Morgunblaðið - 30.11.1966, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 30. nov. 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Joi'annessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson,
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
í lausasölu kr. á mánuði innanlands.
Áskriftargjald kr. 105.00 7.00 eintakið.
FRUMVARP UM
VERÐSTÖÐ VUN
J^íkisstjórnin hefur nú lagt
fyrir Alþingi frumvarp
til laga um heimild til verð-
stöðvunar en beiting þeirra
heimilda, sem ríkisstjórninni
_á að veita samkvæmt frum-
varpinu byggist á þeirri for-
sendu, að ekki verði kaup-
hækkanir, sem geri verðstöðv
un óframkvæmanlega. —
Frumvarp þetta er þáttur í
þeim ráðstöfunum, sem ríkis-
stjórnin hefur beitt sér fyrir
að undanförnu, til þess að
koma á almennri verðstöðv-
un, en verðlækkanir á þýð-
ingarmestu útflutningsafurð-
um okkar hafa valdið því, að
knýjandi nauðsyn er að koma
í veg fyrir frekari hækkun
framleiðslukostnaðar útflutn-
ingsatvinnuveganna. Það er
yfirlýst stefna ríkisstjórnar-
innar að hún muni beita sér
fyrir verðstöðvun um eins
árs skeið, og í því skyni hef-
ur hún hafið nokkrar niður-
- greiðslur, sem miða að því að
vísitala framfærslukostnaðar
verði óbreytt um eins árs
skeið, miðað við það sem hún
var 1. ágúst sL
Efni frumvarps þessa er á
þá leið, að ríkisstjórninni er
heimilt að ákveða bann við
verðhækkunum á öllum vör-
um og á seldii þjónustu í
hvaða formi sem hún er,
nema samþykki hlutaðeig-
andi komi til, og óheimilt er
að leyfa verðhækkanir nema
þær sem óhjákvæmilegar eru
vegna hækkunar á tollverði
innfluttrar vöru. Verði verð-
“hækkanir frá þeim tíma, sem
frumvarp þetta er lagt fyrir
Alþingi og þar til það er orðið
að lögum, er slík verðhækk-
un ógild, og hlutaðeigandi
skyldur að lækka verðið í
það sem það var á þeim tíma,
sem frumvarp þetta var lagt
fram.
Mikilvæg ákvæði eru í
frumvarpinu um opinber
gjöld en samkvæmt því, er
ríkisstjórninni heimilt að á-
kveða, að álagningarstigar
útsvara og aðstöðugjalds
- megi ekki hækka frá því, sem
ákveðið var í hverju sveitar-
félagi 1966, nema samþykki
ríkisstjórnarinnar komi til og
hún telji hana óhjákvæmi-
lega vegna fjárhagsafkomu
hlutaðeigandi sveitarfélags.
Ennfremur er ríkisstjórninni
heimilt að ákveða bann við
hækkun annarra opinberra
gjalda frá því sem var á ár-
inu 1966, svo og hækkun á
gjaldskrá ýmissa þjónustu-
fyrirtækja hins opinbera,
bæði ríkis og sveitarfélaga.
í greinargerð verðstöðvun-
arfrumvarps ríkisstjórnarinn-
ar segir meðal annars: „Á
undanförnum mánuðum hef-
ur hin mikla verðhækkun
sem orðið hafði á útflutnings-
afurðum landsins á tveimur
síðastliðnum árum snúizt í
verðlækkun á mörgum þýð-
ingarmestu afurðunum. Að
svo komnu er ekkert hægt
um það að fullyrða, hversu
mikil þessi verðlækkun muni
verða, né hversu lengi hún
muni standa.
Hækkun afurðaverðs er-
lendis á undanförnum árum
hefur skapað svigrúm fyrir
þeim miklu launahækkunum
sem hér hafa átt sér stað. Á
hliðstæðan hátt er það brýn
nauðsyn vegna verðfallsins,
að ekki eigi sér stað frekari
hækkun framleiðslukostnað-
ar hjá útflutningsatvinnuveg-
unum. Það er skilyrði þess að
svo megi verða, að frekari
hækkanir verðlags séu nú
stöðvaðar. í því skyni ákvað
ríkisstjórnin að greiða niður
hækkun þá á búvöruverði,
sem ella hefði orðið í septem-
bermánuði sL og hefur hún
síðan gert ráðstafanir til
lækkunar á vísitölu fram-
færs'lukostnaðar niður í það
sem hún var 1. ágúst sl. ann-
ars vegar með frekari aukn-
ingu niðurgreiðslna í síðasta
mánuði, og hins vegar að
hækka fjölskyldubætur frá
og með 1. nóv. sl., svo sem
lög heimila. Þessar ráðstafan-
ir geta ekki komið að haldi
nema unnt sé að koma á al-
mennri verðstöðvun og mið-
ar frumvarp þetta að því að
svo megi verða“.
Verðstöðvunarstefna ríkis-
stjórnarinnar hefur hlotið
mjög ríkan hljómgrunn meðal
almennings og engum blöð-
um er um það að fletta, að
það er vilji almenningsálits-
ins í landinu að þessi stefna
nái fram að ganga.
Með verðstöðvunarfrum-
varpinu hefur ríkisstjórnin
enn viljað leggja áherzlu á
þennan vilja sinn og sýna í
verki að hún er reiðubúin til
þess að gera allar nauðsyn-
legar ráðstafanir, til þess að
stöðva allt verðlag í landinu
að því tilskildu að verkalýðs-
mhv'&m 11 x UTi m 1 Ul \ II ■V" - ■. . IEI IV II
Husscin, konungur, sæmir hermann heiðursmerki.
Afleiiingar árása Israels
á ástandið í Jórdaníu
[
Hussein, konungur, á nú í vok að verjast
HEFNDARRÁÐSTAFAN-
IR ísraelska hersins gegn
nokkrum bæjum í Jórd-
aníu um miðjan þennan
mánuð hafa haft víðtækari
afleiðingar en almennt var
í upphafi gert ráð fyrir,
þótt telja verði, að jafn
reyndir stjórnmálamenn
og Eshkol, forsætisráð-
herra, og Eban, utanríkis-
ráðherra, hafi gert sér
fulla grein fyrir því, hvað
leiða myndi af slíkri vald-
beitingu.
Atburðir þessir sýna þó
betur en margt annað, hve
landamæravarnir Ísraels-
manna eru flókið og erfitt
mál.
Einn feunnasti skopteiknari
í Israel hefur reynt að lýsa
vandamálinu. Hann dró upp
mynd af búsi, sean er að því
komið að brynja. Húsið á að
tákna Jórdaníu. Við húsið
stendur lítil stúlka (ihún á að
Framhald á bls. 22
hreyfingin knýji ekki fram ó-
raunhæfar kauphækkanir.
Alþýðusambandsþingi er
nýlokið og þar var gerð á-
lyktun um kjaramáL í viðtali
sem haft var við forseta Ai-
þýðusambandsins, Hannibal
Valdimarsson, í sjónvarpinu
fyrir nokkrum dögum, lýsti
hann því yfir, að skoða mætti
ályktun Alþýðusambands-
þings um kjaramál, sem viss-
an stuðning við verðstöðvun-
arstefnu ríkisstjórnarinnar.
Það er því fyllsta ástæða til
að ætla, að verkalýðshreyf-
ingin taki fyrirhuguðum að-
gerðum ríkisstjórnarinnar
vel, og fallist fyrir sitt leyti
á þær aðgerðir, sem nauð-
synlegar eru til þess að verð-
stöðvun verði framkvæmd.
VONBRIGÐI
STJÖRNARAND-
STÖÐUNNAR
að hefur lengi verið aðal-
áróðursefni stjórnarand-
stæðinga gegn ríkisstjórn-
inni, að hún væri ekki nægi-
lega skelegg í baráttunni gegn
verðbólgunni. Að vísu hefur
marg oft verið vakin athygli
á þeirri staðreynd, að hún
hefur beitt öllum þeim ráð-
um, sem tiltæk hafa verið og
hentað hafa aðstæðum hverju
sinni til þess að takmarka
verðbólguna, en þó hefði
mátt ætla með hliðsjón af
fyrri áróðri stjórnarandstæð-
inga, að þeir fögnuðu fram-
komnu verðstöðvunarfrum-
varpi ríkisstjórnarinnar.
Svo er þó ekki. Vonbrigðin
skína út úr forsíðum Fram-
sóknar- og kommúnistamál-
gagnsins í gær vegna verð-
stöðvunar stef nu ríkisst j órn-
arinnar. Framsóknarmenn
halda því fram, að hér sé um
að ræða „nýja löggjöf um
verðlagseftirlit" og að „ríkis-
stjórnin hafi dregið „frelsis-
fána“ sinn í hálfa stöng“, en
kommúnistamálgagnið segir,
að hér sé um „sýndarráðstaf-
anir“ að ræða og „hótanir“
við verka'lýðssamtökin.
Það gegnir óneitanlega
furðu, að stjórnarandstæðing
ar skuli aldrei, hvers eðlis
sem málið er, vilja viður-
kenna það sem vel er gert.
Höfuðkrafa þeirra í mörg ár
hefur verið sú að verðbólgan
yrði stöðvuð. Nú er það yfir-
lýst stefna ríkisstjórnarinnar,
að koma á almennri verð-
stöðvun um eins árs skeið og
til þess liggja augljósar á-
stæður. En viðbrögð stjórnar-
andstæðinga eru ekki þjóð-
hollari en svo, að vonbrigðin
eru augljós vegna þess að
ríkisstjórnin er ákveðin í að
framfylgja þessari stefnu. Að
þessu sinni, þegar svo mikið
er í húfi, hefði vissulega ver-
ið ástæða til að búast við öðr-
um viðbrögðum frá hinni ís-
lenzku stjórnarandstöðu.
LÝÐRÆÐIÐ
TREYST
F'ullvíst má nú telja, að
1 stjórnarkreppunni í Horm
sé lokið og að við muni taKa
samstjórn Kristilegra demó-
krata og Jafnaðarmanna. Það
verður þá í fyrsta skipti síð-
an á dögum Weimar-lýðveld-
isins, sem Jafnaðarmenn eiga
sæti í ríkisstjórn Þýzkalands.
Samstjórn hinna tveggja
stóru flokka í Vestur-Þýzka-
landi mun án alls efa skapa
Þýzkalandi trausta og sterka
ríkisstjórn og á því er líka
fyllilega þörf þar sem öl'l mál
efni Evrópu eru nú mjög í
deiglunni og ýmis hættu-
merki á lofti í vestur-þýzkum
stjórnmálum. Það er því á-
stæða til að fagna því, að
stjórnarsamstarf hefur tekizt
með Kristilegum demókrot-
um og vestur-þýzkum Jafn-
aðarmönnum. — Væntanlega
mun það stjórnarsamstarf
verða til þess að treysta lýð-
ræðið í Vestur-Þýzkálandi og
verða grundvöllur traustrar
og skynsamiegrar utanríkis-
stefnu Þýzkalands.