Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 4
*
MORGUNBLAÐI&
Sunhudagur 27. nov. 1966
BILALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km.
SENDUM
IMAGNUSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381
kðSÍM11-44-44
mmm
Hverfisgötu 103.
Daggjald 300
og 3 kr. ekinn km.
Benzín innifalið.
Sími eftir lokun 31100.
LITU
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Sóíarhringsgjald kr. 300,00
Kr. 2,50 ekinn kílómeter.
Benzin innifalið í leigugjaldi
Sími 14970
BILALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGA S/A
CONSUL CORTINA
Sími 10586.
Kr. 2,50
á ekinn km.
300 kr. daggjald,
RAUÐARÁRSTÍG 31
S í MI 220 22' .
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. lla.
Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
Fjaðrir, fjaðrablóð, hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir
i margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin í’JÖÐRIN
Laugavegi 168. — Sími 24180.
A.E.G.
HÁRÞURRKUR, 2 gerðir.
BRAUÐRISTAR, 2 gerðir.
K AFFIK V ARNIR
STRAUJÁRN
Br. Ormsson hf.
Lágmúla 9.
Útvarpið — og
þulirnir
Hlustandi útvarps á Norð-
urlandi skrifar:
„Við hlustendur Ríkisútvarps
ins, ekki síst þeir sem eru í
mestri fjarlægð frá Reykjavík,
verðum að gera kröfur til þess
að þuiir útvarpsins lesi skýrt
og greinilega. Á því virðist
mér vera töluverður misbrest-
ur. Jón Múli les of hratt. Hann
er stundum ekki búinn að
sleppa síðasta orðinu þegar
hið næsta er komið af stað áuk
þess sem jafnan drynur svo
leiðinlega í honum. Hann ætti
að flýta sér minna og tala
skýrara. Ragnheiður Ásta Pét-
ursdóttir ætti að syngja mmna,
er hún lés og hafa betri áherzl-
ur orðanna. Stundum eru betri
þulir og þeir ættu að koma
oftar. Veðurfregnir frá Veður-
stofunni eru vel lesnar. Ríkis-
útvarpið þarf að áminna alla
þá, sem flytja þar erindi að
tala skýrt og greinilega.
Hlustandi útvarps
á Norðurlandi".
Hótel Borg
Á miðvikudaginn birtist
stutt klausa um fánann og dóm-
inn í bandritamálinu. Bréfritari
sagði, að fárii hefði ekki verið
dreginn að hún í miðbænum
fyrr en seimt og síðar meir — og
nefndi Hótel Borg sem dæmi.
Pétur Daníelsson, hótelstjóri,
hrmgdi til okkar og sagði, að
hér væri ekki greint rétt frá.
Hann hefði dregið fána að húni
klukkan eitt eftir hádegi þenn-
an dag.
Hitaveitan
Á fimmtudaginn birtist
smáklausa frá Kjartani Ólafs-
syni þar sem hann kvartaði
yfir hitaveitunni 1 gamla bæn-
um. Bréf þetta var nokkurra
daga gamalt. í vikunni tók hita
veitan í notkun nýjan geymi
og mun ástandið við hafa batn-
að til muna samkv. upplýsing-
um úr herbúðum hitaveitunn-
ar — og vonum við, að Kjart-
ani og fleirum sé nú farið að
hlýna.
Nýr trúflokkur
Lesandi skrifar:
„Velvakandi — þar sem ég
hefi mikinn áhuga á öllum trú-
arbrögðum, bið ég þig að upp-
lýsa mig um eftirfarandi. í lög-
birtingablaðinu 10. nóv. er aug
lýsing um skrásetningu trúfé-
lags, og er þar m. a. talin upp:
Baháitrúarbrögðin.
Þessi trúarbrögð hefi ég
aldrei heyrt nefnd fyr — og
langar því til að vita hvað þetta
er, og eru þessi trúarbrögð til
hér á landi?
Fyrirfram þökk.
Sigurlaug".
Velvakandi verður að játa
fávizku sína, en hann veit ekki
nóg um þessi samtök til þess
að geta sagt neitt af viti. Þess
vegna væri fulltrúum Bahai
frjálst að gera grein fyrir sam-
tökum sínum hér í dálkunum.
Þeir mega ekki vera mjög lang
orðir — og bréfið má ekki fara
fram úr tveimur vélrituðum
síðum.
-Ar Togararnir
J. J. E. Kúld sendir
T. H. H. þetta svar:
„Góði Velvakandi.
í dálkum þínum 19. nóvem-
ber sl. undir fyrirsögninni
„Fréttaflutningur“ gerir ein-
hver T. H, H. frétt frá Noregi
um togarann Akurey, sem ég
birti í þætti mínum „Fiskimál“
í Þjóðviljanum, 11. október sl.
að umtalsefni.
Ég sagði í frétt minni að
verið væri að standsetja togar-
ann fyrir togveiðar og að fyrir-
tækið Findus í Hammerfest,
ætlaði að kaupa aflann á haust
og vetrarvertíð, ennfremur að
það væri haft fyrir satt, í Hamm
erfest, að útgerð skipsins væri
tryggð ef að það fengi meðal-
afla.
Þetta var allt rétt og satt
þegar heimildarmaður minn
sendi mér þessar upplýsingar.
Og því til staðfestingar er hægt
að vitna í blaðafréttir m. a.
Fiskarann frá 14. september
s.l., þar sem segir í fréttaklausu
„Bjarne Bendiksen, Gibostad,
har kjöpt ein islandsk silde-
tráler p& 650 br. t., som no
skal overhalast ved Tromsö
Skipsverft., Tráleren som blid
det störste i landet er sjartra
av Findus i Hammerfest for
haust- og vintersesengen".
Þó inn í þessa frétt blaða-
mannsins hafi slæðst tvær vill-
ur. í fyrsta lagi að kalla tog-
arann síldartogara og í öðru
lagi að segja þetta stærsta tog-
ara Norðmanna, þó er ekki um
það að villast, að hér er verið
að segja frá togaranum Akur-
ey, sem Bjarne Bendiksen var
þá nýbúinn að kaupa héðan.
Þegar mér hinsvegar barst I
hendur fréttin um sölu á Akur-
eynni til bræðranna Pettersen
í Tromsö og að breyta ætti tog-
aranum í úthafslínuveiðara þá
birti ég þá frétt strax í Þjóð-
viljanum og kom hún á öftustu
síðu blaðsins 17. þ.m., eða
tveimur dögum áður en at-
hugasemdir T. H. H. voru birt-
ar.
Þó hinn norski útgerðarmað-
ur Bjarne Bendiksen selji
Akureyna í stað þess að gera
hana út til togveiða eins og
ætlunin var, og þetta gerist í
meðan fréttm er að berast mér
frá norður-Noregi þá verður
slíkt tæplega flokkað undir lé-
legan fréttaflutning. Sé hins-
vegar söluverð skipsins rétt og
eins og T. H. H. birtir það, þá
þarf víst engan að undra þó
B. B. seldi skipið því það er
óneitanlega fljótteknari gróði,
sem fæst með eignasölu heldur
en útgerð.
Að síðustu þetta. í fyrsta
lagi, togaraútgerð býr við miklu
betri aðstæður í Noregi heldur
en hér, bæði vegna þess að ný-
fiskverðið er svo miklu hærra
þar, heldur en hér, svo því
verður á engan hátt samjafnað.
Þá vil ég biðja þá menn sem
talið hafa það eðlilegt, að okk-
ar togarar væru seldir úr landi
fyrir lítinn pening, fyrst ekki
væri hægt að gera þá út á tog-
veiðar eins og stendur, að at-
huga bara hvað hægt er að
gera við þessi skip. Dæmið um
breytinguna á Akureynni í
línuveiðara segir sína sögu.
Þetta dæmi svo að segja undir-
strikar þann sannleika sem ég
hef hamrað á lengi, sem sé
þann, að það er hægt og það
borgar sig, að breyta íslenzkum
togurum fyrir aðrar veiðar, ef
menn vilja ekki nota þá til tog-
veiða lengur.
Með vinsamlegri þökk fyfir
birtinguna.
Jóhann J. E. Kúld“.
Ég hygg að höfundur þess
bréfs, sem J. J. E. Kúld vitnar
til, hafi fyrst og fremst verið
að fetta fingur út í þær full-
yrðingar ofannefnds í Þjóðvilj-
anum, að rekstur togaranna
væri mjög ábatasamur i
Noregi. Sendi bréfritarinn
tvær norskar úrklippur með
bréfi sínu og varð ekki betur
séð en Þjóðviljafréttin væri
fengin þaðan. f norsku fréttun-
um var hins vegar engu spáð
um árangur þessarar tilraunar.
Þjóðviljinn var þó mjög von-
góður fyrir hönd Norðmanna.
Það var þetta atriði, sem
bréfritarinn vildi einkum
vekja athygli á, en kom senni-
lega ekki nógu greinilega fram
hjá honum.
Jólaföndur
Námskeið í jólaföndri fyrir böm á aldrinum
7 — 10 ára hefst 2. desember.
Föndurskóli
Bergþóru Gústafsdóttur
Laugavegi 24 — Sími 35562.
Sendisveinn óskast
Vinnutími kl. 6 — 11 e.h.