Morgunblaðið - 28.12.1966, Page 4
4
MORCUNBLADIÐ
Miðvikudagur 28. des. 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
DaggjAld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km.
SENDUM
MAGMÚSAR
skipholti21 símar21190
eftir lokun simi 40381
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bílaleigon
Ingólfsstrætí 11.
Sólarhringsgjald kr. 300,00
Kr. 3,00 ekinn kílómeter.
Benzin innifalið í lelgugjaldi
Sími14970
BÍIALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftír lokun 34936 og 36217.
K-7==*BllALf/SÍA/r
RAUOARARSTÍG 31 SÍM1 22022
ÞÓRÐUR G. HALLDÓRSSON
Ingólfsstræti 9.
Sími 19540 og 19191
Milli kL 7,30—6 í síma 20446
Fjaðrir, fjaðrablóð. hljoðkútar
púströr o.fl. varahlutir
J margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 16«. — Simi 24180.
Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl.
og Einar Viðar, hrl.
Hafnarstræti 11 — Sími 19406.
Benedikt Sveinsson
héraðsdómslögmaður,
Austurstræti 17. Sími 10223.
NÝKOMIÐ
Hamilton Beach hrærivélar.
Armstrong strauvélar.
BRÆÐURNIR ORMSSON hf.
Lágmúla 9. Sími 38820.
Gestagangur í
sveitinni
Sveitakona skrifar:
„Kæri VelvakandL
Að undanförnu hefir verið
skrifað töluvert um gestagang
á heimilum. Tvær konur, önn-
ur úr borg, hin úr sveit, hafa
kvartað sáran en aðeins ein
rödd úr kaupstaðnum hefur
andmælt þessum ósköpum. Því
þótti mér hlýða að önnur heyrð
ist úr sveitinni og tæki í þann
sama streng.
Ég hef verið að íhuga þessi
skrif og satt að segja undrar
mig ef lengi verður mikill gesta
gangur á því heimili þar sem
húsmóðir er svo reið yfir hon-
um að hún sezt niður og skrif-
ar í blöðin. Gretur hún virki-
lega dulið þetta svona vel fyr-
ir gestunum og ef hún getur
það ekki, hvern langar þá til
að koma á slíkt heimili? Ég
veit að gestagangur er mjög
misjafn á heimilum og ekki
þekki ég svo vel annars staðar
til að ég ætti neitt um það að
segja hvort hann er meiri eöa
minni hjá mér en gerist og
gengur. Ég hef aldrei átt gesta
bók. Þó hefir komið fyrir að ég
hef að gamni mínu skrifað nið
ur þá sem komu og stun-dum
komst talan upp i fimmtíu á
viku. Stundum upp í 20 einn
og sama daginn. Ekki þarf ég
að taka það fram, að þetta
heyrir auðvitað til undantekn
inga að það sé svona margt.
Ég held líka að sumt fólk
kunni varla orðið að taka á
móti gestum. >að hefir eitt-
hvert óskapa umstang sem ég
held að engum sé þægð í, en
iþreytir auðvitað húsmóðurina
mikið meir en þörf er á. Ég
segi stundum að ég hafi aldrei
neina „gesti“, bara mismun-
andi margt í heimili. Ekki veit
ég hvernig fólk það er sem
(heimsækir hana frú E. En
aldrei hef ég fengið fólk í heim
sókn sem hefir ætlazt til þess
að maður gengi úr rúmi fyrir
það. Það fólk sem hér kemur
kemur margt með sængurföt
með sér eða svefnpoka og er
yfir sig þakklátt að fá að leggja
inni meðan einhvers staðar
finnst teppi eða gólfblettur að
liggja á ef svefnbekkir eru
þegar uppteknir. Að visu færi
ég oft unglingana ínn í her-
bergi okkar hjónanna þegar
þröngt er, og sofa þeir þá 1
flatsæng á gólfinu. Það hefir
aldrei verið kvartað yfir þvL
— Eitt kvöld í haust fékk ég
17 gesti í kvöldmatinn. Sem
betur fór vissi ég af því nógu
snemma til þess að ég gat lát-
ið svolítið meira kjöt í pottinn
en ég annars hefði gert, og þar
með var vandinn leystur. Mér
finnst ég eiga mjög skemmti-
legar minningar frá þessari
kvöldstund, minningar, sem ég
ekki vildi vera án. Þetta var
allt svo elskulegt fólk. Að vísu
er ég oft þreytt, stundum út-
keyrð, en ekki dettur mér í hug
að skella allri skuldinni á gest-
ina. Gestamóttakan er, þegar
öllu er á botninn hvolft, minnst
af því, sem ég hef þurft að
starfa um dagana. Það er líka
alrangt hjá frú E að halda að
allur vandi sé leystur með því
að vísa fólki á hótelin. Ég bý
Ihér ekki langt frá stóru hóteli,
og hingað kemur samt á hverju
sumri fólk i vandræðurti og
vantar gistingu af því að hótel
og aðrir gististaðir eru yfir-
fullir. Stundum er þetta eldra
fólk, uppgefið eftir langt ferða
lag og á enniþá langa ferð fyrir
höndum. Stundum eru smá-
börn með, sem ekki er hægt að
vera með í tjaldi ef góða veðr-
ið hefir brugðizt, sem oft vill
verða. — Þetta fólk býður
alltaf borgun — og þegar það
er fólk sem ég veit engin deili
á og hef aldrei séð fyr, tek
ég venjulega eitthvað, ekki
okurfé vona ég samt, enda er
stundum ekki hægt að komast
hjá að taka við meiru. Þetta
fólk er svo sem ekki að biðja
að gefa sér neitt. Það er bara í
vandræðum, og er ósköp þakk-
látt fyrir veittan beina. Ekki
hef ég orðið vör við annað.
NeL við íslendingar erum of
fáir til að mega við þvi, að
hver höndin sé alltaf upp á
móti annarrL — Ég held að
vandinn verði helst og bezt
leystur með því að við reynum
það sem við getum, reynum að
leysa hver annars vandræði.
— Sjálf hef ég mjög gaman af
að ferðast ef tími og aðstæður
leyfðu, sem sjaldgæft er, og
það verð ég að segja, að fegin
er ég að þurfa ekki að búa á
hóteli þó ég skreppi til borgar-
innar. Því fyrir utan þetta með
budduna er það nú ólíkt
skemmtilegra að sitja í glöðum
vinahópi að kveldi en að fara
aleinn inn 1 einmanalegt hótel-
herbergi
Ég vil eindregið taka undir
það, að óskemmtilegt væri, ef
aldrei bæri gest að garði og
hver sæti í sínu horni. Það
heyrist oft talað um átroðning
kaupstaðarfólks í sveitinni um
mesta annatímann, en gleym-
ist þá kannski stundum að við
sveitafólkið búum oft hjá
þessu sama fólki þegar við
komum í borgina, til dæmis í
lækniserindum og m. fL
Að lokum bið ég að heilsa
henni Björgu Ivarsdóttur,
Velvakandi minn, með kærri
þökk fyrir línurnar, sem þú
birtir um daginn. Það er ekki
gott að segja nema ég líti inn
til hennar næst þegar ég kem
í borgina, ef ég vissi hyar hún
ætti heima, þó erindið yrði
ekkert annað en segja henni,
að hún skyldi bara renna við
og fá sér kaffisopa ef hún æUi
leið um sveitina seinna meir.
Þín einlæg
Sveitakona".
Sjúkum til styrktar
Lesandi skrifar:
„Kæri VelvakandL
Villtu nú ekki koma á fram-
færi fyrir mig dálítilli hug-
mynd.
Það er að verða algengt að
börn þurfi að komast til lækn-
isáðgerða til annarra landa.
Þetta mún vera lítt viðráðan-
legt efnalega fyrir almenning.
Fólk er fljótt að hjálpa, þegar
leitað er til þess. Og stórar
upphæðir safnast handa þeim,
sem fyrir böli verða.
Nú hefur mér dottið í hug,
hvort Hjarta- og æðasjúkdóms-
félagið vildi ekki beita sér fyrir
stofnun, sem hefði það verk-
efni að styrkja slíkar ferðir.
Flestar eru þær viðkomandi
hjarta aðgerðum, sem læknar
hafa ekki aðstöðu til að fram-
kvæma hér heima. En vonandl
er ekki langt að bíða þess að
það breytist.
Nú vil ég skýra frá þvi
hvernig sjóður slíkur gæti orð-
ið til. Allir, sem flytja fólk,
hvort heldur er í lofti, á jörðu
eða legi (þó ekki strætisvagn-)
ar) fengju leyfi til að mega
hækka fargjöld um 1.00 kr. og
skiluðu þvl til sjóðsins. Þetta
yrði myndarleg upphæð á árl
hverju, því mikið er ferðazt og
engan munar um krónu.
Kvittun fyrir framlagið gæti
orðið merki, líkt og laufblaðiS
á sígarettunum og hækjan á
eldspýtunum.
Nú er komið að jólum og
gott að hugleiða þetta, þegar
slappað er af um hátíðarnar.
Sigmar Benediktsson.
Timburiðjan hf.
auglýsir:
Tökum að okkur:
fataskápa — eldhúsinnréttingar — gluggasmíði —
bílskúrshurðir — útihurðir — svalarhurðir —
veggklæðningar — sólbekkir.
Spónieggjum fyrir fyrirtæki og einstklinga.
Timburiðjan hf.
Við Miklubraut, sími 36710.
Bókhaldari —
Sölustjóri
Óskast að vel stæðu fyrirtæki. Góð kjör.
Ágætt tækifæri fyrir áhugasaman og reglusaman
mann eða konu.
Smávegis meðeign eða ágóðahlutur gæti komið til
greina.
Uppl. hjá Félagi íslenzkra iðnrekenda.
Stenbergs
trésmíðavélar
Sambyggöar trésmíðavélar fyrirliggjandi.
Jónsson & Júlfusson
Hamarshúsinu — vesturenda.
Sími 15430.