Morgunblaðið - 15.11.1966, Side 17

Morgunblaðið - 15.11.1966, Side 17
Þriðjuðagur 15. des. 1966 MORCUNBLADID 17 NOKKIIR ORÐ UM TOGARAUTGERÐ Vandamál togaraútgerðarinnar verður að íeysa strax Eflir Þorstein Arnalds f ramkvæmda rstjóri EINS og flestum mun kunnugt, stendur hagur togaraútgerðar á íslandi um þessar mundir með mjög litlum blóma. 1 rauninni svo litlum, að allir þeir, sem við togaarútgerð fást, hljóta að hafa lagt fyrir sjálfan sig þessa spurningu: Á togaraútgerð_ á ís- landi rétt á sér eða ekki? Ég hef líka spurt sjálfan mig þessarar spurningar og leitazt við að svara henni í fuliri hreinskilni, en láta ekki óskhyggju eða þrjózku hafa áhrif á niðurstöð- ur mínar. Ef finna á svar við ofan- greindri spurningu, er ekki úr vegi að athuga sögu togaraút- gerðarinmar nokkru nánar. Öll- um mun Ijóst, að hlutur hennar hefur oft verið betri en nú. En skyldu menn yfirleitt gera sér grein fyrir því, að togaraútgerð er sú atvinnugrein, sem öllum öðrum fremur hefur haft áhrif til aukinnar velmegunar ís- lenzku þjóðarinnar? Ég vil meira að segja taka svo djúpt í árínni að segja, að hún sé sá grundvöllur, sem velmegun þjóðarinnar hefur fyrst og fremst byggzt á á undanförnum áratugum. Á árunum fyrir síðustu heims styrjöld var afkoma togaraút- gerðarinnar slæm. Skipin voru gömul og úr sér gengin, en fjár magn lítið til úrbóta. Samt sem áður voru það togararnir, sem björguðu hag fslendinga á stríðs árunum. í>á, eins og nú, voru aðal-útflutningsvörur okkar fisk afurðir, en vegna ófrðarástands ins kom það í hlut togaranna að flytja allan sinn afla á erlend- an markað, en af eðlilegum ástæðum var hlutur minni fiski skipa lítill í þeim efnum, enda þótt nokkuð væri flutt út af kassafiski, sem bátar öfluðu, með flutningaskipum. Á þennan hátt lögðu togararnir grundvöll inn að núverandi velmegun á íslandi, enda var það fyrsta verk ríkisst j órnar innar eftir stríðið að semja um kaup á nýj- um togurum. Árin 1945 og 1946 samdi hún um smíði 32 togara í Bretlandi, og síðar, árið 1948, var svo samið um byggingu 10 togara til viðbótar. Vegna þess að hinir 10 síðasttöldu voru nokkru stærri en hinir fyrr- nefndu, svo og vegna hækkunar á byggingarkostnaði í Bretlandi og gengisbreytingar hér heima, urðu þessir togarar nær þrefalt. dýrari en hinir 32 fyrstu. Af þessum sökum treysti aðeins einn einstaklingur sér til þess að festa kaup á einum þessara togara, og urðu því bæjarfélög víðsvegar um landið að taka að sér rekstur þeirra níu, sem eftir voru. Til tryggingar því, að hæfilegur hluti hinna nýju tog- ara yrði gerður út frá Reykja- vík, festi Reykjavíkurborg kaup á 4 af þessum 10 togurum. Rekst ur þessara síðari togara hlaut þó að verða dýrari en hinna fyrri, vegna miklu hærra kaup- verðs, óhagkvæmari vaxtakjara °g loks þess, að mikill hluti lánsfjárins, sem íslenzka ríkis- stjórnin útvegaði, var fengið er- lendis. Varð því að greiða þann hluta í erlendum gjaldeyri, en með tilliti til gengisbreytinga síðar liggur í augum uppi, hversu miklu óhagstæðari þessi lánskjör voru en lánskjör þau, sem fyrri togararnir nutu. Tog- arar þessir komu til landsins ár ið 1951. Fyrstu árin eftir styrjöldina gekk togaraútgerð sæmilega. En er frá leið, jukust erfiðleikar út- gerðarinnar, bæði hvað snerti togara og báta, vegna síhækk- andi tilkostnaðar. Árið 1951 var gripið til þeirra ráðstafana að veita bátaútveg- inum sérstaka aðstoð með hin- um svonefnda „bátagjaldeyri", og voru þessar ráðstafanir í gildi til ársins 1958. Nutu bát- arnir mun hærra verðs en tog- arar fyrir sams konar fisk, og samkvæmt upplýsingum Lofts Bjarnasonar, formanns Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda í grein, er hann ritaði í Ægi, rit Fiskifélags íslands, í febrúar 1963, er talið, að hverjum tog- ara hafi á ofangreindu tímabili verið mismunað um 5.6 milljón ir króna, samanborið við báta- flotann. Til þess að menn geti áttað sig á, um hversu miklar upphæð ir hér var að ræða, skal á það bent, að fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur, sem á þessu tíma- bili rak 8 togara, nam upphæð þessi samkvæmt framangreindu um 45 milljónum króna. f raun- inni er upphæð þessi allmiklu hærri, þar sem við hana bæt- ast vextir af því fjármagni, sem tekið hefur verið að láni, en þsð hefði ekki verið nauðsynlegt, ef togararnir almennt, og þá auðvit að einnig togarar Bæjarútgerðar Reykjavíkur, hefðu búið við sömu skráningu gjaldeyris og bátaflotinn. Þegar hér var komið, var far ið að halla undan fæti fyrir togaraútgerðinni. Enn er þó eft ir að geta þess áfalls, sem þyngst hefur orðið íslenzkri tog araútgerð. Eins og öllum er kunnugt, hafa erlendir togarar sótt mjög á íslenzk fiskimið. Skiptu þeir oft mörgum hundruðum, sem voru að veiðum á sama tíma við strendur landsins. Af eðlilegum ástæðum töldu íslenzk stjórnar- völd sér skylt að gera ráðstaf- anir til verndunar íslenzkum fiskimiðum, svo að íslendingar gætu .búið að þessum miðum einir og til þess að fyrirbyggja ofveiði. Til þess að styrkja að- stöðu íslendinga í þessu máli var talið skynsamlegt, að ís- lenzki togaraflotinn yrði einnig látinn víkja, er landhelgin yrði stækkuð. Hófst útfærsla fisk- veiðilandhelginnar með lokun Húnaflóa, og í kjölfar þeirrar ráðstöfunnar var landhelgin færð út í 4 mílur hinn 19. marz 1952. Voru þá grunn- línupunktar staðsettir á yztu annes og þar með lokað fjörð- um og flóum. Á það skal bent, að eftir lokun Húnaflóa hefur þar ekki fengizt fiskur, hvorki á línu, net né í nót. Er ástæðan af ýmsum talin sú, að úrgangur- inn frá aðgerðinni að fiskinum hafi leitt fiskgönguna inn í fló- ann og þar með hafi íslenzk fiskiskip notið aflans, en ekki erlend skip sem stunduðu veiðar utar. Hinn 1. septem- ber 1958 var landhelgin færð út í 12 mílur og loks 11. marz 1961 var grunnlínupunktum breytt, og urðu þá innan landhelgislínu allstór og mikilvæg svæði út af Faxaflóa, Húnafióa, Héraðsflóa og á Selvogsbanka, sem til þess tíma höfðu verið heimili togur- um til veiða. Þess skal þó getið, að landhelgisútfærslan náði ekki að fullu til íslenzkra tog- ara, en talið er af sérfróðum mönnum, að veiðisvæði togar- anna hafi verið rýrð um 60— 80% með öllum þessum aðgerð um. íslenzkir togara-útgerðar- menn og togarasjómenn skildu nauðsynina á verndun fiskmið- anna fyrir þjóðina og fluttu sig allir sem einn af frjálsum vilja og möglunarlaust út fyrir 12 mil urnar. Þeir trúðu því, að með þessu væru þeir að búa íslenzku þjóðinni betri framtíð, og vafa laust hafa þeir líka trúað því, að þessar fórnir væru aðeins tímabundnar. Þegar sigur væri unninn í landhelgismálinu óg búið væri að fá viðurkenningu annarra þjóða á 12 mílna fisk- veiðilandhelgi, íslenzku þjóð- inni — ekki bara bátaflotanum — til handa, mundi þeim verða skilað aftur því, sem þeir létu af hendi án mótmæla um stund- arsakir. Á það skal bent, að aðeins var liðið um eitt ár frá því hinir 10 síðustu nýsköpunartogarar, sem ég hef áður minnzt á, komu til landsins, þegar þessar aðgerðir voru hafnar. Er óvíst, að fengizt hefðu kaupendur að þessum skipum, ef mönnum hefði verið ljóst, að rekstursmöguleikar tog aranna yrðu svo gróflega skert- ir í náinni framtíð, nema hér Þorsteinn Arnalds væri aðeins um millibilsástand að ræða. í kjölfar þessara breytinga á ís lenzkri iandhelgi fóru margvís- legir árekstrar við Breta, sem bökuðu togaraútgerðinni stór- fellt tjón. En Bretar mótmæltu aðgerðum þessum með því að loka fyrir íslenzkum togurum mörkuðum fyrir ísaðan fisk, sem þeir höfðu búið að í um það bil hálfa öld. En nú bregður svo kynlega við, að þegar viðurkenningin er fengin fyrir 12 mílna landhetg- inni, þá eru launin fyrir þennan þegnskap, sem þó er vægast sagt mjög óvenjulegur með íslenzku þjóðinni, ekki þau, að togurun- um sé veitt hlutdeild í landhelg- inni, heldur óskiljanlegt tómlæti um þeirra hag. Er nú svo kom- ið, að öll togaraútgerð er á helj- arþröm, þ.e.a.s. sá hluti hennar, sem ekki hefur þegar verið lagð ur niður. Ég ætla ekki að halda því fram, að útfærsla landhelg- innar sé eina orsökin að vanda- málum togaranna í dag, enda þyrftu fleiri breytingar að koma til, ef rétta á við hag togaranna. En hún er ein af mikilvægustu orsökunum, og það sem er meira um vert, hún er orsök, sem vandalaust er að ráða bót á. Nú mun e.t.v. margur segja, að ekki sé rétti tíminn til að heimila togurum fiskveiði innan landhelgi, þegar fskifræðingar hafa lýst yfir, að þorskstofninn sé fullnýttur. Er þá átt við ásókn bæði erlendra og ís- lenzkra fiskiskipa. Því er til að svara, að fiskifræðingar hafa einnig bent á, að auka beri möskvastærðina til þess að forðast veiði ungviðsins. Tog- araútgerðarmenn mundu vafa- laust styðja þessa tillögu, sem og aðrar ráðstafanir, sem teld- ust nauðsynlegar til verndunar fiskstofninum. En þeir telja sangjarnt, að allar slíkar ráðstaf anir séu látnar ganga jafnt yf ir báta og togara. Þeir telja einnig sanngjarnt, að orðið v<l''ði við kröfu Félags íslenzkra botn- vörpuskipaeigenda, sem nýlega hefur verið sett fram, um. að veiðar með botnvörpu verði heimilaðar inn að 4ra mílna landhelginni, eins og hún var ákveðin 19. marz 1952, sérstak- lega þegar þess er gætt, að báta flotanum er heimilt að veiða með netum, nót og humarbotn- vörpu upp í landsteina, og minni bátum jafnvel með dragnót á ákveðnum svæðum nokkurn hluta ársins. Einnig hafa togbát ar tekið sér rétt til veiða með botnvörpu innan landhelgi. Full trúar allra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur, að undanskildum fulltrúum Framsóknarflokksins, hafa og lýst sig fylgjandi því, að togurum verði skilað aftur nokkrum hluta af veiðisvæðum þeim, sem af þeim voru tekin með útfærslu landhelginnar. Fulltrúar allra flokka, einnig Framsóknarflokksins, í útgerð- arráði Reykjavíkurborgar hafa lýst sig *samþykka því, að ís- lenzkir togarar fái aukna veiði- heimild innan landhelgi. Á ýmsum tímum hafa komið fram sérsjónarmið hinna ýmsu landshluta í landhelg- ismálinu. Hafa komið fram mótmæli gegn veiðum íslenzkra togara á veiðisvæðum út af á- kveðnum landssvæðum. Hefir hér gætt sérsjónarmiða þe;'Ta, sem þessi landssvæði byggja. og oft er hér um að ræða héruð, sem byggja afkomu sína að mjög litlu leyti á sjávarútvegi. Á þessum stöðum eru jafnvel gerðir út aðeins fáeinir mótor- bátar eða trillubátar, og hafa þá viðkomandi hreppsnefndir eða önnur samtök, svo sem félög barnakennara, samþykkt álykt- anir og harðorð mótmæli gegn því að veita íslenzkum togurum aukna veiðiheimild innan ís- lenzkrar landhelgi. Þessar álykt anir eru vitaskuld ekki gerðar með þjóðhagsleg sjónarmið fyr- ir augum, það er aðeins verið að afla sér vinsælda tiltölulega fárra manna, með væntanlegar Alþingis- eða hreppsnefndar- kosningar í huga. Því miður er mér kunnugt um, að afstaða sumra þingmanna til þessa máls mótast á þennan hátt, og virðist sannfæring þingmannanna sjálfra engu máli skipta. Ein'slík ályktun birtist í dag blöðum Reykjavíkur fimmtu- daginn 10. nóv. sl., og er svo- hljóðandi: „Hreppsnefnd Flateyrarhrepps telur fráleitt, að nokkur íviln- un til veiði verði veitt togurum innan núverandi fiskveiðiland- helgi, einkum frá Snæfellsnesi að Horni. Jafnframt telur hreppsnefnd- in, að vinna beri að því, að ís- lenzk fiskveiðilögsaga út af Vest fjörðum verði stækkuð sVo sem kostur er á.“ Sennilega telur hreppsnefndin að hún hafi með þessu tryggt sér nokkurt fylgi væntanlegra kjósenda við næstu hreppsnefnd arkosningar. íslenzkir stjorn- málamenn geta ekki byggt rétt mæti skoðana sinna á þvílíkri sýndarmennsku og gervi-yfir- lýsingum, sem eingöngu miða að því að afla sér vinsælda hjá kjósendum. Eins og í ályktuninni segir, er sérstaklega motmælt veiði ís- lenzkra togara undan Vestfjöið um, frá Snæfellsnesi að Horni, m.ö.o. hreppsnefndin lítur svo á, að litlu máli skipti hvort tog urum sé heimilt að veiða innan núverandi landhlegi fyrir ís- lenzk skip fyrir Suðurlandi eða Norðurlandi Búast má við sams konar ályktunum frá einhverri hreppsnefnd á Austurlandi eða Norður- landi, og þá mun litlu máli skipta í þeim ályktunum, hvort veitt sé út af Vestfjörðum. Aug ljóst er af þessu, að hér er ekki höfð í huga heill þess atvinnu- vegs, sem þjóðin í heild á að þakka að mestu tilveru sína. Hvað skyldu menn í öðrum landsfjórðungum segja, ef fjöl- mennur fundur íbúa á Suðvest- urlandi samþykkti eftirfarandi ályktun: „Fjölmennur fundur íbúa á Suðvesturlandi krefst þess af ríkisstjórninni, að öllum opin- berum gjöldum, sem þeir inna af hendi til ríkissjóðs, verði ein göngu varið til hagsbóta fynr íbúa Suðvesturlands, en ekki varið til byggingar brúa, vega eða jarðganga, né til menning- armála eða hagsmunamála ann- arra landshluta.“ Auðvitað er þetta fjarstæða, og jafnmikil fjarstæða er álykt- un Flateyrarhrepps. í þessu sambandi er vert að minnast hinna fjölmörgu ákvarð ana Alþingis, þar sem veitt er fjármagni frá þéttbýlinu við Suð vesturland til dreifbýlisins með þeim einum röksemdum, að það sé gert „til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins". Er nú svo komið, að enginn fer með þessi orð án þess að brosa. Skylt er að geta þess, að Bjarni Benediktsson, forsæt.is- ráðherra, hefur tekið landhelgis málið föstum og raunhæfum tökum og lýst yfir fylgi sínu við kröfur togaraútgerðarinnar um aukin veiðiréttindi. Þessi ein arða afstaða forsætisráðherrans gefur fyrirheit um, að málið verði þrátt fyrir allt tekið til meðferðar á þjóðhagslegum grundvelli og farsællega til lykta leitt. Einnig hefur sjávar- útvegsmálaráðherra, Eggert Þor steinsson, sýnt vandamálum tog araútgerðarinnar hinn mesta vel vilja, og væntanlega mun af- staða hans til málsins verða þung á metunum. ■ Síðastliðinn föstudag fóru fram umræður í íslenzka sjón- varpinu um það, hvort leyfa skuli fiskveiðar íslenzkra tog- ara innan núverandi landhelgi eða ekki. Talsmaður bátaútvegs manna, Andrés Finnbogason, hélt því fram, að landhelgin væri fullnýtt af bátaflotanum. Þetta er ekki rétt. Eins og öllum landslýð er kunnugt, stundar meginhluti bátaflotans síldveið- ar í allt að 10 mánuði ársins. Þarf ekki að rökræða það frek- ar, að þessi meginhluti bátaflot ans er ekki að þorskveiðum á sama tíma. Það er og álit fiski- fræðinga, að heimila skuli ís- lenzku togurunum veiði í land- helgi, enda verði hún þá bezt nýtt, sé möskvastærð aukin. Þegar fiskifræðingar ræða um, að fiskstofninn sé að fullu nýtt- ur, er auðvitað tekið tillit til veiða erlendra fiskiskipa við ís- land. Veiði þeirra 22ja togara, sem nú stunda veiðar við ís- land, skipta litlu máli. Það, sem nú skiptir mestu máli fyrir við- hald fiskstofnsins við ísland, eru hinar miklu veiðar hundr- uða erlendra togara á ungfiski fyrir Norður- og Norðvestur- landi, utan landhelgi. Fiskifræð- ingar hafa bent á hættuna, sem stafar af veiði þessa fisks. Annað ekki síður mikilsvert atriði í þessu sambandi, er að fiskveiðar bátaflotans byggjast að mestu leyti á hrygningarfiski, veiddum í net. Hundruð íslenzkra báta leggja net sín þar sem fisk Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.