Morgunblaðið - 10.12.1966, Síða 32

Morgunblaðið - 10.12.1966, Síða 32
14 DACAR TIL JÓLA wjgtmirifofrHkr 14 DAGAR TIL JÓLA 284. tbl. — Lsngardagur 10. desember 1966 Hækkandi heimsmark aðsverö á síldarlýsi Síldarmjölið hefur líka hækkað VER.ÐEÐ á síldarlýsi hefnr hækkað allverulega á heims- markaðinum nú sl. mánuð, að því er Pétur Pétursson hja Lýsi hf. tjáði Mbl. í gær. Sömuleiðis hefur heimsmarkaðsverði á síld armjöli hækkað, en þar var hækkunin ekki eins mikil. í fyrradag fengust 65 sterlings pund fyrir bonmð af síldarlýs- inu, og er það £ 15 meira en fékkst fyrir tonnið í sl. mánuði. Hækkunina á síldarlýsinu má fyrst og fremst rekja til þess að Norðmenn hættu veiðum í haust vegna lækkcUidi heimsmarfkaðs- verðs, svo og að langvarandi verfc&all hefur verið meðal fiski manna í Perú. Milklar birgðir af sdldarlýsi eru nú fyrir hér á landi. Verðið á hverri eggjahvítuein ingu síldarmjölsins hefur að undanförnu verið 17 shillingar og 3—6 pence, en var í sl. mán- uði 16 shillingar og 6 r>ence. Meiri stórgripa- slátrun hér en áður Bændur draga úr mjólkurframleiðsl- unn/, en auka kjötframleiðsluna SXÓRGRIPASLÁTRUN i haust •g vetur hefur verið mun meiri •n nokkru sinni áður. Er enn verið að slátra í mörgum slátur- búsum og hafa þau ekki getað annað öllu því sem borizt hefur til slátrunar, enda ekki byggð fyrir stórgripaslátrun. Engar tölur liggja enn fyrir Framhald á bls. 3>1. Stjómarfrumvarp á Alþingi: Stofnaður verði Framleiðn: sjóður Landbúnaðarins 20 millj. kr. fjárveiting til sjóðsins á þessu ári RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fyrir Alþingi frv. um Fram- leiðnisjóð landbúnaðarins, sem hafa skal það hlutverk að veita styrki og lán til framleiðniaukn ingar og hagræðingar í land- búnaði, bæði með því að styrkja rannsóknir og aðgerðir til Iækk unar á framleiðslukostnaði og eins til aðgerða er miða að þvi að samræma landbúnaðarfram- leiðsluna þörfum þjóðfélagsins. Stofnframlag ríkissjóðs skal vera 500 millj. kr. og skal greiða 20 millj. á þessu ári, sem sjóðs- stjórn skal ráðstafa til vinnslu- stöðva landbúnaðarins vegna endurbóta á þessu ári. Eftir- stöðvamar, 30 milljónir, skal greiða á árunum 1967 til 1969. í greinargerð frv. segir m.a.: Nauðsynlegt er að haga svo framleiðslu búvara, sem þarfir þjóðarinnar krefjast, og að sá hluti framleiðslunnar, sem út kann að vera fluttur, sé í fyllsta samræmi við markaðsaðstæðurn ar, hverju sinni, en með því að hvort tveggja getur tekið breyt- ingum nokkuð skyndilega, en það tekur ávallt lengri tíma að breyta framleiðsluháttum land- búnaðarins, getur það verið nauðsynlegt að flýta fyrir þeim breytingum með beinni aðstoð, eins og lög þessi gera ráð fyr- ir. f>að er t.d. á flestra vitorði, að nú sem stendur er sauð- f FYRRINÓTT var bOl á leið í bæinn frá Geithálsi klukkan lið- lega tvö. Á móts við Hraiunbæ missti bílstjórirm vald á honum og ók hann út af veginum og lenti á steini. Kona ökumannsins, Arnbjörg Ásgeirsdóttir, Laugaveg 28 B, skarst á báðum fótum og á andliti og var flutt í Slysavarð- stofuna. „Fengum mest milli 30 -40 tonn í hali Rætt við skipstjóraim á IVfaí á IMýfundnalandsmiðum t GÆR bárust þær fregn- ir til Reykjavíkur, að tog- arinn Maí frá Hafnarfirði væri í mokfiski á miðun- um við Nýfundnaland. — Mbl. náði í gær tali af skip- stjóranum á Maí, Halldóri Halldórssyni, þar sem skip ið var að veiðum á Ritu- banka við Nýfundnaland. — Við vorum að heyra að þið hefðuð heldur betur ver- ið að setja í hann þarna, Hall- dór. — Neeei, iþað hefur verið svona sæmilegt. — Hváð eruð þið búnir að fá mikinn afla um borð? — Það eru eitthvað um 480 tonn. Við vorum að fylla nétt í þessu og erum að gera klárt fyrir heimsiglinguna. — Hvað hafið þið verið lengi að veiðum? — Við erum búnir að vera 7 daga hérna. Við fórum fyrst á A-Græniland, en þsr var mikill ie og Mtið að hafa og þá fórum við beint hingað. — Settúð þið strax í hann þegar Iþið komuð? — Já, já, ‘þetta hefur verið ágætt allan túrinn. — Hvað ha/fið þið fengið mikið í hali að meðaltali? — Við höfum mest fengið 11 poka ,sem gera svona um 30—40 tonn og iþetta er ágæt- is karfi allt saman. — Eru fleiri skip að veiðum iþarna? — Nei, við erum alveg ein- skipa 'hérna. — Eruð þið á sömu slóðum 44 og mesti aflinn fékkst þarna á dögunum? — Já, við erum hér á Ritu- banka, þetta eru alveg sömu mi'ð og hér áður fyrr. — Heldurðu að það geti verið um að ræða einhverja nýja göngu þarna? — Nei nei, það held ég ekki. Þetta kemur bara svona ann- að slagið. — Þetta verður góður túr hjá ykkur. Hvernig hefur veðrið verið? — Jájá, þetta verður ágæt- istúr. Veðrið hefur verið ágætt allan túrinn. Þetta hef- ur allt gengi'ð að óskum. — Hvað er langt sdðan þið fóruð út? — Það er um hálfur mán- uður sáðan við fórum frá Hafn arfirði og niú eigum við eftir fjögra daga siglingu heim. — Hvað eruð þið margix um borð? — Við erum 33 um borð og biðjum allir að heilsa heim. fjárframleiðsla landsmanna nær því að geta framleitt fyrir er- lent mankaðsverð, en mjólkur- framleiðslan. Reynt hefur ver- ið að örva menn til sauðfjár- framleiðslu með verðtilfærslu milli mjólkur og kjöts. Slík verð tilfærsla hefði þá jafnframt átt að draga úr mjólkurframleiðsl- unni. Reynslan hefur samt orð- ið sú að framleiðsluaukmngin hefur orðið enn meiri í fram- leiðslu mjóikur en sauðfjáraf- Halldór í Háteigi urða, og sáralítið hefur borið á því að menn dragi frekar saman framleiðslu mjólkur I sveitum, sem betur henta fyrir sauðfjárframleiðslu, og hafa aufc þess ófullnægjandi markaðsskil- yrði fyrir mjólk, heldur en i sveitum, sem betur eru fallnar fyrir mjólkurframleiðslu, bæði landfræðilega og markaðslega séð. Takmörk hljóta að vera Frarhhald á bls. 31. Blöðin veita bók verðlaun ÁKVEÐH) hefur verið að dag- blöðin veiti árleg bókmennta- verðlaun fyrir þá bók, sem á hverju ári þykir athyglisverðust, að dómi bókmenntagagnrýnenda dagblaðanna. Verða þessi verð- laun veitt í fyrsta skipti í janú- armánuði nk. Verðlaunin verða veitt að undangegninni atkvæða greiðslu gagnrýnenda, sem fer fram á svipaðan hátt og atkvæða greiðsla leikgagnrýnenda um Silfurlampann, þannig að farið verður eftir stigahlutfalli. Dómnefndina skipa eftirtaldir gagnrýendur: Andrés Kristjáns- son frá Tímanum, Árni Berg- mann frá Þjóðviljanum. Eiríkur Hreinn Finnbogason frá Vísi, Erlendur Jónsson frá Morgun- blaðinu og Ólafur Jónsson frá Alþýðublaðinu. Háteigi látinn Halldór K. Þorsteinsson skip- stjóri í Háteigi lézt í gærkvöldi á Borgarsjúkrahúsinu. Haildór var á 90. aldursári og var mjög heilsuhraustur maður, þar til heilsa hans tók að bila fyrir ári Halldór var fæddair 24. júlí 1877 á Mel í Hraumhreppi á Mýrum. Foreldrar hans voru þau hjónin Þorsteinn Helgason, bóndi og Guðný Bjamadóttir. Halldór lauk prófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1895. Haustið 1897 fór hann í siglingar með Englendingum og BandaríkjEtmönnum, og var við þær í 5 ár. Hann var einn af stofnendum Alliance hf. 1906, en það félag lét smíða togarann Jón forseta. Varð Halldór skipstjóri á honum næstu árin og þannig einn af brautryðjendum togara- útgerðar á íslandi. Hann var i stjórn Alliance frá stofnun fé- lagsins til 1935. í stjórn Eim- skipafélags íslands var hann frá 1916-1953. Halldór var einn af stofnendum Sjóvátryggingafé- lags íslands hf. árið 1918. 1 stjórn Félags islenzkra Botn- vörpuskipaeigenda og í stjóm Vinnuveitendasambands ís- lands. Kona hins látna var Ragn- hildur Pétursdóttir, dóttir Pét- urs Kristinssonar, bónda í Eng- ey. Með Halldóri Kr. Þorsteins- syni er fallinn í valinn einn af forystumönnum sjávarútvegs fa lendinga. Dæmdur í 70 þús. kr. sekt fyrir okur f GÆR var kveðinn npp dómur í sakadómi Reykjavíkur í máli sem höfðað var af ákæruvalds- ins hálfu 22. ágúst sl. gegn Davíð Sigurðssyni bifreiðasala, Skapta- hlíð 3 fyrir brot gegn lögum nr. 58/1960 nm okur o.fl., og gegn 248. og 249. gr. hegningarlaga. í dóminum er komizt að þeirri niðunstöðu, að Davíð hafi tekið ólöglegt endurgjald fyrir tvær lánveitingar vegna bifreiðasölu á árinu 1964, og nemur hið ó- löglega endurgjald samtals kr. 14.357.34. Var hann dæmdur fyrir brot gegn okurlögum í 70 þús- und fcróna sekt til ríkissjóðs og til greiðslu sakarkostnaðar. Þ* var hann dæmdur til þess að greiða mönnum þeim sem lánin höfðu tekið samtals kr. 11.502.00 ásamt vöxtum. Dómurinn taldi ekki, að Davíð hetfði gerzt sekur um brot gegn 248. gr. eða 249. gr. hegningar- laga (fjánsvik og umboðssvik), og var hann eýknaður að þvl leytL Dórnari I máli þessu var HaS- dór Þorbjörnsson sakadómari. Verjamdi ákærðs var Kristina Einarsson héraðsdómsdögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.