Morgunblaðið - 28.12.1966, Page 12

Morgunblaðið - 28.12.1966, Page 12
' 12 MOHGUHBLAÚIÐ AUðvikudagur 28. des. ÍMC JltafgUttMftfrifr Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. r Matthía* Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Bitstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kxistinssoa. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480. í lausasölu kr. á mánuði innanlands. Áskriftargjald kr. 105.00 7.00 eintakið. HEIMILDIN TIL VERÐ- STÖÐVUNAR NOTUÐ 17yrir Jólin tíl'kynnti ríkis- * stjórnin, að hón hefði ákveðið að beita strax heim- ildarákvæðum laganna um verðstöðvun þannig, að ekk- ert vöruverð má vera hærra en það var 15. nóv. sl. nema með sérstöku samþykki, enda verði engin hækkun vöru- verðs leyfð nema alveg sé tal- ið óhjákvæmilegt. Jafnframt er svo ákveðið að verðhækkanir, sem átt hafa sér stað frá 15. nóv., séu ógildar og sé hlutaðeigandi aðilum skylt að lækka verð- ið, svo að það verði ekki hærra en það var hinn 15. nóv. s.L Eins og kunnugt er taka fyr irmæll laganna um verð- Stöðvun til seldrar þjónustu og framlags í hvaða formi sem er, þar á meðal tii þjón- ustu sem ríki eða svedtarfélög iáta í té, og á sama hátt er öheimilt að hækka skattstiga útevars- og aðstöðugjalds frá því sem var ákveðið 1&66. Með þessari tilkynningu rí'kisstjórnarinnar er verð- artöðvun sú, sem hún hefur beitt sér fyrir og unnið fylgi undaníarna mánuði, orðin að veruleika, enda nýtur þessi stefna ríkisstjórnarinnar ai- menns og öflugs stuðnings manna í öllum stéttum og öll- um flokkum. Landsmenn eru orðnir lang þreyttir á hinum stöðugu víxlhækku num verðlags og kaupgjalds, aem hér hafa lengst af átt sér stað síðustu áratugina. Að vísu má segja, að hæfekanirnar allra síðustu árin hafí verið nokkuð ann- ars eðlis, því að þær byggð- ust að verulegu leyti á aukn- ttm aflaíbrögðum og hækk- andi verðlagi útflutningsaf- urða, svo að unnt var að atanda undir hækkununum á»i þess að efnahagsörygginu væri stofnað í voða. Viðhorfin breyttust hins vegar, þegar verðlag tók að feekka á útflutningsafurðun- um og sýnt var að sjávarút- veginum væri um megn að standa undir nýjum hækkun- um, og full erfitt yrði að treysta hag útflutningsfram- leiðshmnar, þótt enn kæmi ekki til ný hækkunarskriða. Kaunar telja forystumenn sjávarútvegsins að verðstöðv- unin ein nægi ekki, en hún er þó þess eðlis að hún auðveld- ar mjög lausn vandans, og engin ástæða er til að ætla annað en að happasæl lausn finnist, þegar allir leggjast á eitt og hver um sig gerir sér grein fyrir því, að hann verð- ur að axla sínar byrðar til að komist verði yfir erfiðleika þá, sem óhjákvæmilega eru samfara lækkandi verðlagi á erlendum mörkuðum. Um hver áramót þarf að vinna að lausn ýmissa vanda- mála og tryggja rekstur út- flutningsatvinnuveganna, og á tímum vinstri stjórnarinn- ar var þetta gert með stór- feldum skattaálögum, sem eitt sinn komu rétt fyrir jól- in og gengu undir nafninu „jólagjöfin“. Verðstöðvun nú verandi ríkisstjórnar er vissu lega kærkomnari jólagjöf landsmönnum öllum en him- inháir skattar vinstri stjórn- arinnar voru á sínum tíma. Flestar vestrænar þjóðir búa við verðbólguþróun, þótt hún h-afi ekki verið eins mik- il og hér á landi. Þar glíma stjórnarvöM við að stöðva verðlag, en gengur heldur erfiðlega. Það er þess vegna Síður en svo að það sé lítill atburður, þegar hér tekst að koma á allsherjar verðstöðv- un, þótt stjórnarandstæðing- ar vilji svo vera láta. Viðreisnarstjórnin hefur sannarlega með undirbúningi verðstöðvunarlaganna og framkvæmd þeirra aýnt, að hvorki skortir framsýni, dugnað, né heldur lipurð við að koma í framkvæmd þeim málum, sem nauðsynlegust eru. Sú stjóm, sem jafnvel tefcst í jafn erfiðu og við- kvæmu máli, eins og verð- stöðvunin er, bæði hér og annars staðar, er vissulega sterk stjórn. Fásinna væri samt sem áð- ur að ætla að með verðstöðv- uninni væru öll vandamál leyst. Viðfangefnin bíða stöð- ugt úrlausnar, og stöðugt er að þeim unnið. Einmitt þess vegna er nauðsynlegt að ætíð séu í stjórn menn, sem við vandamálin ráða og fylgja þeirri stefnu, sem bezt gefst. Þess vegna er heldur ekki á það hættandi að fela þeim mönnum forystu á ný, sem ekki hafa valdið viðfangsefn- unum, eins og ferill vinstri stjórnarinnar sannaði, og enn vj.lja sömu stefnu og þá Þetta /egna mun fyigi við stjórn- ars+efnuna aukast, e;i ekki m.irnka, eins og forystumenn stjcrnarandstóðunnar þykjast halda. Þessi vissi ekki um neitt vopnahlé. Vissu ekkert um vopnahlé Einn af fréttamönnum AP Peter Arnett fór um Suður- Vietnam á aðfangadag, til þess að kynna sér hvernig fólkið brygðist við vopnahléinu um jólin. í skeyti hans segir: Flestir höfðu enga hugmynd um að vopnahlé stæði yfir. í norðurósasvæðinu sat ó- hreinn tólf ára drengur á baki vatnauxa. Brennheit sólin bakaði berar axlir hans og hann pírði augun þegar hann var spurður hvort hann væri feginn að byssurnar væru hættar að skjóta. Hann benti á litla lest af bandarískum herjeppum sem ók framhjá. V élbyssuskytturn ar sátu allar með fingurnar á gikknum og skimuðu í sí- fellu í kringum sig, eins og þeir byggjust við árás. — Bíddu augnablik og þá munu byssurnar byrja aftur, sagði drengurinn það gera þær alltaf. Við ókum tuttugu milum innar og hittum miðaldra bóndakonu sem burðaðist með stóran rísbagga á bakinu. Það hafði enginn sagt henni að það væri vopnahlé, og hvað var eiginlega vopnahlé? Var ekkl alltaf stríð í Viet-Nam? Aðrir „uxadrengir" og aðrir bændur voru undrandi og van trúaðir þegar þeim var sagt að báðir stríðsaðilar hefðu sam þykkt að hætta að berjast í fjörtíu og átta klukkustundir.- Flestir ypptu bara öxlum og héldu áfram með uppsker una. Það er talið að Viet- Kong menn fái fjörutíu pró- sent af henni á þessu svæði. Bandarískur ráðgjafi um borg arahjálp sagði að það væri tilgangslaust að vona að jóla vopnahléð yrði einhver upp- lyfting fyrir hinn almenna borgara í Viet Nam. Þeir vissu ekki einu sinni um það, enginn hefði sagt þeim frá þvi Þeir hafa búið við stríð í tuttugu ár. Þeir einu sem vita um vopnahléð eru hinar stærri hersveitir andstæðing- anna sem geta haft samband við aðalstöðvar sínar, her- menn Suður-Vietnam og svo auðvitað allir bandarískir her menn. Veitingamaður í krá einni í litlu þorpi sem stendur við aðalbrautina gegnum ósasvæð ið vissi um vopnahléð. Hópur af vietnömskum hermönnum sem höfðu komið þangað til þess að halda upp á daginn, sögðu honum það. Hann var ánægður yfir þessum auknu viðskiptum en var í vafa um friðinn. — Þeir verða aftur byrjaðir að berjast á morgun er það ekki? Þetta hlé hefur bara gefið hermönnum Viet- Kong tækifæri til að komast nær okkur. Aðalástæðan fyrir því að fólkið skeytir ekki um vopnahléð er sú að stríðið í Viet Nam er alls ólíkt stríð inu í Evrópu fyrr á þessari öld. í sumum héruðum geta liðið margir dagar án þess að hleypt sé af skoti. og svo skyndilega hafist stórorrust- ur. Fólkið í Viet-Nam er orðið vant þessum tíðu hléum. En bandarískir og vietnamskir herforingjar sögðu að þeir drægju ekki úr árverkni sinni meðan vopnahléð stæði yfir. Nú er því lokið og orrustur hafnar aftur eins og ekkert hefði í skorist. ÁRANGURSLAUS LEIT Ifíðtæk leit að vélbátnum ^ Svan, sem gerður var út frá Hnífsdal hefur ekki borið árangur. Sorg og kvíði hefur grúft yfir heimilum fólksins í þessu litla vestfirzka sjáv- arþorpi, þar sem svo að segja hver starfandi hönd er tengd sjósókn og fiskvinnslu. gerir fólkið sér ljóst og þess 6 menn á bezta aldri, sumir kornungir eru horfnir. 8 börn hafa misst feður sína, sem fóru í sína síðustu sjóferð rétt fyrir jólin. Þessi jól voru dapurleg hjá fólkinu í HnífsdaL. Þar var skarð fyrir skildi á mörgum heimilum. Þannig endurtekur sagan sig. Það hefur komið fyrir áð- ur í Hnífsdal að bátur hefur ékki komið að landi. Harð- fengir og dugandi sjómenn hafa horfið. Eftir stendur að- eins minningin um góða drengi. Skipin stækka og verða full- komnari að öllum búnaði. En vald „Ægis“ hefur þó ekki verið brotið á bak aftur. Á- hættu sjósóknarinnar verður aldrei eytt með öllu þó vél- ar og skip verði stærri og traustbyggðari. Hljóðlát samúð streymir til þess fól'ks, sem nú á um sárt að binda Myndarlegt jóla- blað Vesturlands VESTURILAND, blað sjálfstæð- ismanna á Vestfjörðum kom úfc 48 síður fyrir jólin. Þar ritar séra Andrés Ólafsson prófastur í Strandasýslu jólahugleiðingu, samtal er við séra Jón Ólafs- aon fyrrum prófast í Holti í Ön- undarfirði, Gísli Jónsson fyrr- um alþingismaður ritar grem um strandferð sem tók 7 vikur árið 1914, samtal er við Sigurð Bjarnason alþingismann frá Vig ur, og ýmislegt fleira er í blað- inu, sem er hið myndarlegasta að öllum frágangi. Ritstjóri Vest urlands er Högni Torfason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.