Morgunblaðið - 11.01.1967, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.01.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1967. 3 ■ •V-.'V ,.Ú ■v’ -W-. -.V >, FV,- \ , • r ■ Æ V „ 'ö. Í5í • * "■ ••• liiISSS*?® ti".. ■' aArv'Vr. f".C- * 1,1 v>» . V.v -.VAV * ..•T-.ffla í - ,;v- ' ■ ;■ v; Leikfélag Reykjavíkur 70 ára Guðrún Indriðadóttir sem Halla í Fjalla Eyvindi 1911. hefjist og gerist það þá aftur með því að tekin eru til sýn- ingar íslenzk leikrit. í>á eru sýnd leikritin Skálholt eftir Kamban og Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson, en 1948 fór féiagið fyrstu leikför sína ut- an, en það sýndi þá Gullna hliðið í Helsingfors við ágæt- ar undirtekir. Síðan hefur félagið gert aðra för til Fær- eyja með Hart í baik efir Jök- ul Jakobsson, sem er það leik rit, sem oftast hefur verið sýnt á fjölunum í Iðnó, í einni striklotu. í vor ætlar Leik- félag Reykjavíkur síðan að fara með Fjalla-Eyvind vestur og sýna meðal Vestur-íslend- inga. Árið 1950 tekur Þjóðleikhús ið til starfa, og koma þá aftur upp raddir um að leggja Leik félagið niður, en þá eru það nokkrir velunncirar og starfs- menn félagsins, sem taka sig saman og rísa öndverðir gegn því eins og Brynjólfur Jó- hannesson og Þorsteinn Ö. Stephensen, sem einir leikara réðust ekki til Þjóðleikhúss- ins svo og Lárus Sigurbjörns- son. Þá varð það Leikfélaginu til happs, að Gunnar Hansen, sem áður hafði verið leik- stjóri hjá félaginu á árunum 1934-’35 réðst til félagsins og tók að sér listræna forstöðu þess. Var Gunnar jafnvigur i leiklistarmálum sem tónlist- armálum og félaginu mikfl Framhald á bls. 17 Gunnþórunn setti um lang- an aldur svip sinn á sýning- ar Leikfélagsins ásamt Frið- finni Guðjónssyni, en í stuttri grein er ekki unnt að telja upp alla þá mætu leikara, sem leikihúsið stendur í þakkar- skuld við, en þó er ekki hjá því komizt að minnast leik- kvenna eins og Soffíu Guð- Úr Ieikritinu Frú X eftir Bisson frá 1921. Stefania Guðmunde- dóttir og Óskar Borg. Anna Borg sem Halla í Fjalla-Eyvindi 1930. laugsdóttur. Öldu Möller og þeirra Indriðadætra Mörtu og Emilíu, sem allar voru stór- virkar leikkonur. Þá mó minn ast Helga Helgasonar, sem lék Kára í Fjalla-Eyvindi yfir 50 sinnum og Stefán Runólfsson- ar, prentara, en af yngri leik- urum er einkanlega að minn- ast manns eins og Alfreðs Andréssonar, sem féll frá langt fyrir aldur fram. Á' þriðja áratug aldarinnar fór að halla fjárhagslega und- an fæti fyrir leikfélaginu og þá gætti stöðnunar í leik- rjtavali þess. Þegar upp úr Alþingishátíðinni eftir sýn- iiigarnar á Fjalla Eyvindi kom upp sú tillaga að stofna nýtt leikfélag, en það varð síðan að samkomulagi að nýja félagið var látið renna inn í Leik- félag Reykjavíkur og hófst þá nýtt tímabil 1 sögu þess og var Haraldur Björnsson for- maður. Á þessum árum var mik- il kreppa og allur rekstur var mjög erfiður, en með eignasölu til Þjóðleikhússins og með stuðningi frá bæ og ríki rétti félagið við smám LEIKFÉLAG REKJAVÍKUR ein elzta menningarstofnun borgarinnar er 70 ára í dag. Öll þessi ár hefur leikfélagið haldið uppi leiklistarlífi lengst Góðtemplarahúsinu. Þegar Leikfélagið var stofn- að tók það alla beztu leik- krafta þessara tveggja leik- félaga, en leikið var í báðum Sviðsmynd úr Manni og konu frá 1933. Talið frá vinstri: Alfreð Andrésson, Bjarni Björnsson, Lárus Ingólfsson og Valur Gíslason. af eitt sins liðs, en nú á síð- ari árum í harðri samkeppni við Þjóðleikhúsið og mun margra mál að það hafi ekki borið lægra hlut, heldur oft og tiðum staðið jafnfætis hin- um stóra keppinaut og stund- um ef til vill enn betur. Lárus Sigurbjörnsson hefur um áratugi verið mikill áhuga maður um leiklistarmál, átt sæti í stjórn Leikfélags Reykjavíkur um 11 ára skeið og verið formaður þess tvisv- ar sinnum í samtals 4 ár. Við fórum þess á leit við Lárus að hann segði okkur eitthvað frá sögu félagsins og varð hann góðfúslega við þeirri beiðni. Undanfari Leikfélags Reykjavíkur eru tvö litil leikfélög, sem rekin voru í tveimur samkomuhúsum bæj- arins. Fjalakettinum eða svo- kölluðu Breiðfjörðshúsi sem dans'kur leikflokkur vígði 1893 með nafninu Reykjaviks Teat- er og leikfélag á vegum Góð- templara, sem staðsett var í þessurn húsum eftir þetta, svo að um tíma voru 3 leikhús í Reykjavík. Aðalhvatamaður formaður hans skyldi ávallt vera oddviti bæjarstjórnar Reykjavíkur, þ. e. forseti bæjarstjórnar. Þeir sem léku skyldu efla sjóðinn með 50 ríkisdala framlagi. Sögu Leik- félagsins sem borgarleikhúss mætti því telja 100 ára á 70 ára afmæli félagsins. Kúlissusjóðnum fylgdi það ákvæði að hefði einhver for- göngu um byggingu sam- komuhúss í Reykjavík skyldi sjóðurinn renna til þeirra að- ila og væru þeir þá jafnframt skuldbundnir til þess að hafa leiksvið í húsinu. Iðnaðar- menn fengu styrinn og reistu Iðnó. Sjóðurinn nam þá liðug- um 900 krónum, sem á þeirra tíma mælikvarða var mikið fé. Fyrstu verkefni Leikfélags- ins voru léttir sönglei'kir, en blómatími félagsins hófst ekki fyrr en Einar H. Kvaran, Bjarni frá Vogi, Jón Aðils, prófessor og fleiri verða þar viðriðnir og er þá ráðizt í viða meiri verkefni. 11899 fær félag- ið síðan 300 króna árlegan styrk frá ríki og 150 krónur úr bæjarsjóði og var það fé- ■mm ' ” ...... Leikhúsið (Iðnaðarmannahúsið) skömmu eftir að það var byggt. að stofnun hins nýja félags var Þorv. Þorvarðsson prent- ari og varð hann fyrsti for- maður þess. Iðnó, húsið ,sem leifcfélagið fékk aðsetur í er jafngamalt Leikfélaginu. Fyrsta skemmt- unin í því var söngskemmtun og það var á þessurn tímum stærsta og veglegasta sam- komuhús bæjarins. Húsið var byggt af iðnaðarmönnum með styrk frá svokölluðum Kúlissu sjóði, sem stofnaður var 1866 af Sigurði Guðmundssyni mál ara og fleirum, sem settu það ákvæði við sjóðstotfnun að laginu mikill styrkur. Blómaöld Leikfélagsins telst frá 1908 til 1916. Þá hefjast sýningar á Nýársnóttinni eftir Indriða Einarsson í nýrri gerð hans. Þá má og nefna leik- rit Jóhanns Sigurjónssonar, Guðmundar Kambans, Einars H. Kvarans og fleiri eru þá sýnd og lyfta þau leiklistar- lífi bæjarins í æðra veldi. Frá þessum tíma má minnast dug- mikilla formanna félagsins eins og Kristjáns Þorgríms- sonar, Jens B. Waage og Árna Eiríkssonar, sem voru á'kaf- lega duglegir og ötulir í starfi jafnframt því sem þeir voru í fremstu röð leikenda. Margir aðrir dugandi leikarar voru einnig á þessu tímabili s. s. eins og Stefanía Guð- mundsdóttir, Guðrún Indriða- dóttir og nokkru fyrr hafði Gunnþórunn Halldórsdóttir leikið með mikilli prýði, en hún gerði hlé á störfum sín- um hjá félaginu, en kom aftur síðar og vann þá sína stærstu leiksigra. saman og þó aðallega fyrir góðærið, sem kom um 1940. Má þá segja að annað blóma- skeiðið eða gullöld félagsin* Steinhús við Bergstaðarstræti ca. hálfur kjallari, tvær hæðir og ris, ásamt eign- arlóð til sölu. í húsinu eru tvær 3ja herb. íbúðir m. m. Selst í tvennu lagi ef óskað er t. d. efri hæð og ris saman og 1. hæðin sér. Nánari upplýsingar gefur IMýfa Fasteignasalan Laugavegi 12 — Simi 24300.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.