Morgunblaðið - 30.11.1966, Page 5

Morgunblaðið - 30.11.1966, Page 5
Miðvlkuðagur 30. nóv. 1966 MORCUNBLAÐ fO 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM Það er betra að vera vel búinn þegar unnin eru jafn kulsöm störf og að moka snjó. Byggja hallir sumarlandsins úr snjó ■ur. Mæður þeirra standa hjá og fylgjast með. Fyrst spurðum við Garðar hvort hann geti sagt pabbi og mamma. Hann leit á okkur stórum augum og brosti svo yfir þessari fádæma heimsku. Sagði síðan af lítillæti: ■— Nei, ég er svo lítill. — Er gaman í snjónum? — Já. — Vildir þú að það væri alltaf snjór? — Já. — Heldurðu að þér yrði þá ekki kalt? — Já. Svo tekur Garðar til við fyrri iðju og má ekki vera að því að tal-a lengur við okkur. Niður við Stakkahlíð hitt- um við svo nokkra hraustlega stráka sem voru að leika sér í rólum. Þeir sveifluðu sér hátt í loft upp og stukku síðan niður úr rólunum. Snæábreiðan sá um að þeir meiddust ekki. Þarpa voru Jóhann Þór Sigurðsson, Jens Valur Ólafsson, Tryggvi Gunnar Sverrisson og Jón Kristinn Sveinsson. Allir voru sammála um hversu gaman það væri að leika sér í snjón- um, skemmtilegra en að vera í skólanum, enda lágu skóla- Bless! Unga stúlkan kveður okkur og hverfur aftur til leikja sinna í snjónum. ist í snjónum rétt hjá okkur. Og auðvitað bregðum við all- ir vel við að hjálpa til við að losa hann. * töskurnar hálfgrafnar í snjó. Þegar við nöldum aftur nið ur á Morgunblað er ekki alveg laust við að spurning komi upp í hugann. Nefnilega þessi: Væri ekki gaman að vera bara 4-5 ára og leika sér í snjónum? Það var dálítil hál'ka í Ár- túnsbrekkunni, en við kom- ust slysalaust upp í Ártúns- hverfi og á leikvellin-um þar hittum við tvo unga herra- menn, Garðar tveggja ára og Þorkel sem er bara eins árs. Þeir sitja þarna í sandkassa og moka snjó í marglitar föt- ÞAÐ eru fóir sem kunna að meta snjóinn — nema börn- in. Þau fagna líka þessum dúni loftsins og velta sér upp úr honum, hnoða bolta og kasta, renna sér á sleðum eða krossviðarplötu, ef annað er ekki til. Þau eldri fara á skíði. Svo koma þau inn á kvöldin og þá nefur snjórinn bráðnað inn í fötin og mömm Strákamir sveifluðu sér i rólunum og stukku síðan í snjóinn. urnar hafa nóg að gera við að þurrka og þvo. Og dagur- inn var vel notaður, því að ekki er víst að þeir snjó- menn og konur, þau virki og hús sem voru reist af svo miklum stórhug og myndar- skap í dag, standi á morgun. Slíkur er hverfulleiki heims- ins. >f Við erum á leið upp Hverf- isgötu og myndir vetrarins líða hjá. Bifreið sem spólar, önnur snævi hulin að mestu, kuldalegt fólk sem bíður eftir strætisvagni, gömul kona sem hreinsar gangstéttina fyrir framan hús sitt. Einu sinni hefur hún líka verið barn og byggt úr snjó og átt drauma tengda honum. Ef til vill öðru vísi drauma en börn nútím- ans. Hennar draumur hefur verið um magasleða og hrossleggjaskauta, í stað snjó bolta og skíðasleða sem börn- in dreymir nú um. >f Og mitt í vetrinum og snjón um er hlýja, því að það eru börn að leika sér á gangstétt- inni. Fyrst reynum við að tala við tvo unga herramenn, en þeir vilja ekki við okkur tala og annar reynir eftir mætti að teygja sig upp í bjölluhnappinn heima hjá sér. Hræddur við þessa stóru ókunnugu menn. Þegar fyrsta tilraun heppnast ekki er bara að gera aðra. Þarna skammt frá eru tveir ungir menn að bjástra við að moka snjó í kassa og draga hann á eftir sér. Þetta heppnast ekki sem bezt, enda kassinn úr pappa. Mér dettur í hug saga Jónas- ar Hallgrímssonar um legg og skel þegar ég sé kassann. Hann hefur eitt sinn verið umbúð um dýra og fína vöru. Það er roði í kinnum strák anna og þeir virðast hafa gaman að því að tala við okk ur og skýra frá áformum sín- um. Þeir ætla að fylla kass- ann af snjó og draga hann síðan lengst upp eftir. Strák- arnir heita Guðjón og Ólafur Pétur, sem vill alls ekki táta kalla sig Svarta-Pétur. Báðir lofa snjóinn. Þeir segjast eiga sleða en snjórinn sé svo laus að það sé ekki hægt að renna sér. Við spyrjum hvar þeir renni sér þegar færi gefist. Þeir svara að það geri þeir port megin. Annars ber Guðjón sig hálf illa sökum þess að hans sleði er úti í Vastmannaeyjum og því ekki handhægur. Sem hann hefur sagt okkur þessi tíðindi ber vel í veiði fyrir okkur og strákana því að bifreið fest- 7936 - 30 ár - 7966 FLLGMÁLAIiÁTÍÐIN verður haldin í Lídó og hefst með borðhaldi kl. 7,30. — Meðal skemmtiatriða verður: Ulla Bella hin vinsæla stjarna kemur fram með forvitnislegt atriði: Danssýning undir stjórn Hermanns Ragnars. Kl. 12 óvænt skemmtiatriði. — Veizlustjóri Þormóður Hjörvar. — Smóking eða dökk föt. Aðgöngumiðar fást hjá: Flug- félagi íslands, Loftleiðum, skrif stofu flugmálastjóra, Flugþjón- ustunni og Tómstundabúðun- í Aðalstræti og Skipholti. Skemmtinefndin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.