Morgunblaðið - 30.11.1966, Side 2

Morgunblaðið - 30.11.1966, Side 2
2 MORGU N B LADIÐ Miðvikudagur 30. nóv. 1966 Frá uppboði Sigurðar Benedikts sonar í gær. Ferðabók Eggerts og Bjarna fór á 21 þós. kr. SÚ bók er fór á hæstu verði á bókauppboði Sigurðar Benedikts- sonar sem haldið var í 'Þjóðleik- húskjallaranum í gær var Ferða- bók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar en hún var að lokum slegin á 21. þús. krónur. Á uppboði þessu voru seldar margar gamlar og fágætar bækur og fóru þær flestar hverjar á allháu verði. Athyglisvert var hversu flestar bækurnar voru vel með farnar og í fallegu bandi. Allar voru bækurnar úr safni þekkts bókasafnara, en ekki fékkst uppgefið hver hann væri. Af bókum sem á uppboðinu voru seldar má nefna Islands Opkomst Páls Vídalíns er seldist á 4.400 kr., doktorsritgerð Jóns Eiríkssonar er fór á 5.100 kr., Óðinn frá 1905-1936 í skinnbandi er fór á 10 þúsund krónur, Heirns kringla Snorra Sturlusonar prent uð í Leirárgörðum 1804 og seld- ist á 4000 kr., Tímarit Jóns Pét- urssonar 1869—1873 fór á 7500 kr., Allt tímarit Bókmenntafé- lagsins bundið í rexinband seld- ist á 5000 kr. Þá voru eftirtaldar bækur Magnúsar Stephensens seldar: Eftirmæli 18. aldar er fór á 1200 kr., Ljóðmæli og Graf- minningar er fór á 3400 kr., Vina- gleði er fór á 1600 kr., Island i Franskir náms- styrkir RÍKISSTJÓRN Frakklands býður fram tvo styrki handa Islendingum til háskólanáms í Frakklandi námsárið 1967-68. Styrkirnir nema hvor um sig 480 frönkum á mánuði. Um- sækjendur, sem hyggja á nám við háskóla utan Parísar, ganga að öðru jöfnu fyrir um styrk- veitingu. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðu- neytisins, Stjónarráðshúsinu við Lækjartorg, eigi síðar en 31. desember n.k., og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt með- mælum. Umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu og hjá sendiráðnm íslands erlend- is. Frétt frá Menntamálaráðu- neytinu. det 18. árhundrede á 3800 kr., og ræður Hjálmars á Bjargi er seld- ist á 3000 kr. Feðgaævir Boga Benediktsson- ar sem er fágæt bók, prentuð í Viðey 1832 seldist á 6500 kr., Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen seldist á 4500 kr., og Lýsing ís- lands, einnig eftir Þorvald fór á 4000 kr. Kongs Sugg-Sio, prentuð í Soröe 1768 seldist á 5000 kr; Series regum Daniae Þormóðs Torfasonar með áritun Eggerts Ólafssonar lögmanns seldist á 5500 kr., Codex regius Sæmund- ar Eddu ljósprentað í Kaup- mannahöfn 1937 seldist á 5000 kr. og Homiliubók eftir elzta ís- lenzka handritinu fór á 6200 kr. Aðrar bækur seldust svo á minna, eða allt frá 100 kr.. Al- gengast var þó að bækurnar færu frá 1500—3000 kr. iizt vil stiérBDc:* g Jafnaðarmenn samþykkja Willy Brandt sem varakanzlara Bonn, 29. nóv. (NTB). EKSSI tókst í dag að ganga endanlega frá samningum kristi- legra demókrata og jafnaðar- manna um skipan nýrrar ríkis- stjórnar í Vestur Þýzkalandi. Var fundum, sem halda átti um málið í kvöid frestað til morg- uns. Ástæðan fyrir frestuninni er sú, að því er opinberir aðilar tjá fréttamönnum, að viðræðu- nefnd kristilegra demókrata hef ur ekki haft nægan tíma til að ganga endanlega frá samstarfs- áætluninni. Haft er eftir „áreiðanlegum heimildum" að deila hafi komið upp milli flokkanna tveggja um skipan ráðherraembætta, en fulltrúar flokkanna hafa borið á móti því. Fyrr í dag hafði verið skýrt frá því að jafnaðarmenn hefðu fyrir sitt leyti samþykkt að leið- togi þeirra, Willy Brandt borg- arstjóri Vestur Berlínar, tæki að sér embætti varakanzlara og utanríkisráðherra í ríkisstjórn Kurts Kiesingers, kanzlaraefnis kristilegra demókrata. Var svo komið að farið var að spá um skiptingu ráðherraembættanna milli flokkanna, og talið líkleg- ast að hún yrði þannig: Kanzlari: Kurt Kiesinger (Kristil. dem., CDU). Varakanzlari og utanríkisráð- herra: Willy Brandt (Jafnaðar- menn SPD). ' Innanríkisráðh.: Paul Liicke vesturlandi í gær f FYRRINÓTT snjóaði mikið í Reykjavík og við sunnanverðan Faxaflóa. Mest var úrkoman í Vestmannaeyjum, þar var úr- koman samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar 15 mm frá því kl. 17. á mánudag til kl. 5 í gærmorgun. Jafngildir það um það bil 20 cm af lausamjöll. í Reykjavík snjóaði á sama tíma 15 cm af jafnfallinni mjöll. Á Norður- og Austurlandi var bjart veður og lítil snjókoma, en spáð var breyttu veðri með snjó komu. Lítið hafði snjóað á Vest- fjörðum. Mest frost var á Norð- Austurlandi 12 stig í Aðaldal og á Héraði. Samkvæmt upplýsingum Vega gerðarinnar var í gær orðið þungfært um Suðurlandsveg og Þrengsli, og Hellisheiði var al- gjörlega lokuð. I Árnes- og Rang árvallasýslum var hríðarveður í gærmorgun. Vegir voru einungis færir stórum bílum. í gær og fyrrinótt snjóaði í Hvalfirði og var Vesturlandsveg- ur fær stórum bílum 1 Borgar- firði og á Snæfellsnesi, en í gærkvöldi leit helzt út fyrir að vegurinn í Hvalfirði myndi lok- ast vegna skafrennings. Að sögn Vegagerðarinnar var versnandi færð á Suður- og Vesturlandi, en greiðfært var um Bröttubrekku, um Dali, og Norð- urlandsvegur var fær allt til Akureyrar og þaðan til Húsa- víkur um Dalsmynni. Þó var Öxnadalsheiði ekki fær nema stórum bílum. Á Strandavegi var dágóð færð allt til Hólmavíkur. Á Austurlandi var fært um I Fljótsdalshérað, Fjarðarheiði var fær og fært var til Reyðar- fjarðar, Eskifjarðar, og Norð- fjarðar frá Egilsstöðum. Á Suð-vesturlandi var snjó- létt eða nánast enginn snjór. Fréttaritari Mbl. á Húsavík, tjáði blaðinu, að fært hafi verið til Raufarhafnar, en mikil hríð var þar norður frá fyrir tveimur dögum. Á leiðinni til Akureyr- ar frá Húsavík var frekar þung- fært í Fnjóskadal og á vegunum inn með Eyjafirði. um Dals- mynni. Fréttaritarinn sagði, að mjög umhleypingasamt hefði verið að undanförnu, en því eiga Þingeyingar ekki að venjast. Á Sauðárkróki var siæmt veð- ur fyrir tveimur sólarhringum, að því er fréttaritari Mbl. Guð- jón Sigurðsson, tjáir. Var þar stormur og snjókoma linnulaust í þrjá sólarhringa, en á mánu- dagsmorguninn slotaði veðrinu. Allmiklum snjó kingdi niður, en vegir tepptust ekki og er meira að segja fært út í Fljót. í fyrstu hríðum teppist vegurinn þangað venjulega, nema þegar hann er á norðan, en í þessu veðri var hann það. Veður var gott á Sauðárkróki í gær. Fréttaritrai Mbl. á Blönduósi, Björn Bergmann segir: Norðurleiðarbílstjóri, sem kom til Blönduóss kl. 17 í dag kvað veður og færi hafa verið sæmi- legt alla leið frá Reykjavík, nema á Múlavegi í V-Húnavatnssýslu. Þar hefði verið mikil hríð og nokkrir fólksbílar fastir. Ekki hefði snjór þó verið til verulegs baga fyrir háa bila, en með kvöldinu mætti búast við versnandi færð. í Hvalfirði og Borgarfirði væri talsverður snjór og hætt við, að færð spillt- ist þar fljótt, ef hvessti. í Norðurárdal og þaðan norð- ur að Múlavegi væri mjög lítil snjór, en víðast svellaður vegur. Bílstjórar, sem komu hingað frá Akureyri um kl. 17 í dag fengu gott veður og færi, unz þeir komu vestur í Langadal. Þar var siæm hríð og færð tekin að þyngjast fyrir litla bila. Þeir sögðu, að vegheflar hefðu rutt snjó af nokkrum köflum Öxna- dalsheiðavegar í morgun. Á Blönduósi má heita hríðarlaust. Mjög snjólétt er um allt héraðið og engar tafir orðið á flutning- um . (CDU), eða Helmut Schmidt (SPD). Dómsmál: Gustav Heinemann (SPD). Fjármál: Franz Josef Strauss (Kristil. sósíalistar, CSU). Varnarmál: Gerhard Schröder (CDU), eða Helmut Schmidt SPD). Verkamál: Hans Katzer (CDU). Efnahagsmál: Karl Schiller (SPD). Landbúnaðarmál: Hermann Höcherl (CSU). Samgöngumál: Holger Börner (SPD). Húsnæðismál: Georg Leber (SPD). Póstmál: Richard Stuckeln (CSU). Al-þýzk mál: Herbert Wehn- er (SPD). Rannsóknarmál: Gerhard Stoltenberg (CDU). Fjölskyldumál: Bruno Heck (CDU). Endurvarps- stöðin á Fjarðar- heiði JÓNAS Pétursson alþm. hefur borið fram á Al- - þingi fyrir- spurn til mennta ':!!ls málaráðherra um það, hve- nær vænta jg megi ákvörð- unar um bygg- ingu endurvarp3 stöðvar sjón- varps á Fjarðar heiði fyrir Austurland. A-ÞÝZKALAND I S.Þ. New York, 29. nóv. NTB. FULLTRÚAR Sovétríkjaima ítrekuðu í dag umsókn Aust ur-Þýzkalands um aðild að Sameinuðu þjóðunum í orð- sendingu til U Thants fram- kvæmdastjóra. Segja þeir að aðild Austur-Þýzkalanda muni stuðla að þróun alþjóða samvinnu, og tryggja að sam tökin verði alþjóðleg. Bonn, 29. nóv. NTB. EINN af leiðtogum nýja þjóð ernissinnaflokksins x Vestur- Þýzkalandi, fyrrxxm nazistinn Otío Hess, sagði í viðtali við vikuritið Der Spiegel í gær, að í kosningunum 1969 muni flokkur hans fá 60—90 sæti á sambandsþinginu í Bonn. Alls eru þingsætin 496. fyrradag, var orðin allnærri í gær og var um hádegið suð- austur af landinu á hreyfingu A eftir. Talsvert snjóaði af henni suðvestan lands um átt og frosti um allt land. Norðanlands mun verða élja- gangur, en bjartviðri á Suður landi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.