því það var einmitt í dag, sem hann sjálfur ætlaði að senda hlý orð mér til handa. En enginn má sköpum renna, því sízt af öllu grunaði mig, er fund um okkar bar saman skömmu áður en hann lagðist hinztu leg- una og gerðum þá að gamni okkar, eins og svo oft áður, að það yrði okkar seinasta samtal hérnamegin grafar. Og nú, þeg- ar minn kæri Erlingur er horf- inn sjónum okkar, reika um í huga mírium ótal minningar frá okkar mörgu samstarfsárum. Og þar sem minningarnar eru mér allar góðar og kærar, þá veit ég naumast hvað af þeim ég á að gera hér að umtalsefni, því að rita má um Erling frá svo mörg um hliðum, svo margþættur var hann og vel samansettur. Það væri til dæmis gaman að vera þess umkominn að geta rætt um hagyrðinginn eða norrænumann inn og sundgarpinn mikla, Erl- ing Pálsson, en hann var skáld gott, þegar hann vildi það við hafa, og hefði máske komizt langt á þeirri braut, ef hann hefði haft aðstöðu til að þroska þá gáfu. Og unun var að heyra hann þylja fornsögurnar, hversu skýr og lifandi frásögnin var og skilningurinn djúpur á söguhetj unum. Þá var Erlingur, eins og alþjóð er kunnugt fyrstur til að synda Drangeyjarsundið á eftir Gretti Ásmundssyni og liðu hvorki meira né minna en rúm 900 ár, frá því að Grettir synti umrætt sund og þar til Erlingur synti það, og verður manni því á að halda, að íslendingar á þess um 900 árum hafi talið það með öllu óhugsandi, að hægt væri . að leika þetta eftir Gretti, þótt vitað sé, að íslendingar áttu góða sundmenn á öllum tímum. Og fyrir það eitt að hafa verið fyrst ur manna til að rjúfa 900 ára kyrrð á Drangeyjarsundi og þar með sanna sundafrek Grettis, munu íslendingar lengi minnast Erlings Pálssonar. En þar sem mig brestur getu til að ræða frekar um skáldskap, sagnfræði eða sundíþrótt, þá mun ég staldra ofurlítið við hjá þeim Erlingi Pálssyni, sem var minn yfirlögregluþjónn í meira en 25 ár. Og eins og gefur að skiija, kynntist ég honum allná- ið á svo iöngum samstarfstíma. Minnisstæðastur er hann mér frá árunum 1932 til 1935, því að mér finnst, að það hafi verið hans rismesta tímabil sem lög- reglustjórnanda. Auk þess sem hann var þá yfirlögregluþjónn hinnar föstu bæjarlögreglu, þá var honum einnig falin stjórn á fjölmennu varaliði sem þá var lögreglunni til aðstoðar, ef á þurfti að halda, og sýnir það hið mikla traust, sem þáverandi lögreglustjóri, Hermann Jónas- son, bar til Erlings Pálssonar, enda brást hann ekki því trausti, því að hann var snjall og ákveð- inn yfirmaður, en þó mildur og skilningsríkur, þegar því varð við komið, og reyndi ævinlega að fá það bezta út úr hverju máli, sem til hans kom, en þau voru að sjálfsögðu mörg og marg vísleg, og sum máske viðkvæm og vandasöm og ekki nema fyr- ir snilling að fást við. Þá eru enn ótalin hin mörgu Störf, sem Erlingur innti af hönd um í félags- og kjaramálum lög reglunnar í Reykjavík en hann var einn af stofnendum Lög- reglufélags Reykjavíkur og for- maður þess í 25 ár og sýnir það einnig hið mikla traust, sem lög- reglan bar til hans í þeim mál- um sem og öðrum, enda var það óhætt, því að vart mun finnast meiri málafylgju- og samninga- maður en Erlingur var, og bar þar margt til, svo sem glögg- skyggni hans á mönnum og mál- efnum, samfara mælsku og mikl um persónuleika. Og þó máske surnt af hagsmunamálum lög- reglunnar hafi ekki öðlazt já- kvæða afgreiðslu í formannstíð Erlings Pálssonar, þá held ég nú samt, að lögreglan sé mér öll sammála um, að betri fulltrúa hafi hún ekki átt í sínum mál- um en hann, og enginn veit, hvað átt hefur, fyrr en mistt hef- ur. En maður kemur í manns stað, því að við yfirlögregluþjóns störfum í Reykjavík hafa nú tek ið ágætir menn, sem munu i hvívetna vera þeim vanda vaxn ir. Um hin miklu störf Erlings Pálssonar í íþrótta- og þó eink- anlega sundmálum þessa lands mætti auðvitað margt rita hon- um til verðugs lofs, en það læt ég þeim eftir, sem með hon- um störfuðu að þeim málum. Ættir Erlings get ég því miður lít ið rakið, en það er og mun hafa verið gott og gáfað fólk, sem fengið hefur í arf norræna reisn og var Erlingur gott dæmi þess. Eiginkonu hans, frú Sigríði, og öllum í íjölskyldu hennar færi ég samúð mína. Að síðustu kveð ég svo minn kæra yfirmann og þakka honum öll samstarfsárin og vináttu hans í minn garð, sem aldrei féll skuggi á. Ennfremur þakka ég alla þá fyrirgreiðslu, sem hann lét mér ávallt í té, óverðskuldað, þegar mest á reyndi. Og illa hefi ég þá þekkt Erling minn Pálsson, ef hann verður ekki framarlega í hópnum hin- um megin, þegar við gamlir starfsfélagar hans komum þang- að, og þá reiðubúinn að greiða þar götu okkar, ef með þarf, eins og hann var ætíð hér með- al vor. Kjartan Bjarnason. Erlingur Pálsson er fa'linn frá -, fjölskyldu-horfinn-sinni. Áður fyrri ég honum hjá hafði ein beztu kynni. Alltaf í mínu minni mun ég hann glæstan sjá. Lögregluskóla er lukum, þá löngum var kempan getin. Söguljóðum hann sagði frá, sem voru alltaf metin. Forboðin, leiðust letin leitaði fæsta á. Karlmannlegur á velli hann var vörður íslenzkra laga. Æðruieysið hann á sér bar, ævinnar sinna daga. Líf hans er liðin saga —, lýður fær ekkert svar. Lögreglustarfið hann mikils meir en oss skyldi gruna. Orkað svo miklu í því gat eins og víst flestir muna. Fékkst ei ólögum una —, alla tíð við það sat. Erlingur heitinn var alla unnandi góðra siða. Er hann háði sitt ævistríð aldrei baðst kappinn griða Hann vildi hugann friða, hataði last og níð. Gengið er var um götur og gott var honum að mæta. mat, Hagsæld í vorri höfuðborg hann vildi jafnan bæta. , Hann kunni hófs að gæta. Horfinn —, við þjóðarsorg. Hann, sem æ átti svo heil- steypt mál, tíð horfir nú til oss niður. Guð veri með hans göfgu sál, geymi hann líknar iriður. Enginn um annað biður —, orð geta skapað tái. torg, Sigurgeir Þorvaldsson, lögregluþjonr. Öllum þeim mönnum sem iðka sund, er hann í fersku minni. Ljúft var honum að ljá því stund, lífsins á göngu sinni. Oft var sem eldur brynni allri í kappans lund. Flestum vildi hann leggja sitt lið, lifsins á hálum brautum. Oft þurfti hann að amast við alls konar sökunautum. Lífsins í þröm og þrautum, þráði hann réttlætið. Erlingur sagði mörg orðin hlý, ýmsum til sálubótar. Honum tókst að hamla gegn því, hugsanir gerðust ljótar —. Allt, sem mennina mótar, minningum geymist í. Höfum fengið niikið úrval af KJÓLAEFNUM Komið meðan úrvalið er mest. Austurstræti 9. Skinn - Skinn Mikið úrval af sútuðum gærum, kálfs- skinnum og trippahúðum. -- Hagkvæmt verð. -- Kjörnar gjafir til vina yðar erlend- is. -- Sendum um allan heim. Skinnasalan Ullarvöruverzlunin FRAMTÍÐIN. Laugavegi 45. t Hugheilar þakkir fyrir samúð og vináttu vegna fráfalls STEFÁNS Ó. BJÖRNSSONAR frá Laufási. Edda Svava Stefánsdóttir, John S. Magnússon, Hafsteinn Þór Stefánsson, Halla Ólafsdóttir, Jón Baldvin Stefánsson, Sif Aðalsteinsdóttir, Kristín María Kristinsdóttir, Aðalheiður Thorarensen, Vilborg Oddný Björnsdóttir, Jón Sigurður Björnsson. Kópavogur Sjáifstæðiskvennafélagið Edda, Kópavogi. Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 15. nóvember kl. 20,30 í Sjálfstæðishúsinu, Borgar- holtsbraut 6. Venjuleg aðalfundarstörf. Rætt um vetrarstarfið. Sýnd litkvikmynd um biómarækt og skrúðgarða. Félagskonur fjölmennið. Stjórnin. Glœsilegt einbýlishús Höfum til sölu mjög gott einbýlishús við Lang- holtsveg. Húsið er á tveim hæðum. Á neðri hæð eru þrjár stofur og eitt herbergi auk eldhúss, vinnuherbergis og snyrtingar. Á efri hæð eru 5 herbergi og bað. — Stórar geymslur og þvotta- hús í kjallara. — Rúmgóður bílskúr. — Lóð snyrtilega frágengin og ræktuð. 3 ja herb. ibúðir v/ð Sœviðarsund Til sölu eru nokkrar fokheldar 3ja herb. íbúðir við Sæviðarsund. íbúðirnar eru allar með sér inngangi þvottahúsi og geymslu. — Góðar svalir. Bílskúrar geta fylgt. Eskihlíð Höfum til sölu mjög góða 4ra herb. íbúð á þriðju hæð við Eskihlíö. 3 svefnherbergi, stofa, eldhús og bað. Að auki fylgir rúmgott herbergi í kjaliara. — Góðir greiðsluskilmálar. FASTEIGNA SKRIFSTOFAN i BJARNI BEINTEINSSON HDL. JÓNATAN SVEINSSON LÖGFR. FTR. AUSTURSTRÆTl 17 (HÚS SILLA OG VALDA) SÍMI 17466

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.