Morgunblaðið - 03.01.1967, Síða 17

Morgunblaðið - 03.01.1967, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1967. 1T Guðni Jónsson Sandgerði Minningarorð ¥. 29. apríl 1905. D. 24. des. 1966. í DAG, 3. janúar Ii9©7, er Guðni Jónsson, skijJstjóri, í Sandgerði til moldar borinn að Hivalsnesi f Miðneshreppi. Guðni Jónsson andaðist í Bjúikrabúsinu í Keflaivik á að- íangadag jóla eftir stutta en erf- iða legu þar og á Landspítalan- um. Guðni faeddist að Bæjanskerj- om í Miðnesh reppi 2Ö. april »905. Foreldrar Guðna voru Jón Pálsson, útvegsbóndi, og kona Ihans Guðfinna Sigurðardóttir, eem bæði eru látin fyrir mörgum érum, og þó Jón mikliu fyrr. Þau fluttiu að Flankastöðum í Miðneslhreppi þrem árum eftir fæðingu Guðna, sem ólst þar upp *>g bjó síðan ti'l 37 ára aldurs, enda var Guðni lengst af kennd- ur við Flankastaði. Guðni hóf sjómennsiku á vél- bátum vorið sem hann fenmdist [(íhafði áður róið með föður sín- um á opmum bátum). Var fynst é „Henu“, 10 lesta vélbát, með Guðmundi Erlendssyni, en Hera fórst í febrúar árið 1922, og næst hjá Ólafi Magnússyni, lands- þekktum manni, á „Geir goða“ 40 lesta báti sem matsveinn. Guðni stundaði nám við Flens- borgarskóla veturinn 1920—1921 og lærði óvenju milkið á svo Bkömmum t'»9, enda var hann mjög eðlisgreindur. Um trvítugsaldur varð Guðni ekipstjóri hjá Haraldi Böðvars- syni, sem átti þá aðra útgerðar- etöðina í Sandgerði. Fyrst var Guðni skipstjóri á „Stíganda", 9 lesta báti, næst á „Víiking“ 10 lesta, og síðan á „Agli Skalla- grímssyni", 12 lesta báti. Harald- ur átti alla þessa báta (og marga fieiri þá). Egil Skallagrímsson keypti Guðni síðan af Haraldi og gerði út í nokkur ár. f»á sannaðist $ Guðna — sem og hefur átt sér Btað um marga ágæta aflamenn — að honum gekk betur að afla á vegum annarra en sjálfs sín. Guðni tapaði á útgerð Egils, sem að vísu flestir gerðu á þeim ár- wm kreppu og þrenginga, og *eldi bátinn því. Árið 1936 tók Guðni við skip- rtjórn á mb „Munin“, 22 lesta báti, eign Har. Böðvarssonar & Co. Síðar, 1940, við „Munin 11“ 318 lesta og 1956 við „Munin“ 54 lesta. Þessir bátar voru smíðaðir f Danmörku, tveir síðast nefndu eign hf Miðness, Sandgerði, og eótti Guðni þá til Danmerkur. Var hann með Munin þar til hann hætti skipstjórn fyrir 5 árum. Á vetrar- og haustvertíðum reri liann frá Sandgerði, aflaði ætíð vel og var oft aflahæstur. Á iumrum stundaði hann síldveið- •r, einnig þá var hann oftast „í toppinum" miðað við stærð bát- anna. I»egar Guðni lét af skipstjórn, Btundaði hann ýmis störtf í landi og á sjó, þó einfcum á sjó, því hann kunni ætíð bezt við sig á ejónum. Hann var m. a. stýri- maður hjá Hafsteini syni sínurn háseti og matsveinn. Guðni gat tnnt af hendi öll störf til sjós. „Allt lék honum í lyndi“ og hafði af öllu yndi. Hann sagði við mig — og hló við — er ég hafði spurt hann um starfið: „Já Öli minn, ég byrjaði sem kokfcur Og það er bezt að enda eins". Menn sem Guðni Jónsson eru tnáttanstólpar fyrirtækja, er þeir vinna við, jafnframt eru þeir ttoðir ofclf.r fámenna þjóðfélags og á störíum slí’kra manna bygg- Ist afikoma þjóðarinnar fyrst og fremst, þeim ev sjaldan þakikað •em skyldi — og jafnvel stundum vanþakfca I af ráðamönnum okk- ar. Guðni Jónsson var gæddur sér- •töku skaplyndi. Hann var mjög dagfansprúður, glaðvær þó með •íbrigðum og hrókur fagnaðar í vinalhópi. Enginn, er kynntist bonum, mun gleyma hans hvella og innilega hlátri, og það var dauður maður, sem ekki gladdist í návist Guðna. Þá var Guðni og mjög skapfastur og ákveðinn í samibandi við störfin á sjónum, enda var hann afiburða skipstjóri, veðurglöggur mjög og hlekktist aldrei á né missti mann, þótt otft væri fast sótt. Ég held, að Guðni hafi verið gæddur undirmeðvitund — eða „sjötta sans“ sem sumir nefna — er vísaði honum leið til fanga og varaði við hættum og veitti vitneskju uín ýmisa óorðna h'luti, þótt lítt flikaði hann þessu, nema undir sérstökum krinigumstæðum við sína nánustu og einkaivini. Ég minniist þess ekki að Guðna hafi nofckurn tíma orðið „mis- dægurt" sem kallað er, a.m.k. ekki svo hann væri frá verki, þar til hann kenndi sér þesis meins, er leiddi til dauða á mjög skömm um tíma, eftir að hann lét til leiðast að fara til læknis í rann- sófcn, SMkt er að jafnaði mjög þungt skref fyrir atiorku og hraustleikamenn, sem Guðni var. Þegar félagi minn og fyrrver- andi húsbóndi Guðna — sem nú mun frekar kallaður samstarfs- maður — Sveinn Jónsson — sér- stakur vinur Guðna — var jarð- aður 21. okt. 1966, þá var Guðni þar, frískur og kátur, að því er virtist, en ég og fleiri, er þekktu hann bezt, fiundum, að hann var ekki samur og áður. f»á hafði hann nýlega samþykkt að lækn- isrannsókn færi firam vegna und- anfiarandi vanlíðunar. Þessi rannsókn leiddi til upp- skurðar, sem sýndi, að versti núverandi óvinur líkama Islend- inga (o. fl. „menningarþjóða") hafði þegar fengið svo fasta ból- festu í vini ofckar, að eigi varð á brautu rokinn og vann lokasigur á óvenju Skömmum tíma — firá rannsókninni. Guðni vissi að hverju fiór, þótt eigi léti hann á því bera. Til sönnunar skal þess getið, að nokkru áður en hann fór í um- rædda rannsókn, þaulspurði hann Jón bróður minn — margra ára vin og samstarfismann — hvern- ig það hefði verið með Þórð Sigurðsson, hve lengi hann hefði kennt sér meins, áður en hann fór í rannsókn og um tímann, sem leið frá rannsóikn til dauða. Síðan sagði hann: „Ég veit þetta verður svipað með okkur Þórð, við vorum sagðir líkir um margt, og ég er nú á sama aldri og þeg- ar hann fór“. Þórður Sigurðsson, skipstjóri á Akranesi, var ekki ósvipaður Guðna, fuTllhugi, fram- úrskarandi aflamaður. og fiíl- hraustur fram að banameininu, sem var það sama og hjá Guðna — of seint afihugað og stutt en kvalafull banalega. Eins og áður sagt, var Guðni Jónsson gæddur sérstöfcu „skap- lyndi" og mættu margir öfunda hann af því. Guðni átti kannske öfiundarmenn — svo aumur var hann ekki (eins og sá góði mað- ur sagði á 90 ára afimæli sínu) — en hatursmenn held ég, að hann hafi enga átt. Fjölda vina og velunnara átti Guðni, og hygig ég, að þá sé að finna á flestum vífcum og fjörð- um landsins, svo og í sumum sveitum, því Guðni stundaði bú- skap — jafnframt sjómennsk- unni — um árabil á Flankastöð- um. Skipstjórn fór honum sér- staklega vel — útgerð og búsýsla ekki að sama skapi. Nú er ég kveð vin minn Guðna Jónsson, eftir i|n 40 ára kynni og vináttu, sem ég minnist ekki að hafi borið skugga á, þá er mjög margs að minnast: Skap- lyndið, drengskapurinn, gæðin og umhyggjan fyrir sínum nán- ustu og „húsbændum“ bera hæst, vináttan og glaðværðin næst; þá kemur nýtnin og sparsemin, sem ég þefcki engan samanburð um, nema ef vera skyldi hjá fiöður minum, og gæfi ég þar um nefnt ýmis dæmi, en sleppi hér. Eigi verður skiMzt við þessi minningarorð án þess að geta hinnar ágætu konu Guðna. Hann kvæntist Guðríði Guðjónsdóttur 14. maí 1927, reyndist hún Guðna og börnum þeirra sérstaklega vel. Hún var þeirn nærgætin og umhyggjusöm, enda prýða hana margir kostir góðrar húsmóður, sem sérstakiega gætti, er þröngt var í búi, sem stundum var og er veikindi og erfiðleifca bar að höndum. Börn og tengdábörn reyndust Guðna einnig mjög vel, sem hann og mat að verðleikum. Þau eign- uðust 9 börn, misstu það elzta, 3 ára dreng. Hin eru: Guðjón, bryti, 36 ára, kvæntur Stein- unni Gunnlaugisdóttur, búsettur í Rvík; Guðrún, 34 ára, gift Birgi Axelssyni, skipstj., í Reykjavik; Sigurður, rakari, 29 ára, kvænt- ur Lilly Walderhaug, í Keflavík; Hafisteinn, skipstjóri, 27 ára, kvæntur Eydísi Eyjólfsdóttur, í Sandgerði; Karólína, 26 ára, gift Friðrik Óskarssyni, sjómanni, Keflavík; Guðfinna, 23 ára, gift Birki Baldvinssyni, flugm., Glas- gow; Aðalsteinn, sjómaðuir, 21 árs, kvæntur Sigrúnu Valtýsdótt- ur, í Keflavík; Maria Gréta Sig- urðardóttir, 40 ára, gift Roy Abby, ljósm. hjá General Electric í New York, dóttir Guðríðar, óist upp hjá Guðna og móður sinni, og unni Guðni henni eigi síður en sínum eigin börnum. Nú, þegar Sandgerði hetfur á bak að sjá einum af sínum mestu pensónuleikum, minnast sam- borgararnir margra samveru- stunda. Flestar eru þær Ijútfar — þó sumar tregablandnax — það er gangur Mtfsins. Guðna mun ætíð minnst sem mikilihæfis manns, er setti svip á samtíð sina og umhvertfi og mætti — og ætti — vera fýrfex mynd yngri kynslóðar. Ég færi konu hanis, börnun^ öðrum ættingjum og venzla« mönnum hans, innilegustu sam- úðarkveðjur frá mér og fjöfe Skyldu minni og Sveins heitin* félaga míns. Guð veiti ykkur náð og styrk. Guðna þökkum við samstarfið og vináttuna og biðjum sáki hans friðar og þroska hjá GuðL Vertu sælL Ólafur Jónsson. (STBTTO MÁU Madrid — NTB DóMSTÓLL í Madrid dæmdi 1 dag spánska rithöfundinn Isaac Montero í 6 mánaða fangelsi fyr ir að hafa rekið ólöglegan áróð- ur, í bók hans „Apríldagur". Bók in var gerð upptæk í ágúst sL áður en hún kom í bókaverzlan- ir. Bókin fjallar um Mtinn dreng. sem bandarísk hjón taka 1 fóst- ur á Spárn, og segir höfundur á kápusíðu að hann hafi ekki treyst sér til að sleppa úr bók- inni 24 atriðum, sem ritskoðun landsins krafðist að harui gerðL STÚRKOSTLEGT B0Ð FRA GILLETTE nýtízku rakvél “SUM TWISf’ Gefur yður auðveldasta og þægilegasta rakstur lífs yðar. Rakvélm, sem opnast og lokast meí einu handtaki. Langt mjótt handfang fyrir fuHkomið1 jafnvægi og auðvelda meðferð*. Kemur komplett í faJIegura kassa. AB AUKI handhægt hylki með Gillette Super Silver, sem gefa fleiri rakstra en nokkur önnur blöð, sem þér hafið notað Kostar yður AÐE/NS fyrir hina einu fullkomnu rakstra Kr. 74.00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.