Morgunblaðið - 15.11.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.11.1966, Blaðsíða 5
Þríðjudagur 15. des. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 5 OLLUM ÁTTUM EINS og kunnugt er af frétt- um hefur staðið yfir verkfall hjá starfsstúlkum á barna- heimilum borgarinnar, sem leystist að morgni hins 11. þ. m. í kjölfar verkfallsins fyigir breyttur vinnutimi á barnaheimilunum, þannig að þau eru nú opin frá kl. 8 á - m Anna Gígja Guðbrandsdóttir ásamt barni sínu. Breyttur vinnutími á barnaheimilum kemur sér yfirleitt illa fyrir mæður Ó, elsku mamma mín! Úlla Þorvaldsdóttir og sonur. morgnana til kl. 5 síðdegis i stað 9—6 eins og áður var. Hefur þessi breyting vakið mikla athygli og umtal, og fólki verið hugsað til þeirra mæðra sem vinna í verzlun- um, sem loka kl. 6, og kom- ast þær því engan veginn fyrr til að ná í börnin sín. Hvernig fara þær nú að? — Fyrir mæður, sem vinna í verk- smiðjum kemur þessi breyt- ing sér einkar vel, þar sem vinnutími þar, er yfirleitt frá kl. 8—5. Þær mæður, sem vinna í skrifstofum frá kl. 9—5 eru ekki svo mjög illa settar. Að sögn einnar fóstr- unnar á barnaheimilinu Lauf- ásborg, þar sem blaðamaður frá Mbl. var staddur sl. laug- ardag, mega mæður koma með börn sín á hvaða tíma sem er að morgni dags, frá kl. 8 og einnig gefst þeitn kostur á að sækja þau kl. lið- lega 5. Nú hefur Mbl. átt tal af nokkrum mæðrum barn- anna á Laufásborg um þær afleið'ingar sem tímabreyting- in hefur í för með sér fyrir þær. Við erum stödd á barna- heimilinu Laufásborg rétt fyr- ir kl. 12 á hádegi sl. laugar- dag, blaðamaður frá Mbl. og ljósmyndari. Ætlun okkar er að ræða við nokkrar mæður, sem um þetta leyti koma að sækja börnin sín, og spyrja þær um álit þeirra á tíma- breytingunni. Sú fyrsta, sem kemur að sækja börnin sín er ung móðir, Helga Thorodd- sen. Við tökum hana tali, byrjum á því að dást að börn- unum en ráðumst síðan á hana með frekum spurning- um. — Vinnið þér úti? — Já, ég vinn í skrifstofu hjá Páli Jóh. Þorleiíssyni, frá 9—5. Helga Thoroddsen og synir. — Svo breytingin kemur sér kannski ekki svo illa fyr- ir yður? — Jú, hún kemur sér mjög illa. Ég get að vísu farið með börnin um leið og ég fer I vinnuna, rétt fyrir kl. 9, en til þess að geta sótt þau á mín útunni 5, verð ég að fá frí í vinnunni, sem er auðvitað mjög leiðinlegt, gða þá að fá einhvern til að sækja þau fyr ir mig, sem oft og einatt get- ur verið erfiðleikum bundið. — Hvernig fóru þér að með an á verkfallinu stóð? — Mamma hafði börnin Þá tökum við tali aðra unga móður, Önnu Gígju Guðbrandsdóttur, sem segist vinna á Málflutnings- og Fast- eignaskrifstofu Agnars Gúst- afssonar og Björns Péturs- sonar. Við spyrjum hana um vinnutíma og hún svarar: — Ég hef unnið frá kl. 9,30 á morgnana til kl. 5,30 síð- degis. Sigriður Bjarnadóttir og sonur. komulagið. ■— Ég slepp vel segir hún, ég fer með barnið um leið og ég fer í vinnuna, og þar sem ég er búin að vinna kl. 4,30 get ég auðvitað sótt hana kl. 5. Lára Clausen segist vinna hjá bróður sínum Herluf Clau sen og því geti hún fengið að fara um 5 leytið að sækja barnið. slæmt sé að þurfa að sækja barnið klukkan 5. — Æ, ég kvíði fyrir hlaupunum! segir hún. Sigríður Bjarnadóttir, sem vinnur hjá Félagsprentsmi'ðj- unni, segir okkur að sér líki fremur illa við nýja fyrir- komulagið, en hún beti bjarg- að þessu við með því að mæta fyrr í vinnuna og hætta fyrr. Þá sjáum við hvar 5 ára gamall gutti kemur hlaupandi á móti mömmu sinni og kallar mamma , mamma. Hin ham- ingjusama móðir heitir Ulla Þorvaldsdóttir og segist vinna í prentsmiðjunni Gutenberg. Þegar við spyrjum hana hvern ig hún kunni við nýja fyrir- komulagið, ljómar hún öll og segir: — Svo vel, svo veil! Hjá okkur-er unnið frá 8—5 og núna get ég í fysta sinn unnið reglulegan vinnutíma. Áður gat ég ekki mætt í vinn- una fyrr en klukkan 9 á morgn ana og því var það a'ð ég réði mig upp á tímakaup, annars hefði verið dregið frá mér tvö falt kaup fyrir að koma klukkutíma of seint, eða ég hefði orðið að vinna af mér klukkutímann. — Hvernig fóruð þér að meðan á verkfallinu stóð? Framhald á bls. 23 Eiríksdóttir ásamt tvíburunum sínum. Anna Hákonardóttir og litli sonur. — Hvaða afleiðingar hefur þá breyttur vinnutíma hér á barnaheimilinu í för með sér fyrir yður? — Ég verð að segja það, að þetta kemur sér ákaflega illa. Ég verð að reyna að fá að vinna frá 9—5, öðruvísi er ekki hægt að leysa málið. Þetta kemur sér auðvitað ver fyrir skrifstofuna, en ef eitt hvað er eftir, verð ég að fara seinna og sinna því. Sú, sem við hittum næst, vinnur í banka, þ.e. í Gjald- eyrisdeild bankanna, og heitir Sigurlaug Ásgrímsdóttir. Hún er að koma og sækja dóttur sína, og við spyrjum hana hvernig henni líki nýja fyrir ■— Þessvegna er ég vel sett segir hún, en ég vorkenni þeim konum, sem vinna, þar sem eru stimpilklukkur og Rabb við nokkrar mæður barnanna á Lauíásborg verða því að mæta á mín- útunni. Anna Hákonardóttir, sem vinnur á skrifstofu hjá Tré- smiðafélagi Reykjavíkur, seg- ir okkur að hún kunni ágæt- lega við nýja fyrirkomulagið hvað morguninn snertir, en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.