Morgunblaðið - 10.12.1966, Síða 11

Morgunblaðið - 10.12.1966, Síða 11
9 J J , > , ý: ~ ■' I.augardagur 10. des. 1956 /_____________________________ MORGUNBLAÐIÐ 11 Husqvarna Husqvarna eldavélin er ómissandi í hverju nútíma eldhúsi — þar fer saman nýtízkulegt útlit og allt það sem tækni nútímans getur gert til þess að matargerðin verði húsmóðurinni auðveld og ánægjuleg. — Husqvarna eldavélar fást bæði sambyggðar og með sérbyggðum bökunarofni Leiðarvísir á íslenzku, ásamt fjölda mataruppskrifta fylgir. famnax SqfisjúvúM h.f. Suðurlandsbraut 16 - ReYkjavik - Simnetni: »Volver« - Simi 35200 Frystikistur frá Danmörku 250 lítra kr. 15.160.— 350 lítra kr. 17.640.— 450 lítra kr. 20.850.—• Frystiskápar 275 lítra kr. 16.975.— Einnig fjölbreytt úrval hvers konar raftækja. Eittlivað við allra hæfi. DrátlarvéSar hl. HAFNARSTRÆTI 23. Bcsar Basar verður haldinn að Hlégarði á morgun, sunnudag kl. 3. Failegir munir, jólasveinar selja lukkupoka. Skógrsektarfélagið. Auglýsing um takmörk á umferð í Reykjavík 12. til 24. desember 1966 Ákveðið hefir verið að gera eftirfarandi ráð- stafanir vegna mikillar umferðar á tímabilinu 12. til 24. desember nk.: L Einstefnuakstur: 1) Á Vatnsstíg frá Laugavegi til norðurs . 2) Á Frakkastíg frá Hverfisgötu að Lind- argötu. 3) í Naustunum frá Hafnarstræti að Tryggvagötu. 4) í Pósthússtræti frá Tryggvagötu, til suðurs. 1L Hægri beygja bönnuð: 1) Úr Tryggvagötu í Kalkofnsveg. 2) Úr Snorrabraut í Laugaveg 3) Úr Snorrabraut í Njálsgötu. III. Bifreiðastöðubann: 1) Á Skólavörðustíg, norðan megin göt- unnar, frá Týsgötu að Narðargötu. 2) Að Týsgötu, austan megin götunnar, frá Skólavörðustíg að í>órsgötu. IV. Bifreiðastöður takmarkaðar við Vz klukkustund. 1) Á eyjunum í Snorrabraut frá Hverfis- götu að Njálsgötu. 2) Á Frakkastíg milli Lindargötu og Njálsgötu. 3) Á Klapparstíg frá Lindargötu að Hverf- isgötu og frá Grettisgötu að Njálsgötu. 4) Á Garðarstræti, norðan Túngötu. Þessi takmörkun gildir á almennum verzl- unartíma frá mánudeginum 12. desember til hádegis laugardaginn 24. desember nk. Frek- ari takmarkanir en hér eru ákveðnar verða settar um bifreiðastöður á Njálsgötu, Lauga- vegi, Bankastræti, Aðailstræti og Austursræti, ef þörf krefur. V. Ökukennsla í Miðborginni er bönnuð milli Snorrabrautar og Garðastrætis á framangreindu tímabili. VI. Bifreiðaumferð er bönnuð um Austur- stræti, Aðalstræti og Hafnarstræti, laug- ardaginn 17. desember, kl. 20.00 til 23.00, og föstudaginn 23. desember, kl. 20.00 til 24.00 Ennfremur verður sarns konar um- ferðatakmörkun á Laugavegi frá Snorra- braut og í Bankastræti á sama tíma, ef ástæður þykja tiL VII. Athygli skal vakin á takmörkun á um- ferð vörubifreiða, sem eru yfir 1 smá- lest að burðarmagni, og fólksbifreiða, 10 farþega og þar yfir, annarra en stræt- isvagna, um Laugaveg, Bankastræti, Aust- urstræti og AðalstrætL Sú takmörkun gildir frá kl. 13.00 þar til almennum verzl- unartíma lýkur alla virka daga, nema föstudaginn 23. og laugardaginn 24. des- ember, en þ á gildir bannið frá kl. 10.00. Ennfremur er ferming og afferming bönn- uð á sömu götum á sama tíma. Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir fiorðist óþarfa akstur, þar sem þrengsli eru, og að þeir leggi bifreiðum sínum vel og gæti vandlega að trufla ekki eða tefja umferð. Þeim tilmælum er beint til gangandi vegfarenda, að þeir gæti varúðar í umferðinni, fylgi settum regl- um og stuðli með því að öruggri og skipulegri umferð. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 10. desember 1966. Sigurjón Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.