Morgunblaðið - 03.01.1967, Page 24

Morgunblaðið - 03.01.1967, Page 24
Lang stærsta og fjölbreyttasta blað landsins Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1967 7 ára drengur bíöur bana viö brennu — er hann og félagar hans veltu tómri olíutunnu á glæður báls HÖRMUIÆGT banaslys varð á nýjársdag í Reykjavík, afleiðing af áramótabrennu. Beið bana 7 ára drengur, Halldór Guðjón Björnsson, Ásgarði 139, en jafn- aldri hans, Bjarni Jónsson í Langagerði 97 slapp naumlega en ómeiddur. Á gamlárskvöld var bálköst- ur norðan við hitaveitustokkinn við Ásgarð og logaði enn Mtiis- háttar í brunarústunuim á nýárs- morgun. Um 11 leytið komu þrír drengir, einn 9 ára og tveir 7 ára þama að. í noítókurri fjar- lægð frá brennunni var oMu- tunna, sem motuð hafði verið er bálið var tendrað kvöldið áður og hafði hún síðan verið skilin eftir tóm. Drengirnir tólku nú upp á þvl að velta tunnunni á glæð- urnar og stóðu tveir yngri drengirnir við tunnuna, er hún sprakk. Lézt Halldór Mtii sam- stundis. En Bjarai slapp ómeidd- ur, en þó svo naumlega að gat var höggvið á hægri öxl á ný- lega kuldaúlpu, sem hann var í og hann toom heim sótugur og rauður á hægri kinn. Drengur- inn, sem fórist, var sonur hjón- anna Björns Jónssonar og Mar- grétar Hallgrímsdóttur í Ásgarði 139. Tunnur sem þessi voru notað- ar við flestar brennurnar í Reykjavík. Þegar slysið var orðið, fóru lögreglumenn og bæj arstarfsmenn að brennunum, en einihvers staðar í nánd við þær flestar höfðu tunnumar verið skildar eftir og fjarlægðú þeir þær. Sá háttur hefur verið á hafður, að lögreglan hetfur alla jafna fengið einhverja fullorðna menn í nágrenni við brennurnar til að hafa eftirMt með þeim. Var það og á gamlársfcvöld nú við margar þeirra en enginn hafði eftirlit með brennunni við Ásgarð að þessu sinni, henni aðeins stjórnað af unglingum og börnum, samfcvæmt upplýsing- um rannsóknarlögreglunnar, sem sagði að það hefði reyndar eikiki þurft til, þvi samskonar tunnur voru við nær allar brennumar. Gosið í nýja gígnum í Surtsey. Myndin tekin í gær, og sýnir hvernig hraunið er að fylla lónið framan við Surtseyjarhúsið, sem sést til hægri í brekkunni, og nálgast það. Surtsey fagnar '67 með nýju SurtseyJarhúsiÖ í hættu ármu hraungosi SUŒtTSEY fagnar nýju ári á sinn hátt. í fyrsta blaði á ár- inu 1966 gátum við skýrt frá nýju gosi í Surtsey og nú getum við aftur í fyrsrta blað- inu á þessu ári flutt íréttir af nýju hraungosi 1 eynni Það hófst á nýjársdag og er nýi gígurinn norðaustan í Surtsey sjálfri. Slær það sjón arspil með rauðglóandi hrauni og tilheyrandi gufustrókum á snjófölvaðri eynni áreiðan- lega út flest sviðsett áramóta- fíverkerí. í>að sannfærðust blaðamenn um, sem í gær flugu með Sif, flugvél Land- helgisgæzlunnar yfir staðinn. Ekiki er þó ánægjan yfir nýju gosi óblandin. Hið dýra Surtseyjarhús vísindamanna er nú í hættu. Hraunstraum- urinn, sem kemur frá gíg uppi i fjallshMðinni ofan við hvamminn þar sem það stend- ur, rennur út í lón er þarna myndaðist á sínum tima og er komið langleiðina með að fyMa það. Skríður glóandi hraunröndin markvisst áfram yfir lónið og vatnið í því rýk- ur upp í gufu. Húsið stendur nokfcuð uppi í hlíðinni hinum megin og virðist það sem eftir er af vatninu í lóninu færast undan hrauninu nær hlíðinni. Sýnist okfcur varla meira en svona 50—100 m. upp að hús- Frambald á bls. 3. Moí kominn með hillfenni TOGARINN Maí kom í gærdag til Hafnarfjarðar með tæpar 500 lestir af karfa af Nýfundnalands miðum. Er þetta í annað skipti á rúmum hálfum mánuði að tog- arinn kemur með fullfermi af þeim miðum. Aflinn fer til verk- unar í frystihúsi Bæjarútgerðar- innar í Hafnarfirði. 5 f jölskyldur missa ili sín í eldsvoðum í heim- Eyjum 23 MENN misstu heimili sín í Vestmannaeyjum á nýársdag og í fyrrnótt, er eldur kom upp í tveimur húsum í kaupstaðnum. Er hér um að ræða 5 fjölskyldur, sem varla eiga fötin sem þær standa L Um kl. 15.55 á nýársdag kom 79mannsfórustaf slysförum á sl. ári upp eldur í húsinu nr. 69 við Vestmannabraut, sem gengið hefur undir nafninu Hjarðar- bolt. BJuggu þar tvær fjölskyld ur, 7 manna fjölskylda á efri hæðinni, en á hinni neðri ung hjón með eitt ungt barn. Húsið er steinhús með tréinnréttingu og talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Innbúið á efri hæðinni var vátryggt, en óvá- tryggt hjá ungu hjónunum. í fyrrinótt kl. 04.25 kviknaði svo í húsinu nr. 3 A við Vest- urveg, en það hús hefur verið nefnt Landamót. í húsinu bjuggu þrjár fjölskyldur, sú stærsta fimm manns, hjón með þrjú börn, en hinar tvær fjög- urra manna fjölskyldur, hjón með tvö börn í hvorri fjölskyldu. Mbl. hafði f gær tal af Jóni Kjartanssyni, er bjó í Hjarðar- holti og spurði hann um brun- ann. Jón sagði: — Jú við bjuggum þarna tvær fjölskyldur, ég með konu minni og fimm börnum og ung hjón á neðri hæðinni með eitt barn innan við hálfs árs. Húsið er mjög skemmt og ekki íbúðar- hæft að sinni. Húsið var vá- tryggt fyrir um eina milljón og innbúið mitt fyrir um 200 þúsund og er það heldur lágt. Við misst um allt, en eigum þó föt til skipt anna. Börn mín eru á aldrinum 3ja til 17 ára og er elzti dreng- urinn í Kennaraskólanum, en hafði komið heim um hátíðarnar. Hann missti allt sitt, og fór hann altur til Reykjavíkur í dag, blessaður. — Nei, við vitum ekki hvernig eldurinn kom upp, en við erura að geta okkur til að kviknað hafi í jólahúsi, sem upplýst var með rafmagni. Þó minnumst við þess ekki að logað hafi á per- unni, þegar við fórum að heina- an. — Við höfðum farið í næsta hús til þess að horfa á sjónvarp- ið, og höfðum ekki verið að heiman nema um það bil hálf- tíma, þegar okkur barst fréttin. — Jú, við höfum þak yfir höfuðið nú. Það vildi svo vrf til að til mín hringdi maður, sem ég var aðeins málkunnugur og bauð hann okkur herbergi með eldhúsi, sem hann að vísu ætlaði að fara að nota sjálfur, því að hann ætlaði að fara að standsetja íbúðina sína, en hann frestaði því, meðan við þyrftum á húsnæðinu að halda. Fr am'h. á bls. 23 14 banaslysum fœrra en 1965 — 149 mannslífum bjargað úr lífsháska Mikil ófœrð á Vestfjörð- um, norðan og austan Á ÁRINU 1966 urðu 79 banaslys á landinu, samkvæmt upplýsing- um er Mbl. fékk hjá Slysavarna- félagi íslands, og er það 14 banaslysum færra en árið áður. 149 mannslífuan var bjargað á árimr, en árið 1965 108. Slysa- hæsti mánuðurinn varð á sl. ári í jú'M með 16 banaslys, og veldur þar mestu um að í þeim mánuði drufcknuðu 8 menn við land og þrír biðu bana á dráttarvélum. í júní og júM mánuðum einum urðu samtals 2t7 banaslys, eða rúmlega þriðjungur allra bana- slysanna á árinu. Samtals urðu 33 drufcknanir á árinu, 6 fórust með skipi, 10 fél'lu útbyrðis og 17 drukknuðu við land, í vötnum eða í höfn- um. Árið 1965 druikknuðu sam- tals 34 manns. Samtals fórust 27 manns í umferðarslysum, í átta tilfelluim var ekið á vegfarendur, 13 í bifreiðaáretostirum og 6 í dráttarvélaslysum, en árið 1966 fórust 24 í umferðarslysum. 19 manns létust af ýmsum orsökum, og eru þar slysahæstu liðirnir: Vinnuslys, hrapað og af byltu og voðaskot með fjögur bánaslys hver. Árið 1965 fórust 34 af ýms- um arsökum. MORGUNBLAÐIÐ sneri sér I gær til Hjörleifs Ólafssonar hjá Vegaskrifstofu ríkisins og leitaði upplýsinga um færð á þjóðveg- um Iandsins. Hjörleifur kvað ástandið vera mjög svipað sunnanlands og ver- ið hefði fyrir áramót, fært væri austur um þrengslin og yfirleitt um Suðurlandsundirlendið, en gat þess að færð hefði þó þyngst talsvert í uppsveitum Árnes- sýslu. Færð væri einnig sæmi- leg um Hvalfjörð og Borgar- fjörð, en upp frá því færi hún mjög að þyngjast. Hann gat þess að í dag stæði til að aðstoða stórar bifreiðar um Snæfellsnes, Dalasýslu, norður yfir Holta- vörðuheiði til Blönduóss, og norð ur Strandir til Hólmavíkur. Hjörleifur sagði ennfremur, að mesta ófærð væri á Vestfjörð- um, en þar lokaðist allt á gaml- ársdag. Þó er fært frá ísafirði að flugvellinum, og unnið að mokstri fré kaupstaðnum til Bol ungavíkur. í Skagafirði, Eyjafirði og Þing- eyjarsýsluð er sama ástand og á Austfjörðum, alls staðar gífur- legt fannkyngi og ófærð, og vart fært nokkurs staðar. Sagði Hjör leifur að meðan sama ástand héldist, og snjó festi hvergi, væri þýðingarlaust að reyna snjó mokstur á vegunum, og það ekké reynt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.