Morgunblaðið - 22.11.1966, Page 32
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
268. tbl. — Þriðjudagur 22. nóvember 1966
Flugvél stórskemm-
ist í fíugtaki
Es og snfár á vængjum orsokin?
FLUTNINGAFLUGVEL af
gerðinni C-46 CURTIS COMM-
ANDO, skemmdist mikið er
henni mistókst flugtak á Kefla-
víkurflugvelli á laugardaginn.
Flugvélin, sem er bandarísk, í
eign Carolina Aircraft Corp. kom
til Keflavíkur skömmu eftir mið
nætti aðfaranótt laugardags.
Gistu flugmennirnir, sem voru
tveir, á flugvallarhótelinu um
nóttina, en ætluðu að halda flugi
áfram til Narssarsuaq í Græn
I dag verða 14 ný málverk
eftir Jóhanucs S. Kjarval seld
á málvcrkauppboði Sigurðar
Benediktssonar. Sjá síðu 5.
landi á laugardaginn.
Snjókoma var í Keflavík á
laugardagsmorgun, og er flug-
mennirnir bjuggust til brottferð-
ar skömmu fyrir hádegi, kom í
ljós, að talsverður snjór hafði
setzt á vængi vélarinnar. Báðu
þeir um, að ísvarnarvökva yrði
úðað á flugvélina, en þegar flug-
vallarstarfsmenn voru aðeins
búnir að bræða snjóinn af öðrum
vængnum, taldi flugstjórinn nóg
komið. Ók hann vélinni út að
flugbraut og fékk leyfi hjá flug-
"turninum til að keyra vélina á
mikilli ferð niður flugbrautina
til að feykja snjónum af. Er því
var lokið, óskaði flugmaðurinn
eftir fl-ugtaksheimild og fékk
hana.
Samkvæmt frásögn sjónarvotta
Framhald á bls. 31
Lík finnst i
Baugsstaðaá
f GÆR fannst lík Guðmundar
Guðmundssonar frá Stokkseyri
í Baugsstaðaá skammt fyrir ut-
an þjóðveginn austur af þorp-
inu. Guðmundar var saknað á
fimmtudag í fyrri viku og var
þá gerð að honum umfangsmikil
leit. Var hans leitað meira og
minna alla sl. viku.
Bændur á Baugsstöðum fundu
Guðmund drukknaðan í ánni á
hádegi í gær. Hann var frá
Hausthúsum á Stokkseyri, 66
ára gamall.
Bjorni Benediktsson tolnr um
Ólni Thors á fnndi Heimdnllnr
f KVÖL.D talar Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra, á veg
um Heimdallar FUS um Ólaf
Thors, líf hans og starf.
Erindi þetta er liður í kynn-
ingu á liðnum stjórnmálaskör-
ungum, sem hófst á sl. vetri á
vegum Heimdallar. — Ekki er
að efa, að marga muni fýsa að
heyra Bjarna Benediktsson tala
um Ólaf T’/ -, en þessir tveir
forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins áttu með sér hvað nánasta
samvinnu um áratuga skeið.
Erindið verður flutt í Félags-
heimili Heimdallar, Valhöll við
Suðurgötu, í kvöld og hefst kl.
20:30. Öllum er heimill aðgang-
ur og eru Heimdallarfélagar sér-
staklega hvattir til að fjölmenna.
Rannsoknarlogreglumenmrnir, sem upplystu þjofnaðinn á fáeinum klukkutímum. Fyrir fram<
an þá eru skartgripirnir að verðmæti um 1 millj. kr.
Stórfelldur skartgripa-
þjófnaður í Reykjavíl
Stolið skartgripum að verðmæti um 1 milljón króna
EINN stórfelldasti ög bíræfnasti
skartgripaþjófnaður hérlendis
var framinn í Reykjavík aðfara-
nótt mánudags sl. Var brotizt
inn í Úra- og skartgripaverzlun
Helga Sigurðssonar á Skóla-
vörðustíg 3 og stolið þaðan verð
mæti fyrir á að gizka eina
milljón króna. Vegna snöggra
viðbragða rannsóknarlögreglunn
ar var ránið upplýst og skart-
gripimir komnir til réttra eig-
enda skömmu eftir hádegi í gær.
Ránið var framið seinnihluta
nætur og komust þjófarnir inn
um glugga á framhlið verzlun-
arinnar. Létu þeir síðan greipar
sópa um verzlunina og tæmdu
afgreiðsluborðið, sýningarskápa
og sýningarglugga. Höfðu þjóf-
arnir með sér frá verzluninni
um 300 úr, að verðmæti um
75.000 kr., en mörg úranna voru
að verðmæti frá 6.000—8.000 kr.
Auk þessa stálu þeir gullháls-
festum, gullkeðjum settum
rúbínsteinum að verðmæti kr.
6000 hver, eyrnalokkum, hring-
um með dýrum steinum o. m. fl.
Er þýfið allt á útsöluverði metið
á tæplega eina milljón króna.
Ekki var kunnugt um þetta af
brot fyrr en kona á efri hæð
hússins varð skartgripahvarfsins
Þýfið í tæknideild ranns áknarlögreglunnar í gær.
DREGIÐI KVÖLD
í KVÖLD verður dregið í
hinu stórglæsilega Lands-
happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins og þrír heppnir
menn munu eignast banda
rískar lúxushifreiðir af ár-
gerð 1967, sem samanlagt
eru milljón króna virði,
eða liðlega það.
Sijaldan eða aldnei hiefur
mönnum gefizt kostur á svo
glæsilegum vinningum fyrir
jiafn lítið fé. Miðinn í þessu
glæsilegasta þílahappdrætti
ársins kostar aðeins 100 krón-
ur. Vinningsbálarnir eru af
gerðunum Dodge Dart, Ply-
mouth Valiant oig Rambler
Amerioan.
í dag eru sem sagt ailra síð-
ustu forvoð að trygg.ja ser
miða í happdrættinu. Þeir
fást í vinninigsbílnum í Mfð-
bænum, og í skrifstofu happ-
drættisins í Sj álfstæðishúsinu,
sími 17100. Skrifstofan verð-
ur opin fram eftir kvöldi.
Skorað er á iþá, sem enn
hafa ekki gert skil á heim-
sendum miðum, að gera sJíkt
fyrir kvöldið. Munum að
margar hendur vinna létt
verk.
Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins.
vör kl. 8.30 í gærmorgun. Gerði
hún eigandanum, Helga Sigurðs-
syni og lögreglu þegar viðvart.
Eftir vettvangsrannsókn í
verzluninni í gærmorgun tókst
tæknideild rannsóknarlögregl-
unnar að hafa upp á tveimur
mönnum, sem grunaðir voru um
ránið. Ekki er vitað hvort fleiri
hafa tekið þátt í þjófnaðinum.
Eftir játningu mannanna, sem
nú sitja í gæzluvarðhaldi, og til-
vísun annars þeirra fannst þýfið
í herbergi hans í dag.
Eftir er að kanna hvort allir
skartgripirnir hafa skilað sér, en
líkur benda til að svo sé. Þjóf-
arnir voru drukknir er afbrotið
var framið.
Mennirnir sem hér um ræðir
eru á milli tvítugs og þrítugs,
Sti^rnarráðið
lo'iðð árdegis
VEGNA útfarar Steingríms
Steinþórssonar, fyrrverandi for-
sætisráðherra, verður Stjórnar-
ráðinu lokað fyrir hádegi 22.
nóvember, svo og aðrar skrif-
stofur ríkisins, eftir því sem við
verður komið.
(Forsætisráðuneytið, 21. nóv.
1966)
báðir ókvæntir. Þeir hafa áður
komið við sögu rannsóknarlög-
reglunnar í Reykjavík.
Seint í gærkvöldi bárust þær
fregnir, að þriðji maðurinn, sem
viðriðinn er þetta innbrot, væri
fundinn. Var hann á ferli í Aust
urstræti, lítið eitt við skál, og
hafði falið einn hring af þýf-
inu í skónum. Lögreglan er nú
á höttunum eftir fjórða mannin-
um, sem viðriðinn mun innbrot-
iö.
1 Kindum
■
■
! misþyrmt i
jj BROTIZT var inn í f járhúsið!
; að Laugabóli við Þvottalaugai
■ veg tvívegis fyrir sl. helgi. í |
; bæði skiptin var um sama;
■ manninn að ræða. Mun hann j
: hafa brotizt inn með það fyrir !
■ augum að hafa kynmök við j
: kindurnar, sem þar eru!
; geymdar.
: Maður þessi brauzt fyrst!
■ inn aðfaranótt laugardags og;
: aftur á laugardagsnóttina. Var!
; hann þá gripinn á staðnum. j
: Ein kindin var þá dauð og I
■ i
2 illa leikin eftir manninn.