Morgunblaðið - 15.11.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.11.1966, Blaðsíða 3
Jt'JL'IOJ UU.Ct£, Oi-i uco. 1ÖUU Híti tk é Vf 0J> Jfa ** á# á tá* 0!ympiuskákmótið: Hafa unnið eina skák gegn Rúmenum, en 3 í bið Eru í 10 — 11 sæti ásamt Dönum 5. Tékkar 20 og 1 b 6. Argentina 19% og 2 b ' 7. Búlgaría 19% og 1 b 8. Rúmenía 17%og3b 9.—10. ísland og Danmörk 13 og 3 b 12.—13. Spánn og A-Þýzka. 12% og 4 b 14. Noregur 8% og 1 b 15. Kúba 7% og 2 b Skák Friðriks Ólafssonar gegn Miagmarsuren (Mong- ólíu) úr 3. umferð undanúr- slita á Ólympíuskákmótinu í Havana: í NÍUNDU umferð Olympíu- skákmótsins á Kúbu tefldi Island gegn Rúmenum. Lauk aðeins einni skák, og var það Guðmundur Sigurjónsson sem sigraði Drimer á 4. borði, en aðrar skákir fóru í bið. Eru íslendingar þá í 10-11 sæti ásamt Dönum. Sovétríkin halda forystunni sem fyrr, en Júgóslavar og Bandaríkja- menn fylgja fast á eftir. í sjöundu umferð tefldu ís- lendingarnir við Sovétmenn, og eins og áður hefur verið skýrt frá, gerðu þeir Friðrik og Guðmundur Pálmason jafntefli, en Ingi og Gunnar Gunnarsson töpuðu báðir bið- skákum sínum. Útkoman varð því 3 vinningar gegn einum Sovétmönnum í vil, sem verð- ur að kallast góð útkoma. Önnur úrslit í sjöundu um- ferð urðu: Danmörk 2% — A-Þýzkal. 1%, Spánn 2 — Rúmenía 2, Bandaríkin 3 — Noregur 1, Júgóslavía 1% — Tékkar 2%, Argentína 2% — Búlgaría 1%, Ungverjaland 3% — Kúba %. í áttundu umferð tefldu ís- lendingarnir við Spán, og fóru heldur illa út úr því, þar sem þeir töpuðu 2% — 1V2. Gerðu þeir Friðrik, Ingi og Guðmundur Sigurjónsson all- ir jafntefli, en Guðmundur Pálmason tapaði. önnur úrslit í þeirri umferð urðu: Sovét- Myndin er af Bent Larsen, s kákmeistara, er hann tefldi við Wolfgang Dahlman á Olympí uskákmótinu á Kúbu. Bent tap- aði skák sinni á móti Dahlman, sem er A-Þjóðverji. Heimsmeistarinn Tigran Petrosyan sem teflir á fyrsta borði fyrir Sovétríkin, slappar af meðan hann virðir fyrir sér varn arstöðu sína í einni skákinni sem hann hefur teflt á Olym- píumótinu á Kúbu. Rússar hafa sigrað í sjö síðustu Olympiu- skákmótum. — AP. ríkin 2% — A-Þýzkaland 1%, Argentína 2 — Tékkar 2, Rúmenar 2% — Búlgarar 1V2, Ungverjar 3% — Danir %, Bandaríkin 1% — Júgóslavía 2V2, Noregur 2 — Kúba 2, ein skák aftur í bið. Önnur úrslit í níundu um- ferð: Danmörk 1 — Noregur 0, og 3 í bið, Búlgaría 2 — Tékk- ar 1, ein í bið, Sovétríkin % — Ungverjar %, 3 í bið, Júgóslavar 2 — Kúba 1 og ein í bið, Argentína % — Bandaríkin % og 2 í bið, Spánn — A-Þýzkal. 4 í bið. Staðan eftir niu umferðir er þessi: 1. Sovétríkin 22%og7b 2. USA 22 og 7 b 3. Júgóslavia 22 og 3 b 4. Ungverjal. 20%og3b Hvítt: Friðrik Ólafsson. Svart: Miagmarsuren. I. c4,e6; 2. d4, d5; 3. Rc3, Rf6; 4. Rf3, Be7; 5. Bf4, 0—0; 6. e3, Rbd7; 7. Hcl, c6; 8. Bd3, dxc4; 9. Bxc4, Rd5; 10. Bg3, Rd7—f6; II. 0—0, Rxc3; 12. bxc3, Re4; 13. Bf4, Da5; 14. Dc2, Rf6; 15. e4, c5; 16. Bd3, h6; 17. De2, He8; 18. h3, Bf8; 19. e5, Rd5; 20. De4, g6; 21. Bd2, Dd8 ‘(Ef 21...... Dxa2; 22. Hal og Hfbl); 22. h4, h5; 23. g4, hxg4; 24. Dxg4, Bg7; 25. h5, gxh5; 26. Dxh5, f5; 27. Khl, He7; 28. Hgl, Bd7; 29. Bh6, Be8; 30. Dg5, Hc7; 31. Bxg7, Dxg5; 32. Rxg5, Hxg7; 33. Rxe6, Hxglf; 34. Hxglf, Kh8; 35. Bxf5, Rxc3; 36. Rxc5, Bc6f; 37. Kh2, Re2; 38. Hg4, Hf8; 39. Hh4f, Kg8; 40. Bh7f, Kf7; 41. Bd3, b6; 42. Bxe2, og svart gaf. Vika til stefnu NÚ ER aðeins vika þar til dreg- ið verður í Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins um banda- rísku fólksbifreiðarnar þrjár. — Vinningsbifreiðirnar eru af gerð unum Dodge Dart, Plymouth Valiant og Rarnbler American, allar af árgerð 1967. Samanlagt verðmæti þeirra er liðlega ein xnilljón króna. Segja má, að sjaldan gefizt fólki kostur á jafn glæsilegum vinningum fyrir jafn lítið fé, Árshátíð Sjálf- slæðisfélaganna í Borgarfirði SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Mýra og Borgarfjarðarsýslu efna til árshátíðar nk. laugardag hinn 19. nóv., kl. 20. Verður sameigin- legt borðhald og fjölbreytt dag- skrá sem nánar verður birt síðar. því miðinn í þessu happdrætti kostar aðeins 100 krónur. Skorað er á þá, sem enn hafa ekki gert skil á heimsendum mið um, að draga það ekki lengur. Skrifstofan í Sjálfstæðishúsinu er opin alla daga, sími 1-71-00. Ennfremur er þeim tilmælum beint til þeirra úti á landi, sem fengið hafa miða, að gera nú skil til viðkomandi skrifstofu. Minnist þess, að 22. nóvember mun þremur heppnum aðilum gefast kostur á að setjast undir stýri bandarískrar lúxusbifreið- ar — fyrir 100 krónur! STAKSIEIIVAR Sovétríkin og Baltikaíerðin Greinilegt er, að Guðmundi Böðvarssyni hefur orðið mikið um að lesa frásagnir ferðalanga á Baltika um það sem fyrir augu bar, þegar komið var til tveggja borga í Sovétríkjunum. Hefur Guðmundi orðið svo mikið um, að hann skrifar heilsíðugrein í Þjóðviljann til þess að hrekja ‘ umsagnir ferðafólksins um þess- ar tvær borgir. Tilraunir hans til þess taka á sig hinar kátleg- ustu myndir eins og sjá má af eftirfarandi tilvitnun í grein hans sem birtist í Þjóðviljanum s.l. sunnudag. En þar segir hann meðal annars: „Ég veit ekki hvað farþega á Baltika hefur van- hagað hvað mest um, þegar þeir gengu í búðir í Jalta og Odessa, kannski kók eða tyggjó, en ég sá ekki annað en að verzlun væri í fullum gangi í Jalta þess- ar vikur sem ég var þar, og meira að segja gífurlega mikill. Mjög mikið hefur verið byggt þar undanfarin ár, og bæði stóðu yfir miklar framkvæmdir á þvi sviði og aðrar voru í undirbún- ingi. Auk þess er vegalagning um hinar bröttu hliðar Krim- fjalla bæði dýr og vandasöm, en hefur verið leyst af hendi með meiri ágætum en svo, að við höf um í okkar landi nokkuð til samanburðar. Fjölbreytni í allri matvælaframleiðslu er svo sem eðlilegt er, ósambærileg við okk- ar eigið getu á því sviði, því landið er suðlægt og gagnauð- ugt grænmetis- og ávaxtaland." Rússar kunna borðsiði! „Að fólk þar hafi verið „illa búið, svekkt og óræstilegt" er rógur, sem ef til vill er samboð- inn þessu sögufólki en ekki öðr- um. Hversdagslega er fólkið þarna létt og þægilega klætt í sumarhitunum, en á kvöldin í úti leikhúsunum er það sízt ver bú- ið, en hér mundi vera, ef slíkir staðir væru hér til, og í hinum stóru og fögru leikhúsum Moskvu borgar er fólkið klætt á sama hátt og við Norðurlandabúar, er við gerum okkur dagamun og göngum í okkar Þjóðleikhús. Hvað viðvíkur þeirri yfirlýsingu, að Rússar kunni x enga borðsiði, er það helzt að segja að slíku fjarstæðu bulli um svo gamal- gróna menningarþjóð sem Rúss- ar eru, þarf ekki að svara. Aftur á móti eru slíkar fullyrðingar táknrænt dæmi um það, hváð sefasjúkum aumingjum dettur í hug að bera á borð fyrir les- endur sína, þegar sneyðast tekur um áróðursefnið." “ Gróusögur um sóðaskap “ „Alveg það sama má segja um gróusögur þessa Baltikafólks um sóðaskap í Rússlandi og geig- vænlegt kæruleysi í þeim efn- um. Slíkum umsögnum ræður óskhyggjan ein, ég hef ekki kom ið auga á sóðaskap, þvert á móti mikinn þrifnað í þeim rússnesku borgum, sem ég hef komið í, bæði er ég dvaldist í Sovétríkj- unum mánaðartíma 1953 og eins nú. Hef ég ekki getað séð að borg ir Norðurlanda stæðu rússnesk- um framar að lireinlæti og fögr- um gróðri, nema síður væri, að minnsta kosti ekki hún Reykja- vik okkar blessunin — og sjálf- sagt hefði hundaskíturinn á göt- um Kaupmannahafnar orðið þess um vitnum Timans og Morgun- blaðsins fundið fé og dýrðleg áróðursnáma ef sú annars á- gæta borg væri í Rússlandi".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.