Morgunblaðið - 30.11.1966, Qupperneq 1
32 síður
B3. árgangur 275. tbl. — Miðvikudagur 30. nóvember 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsins
« «■
Borgarsjúkrahúsið séð úr gróð rarstöðinni í Fossvogi.
Ljósm. Mbl.: <M. K. M.
Loftorrusta
yfir fsrael
Tvær egypzkar Mig-þofur
skofuar niður, segir faBs-
*
maður Israelshers
Tel Aviv, 29. nóv. (NTB-AP)
TALSMAÐUR ísraelska hers
ins skýrði frá því í dag, að
komið hefði til loftorustu
yfir ttsrael í dag. Áttust þar
við tvær þotur úr flugher
ísraels og tvær þotur frá
Egyptalandi. Voru báðar
egypzku þoturnar skotnar
niður.
Vamarmálaráðuneytið í
Kairó hefur ekki staðfest
þessa frétt. Hinsvegar til-
kynuti ráðuneytið í dag að
ein flugvél úr egypzka flug-
hernum hefði týnzt, og gefur
enga nánari skýringu né á-
stæðu fyrir tjóninu.
Einnig kom í dag til á-
rekstra á landamærum ísra-
els og Jórdaníu, og hefur
Hussein Jórdaníukonungur
varað yfirvöldin í ísrael við
frekari ágengni. Segir kon-
ungur að næstu árás ísraels-
manna verði svarað með öll-
um tiltækum gagnaðgerðum,
hverjar sem afleiðingarnar
verði.
Að sögn ísraelsku yfirvald-
anna tilkynntu ratsjárstöðvar í
suðurhluta fsraels flughernum,
að tvær óþekktar flugvélar
væru þar á ferli. Tvær Mirage-
orustuþotur, sem smíðaðar eru
í Frakklandi, voru sendar á
vettvang, og reyndust ókunnu
vélamar vera tvær Mig-19 or-
ustulþotur úr egypzka flughern-
um, en 'þotur þessar eru smíð-
aðar í Sovétríkjunum.
Israelsku flugmennirnir réð-
ust þegar til atlögu, og stóð
loftorustan í tvær mínútur í
Forsætisráðherra um verðstöðvu narfrumvarpið;
Verðum að firra atvinnu-
vegina skakkafölium
— Æskilegt að samkomulag
takist um festingu kaupgjalds
VIÐ fyrstu umræðu um
Verðstöðvunarfrumvarp ríkis-
stjórnarinnar í Neðri deild
Alþingis í gær, flutti Bjarni
Benediktsson, forsætisráð-
herra, ræðu, þar sem hann
gerði glögga grein fyrir þeim
vandamálum, sem að steðja
!hjá höfuðatvinnuvegum þjóð-
arinnar og leitt hafa til þess
að ríkisstjórnin hefur ákveð-
ið að beita sér fyrir verðstöðv
un um eins árs skeið, takist
samningar um festingu kaup-
gjalds til sama tíma.
Forsætisráðherra sagði, að
ljóst væri, að atvinnuvegirn-
ir mundu ekki þola nýjar á-
lögur, nýjar kauphækkanir
eða annan aukinn tilkostnað.
Væri því eðlilegt að gerðar
væru ráðstafanir til þess að
firra þessar þýðingarmiklu
atvinnugreinar skakkaföllum.
Um kaupgjaldsmálin sagði
forsætisráðherra: „Vitanlega
væri það langæskilegast og
mest öryggi í því fólgið ef
verkalýðshreyfingin teldi sér
fært að gera bindandi samn-
ing um kaupgjald til nokk-
urra mánaða, um festingu
ef takast mætti að skapa fest-
ingarástand þetta tímabil, í
hvaða formi sem það yrði“.
Ræða forsætisráðherra fer
hér á eftir í heild, svo og úr-
dráttur úr umræðum á Al-
þingi í gær:
íslenzkir atvinnuvegir mótast
mjög af því, hvað a.m.k. sumir
þeirra og ekki hinir þýðingar-
minnstu eru óvissir, hvað þeir
gefa mismunandi miklar tekjur
af sér, bæði vegna verðbreytinga
og eins sökum þess, að afli er
Framhald á bls. 23.
4.500 metra hæð.
Seinna í dag fengu frétta-
menn í Tel Aviv að ræða við
Midhael höfuðsmann í flug-
her ísraels, seam kvaðsit hafa
skotið niður báðar egyzku
þoturnar, aðra þeirra með
fransk-smíðaðri eldflaug af gerð
inni Matra-530, hina með skot-
hríð úr fallbyssum flugvélarinn
ar.
— Eftir að ég hafði skotið ann
arri eldflauginni, sáum við báð-
ir, flugmaður hinnar orustu-
þotunnar og ég, að hún hæfði
skotmarkið. Svo varð sprenging
og eldur og mikið reykský, sagði
hann. Hin egypzka flugvélin
steyptist til jarðar eftir að hafa
orðið fyrir mörgum skotum úr
fallbyssum Michaels.
— Þegar ég leit við, eftir að
Framhald á bls. 23
AUKIN MEIRIHLUTI GEGN
AÐILD KlNA AÐ SÞ
ísland meðal 57 þjóða, sem felldu tillögu Albaníu um aðild
Kína og brottrekstur Formósa
Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra.
kaupgjalds, framyfir mitt
næsta ár, eða helzt til 31.
október. En jafnvel þó að
slíkt takizt ekki, er á hitt að
líta, að sama gagni að nokkru,
þó ekki til hlítar, kæmi það,
New York, 29. nóv. AP-NTB.
ALLSHERJARÞING Sam-
einuðu þjóðanna kom saman
í dag til að greiða atkvæði um
það, hvort Pekingstjórnin í
Kína skyldi fá aðild að sam-
tökunum. Var tillaga þess
efnis felld með 57 atkvæðum
gegn 46. Fulltrúar 17 þjóða
sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
una, og fulltrúi Laos var fjar-
verandi.
Fyrir Allsherjarþinginu lágu
að þessu sinni þrjú frumvörp,
er snertu aðild Kína að sam-
tökunum. Voru þau þessi, hér
talin upp í sömu röð og þau
voru lögð fyrir:
1) Tillaga Bandaríkjanna og 14
annarra ríkja um að % hluta
atkvæða þurfi til að sam-
þykkja aðild Kína að sam-
tökunum. Þessi regla hefur
verið í gildi að undanförnu,
og fengizt samþykkt á fyrri
þingum. Var bún einnig sam
þykkt að þessu sinni með 66
atkvæðum gegn 48, en sjö
ríki sátu hjá.
2) Tillaga Albaníu, Kambodíu
og níu ríkja annarra um að
veita Kína aðild að samtök-
unum, en víkja Formósu úr
þeim. Var tillaga þessi felld
með 57 atkvæðum gegn 48,
eins og að ofan greinir.
3) Tillaga ítalíu og fimm ann-
arra þjóða um að skipa nefnd
til að athuga málið, kynna
sér óskir Pekingsstjórnarinn-
ar varðandi aðild að sam-
tökunum, og leggja fram til-
lögur í málinu fyrir næsta
Allsherjarþing. Tillagan var
felld með 62 atkvæðum gegn
34, en 25 fulltrúar sátu hjá.
Hvað eftir annað hafa verið
bornar fram tillögur á Allsherj-
arþinginu um aðild Kína að sam
Framhald á bls. 23