Morgunblaðið - 27.11.1966, Síða 11
Sunnudagur 27. n£v. 1966
MORGU N BLAÐIÐ
11
— Ur verinu
Framh. af bls. 3.
En jafnánægjuleg og þessi
þróun hefur verið og sá mikli
síldariðnaður, sem fylgt hefur
i kjölfar síldveiða þessara báta,
er dapurlegt og meira en það
að sjá, hvernig togurunum og
smærri bátunum, sem fiskvinnsl
an í landi hefur byggzt á, hefur
hrakað.
Það er jlla farið að hafa ekki
gert það, sem þurfti, til þess að
koma í veg fyrir þessa þróun,
sérstaklega ef ekki hefði nú þurft
nema herzlumuninn, til þess að
þessi skip skilúðu ágóða. Þá
befðu verið keyptir nýir togarar
og nýir bátar jafnóðum og hinir
gengu úr sér.
Enginn togari verður til i
landinu eftir 4 ár með sama
áframhaldi, og smærri bátunum
heldur áfram að fækka. Helm-
ingurinn af hraðfrystihúsum
landsins verður þá lokaður. Það
þarf engan speking til að sjá
fyrir þessa þróun.
Nú þarf að gera áætlun um
smíði 150 báta, 30 á ári næstu
5 árin, sem henta fiskvinnslunni,
70 — 120 lesta. Jafnframt þyrfti
að gera áætlun um smíði nokk-
urra togara, sem henta vel til
Met í kappakstri
NÝLEGA sló venjuleg fólksbir-
reið af tegúndinni Vauxhall
Viva, nýtt met í kappakstri.
Ekið var á Zandvoort-brautinni
í Hollamdi.
Þrír ökumenn, Jetten, Lennep
og Gaísonides óku á 4. tíma
vöktum. Vegalengdin, 2530,887
km. var ekin á 105,453 km. með-
alhraða. Hraðasti hringur bif-
reiðarinnar í þessum akstri var
ekin á 110,503 km. meðalhraða.
Konunglegi hollenzki bifreiða-
klúbburinn stóð fyrir þessum
kappakstri.
hráefnisöflunar fyrir frystihús-
in. Þeir þyrftu ef til vill ekki
að vera stærri en 500 lestir,
það munar svo miklu á útgerðar
kostnaði slíkra skipa og 1000
lesta skipanna. 3 skip á ári í 5
ár væri ekki geyst af stað farið.
Reglurnar fyrir útlánum Fisk-
veiðasjóðs íslands eru að lána
% af kostnaðarverði skipa. Eng-
inn, sem hefur áhuga á þorsk-
útgerð, getur keypt bát með
þessum kjörum. Það á að gefa
mönnum kost á viðbótarlánum
gegn tryggingum í eignum í
landi fyrir 20% — 25% af verð-
mæti bátsins, þannig að lánin
yrðu alls 85% — 90% eins og
var við síðustu togarakaupin.
Hvaða goðgá væri, þótt varið
væri auknu lánsfé, 30 milljón-
um króna á ári, til þess að end-
urnýja þorkveiðiflotann.
Stálbátar af stærðinni 100 —
120 lestir kosta 5—6 milljónir
króna, og mætti nota þá til línu,
neta- og togveiða eftir því sem
verkast vildi. Það er mjög vafa-
samt að semja ætti um smíði
margra báta í einu lagi, þótt
■þannig væri hægt að fá skip-
in ódýrari. Með því að láta
marga aðila um þetta, bæði út-
gerðarmenn og skipasmíðastöðv-
ar, nást örari framfarir, næsti
bátur er alltaf fullkomnari og
betri en siá, sem smíðaður var
á undan, og þannig á það að
vera.
En það þarf engan mótorbát
og engan togara, ef ekki verður
séð um, að þessi útgerð skili
arði. Þá er bezt að gleyma þessu.
Fólkið í sjávarþorpunum og
stærsta útgerðarbæ landsins,
Reykjavík, getur þá horft á lok-
uð frystihúsin og hlustað á'síld-
arfréttirnar að austan.
Mest seldi rafmótorinn
á Norðurlöndum
0,17—20 ha.
1400-2800 snún/mín.
Fyrirliggjandi.
Johan Rönning h.f.
umboðs- og heildverzlun.
Skipholti 15. - Sími 10632.
Nýkomni?
Barnaskór
lágir og uppreimaðir.
Kaupið aðeins 1. flokks skó á börnin,
það er nauðsyn vegna framtíðar barnsins
yðar. — Skórnir, sem sérfræðingar mæla
með. — Fallegir skór — góðir skór.
Nýkomið gott úrval.
Laugavegi 17. — Framnesvegi 2.
Sírtii-22900 Laugaveg 26