Morgunblaðið - 27.11.1966, Síða 2

Morgunblaðið - 27.11.1966, Síða 2
2 M0 H G U $$ B L AÐ HÐ Sunnudagur 27. nóv. 1966 — segir Fnðrik Olafsson kominn heim frá Kúhu SKÁKMENNIRNIR, sem verið hafa á Kúbu og tekið þátt í Hav anamótinu komu til Reykjavík- «r á föstudagskvöldið. Eins og kunnugt er urðu þeir 11. í A' flokki, fengu 19 vinninga. Mbl. náði tali af fyrirliða sveitarinn- ar, Friðriki Ólafssyni, og spurði hann um mótið og annað, sem að því laut. — Ferðin var í alla staði stór- kostleg — sagði Friðrik — ég er mjög ánægður með frammistöðu okkar, hún er eiginlega miklu betri, en við áttum von á. — Hver urðu mestu vonbrigði ykkar? — Það voru auðvitað alltaf von brigði, þegar við töpuðum stórt. Viðureignin gegn Austur-Þjóð- verjum veldur líklega einna mestum vonbrigðum, sérstak- iega hjá mér, því að ég var með gjörunna stöðu. — Hvað kom fyrir? — Það var smáblinda, þær eru stundum ásæknar. — Viðurgerningur hefur verið góður? — Já, það má segja það, þeir eru að vísu ekki reyndir á al- þjóðasviði. Þarna voru auðvitað margar þjóðir, sem þurfti að matreiða fyrir. Maður fær leið á slíkum hótelmat eftir dálítinn tíma. Þeir hafa ekki úr miklu að moða, það er skömmtun á mat á Kúbu. — Voru miklir hitar? — Það voru miklir hitar til að byrja með, en svo var ágætt síð- ari hluta mótsins, rétt eins og Ölvaður piltur veld- ur miklum árekstri HARÐUR bifreiðaárekstur varð á Reykjanesbraut í Njarðvíkun- um í fyrrinótt. Var það með þeim hætti að ölvaður piltur, sem var að koma af dansleik, stal nýrri bifreið af Oldsmobile- gerð í því skyni að aka þremur unglingum til Reykjavíkur. Ekki var pilturinn kominn langt á bifreiðinni, er hann mæt- ir vörubifreið. Skipti enguim tog- tim, að bifreiðarnar skullu saman, enda virðist pilturinn þá hafa verið búinn að missa stjórn á bif- reiðinni, en hún var á geysilegri ferð. Enginn slasaðist við árekstur- inn, og þykir það mikil mildi. Pilturinn, sem bifreiðinni ók. hljóp í burtu eftir -áreksturinn, en náðist skömmu síðar heima hjá sér. Ekki viðurkenndi hann brotið, og bar fyrir sig minnis- leysi. Bowden og Smith ræddust við í gær Tilraun á elleftu stundu til oð ná samkomulagi Salisbury, 26. nóv. AP — NTB Samveldismálaráðherra Breta, Herbert Bowden, átti í morgun tveggja tíma langar viðræður við Ian Smith, forsætisráðherra Rhódesíu, í Salisbury. Er hér um að ræða tilraun á elleftu stundu til að reyna að koma á samkomulagi milli Breta og Rhódesíumanna, en Smith, forsætisráðherra, hefur lýst því yfir, að sjálfstæði lands síns verði endanlegt takist ekki samn ingar fyrir áramót. Viðræðurnar fóru fram í húsi brezka landsstjórans í Salisbury, Sir Humphrey Gibbs. Gibbs er raunverulega fulltrúi brezku krúnunnar í Rhódesíu, en stjórn Smiths viðurkennir hann þó ekki. Ekkert hefur enn verið látið uppi um, hvort heimsókn Bow den til Rhódesíu hafi leitt til samkomulags. Samveldismála- ráðherrann er þó sagðúr munu halda heim á morgun, sunnudag. Friðrik Ólafsson ’ gott sumarveður. Oft er hafgola og hitaskúrir. — Hótelið hefur verið gott? — Hotel Havana Li)bra, já það hét áður Hotel Hilton og er lúx- ushótel og hefur verið. — Skákáhugi er hann ekki mik ill meðal Kúbubúa? — Hann er gífurlegur, næstum einum um of, varla nokkur hemja. — Skák þín við Larsen var sýnd á húsgafli við torg í Havana. Tíðkast það almennt? — Það var alltaf sýnd ein á dag á elektrónisku tafli, sem kom ið var fyrir á húsgafli. Borðið var um 60—70 fermetrar rétt við hótelið. Hver taflmaður birtist á gaflinum, þegar ýtt er á hnapp. Útbúnaðurinn við þetta tafl er nokkuð flókinn, því að það þurfa að vera í hverjum reit allar teg- undir manna 1 tveimur litum, hvítir og svartir. Leikirnir eru sýndir jafn óðum og skákmenn- irni leika. Svo voru skákir sýnd- ar út um alla Kúbu og öllu var sjónvarpað beint úr salnum um hótelið í alla sali. Áhuginn er gífurlegur. Það komust færri að en vildu. — Fréttir hafa hermt að ykkur hafi ekki borizt nein bréf? — Nei, þau voru víst nokkuð Framhaldsaðal- f undor Heimdallar FRAMHALDSAÐALFUNDUR Heimdallar verður haldinn í félagsheimilinu í Valhöll við Suðurgötu á morgun, mánudag, kl. 5,30. lengi á leiðinni. Eitthvað slæmar samgöngur. — Gestgjafarnir sýndu mikla kurteisi og urðu síðastir? — Já, en ég held nú að þeir hafi gert allt, til að koma í veg fyrir það. Þeir sýndu ekki eins mikla kurteisi í undanrásunum, þá komust þeir upp fyrir Holland sem varð efst í B-floki. Það er ekki unnt annað en hrósa þessu í alla staði. Þannig hlýtur það líka að vera þegar ríki stendur að þessu, þá er ekki fjárskortur. Þarna var skipulagð ur skákáhugi. — Vildirðu taka eitthvað fram að lokum? — Ekkert nema það, sem ég sagði í upphafi. Ég er mjög á- nægður með árangurinn og ég held að allir hafi reynt að gera sitt bezta, teflt af fremsta megni, þótt oft hafi misjafnlega tekizt tiL Ýmsir hafa litla reynslu og menn eru misjafnlega upplagðir. — Ætlarðu að æfa og taka þátt í skákmótum? — Nei, nú fer ég í skólann, þetta er alveg nóg í bili og meir en það, sagði Friðrik að lokum. Óeirðii' i Jerúsalem Umsátursástand ríkir nú í Jerúsalem og víða í Jórdaníu 1 eftir óeirðirnar í gær þegar , hermenn neyddust til að grípa ( til vopna gegn æsingamönn- um, sem ólmir vilja segja Gyðingum stríð á hendur. Voru tveir menn drepnir í / óeirðunum í gær og sex særð ir. Utgöngubann var sett á i Jerúsalem í gærkvöldi eftir; að gerð hafði verið útför mann anna tveggja sem drepnir voru. Espaðist mannfjöldinn | við útförina,, og var efnt til nýrra mótmælaaðgerða gegn ríkisstjórninni, en hermenn' Arababandalagsins voru send I ir á vettvang til að dreifa I mannfjöldanum áður en út- göngubannið var sett á. Eru hermenn nú á verði á aðalgöt I um borgarinnar, og allar um- ferðaæðar til borgarinnar lok , aðar. Einnig er símasambands laust við Jerúsalem, og hefur ' verið lokað fyrir alla frétta- þjónustu þar í bili. Suhandrio áfrýjar dauðadómnum Vörubifreið steyptist fram af hafnargarði Ökumanni tókst að stökkva út úr henni SEYÐISFIHÐI, 26. nóvember. — Það óhapp vildi til hér sl. fimmtudagskvöld, að sex tonna vörubifreið, sem vann hér við hafnarframkvæmdir, rann út af grjótgarði og í sjóinn. Miklar viðræður um ný|a stjórn ■ V-Þýzkalandi Willy Brandt, formaður Sósíal- demokrataflokks V-Þýzkalands, og Erieh Mende, formaður Frjálsa demokrataflokksins, hittust í morgun í Bad Godes- berg. Formennirnir ræddust við eins lega, en viðræður þeirra snérust um myndun nýrrar ríkisstjórn- ar í V-Þýzkalandi. Fundur þeirra hafði verið und irbúinn af sérstökum viðræðu- nefndum flokkanna. Vitað er, að Frjálsir demokratar, sem eiga 49 fulltrúa á þingi, hafa boðizt til að styðja Willy Brandt á þingi, á- kveði flokkur hans að útnefna hann kanzlaraefni. Ekkert hefur þó enn verið ákveðið um samstarf þessara tveggja flokka, eins og sjá má af því, að fulltrúar Sósíaldemó krata áttu í gærkvöldi og nótt 10 tíma langan fund með full- trúum Kristilegra demókrata, Voru það fulltrúar úr þingflokk um flokkanna, sem fundinn sóttu. Mun þar hafa verið rætt um samsteypustjórn, sem margir þingmenn flokkanna telja æski legt að komið verði á. Erich Mende mun í kvöld eiga viðræður við Kurt Georg Kies- j inger, sem útnefndur hefur verið j kanzlaraefni Kristiiegra demó- kratp Hefur að undanförnu verið unnið að því hér að hlaða grjót- garð hér í höfninni, og er hann orðinn um 200—300 m langur. Vann vörubifreiðin að því að afea grjóti í garðinn, og mun hún annað hvort hafa runnið til í hálkunni, eða hrunið undan henni, með þeim afleiðingum að hún steypist fram af garðinum. Ökumanninum tókst að stökkva út úr bifreiðinni áður en hún féll í sjóinn. Bifreiðin náðist upp' sl. föstu- dagskvöld, og var hún mjög mikið skemmd. — Fréttaritari. FEokkaglíma Reykfavíkur FLOKKAGLÍMA Reykjavíkur verður háð í dag að Hálogalandi og hefst kl. 5 síðdegis. Keppt verður , öllum þyngdarflokkum og drengjaflokkum. Ungmennafélagið Víkverji sér um mótið. Jakarta, 26. nóv. (AP) SUBRANDRIO, fyrrum utan- ríkisráðherra Indónesíu, var ný- lega dæmdur til dauða fyrir að- ild að misheppnaðri byltingar- tilraun kommúnista í október í fyrra. Hefur Subandríó nú áfrýj- að dómnum til Sukarnos forseta, sólarhring áður en áfrýjunar frestur rann út. Lögum sam- kvæmt getur forsetinn staðfest dóminn eða mildað hann. Sex menn hafa verið dæmdir til dauða í Indónesíu vegna upp- reisnarinnar, og hafa fimm þeirra, að Súbandríó meðtöldum áfrýjað dómunum til Sukarnos. Ekki hefur forsetinn enn sem komið er látið uppi hvort hann verður við beiðnum áfrýjenda. Yfirdómarinn við réttarhöldin yfir Súbandríó, Ali Said, skýrði svo frá í dag að ef til vill yrði Súkarno forseti meðal þeirra 55 Matvælaskortur á Seyðisfirði SEYÐISFJÖRÐUR, 26. nóv. — Allar horfur eru á því, að hér verði talsverður matvælaskortur, og er þegar farið að skorta ýms- ar nauðsynjavörur. Um nokkurt skeið hefur verið skortur á mjól'k, þar sem mjög lítil mjólk berst frá mjólkur- búinu á Egilsstöðum, og einnig mun vera orðinn skortur á kaffi o. fl., vegna stopulla vörucflutn- inga skipa hingað til staðarins. vitna, sem leidd verða fyrir rétt í nýju landráðamáli, sem höfðað verður gegn Omar Dhani, fyrr- um flugmarskálki og yfirmanni flughersins, en réttarhöldin hefj- ast væntanlega í næsta mánuði. Við fyrri réttarhöld í sambandi við uppreisnartilraunina frá í fyrra, hefur komið fram að þeir Súkarno, Dhani og Aidit, aðal- ritari miðstjórnar kommúnista- flokksins, hafi sézt saman á flug vellinum við Jakarta, þar sem miðstöð uppreisnarmanna var, daginn sem byltingin var gerð. líópavogur SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN ! Kópavogi efna til fundar í Sjálf- stæðishúsinu við Borgarholts- braut nk. þriðjudagskvöld, 29. nóv. fel. 20,30. Á fundinum mun Jóhann Hafstein, dómsmálaráð- herra, flytja ræðu er hann nefn- ir Viðreisn-, löggjöf og fram- kvæmdir. Sjálfstæðisfólk í Kópa vogi er hvatt til þess að fjöl- menna og taka með sér gesti. Seltirningar AÐALFUNDUR Sjálfstæðisft lags Seltirninga verður haldin í Mýrarhúsaskóla (nýja) mánu daginn 28. þ. m. kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Almennar umræður. Djúpa lægðin fyrir NA land lægðardragsins á Grænlands- fór mjög hratt yfir landið hafi. Frostið var þá einna í fyrrinótt með V og NV mest í Hrútafirði, 7 gráður stormi, en í gærmorgun kl. en á Suðurlandi var 1—2ja 11 var hann kominn á suð- st. frost. austan í Reykjavík vegna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.