Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.11.1966, Blaðsíða 9
Sunnuífagur 27. nóv. 1966 MORCUNBLAÐIÐ Sextugur I dag: Jóhann Frímann skóiastióri HAUSTIÐ 1947 hóf ég kennslu við Gagnfræðaskólann og Iðn- skólann á Akureyri, en þá voru S vikur liðnar af kennslutiman- um. Atvikin höguðu því svo, að fyrsta kennslustundin mín var í Iðnskólanum. Ekki var trútt Um, að í mér væri nokkur geig- ur, meðan ég gekk upp stigann í skólahúsinu og augu nemend- anna mældu þennan nýja furðu fugl, sem á þeirri stundu var að ganga til móts við framtíð- arstarf sitt, reynslulaus og ný- aloppinn frá prófborðinu. En í stigaskörinni framan við kennarastofuna stóð hávaxinn maður og vörpulegur, góðlegur og áfulegur, festulegur og fyrir- tnannlegur. >egar hann sá mig, gekk hann til móts við mig, rétti mér hönd sína og mælti, um leið og hann leit beint fram an í mig sínu einlæga og und- irhyggjulauisa augnaráði: „Komdu blessaður, og vertu vel kominn til okkar.“ Ég man altaf þetta handtak, þétt, fast og hlýtt. Mér hvarf allur geigur. Hór var styrkur maður, sem gat miðlað öðrum af styrk sínum. Hér var kominn skólastjóri Iðnskólans, Jóhann Frimann. Við höfðum ekki ekipzt á orðum fyrr, svo að ég muni, en mér fannst allt í einu að ég hefði lengi átt hann að eldri bróður. Eitt veit ég, að frá þeirri stundu héfi ég átt hann eð vini og hollráðamanni. Það vildi ég nú þakka honum og Öll okkar kynni og samskipti þá hartnær tvo áratugi, sem hann hefir verið húsbóndi minn og samstarfsmaður. Við því verður ekki rönd reist, að í dag eru liðnir sex tugir ára, síðan Jóhann F!rí- mann leit fyrst ljós þessa •heims. Hann er sonur hjónanna í Hvammi í Langadal, Frí manns Björnssonar og Valgerð ar Guðmundsdóttur. Jóhann var enemma bráðgjör, ágætum gáf- um gæddur og margt til lista lagt. Hann leitaði sér menntun- ar innan lands og utan, í Gagn fræðaskólanum á Akureyri (nú 1M.A.), Lýðháskólanum í Askov og klausturskóla í Luxemburg (Clervaux), svo að eitthvað sé nefnt. Auk þess hefir hann allt of Jagt stund á sjálfsnám og og gjörhugall. Snemma hóf hann ævistarf eitt við kennslu og skólastjórn Árið 1927 gerðist hann kennari við Iðnskólann á Akureyri, varð ekólastjóri hans ári síðar og gegndi því starfi til ársins 1955, nema árin 1939-1942, en hann var skólastjóri Héraðsskólans í Keykholti 1939-1941. Þegar var stofnaður árið 1930, gerð- ist Jóhann eini fastakennari skól ans og hefir starfað við skól- ann allt til þessa að undanskild um Reykholtsárunum. Hann varð yfirkennari árið 1952 og tók við skólastjórn, er Þorsteinn M. Jónsson lét af því starfi haustið 1955. Skólastjórastöð- unni gegndi hann til ársins 1964, en hefir síðan verið stunda kennari við skólann. Af framansögðu má marka, að Akureyringar eiga Jóhanni mikið og margt að þakka fyrir langt og giftusamlegt starf við tvo skóla, sem hafa lengst af verið í nánu sambýli og jafnan átt afar vinsamlega samvinnu og margháttuð samskipti. Báð- ir voru vaxandi og gróekumikl ar stofnanir í höndum hans. Iðnaðarmannafélagið sýndi hug sinn í verki árið 1956, er það gerði Jóhann að heiðursfeiaga sínum. Gagnfræðaskólinn hefir verið svo lánsamur að fá að njóta starfskrafta Jóhanns frá upphafi Hann studdi skólann fyrsta fetið ásamt fleiri góðum mönn- um og tók þegar við hann tryggð og ástfóstri. Var ómetan legt fyrir skólann að eiga á að skipta jafn-fjölhæfum afburða- kennara á frumbýlingsárunum og æ síðan. Samvinna hans við skólastjórana Sigfús Halldórs- son frá Höfnum og Þorstein M. Jónsson var jafnan hin bezta og einkenndist af gagnkvæmri virð ingu, vináttu og trúnaðar- trausti. Þegar hann settist sjálf ur í stól þeirra, hélt hann merk inu uppi, sótti enn fram og vann nýja sigra. Það er t.a.m. verk Jóhanns og fyrir langa og harða baráttu hans á ýmsum vígstöðvum, að bætt var úr hinni knýjandi húsnæðisþörf skólans með glæsilegu viðbótar húsnæði, sem tekið var í notkun haustið 1964. Er vandséð, hvern ig skólinn gæti nú gegnt þeim skyldum, sem til er ætlazt, ef framsýni Jóhanns og baráttu- hörku hefði ekki notið við. Þetta ber okkur, sem nú njót- um verka hans, að þakka og meta. Því miður var heilsu hans svo farið árið 1964, að hann treystist ekki til að halda áfram skólastjórn. Hlaut það að verða skólanum mikill hnekkur og _ vinum hans sár vonbrigði. Ymsum kynni að finnast um- svifamikil skólastjórn ásamt mikilli kennslu vera ærið starf einum manni, en Jóhann hefir alltaf gefið sér tíma jafnframt til að sinna ýmsum hugðarefn- um sínum, áhugamálum og bar- áttumálum á öðrum sviðum. Tvær ljóðabækur liggja eftir hann auk leikritsins Fróðár og ljóða og greina í blöðum og tíma ritum. Nokkrar bækur hefir hann þýtt úr erlendum málum. Hann var ritstjóri Dags á Akur eyri nokkur ár og ritaði lengi mikið í það blað. Hann var bæj arfulltrúi á Akureyri eitt kjör- tímabil, kosinn af sérstökum lista iðnaðarmanna, og hefir gegnt mörgum trúnaðarstörfum öðrum, m.a. átti hann um skeið sæti í menntamálaráði. Það var raunar ekki ætlun mín að rita hér ævisögu Jó- hanns Frímanns, heldur aðeins að sýna lit á að greiða lítið brot af þakkarskuld þeirri, sem Gagnfræðaskólin á Akureyri, nemendur hans frá öndverðu og við vinir Jóhanns og sam- starfsmenn eigum honum að gjalda fyrir óeigingjörn störf hans, löng og merk, bjargfasta vináttu hans og leiðsögn. Þessi tilfinningaríki og næmgeðja drengskaparmaður hefir í senn verið okkur ráðsvirmur húsbóndi og ráðhollur og gagnhollur vin- ur. Ég veit, að hlýir straumar þakklætis, virðingar og vinar þels streyma til hans í dag úr öllum áttum. Við samstarfsmenn irnir við G.A. sendum honum og hans góðu konu, frú Sigur- jónu Pálsdóttur, sem jafnan hef ir staðið ótrauð við hlið hans og stutt hann í blíðu og stríðu, árnaðaróskir. Sverrir Pálsson. lÍIÍiÍIÍIM Fasteighasalan Hátúni 4 A, Nóatúnshúsið Sími 2-18-70 V/ð Njörvasund Til sölu m. a. : 3ja herb. íbúð á hæð, á jarðhæð fylgja 1 herb., geymsla og þvottahús. Sér- hitaveita, sérinngangur. — Útborgun kr. 500 þúsund. 3ja herb. falleg íbúð í há- hýsi við Sólheima 4ra herb. risíbúð við Hrísa- teig. 4ra herb. hæð við Nökkvavog. Bílskúrsréttur, verð kr. 1100 þús. 4ra herb. íbúð við Ásvalla- götu, laus nú þegar. 5 herb. íbúð við Bogahlíð. 5 herb góð íbúð við Ásgarð. 6 herb. íbúð við Grundar- gerði. Höfum í smíðum einbýlishús og raðhús í borginni, Kópa- vogi, Garðahreppi og Sel- tjarnarnesi. Hilmar Valdimarsson Fasteignaviðskipti. Jón Bjarnason hæstaréttarlögmaðnr. 174 slys og árekstrar f YFIRI.ITI lögreglunnar um árekstra og slys 20 fyrstu dagana i þessum mánuði kemur í ljós, að tveimur fleiri slys hafa orðið en á sama tíma í fyrra, og 19 fleiri árekstrar. Þó ber þess að gæta að akstursskilyrði hafa yfir- leitt verið mun verri en á fyrra á sama tima. Alls urðu 174 árekstrar og slys frá 1.—20. nóvember s.l., þar af slösuðust: 4 börn, sex konur, þrir karlmenn, 1 hjólreiðamaður, 4 bifreiðastjórar, tveir farþegar, en dauðaslys varð ekkert á þessu tímabili. Slysin eru því alls 21. Á sama tíma í fyrra urðu 153 slys og árekstrar. Þar af slösuð- ust: 3 börn, sex konur, sjö karl- menn, tveir hjólreiðamenn, einn bifreiðastjóri, en enginn farþegi. Slysin urðu þvi alls 19 þar af eitt dauðasls. McCali 6 8438 Cjí'/fF ‘Ty ' Jóla- almanök í fjölbreyttu úrvali. Jólavörurnar fáið þér hjá okkur. Bókoverzlun Sigiúsoi Eymundssonur Austurstræti 18. — Sími 13135. Efni i buxnadragtir buxur og pils ÍVc Laugaveg 41. Strandgötu, Hafnarfirði. Háaleitisbraut 60. BJARNI Beinteinssom lögfræðingu r AUSTURSTRÆTI 17 (VILLI * VALD0 SÍMI 1353« íbúðir óskast 26. Höfum kaupendur að 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðum til- búnum undir tréverk í borginni. HÖFUM TIL SÖLU : Nýtízku einbýlishús í smíðum í borginni. 2—7 herb. íbúð, sumar nýleg- ar og sumar lausar strax. Fokheldar sérhæðir 140 ferm. með bílskúrum. 2ja og 4ra herb. íbúðir, fok- heldar með hitalögn. Eignarland 12.200 ferm. innan borgarmarkanna. Iðnfyrirtæki með nýjum full- komnum vélakosti og í nýju húsnæði með sérstaklega góðum greiðsluskilmálum. Hveragerði, nýtt vandað einbýlishús, 136 ferm. á einni hæð. Fæst einnig í skiptum fyrir 4—5 herb. íbúð í Reykjavik. Ýmsar eignir úti á landi og margt fleira. Komið og skoðið. Sjón er sögu ríkari Mýja fasteignasalan Laugaveg 12 Simi 24300 Til sölu 2ja herb. íbúð á 2. hæð við Ljósheima. 2ja herb. íbúð á 2. hæð við Kleppsveg með sérþvotta- húsi. íbúðin er 75 ferm., laus strax 3ja herb. íbúð á 4. hæð við Hringbraut ásamt 1 herb. í risi, laus strax. 5 herb. íbúð við Laugarnesveg í blokk, góð íbúð. Raðhús í Austurbænum, til- búið undir tréverk og máln- ingu. Höfum mikið úrval af 2ja. 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðum. Einnig einbýlishúsum, raðhús- um, fokheldum eða lengra kominn Austurstræti 10 A, 5. hæð. Sími 24850. Heimasími 37272. Höfum kaupendur að 2ja—5 herbergja hæðum og einbýlis- húsum. Ennfremur að litlu iðnaðarfyrirtæki. Til sölu m.a. Glæsilegt einbýlishús í Háa- leitishverfi, næstum fullbú- ið. Teikning og upplýsingar í skrifstofunni. 3ja herb. hæð skammt frá Vogarskóla með stórum bíl- skúr, laus strax, mjög góð kjör. Helming útborgunar má greiða næsta vor. 2ja herb. risíbúð í Austur- borginni. Laus strax. Útb. nú kr. 100 þús. og kr. 100 þús. á næsta ári. 2ja herb. nýleg og vönduð 70 ferm. rishæð í Háaleitis- hverfi, teppalögð með harð- viðarinnréttingum, suður- svalir, góð kjör. AIMENNA FASTEIGNASAIAN UWPARGATA9 SlMI 21150

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.