Morgunblaðið - 15.11.1966, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. des. 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 35135
OG 34406
SE NDUM
MAGMÚSAR
SKIPHOtTI 21 SÍMAR 21190
eftir lolcun simi 40381 ”
siM' 1-44-44
Vmiíim
Hverfisgötu 103.
Daggjald 300
og 3 kr. ekinn km.
Benzín innifalið.
Sími eftir lokun 31100.
LITLA
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Sólarhringsgjald kr. 300,00
Kr. 2,50 ekinn kilómeter.
Benzin innifalið í leigugjaldi
Sími 14970
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
BÍLALEIGA S/A
CONSUL CORTINA
Sími 10586.
Kr. 2,50
á ekinn km.
300 kr. daggjald
RAUDARÁRSTfC 31
SÍMI 22022"
Bifreiðaleigan Vegferð
Sími 23900.
Sólarhringsgjald kr. 300,00.
Kr. 3,00 pr. km.
Bosch og AEG.
KÆLISKÁPAR
margar stærðir.
Br. Ormsson hf.
Lágmúla 9. — Sími 36820,
LOFTUR ht.
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 1-47-72.
Um málfar
í auglýsingum
Þórunn Guðmundsdóttir skrif
ar:
„Nú líður að jólum og að
venju færast auglýsendur ým-
issa hluta í aukana og boðskap-
ur þeirra kemur fyrir augu og
eyru fleiri landsmanna en flest
annað á töluðu og rituðu máli.
Er því orðalag og málfar aug-
lýsinga mörgu drýgri þáttur í
málvernd eða málskemmdum.
Margur mun hugsa á þann veg
að litlu skipti um auglýsingar,
slíkar dægurflugur; enginn geti
ætlast til að þar gæti ritsnillld-
ar eða jafnvel málvöndunar.
Samt getur lítil auglýsing borið
höfundi sínum vitni um mál-
kunnáttu og skýra hugsun, eða
á hinn bóginn um þann klaufa
skap og amböguhátt í framsetn
ingu, sem einkennir þá menn
sem eru í vandræðum með mál
til þess að hugsa á og geta því
aldrei hugsað neitt að ráði Nú
eru við mannkindur gjarnar á
að apa eftir öðrum bæði illt og
gott. Vill þá lika fara svo að
illa samin auglýsing verður for
móðir margra sinna líka. Vil ég
nefna nokkur dæmi um al-
gengar málleysur í auglýsing-
um, ef það gæti ýtt við ein-
hverjum.
Samsett nafnorð eru góð og
gild í málinu, en öllu má of-
bjóða. Takmörk eru á því sem
öðru, hve mörgum orðstofnum
er gerlegt að slengja saman í
eitt orð. Ég vil aðeins nefna
kvengullarmbandsúr og barna-
rimlarúm. Einn orðflokkur ís-
lenzkunnar virðist vera mjög
að flosna upp, týna orðum og
skipta um merkingu annarra,
það eru forsetningarnar. Bera
auglýsingar mjög vitni þessari
málspillingu. Ein forsetning
virðist vera að gleypa hinar lif-
andi, nefnilega fyrir, sem oft
virðist notað sem_ þýðing á
enska orðinu for. Á þvi máli,
sem tíðkaðist í minni sveit voru
hlutir aðallega gerðir fyrir
menn, hins vegar voru kýrnar í
fjósinu, ílát voru notuð undir
eitt og annað, 'heyjað var handa
kúnum og heyið látið í hlöðu,
en ekki fylít á hlöðunna. Nú er
stundum auglýst að vökva sé
fyilt á ílát, sem hefur hingað t-iil
heitið áð láta á þau. Hitt er auð
vitað góða gamla danskan, sem
var étin hrá hér fyrrum sbr.
„spælegg og ristað brauð.“
Forsetningin handa virðist að
mestu gleymd, en fyrir komið
í staðinn. Vil ég nú fara bón-
arveg að góðum auglýsendum
að þeir veiti henni griðastað í
jólaauglýsingum, því málið
verður að fátækara, ef hún
hverfur. Mætti þá segja:
„Bezta jólagjöfin handa
frúnni", „beztu gullin handa
börnunum", o.s.frv. Vi’ð meg-
um ómögulega missa hið ragra
orð barnagull úr málinu, þótt
leikfang sé vel nothæft orð.
Gæti barnagull ef til vill tákn-
að meinlausa og faBega hluti,
en leikföng merkt morðvopn og
heymardeyfandi sprengjur
handa börnum og unglingum,
til þess að gera merkingamun.
í aMt fyrra sumar blas-ti við
í búðarglugga í Austurstræti
þessi auglýsing: „Allt fyrir ís-
skápinn.“ Þótti mér það kynleg
ur afguð til að fórna öllu. Ég
gekk um iðnsýninguna sælu I
haust. Á einum stað stóðu þessi
orð: „Fyrir verzlunina.“ Datt
mér í hug að verzlun merkti
þarna viðskipti, sem vel gat
verið og um eitthvað væri að
ræða, sem gerast skyldi á und-
an viðskiptunnum. Við nánari
athugun sá ég að þarna var um
að ræða hluti til notkunar inn-
an stokks í verzlunum. Tel ég
því að hlutir þessir væru
handa kaupmanni til þess að
hafa í verzlun sinni. Húsgögn
fara í stofunna og í ísskápinn
þeir hlutir, sem þar eiga að
vera. Fyrrum var keypt efni i
föt og tvinni, tölur og fóður til
fatannna, bækur og ritföng til
skólans og veiðarfæri til út-
gerðar. Lyf voru notuð viff
sj úkdómum.
Nú er hin ágæta þýðing á
for látin taka ómakið af þess-
um orðum.
„Allt fyrir skólann“ er kjör-
orð haustsins í sumum verzlun-
um.
í strætisvagnaafgreiðslu einni
hékk fyrir nokkru síðan spjald
með svofeldri áletrun: „Notið
fötuna fyrir — rusl.“ Illgjarn
maður hefði getað skilið þetta
sem ávarp samanber „fyrir-
fólk“, en humyndin var fatan
væri ætluð undir rus.
Góðir íslendingar! Finnst
ykkur ekki að athuguðu máli
að íslenzkan verði heimskulegri
og erfiðari að hugsa á, ef svo
fer áð orðin: handa, við, í, á og
undir eru skorin niður við
trog og fyrir, sem hafði áður ær
ið starf í málinu, tekur við af
þeim öllum. Ég held að slíkt
væri að fylla of miklu korni á
mælinn. Loks vil ég nefna þá
sígildu auglýsingu: „Stúlka eða
unglingur óskast." Hún er á-
gætt dæmi þess, hve fólki hætt-
ir til að endurtaka fáránleg-
asta samsetning, ef hann hef-
ur birzt á prenti. Vafalaust
verka vel ger'ðar auglýsingar á
sama hátt Væri því mjög æski-
legt að til auglýsinga sé betur
vandað en oft hefur verið gert.
Þórunn Guðmðundsdóttir."
Trésmiðja Öndvegis hf.
Lyngás 8, Garðahreppi, símar 21375 — 52374.
Smíðum, glugga, útihurðir og altanhurðir.
Fljót afgreiðsla.
SAAB - bifreið
árgerð 1961 ekin 50.000 km erlendis og vel með
farin til sölu nú þegar. — Uppl. í síma 12140.
Drengir! Stúlkur!
Höfum fyrirliggjandi:
Listskauta fyrir drengi og stúlkur. Tvær gerðir af
hoekey skautum, hlaupaskauta, einnig hjálparskauta
lyrir þá yngstu. Einnig nýkomnir skautar sem bæði
eru fyrir snjó og ís.
Sendum í póstkröfu!
Sportvöruv. Búa Pedersen
Bankastrœti 4 Sími 18027
Kópavogur
Óska að taka á leigu húsnæði undir matargerð og
hliðstæðan iðnað. Tilboð óskast send Mbl. merkt:
„B. H. — 8417“.
Nýkominn
jólaumbúðapappír 40 og 57 cm. rúllur.
Eggert Kristjánsson & Co. hf.
Sími 1 1400.
Prentarar
Til sölu er prentvél, letur og kassar, pappfrsskurð-
arhnífur og fleira tilheyrandi. Lysthafendur sendi
Mbl. merkt „Prent — 8420“.
VÉLRITUN - ÍSLENZKAR DB ERLENÓAR BRÉFASKRIFTIR
VERÐLAGSÚTREIKNINEAR - TDLLÚTREIKNINGAR
K. JÓHANNSSDN H. F. SÍMI
VÉLRITUNARÞJGNUSTA PÓSTH. 1331 1659D