Morgunblaðið - 28.12.1966, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.12.1966, Qupperneq 10
10 MORG U N B LADIÐ Miðvikudagur 28. dea. 1964 Sigurðsson skrifar um Austurbæjarbíó MY FAIR LADY er komin aft- ur til Reykjavíkur, í þetta sinn sem kvikmynd, og eins og áður ber að fagna því. My fair lady er í rauninni öll- um allt, og því harla merkilegt fyrirbæri í leiklistarheiminum. Fyrir þá sem elska tónlist, er tón Jáetin frábær, og skiptir ekki öllu fyrir hvernig tónlist menn hafa áhuga. Fyrir þá sem hafa áhuga fyrir bókmenntum, er snilli George Berard Shaw í fullu gildi. Fyrir unnendur leik- listar er leikur Rex Harrison ó- gleymanlegur. Fyrir þá sem hafa gaman af ástarsögum, er ihjartnæm ástarsaga. Fyrir þá sem elska pomp og pragt hefur sniilingurinn Cecil Beaton 'teiknað einihver glaesiiegustu Til sölu Ford Fairline 1965 Nýinnfluttur frá Bandaríkjunum. Uppl. í síma 40962. Eftir kl. 6. Ráðningarstofa hljóðfæraleikara Félag íslenzkra hljómlistarmanna hefur opnað ráðningarstofu hljómlistarmanna að Óðinsgötu 7 frá kl. 14—19 alla virka daga. Sími 20255. Skrifstofan útvegar félögum, starfs- mannahópum, skólum og öðrum, sem þuffa á hljómlist að halda hvers konar hljómsveitir. Þeir hljóðfæraleikrar og hljómsveitir, sem enn hafa ekki látið skrá sig hafi sem fyrst samband við skrifstofuna. FÍH. Hemlaverkstæðið Stilling hf. verður lokað til áramóta vegna flutninga. Opnar aftur 3..jan. í Skeifan II. (Iðngarð- ar). Stilling hf. leiktjöld og búninga, sem séat hafa. Fyrir 'þá sem unna hinu talaða máli, er meðfer'ð Stanley Holloway, Wilfrid Hyde-White og Rex Harrison á enskri tungu ógleymanleg. En öllu öðru frem- ur, fyrir þá, sem elska góða kvöldskemmtun, er hér skemmt- un, sem erfitt verður við að jafnast Ferill þessa verks er næstum ótrúlegur. Sigurförin hófst, þeg- ar leikrit Shaw, Pygmalion, var sýnt árið 1912. Var það jafnan síðan eitt af vinsælustu leik- ritum hans. Og árið 1955 tóku þeir Alan Jay Lerner og Frederico Loewe að gera söngleik eftir leikrit- inu. Gerði Lerner textann en Loewe tónlistina. Söngleikurinn var frumsýndur í marz 1956 og sló svo rækilega í gegn, að hann var sýndur í New York í 2717 skipti, sem er algert met á Broadway. Tveim árum eftir frumsýningunna var hann frum sýndur í London og síðar í hverri borginni af annarri, allstaðar við frábærar undirtektir. Upphaflega voru aðalhlutverk- in leikin af Rex Harrison og Julie Andrews og þótti báðum takast jafn vel. I>áð vakti því nokkra furðu, þegar gera átti kvikmyndina, að Audrey Hep- burn var fengin í hlutverk EIizu Dolittle. Um það má deila hvor hefði verið betri. Ég sá Julie Andrews í hlutverkinu í New York og er mér næst að halda að hún hafi verið betri sem ódannaða blómastúlkan, en Audrey Hepburn sé betri, sem í'iefðtardaman, sem úr blóma- :túlkunni verður. Það er sagt að t .eim hafi þótt lítið til cockney imálhreims Hepburn koma, þeg- ar myndin var sýnd í Londom, bn hvaða máli skiptir það okk- ;ur fslendinga. Hún leikur hlut- verkið að öðru leyti með prýði. Leikur Rex Harrison er afrek. I’^ann leikur hinn sjálfumglaða og sjálfstæða prófessor Higg- I :s af einstæðu öryggi. En þeg- rnr hann stendur fyrir uitan hús sitt, þegar Eliza hefur yfirgefið hann,hann, skín örvæntingin úr hverri hreyfingu og þó sérstak- lega úr augunum. Það er eitt af þeim augnalblikum, þegar leikur hans stígur svo langt upp fyrir meðalmennskuna, að það verð- ur lengi minnisstætt. Leikur Stanley Holloway, Wilfrid Hyde-Whity og Gladys Cooper er einnig frábær ,allt mjög ólíkar persónur, en öll eru svo „ensk“ að þau gætu að engu öðru þjóðerni verið. Warner Brothers hafa ekkert til sparað að gera myndina sem bezt úr gar'ði. Jack L. Warner, forstjóri fyrirtækisins, er sjálfur framleiðandi myndarinnar. Einn af reyndustu leikstjórum í Bollywood, George Cukor, stjórn ar. Lerner gerði sjálfur kvik- myndahandritið og þar sem bæta þurfiti við tónliist var hún sam- Leyndardómur ánægjulegra nýrra og mildari reykinga PERFECTC FILTER VINDLAR H54 filter^ Crvals miit vindlatóbak ^ PAKKI MEÐ FIMM KR. 35.50 in af Loewe. Tónlistarstjóri er Andre Previn og eins og fyrr segir teiknaði Cecil Beaton svið og búninga. Söguþráður hefur ekki verið rakinn hér, enda varla þörf á því. Verkið er orðið svo kunn- ugt íslendingum. Þeir sem ekki vita neitt um þráðinn eiga að fara og kynna sér málið og nú er tækifærið. Mynd þessi hlaut á sinum tíma átta Oscarverðlaun og er mér nær að halda að hún hafi átt þau öll skipið. Þáð er leið árátta, sem er orðin nokkuð almenn á fslandi, að telja ekkert. snilld- arverk, nema það sé torskilið og þungL My fair lady er auð- skilin mynd, falleg og rennur léttilega niður, og veitir ham- ingju þeim sem á horfa. Verður snilli beitt á betri veg? Háskólabíó EIN f HENDI. TVÆR Á FLUGI. (Boeing — Boeing) MYND þessi er gerð eftir gaman leiknum Boeing Boeing, sem hef ur orðið svo vinsæl í London, að hann hefur gengið þar stanz- laust í sex ár og gengur enn. Myndin fjallar um Parisar- fréttaritara alþjóðlegrar frétta- stofu (Tony Curtis). Hann er maður sem hefur mikla kven- hylli. Hann hefur fundið upp kerfi, sem vafalaust fleiri vildu geta notað, að búa með þremur flugfreyjum til skiftis. Því mið- ur fyrir íslenzka áhugamenn, eru áætlanir flugfélaganna hér ekki heppilegar til þessa. Vinnu stúlknanna hagar þannig, að aldrei er nema ein heima í eiuu. Þær telja sig allar vera trúlof- aðar honum og veit engin þeirra um hinar. Þegar ein fer og önn- ur kemur heim, verður ráðskon- an (Thelma Ritter) að skifta um öll nærföt í skúffum, föt í skápn um og muna eftir breyttu matar æði. Þetta gengur allt vel, þangað til kunningi mannsins kemur í heimsókn og kemst að kerfinu. Hann (Jerry Lewis) vill verða meira en þátttakandi og þar byrja erfiðleikarnir. Um svipað leiti taka flugfélögin upp hrað- fleygari flugvélar og allar áætl- anir breytast. Allar vilja stúlk- urnar koma Tony Curtis á óvart með þær gleðifréttir, að nú geti þær eytt miklu meiri tíma með honum en áður. Og svo framveg is. Flugfreyjurnar eru frá Air France (Dany Saval), British Únited (Suzanna Leigh), og Lufthansa (Christiane Schmidfc. mer). Allt eru þetta föngulegar stúlkur, þó vafalaust muni mena greina á um hver er fegurst. Mynd þessi er bæði létt og skemmtileg og á köflum bráð- fyndin. Það sem atihyglisverðast er þó um hana, er leikur Jerry Lewis. Hann er vanur að vera úr hófi afkáralegur og leika hlut verk, sem engu fólki líkjast, nema vera kynni vanþroskuðum fábjánum. Þó hefur hann að öllu jöfnu ekki skilið nógu rækilega við raunveruleikann, til að verða að trúði, sem myndi vera skemmtilegt, því til þess hefur hann ótvíræða hæfileika. Þeim sem séð hafa fyrri myndir hans, hefur þó ekki dul- ist, að hann væri til margs ann- ars fær. f þessari mynd kemur loks að því að hann leikur venju legan mann. Hann ranghvolfir augunum í mesta lagi tvisvar og dettur aldrei um fæturna á sjálf um sér. Hann leikur þarna uppa þrengjandi og ágengan mann. Gerir hann hlutverkinu óvenju- lega góð skil og ekki er mér grunlaust að hann hefði getað gert hlutverki Tony Curtis ein# góð skil og sínu. 70,000 svaknir dollarar Melbourne, Ástralíu, 26. des. AP. FRANK I.arrisey var á leið til vinnu sinnar sl. mánudag, þegar hann sá hvar peningaseðill flaug fyrir fætur honum. Hann tók seðilinn upp, sá að það var tíu dollara seðill og hélt, að hann væri smágjöf frá forsjóninni. Hann hélt áfram glaður 1 bragði, en nokkru síðar sá hann hrúgu af slíkum seðlum í götu- ræsi — þeir reyndust 40 talsins og fannst nú Larrisey, að réttast væri að afhenda þá lögreglunni. Á lögreglustöðinni var honum sagt, að seðlarnir væru sviknir, að lögreglan hefði fundið 70.000 dollara. í sviknum 10 dollara seðlum á Þorláksmessu og hand- tekið sjö manns. Væri búizt við fleiri handtökum, en beðið eftir því, að verzlanir opnuðu eftir jólin, til þess að kanna hversu mikið væri í umferð af sviknu seðlunum. . Að sögn lögreglunnar hefur hún aldrei fengið eins vel gerða svikna peningaseðla í hendur og þessa. Samkvæmt samþykkt aðlfundar Loftleiða h.f., sem haldinn var 3. júnf, 1966, og að fengnu samþykki ríkisskattstjóra hafa jöfnunarhlutabréf verið gefin út og hlutafé félags- ins hækkað úr kr. 4.000.000,00 í kr. 12.000.000,00. Hluthafar eru beðnir um að sækja jöfnunarhluta- bréf sín á skrifstofu Loftleiða hf. á Reykjavíkur- flugvelli til Ólafs Briem, fulltrúa, dagana 29. og 30. desember, n.k. Verða jöfnunarhlutabréfin þá afhent gegn framvísun eldri hlutabréfa samkvæmt hluthafaskrá. Stjórn Loftleiða h.f.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.