Morgunblaðið - 30.11.1966, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.11.1966, Blaðsíða 30
30 MORGU N BLAÐIÐ MiSvíkudagur 30. nðv. '196t Landsleikurinn í gœrkvöldi: Isl. fiðið náöi 4 marka for- skoti - en tapaði 20-23 klaufaleg mistök og úthalds- leysi riðu baggamunimi ÞAÐ rofaði sannalega aftur til bjá íslenzka handknattleikslands- liðinu í gær er landsleikur íslands og V-Þýzkalands fór fram — sá fyrri. Með glæsilegum handknattleik, leifturfaröðum og skemmti- legum leik komst íslenzka liðið í 4 marka forskot á tíma í byrjun leiksins og hafði tveggja marka forskot í leikhléi, 11-9. En allmörg glappaskot í sendingum og loks úthaldsleysi komu í veg fyrir að tækizt að varðveita unnið forskot. Og svo fór að Þjóðverjar sigruðu með 23-20. Það má því betur ef duga skal — en lengst af sýndi íslenzka liðið mjög góðan leik. Það var ekki fyrr en 8 mínútur voru eftir að Þjóðverjar náðu forystu — og hefði það einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar. •fr Þorsteinn gaf liðinu traust Laukurinn byrjaði rólega, en ísl. liðið þó fálmandi, einkum í sendingum. Þjóðverjar skoruðu fyrsta markið úr víti er hálf önn ur mínúta var liðin. Og þegar Gunnlaugur skaut framhjá og skot Ingólfs var varið litlu síðar, fór kurr um áhorfendabekki. En Þorsteinn virtist strax í ess inu sínu í markinu. Og það skap aði liðinu traust — og færi til nýrra sókna. Eftir 5 mín. skoraði Hermann af línu fallega og er 6% mín. vou af leik náði Ingólfur forystu fyrir ísland — greip inn í send- ingu Þjóðverja og brunaði að markinu. Þorsteinn skapaði traustið í markinu og þegar Hermann hafði skorað þriðja mark íslands var ísl. liðið búið að ná tökum á leiknum. Það sýndi ágætt sam- spil, með hraða og góðum stöðu skiptingum leikmanna, sem rugl uðu Þjóðverja svo að þeir urðu að beita sér í vörninni. Komst liðið í 3. marka forskot og yfir- vann með því alla þá veikleika, sem það hefur sýnt í tilrauna- leikjunum að undanförnu. Er 14 mín. voru af leik varði Þorsteinn vítakast og ekki spillti það leikgleði ísl. liðsins. Á þessu tímaíbili átti ísL liðið sinn bezta leikkafla, hafði yfir- burði í hraða, notaði breidd vall arins dável og tilraunir til línu- spils voru ógnandi. Vel skipt inn á Ragnar Jónsson, sem sá um skiptingar leikmanna, fór klók- lega að láta hina snöggu Hafn- firðinga, bræðurna Geir og örn hvila í byrjun en koma síðan báða inn. Eldsnögg skot þeirra uku forskot ísl. liðsins í 4-mörk eða 9—5 og síðar 10—6. Var þá Guðjóni vikið af velli hörmulega klaufalega sendingu — en af þeim var heldur mikið og þó ekki hefði tekizt að lag- Ææra annað en aðeins þær, þá var þýzki sigurinn ekki sitað- reynd. ~ ★ Forystan helzt Fyrstu mínúturnar síðari hálf leiks hafa oft reynst liðinu ísl. erfiðar. Svo virtist ætla að verða nú. Mark Hermanns var dæmt ógilt — en þó aukakast á Þjóð- verja. Skrítinn dómur. Og sið- an skoyuðu Þjóðverjar, svo munurinn var 1 mark. En Ingólfi tókst að skora fallegt mark — litlu síðar var Þorsteinn vel og Ingólfur skor- ar aftur — svo forskotið er aft- ur orðið 3 mörk 13—10 fyrir ísland. HRUNIÐ Þannig hélzt munurinn fram Hermann Gunnarsson framkva:mir vítakast — og skorar. Myndir Sv. Þorm. stöng, en knötturinn hrökk svo í fót Þorsteins og í markið. Geir skoraði síðasta mark íslands — og tryggði á þann hátt að liðinu tókst að fylla tvo tugi marka hjá þessu einu af sterkustu liðum Evrópu. Mörk fslands skoruðu: Gunn- laugur (eitt úr víti), Ingóifur 5 Hermann, Örn og Geir 3 hver, Sigurður Einarsson og Guðjón Hér er Gunnlaugur kominn í gegn en á honum brotið. Sjá nr. 4 — Hans Schmidt (áður í ung- verska heimsmeistaraliðinu) og Gunlaugur eltu grátt silfur saman á köflum leiksins. Takið eftir þeim nr. 13, sem undirbýr þegar hraðsókn, þó ekki tækist í þetta sinn. í 2 mín og á síðustu 9 mín fyrir hlé skora Þjóðverjar 3 mörk gegn 1 svo staðan í hálfleik var 11—9 fyrir Ísland. Var raunar klaufalegt — og alger óþarfi — af fá síðasta markið, en það kom fyrir eina Sagt eftir leikinn A Ð loknum - landsleiknum í gærkvöldi gengum við til bún ingsklefa og leituðum álits nokkurra um leikinn: Werner Vick, þjálfari vest- ur-þýzka landsliðsins: — fs- lenzka liðið var betra liðið í fyrri hálfleik en okkar lið í hinum síðari. í íslenzka lands liðinu fannst mér beztir nr. 10 (Ingólfur Óskarsson) og nr. 2 (Gunnlaugur Hjálmars- son) er mjög góð skytta, en spil hans ekki eins gott. Annað kvöld munum við leika með talsvert breyttu liði, því að nú munum við láta sex menn leik í liðinu, sem ekki voru með í kvöld. Ástæðan til þessa er sú, að við gerum nú miklar tilraunir í sambandi við lið okkar til undirbúnings heimsmeistara- keppninni. Sigurður Jónsson (einræðis herra): — Ég er eftir atvikum ánægður með leikinn, við hefð um unnið með meira úthaldi. Hvað snertir leikinn annað kvöld, þá munum við reyna að sigra, en það verður erfitt. á 12. mín — staðan varð 14-11 og síðar 15-12. En þá gerðist slysið. Birgir Björns- son skaut tvívegis í vonlítilli stöðu lausum og saklausum skotum og í 3. sinnið föstu skoti sem var varið. En á milli brunuðu Þjóðverjarnir upp og skoruðu — forskotið tapaðist á örskammri stund. Staðan var 15-15 og 15 mín til loka. Og þegar ver fór að ganga og mótlætið að setja sín mörk á leikinn kom þreyta leifcmanna í ljós. Gunnlaugur fyrirliði gerði þó heiðarlegar tilraunir og árang- ursríkar til að halda lífsneistan- um í liði sínu. Fram til þessa hafði hann átt aðeins tvö mis- heppnuð skot að marki. Nú tók hann fjörkipp, skoraði 16. mark- ið úr víti, síðaii það 17. og 18. En Þjóðverjunum tófcst ævinlega að jafna á milli og forystunni náðu þeir er 8 mín voru eftir af leik — 18-19. Og í lokin voru þeir hinn sterkari aðili — út- haldið greinilega betra hjá þeim. Ofan á bættist óheppnin — mest þegar einn Þjóðverja skaut í sitt hvor. Mörk þjóðverjana: H. Lubking 6, Hans Smidt og H. Honnige 4 hvor, Mueheisen 3 Heger 3, Bartels 2 og Feldhoff 1. Liðin. Isl. liðið sýndi Iofsverðan leik lengst af. Að vísu virtist út- haldið ekki fyllilega nógu gott. Afdrifaríkustu mistökin voru hinar lélegu sendingar milli manna — og þau kostuðu reynd ar sigurinn. Leikhraðin og skipt ingarnar framan af voru með ágætum og eins var yfirvegurn leikmanna um samspil góð — þar til þreytan fór að segja til sín. Liðið sýndi í upphafi bæði ógu andi langskot og vakti einnig yfir möguleikum á línu, svo að unun var á að horfa. En þessi ágæti kostur hélzt ekki út leik- inn. í síðari hálfleik vantaði mikið á léttleika í spili og eins að nýta möguleikana. Þá voru línumennirnir ekki nógu hreyf anlegir og urðu að litlu gagnL Skot í tíma og ótima skemmdu og. Jón Hjaltalín virtist ekki falla í liðið og mætti sannar- lega gera aðra tilraun. Þýzka liðið sýndi ekki þann hraða sem búizt hafði verið við í upphafi. En inn á milli komu hraðir kaflar hjá liðinu sem sköpuðu hættu. Þýzka liðið virfc ist ekki búa yfir jafn leikandi léttum og ógnandi sóknarleik og hið íslenzka — en hraðhlaupin og nýting þeirra færði þeim sig- urinn. Athygli vakti og úthald liðs- ins, en það hafði og sín áhrif er á leið. Dómari var T. Janerstam. Hann dæmdi vel að vanda, en virtist ekki sjálfum sér sam- kvæmur varðandi brotin er leiddu til hrottrekstrar tveggja íslendinga í 2 mín. oig þrota er Þjóðverjar gerðu. — A. St. 20 köriuknattleiks tnenn heija ætingar — fyrir lanndsleikinn v/ð Skota Ákveðið hefur verið, að Skot- ar og íslendingar leiki lands- leik í körfuknattleik hér á ís- landi í endaðan janúar. Undir- búningur þessa leiks er þegar hafinn og hefur landsliðsnefnd Körfuknattleikssambands Is- lands valið eftirtalda leikmenn til æfinga undir handleiðslu landsliðsþjálfarans Helga Jó- hannssonar og úr þessum hópi verður síðan valinn 12 manna hópur til að keppa fyrir fslands hönd í fyrrgreindum landsleik. Fyrsta æfingin verður í kvöld (miðvikudag) kl. 9.30 og verður æft í íþróttahúsi Réttarholts- skólans. Leikmennirnir eru þess ír: Frá Armanni: Birgir Birgis og Hallgrímur Gunnarsson, Frá ÍR: Birgir Jakobsson, Hólmsteinn Sigurðsson, Agnar Friðriksson, Pétur Böðvarsson, Skúli Jóhannsson. Tómas Zoega, Frá ÍS; Björn Ástmundsson og Hjörtur Hannesson, Frá KFR: Einar Matthíasson, Marinó Sveinsson og Þórir Magnússon. Frá KR: Ágúst Svavarsson, Einar Bollason, Gunnar Gunn- arsson Guttormur Ólafsson, Kol beinn Pálsson, Kristinn Stefáns son og Hjörtur Hansson. (Fréttatilkynning frá KKÍ).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.