Morgunblaðið - 18.12.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.12.1966, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 18. des. 1968 Jól á íslandi Vonc/oð áramófahefti lceland Review JÓLA- og nýáráheíti ICELAÍND BEVIEW er nýlega kiomið í bóka búðir og er það fjölbreytt að efni og vandað að fráganigi sem fyrr. Af efni þess er fyrst að nefna grein um jól á íslandi að fornu og nýju, eftir Sigurð Hreiðar blaðaimann, en myndskreytingar eru eiftir Friðriku Geirsdóttur. Vestur-íslendingum eru gerð góð skil í þessu hefti ICELAND REVTEW með grein og fjölmörg um myndum af íslendingum í Kanada. Vestur-íslenzka blaða- konan Caroline Gunnarsson er höfundur þeirrar greinar og segir hún þar frá ýmsum nafntoguð- um mönnum af íslenzfoum ætt- um og bregður upp svipmynd af landnemunum og affoomendum þeirra. Ennfremur er viðtal við kana dfska sendiherrann á íslandi, John P. SigvaMason, sem er af fslenzlkum aettum eins og kunn- ugt er. Er þar einnig fjallað um Vestur-lslendingana srvo og sam skipti íslands og Kanada á öðr- um sviðum. í þessu nýja hefti er ennfrem ur löng grein um íslenzka mynt frá öndverðu, skrifuð af saensk- um myntfræðingi, Staffan Björk man. Hluti af ræðu utanríkisráð herra, Bmils Jónssonar, á allsherj arþinginu í haust svo og myndir af íslenzkum fulltrúum. Grein Enginn tognri ó Nýhmdna- landsmið ENGINN togari fer á Nýfundna- landsmið fyrir áramót, og kom síðasti togarinn, sem þar hafði verið, til Reykjavikur í gaer. Var J>að Víkingur frá Akranesi. Má geta þess, að til umræðu er nn að breyta Víkingi þannig, að hann geti stundað sildveiðar með hringnót. Fyrir skömimu kom togarinn Maí af Nýfundnalandsmiðum með 466 tonn af karfa og var verðmæti aflans 1.701.000,00 kr. eins og Mbl. skýrði frá í gær. Mjög stonmasamur árstími fer nú í hönd við Nýfundnaland og hafa togararnir efoki leitað á mið þangað á þessum tíma síðustu árin. | um samgöngur á Islandi með fjölmörgum myndum — eftir ann an ritstjóra ICELAND REVIEW og ennfremur má nefna smá- söguna „Á friðartímum“ etfir Indriða G. J»orsteinsson með myndum eftir Baltasar. Er þetta fyrsta smásagan, sem ritið birtir í enskri þýðingu, liður í kynn- ingu þess á bókmenntum íslend inga. Af öðru efni má nefna Hótel Sögu — í máli og myndum — stutta frásögn af handritamálinu og lokum þess — og myndir á- hugaljósmyndara af landi og þjóð. Ennfremur er grein um KEA áttatíu ára. Af föstum liðum ICELAND REVIEW eru í þessu 'hefti frétt- ir í stuttu máli, eitt og annað um sjávarútveg, frímerkjaþátt- ur, fróðleiksmolar fyrir ferða- menn og sitthvað fleira. Nýstárleg káputeikning, jóla- stemning, er eftir Banböru Stasoh, en Gísli B. Björnsson sá um útlit blaðsins. í»að er prent- að hjá Setbergi. Með þessu hefti lýkur fjórða árgangi ICELAND REVTEW. AU mörg fyrri hefti ritsins eru nú uppseld hjá útgáfunni, en vax- andi áhuga gætir hjá fólki innan lands sem utan á að safna rit- inu frá upphafL Ritstjórar eru Haraldur J. Hamar og Heimir Hannesson. SJÓNVARPIÐ SUNNUDAGUR 18. desember, 16,00 Fréttaþáttur um efna- hagsbandalögin > Evrópo. 16.20 Japan — land morgun- roðans. í myndinni er stiklað á stóru í sögu Japans, fyrr og nú, en aðaláherzlan er lögð á hinar öru framfar- ir, sem orðið hafa í Jap- an eftir síðari heimsstyrj- öld, hvílíkt stórveldi þeir eru orðnir á sviði ýmis konar iðnaðar, og hvernig fornar heí'ðir berjast við nýja, innflutta siði með þessari sérstæðu þjóð. 17.20 Heimsmeistarakeppnin i knattspyrnu. Norður-Kórea og PortúgaiL 18,55 Dagskrárlok. Þulur e> Ása Finnsdóttir. Meðferð jólatrjáa Orðsending frá Landgræðslusjódi ÍJÓLATRÉ þau sem hingað flytjast, eru aðallega rauð- greni. Þeim hættir til að missa barrið eí þau standa lengi í heitum stofum við mikinn loftþurrk. Erlendis er það siður að benda jóla- trjám út fyrsta eða annan jóladag. Hér á landi vilja menn láta þau standa inni sem allra Iengst. Til þess að svo megi verða eru þessi ráff: Tréð skal geyma úti fram á aðfangadag. Það verður að vera á skjól- góðum stað, t.d. á svölum þannig að ekki næði um það. Bezt er að láta það liggja og ýra það með köldu vatni þeg ar frostleysa er. En allra bezt er að breiða striga yfir það og halda honum ávallt vel rökum. Eftir að tréð er komið inn er sjálfsagt að loka fyrir hit- 1 ann í stofunni um nætur og gæta þess, að loftið sé rakt með þvi að hafa opin vatns- ílát við miðstöðvarofnana. Einnig má fá sérstaka fætur undir trén, þar sem þau standa í vatni. Slíkir fætur auka á endingu trjánna, svo / fremi sem þess er gætt, að vatnið gufi aldrei upp. Þinir þeir, sem ýmsir kaupa þótt þeir séu sex sinnum dýr- arl en venjuleg tré, haida barri sínu lengi. Samt er ráð- legt að fara eins með þá, svo og þau jólatré önnur, sem sprautuð hafa verið í þeim tilgangi að þau haldi barri lengur en ella. Blaðfóturinn á þeim þornar nærri jafn- hratt og á ósprautuöum trjám, og þá fellur barrið. Um þinina er það annars að segja, að þeir eru alveg ilmlausir og greinar þeirra ekki eins stífar og á rauð- greni. Þvi bera þau tré minna skraut. Og ennfremur skal þess gætt, að þau eru miklu eldfimari en venjuleg tré þegar þau ná að þorna. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa látið þau drekka vatn í sig áður en þau eru sett upp. , Xryggvi og Katnn vildu bila braut og dukku. (Myndir Sv. Þ.) Börnin verzla fyrir jólin inni og horfði hugfanginn á stóra bílabraut — það var auðséff hvers hann óskaði sér. Katrín systir hans sem er fjöggurra ára hélt fast í hend ina á honum og skimaði var- lega eftir dúkku, útundan stórri hettunni. Og úrvalið er svo sannar- lega nóg. Það er varla hægt annað en dást að hugvits- semi leikfangaframleiðenda. Dúkkur geta orðið bæði geng ið óg talað og auk þess er hægt að láta hárið á þeim „vaxa.“ Slökkviliðsbílar eru útbúnir sírenum og vatns- dælum, flugvélar hafa hreyf- anlega vængi eins og nýj- ustu tilraunaþotur, og hrað- bátar hafa rafmagnsknúna ut anborðsmótora. En það er fleira en leik- föng sem þarf að hugsa um. Lilja Ósk var í bókabúð Lár- usar Blöndal og velti því mikið fyrir sér hvernig jóla- pappír hún ætti að kaupa ut- an um pakkana, og hvort bandið utan um þá ætti að vera rautt eða blátt. Hvert sem litið var sáust ung áköf andlit með rjóðar kinnar og björt augu. Það var greini- legt að þau ætluðu ekki að láta neinn fara í jólaköttinn. ÞAÐ var blik í augum barnanna, sem gengu um bæ- inn í gær og skoðuðu verzl- anirnar. Aðeins sjö dagar til jóla og kominn tími til að kaupa gjafirnar. Tryggvi Pét ursson sem er tíu ára, stóð við borðið í Tómstundabúð- Lilja Osk valdi bönd á jólapakkana. Rhodesia tapar helmingi gjald- eyristekna sinna á Haft er eftir sérfræðingum um efnahagsmál í Salisbury, Rhod- esiu, að landið kunni að missa um helming gjaldeyristekna sinna, verði úr því að Sameinuðu þjóðimar beiti sér fyrir bindandi efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Rhodesíu, eins og Bretar hafa lagt til. Reiknað hefur verið út, að verði bannaður útflutningur á tóbaki, ascbesti, krójni, jámi, keti, skinnum, húðum og fleiri vörum, muni tapið nema um 80 milljón- um sterlingspunda á ári, en ár- legur útflutningur landsins hef- ur numið um 1©5 milljúnum punda. Áður en hinar sjálfviljugu efnahagsrá'ðstafanir gegn Rlho- desíu hófust fyrir uJþJb. ári, nam tóíbaksútflutningur um 46 milljón um sterlinigspunda. Síðan er tal- ið, að hann hafi minnkað veru- lega, — hversu miikið er ekki vit- að því að s-tjórn Smiths gefur ei upp neinar tölur um það og gæt- ir þess vei, að ekkert vitnist um efnahagsástandið yfirieitt. Sumir segja, að þrátt fyrir ráð- stafanirnar hafi um 80% tófoaks- uppskemnnax selzt, aðrir segja það fráleitt Þá segir I frétt frá Salisfoury, að brezku sunnudagsfolöðin „The Sunday Times“ og „OBSÍERVIE', hafi verið gerð upptæk nú eftir helgina, vegna greina, er þai* foirtu um viðræ’ður þeirxa Wil- sons, íorsætisráðherra Bretlands, og Ians Smiths, um borð í „Tig- er“ á dögunum. 17.12.19tt kl. s 1 gærmorgun var hæg norð læg átt og léttskýjað á land- inu, en fyrir norðan sums staðar éL Hiti var víðast um eða undir frostmarki. Klukk- an 8 vax þó 7 stiga frost á Eyrarbakka, Þingvöllum og Hveavöllum. Utlit var fyrir, að norðan- áttin héldist um helgina og frostið aukast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.