Morgunblaðið - 11.01.1967, Side 14

Morgunblaðið - 11.01.1967, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAgUR 11. JANtlAR 1&67. Ólafur Kristirm Steinsson, Minning Sira Pétur Magnússon: Þeim láöist aö líta á kortið ÓLAFUR Kristinn Steinsson var fæddur að Hálshúsum 1 Vatns- fjarðarsveit 5. apríl 1894. Hann var sonur hjónanna Steins Bjarnasonar og Ingibjargar í>or- valdsdóttur, er þar bjuggu lengi, en fluttust síðar að Vatnsfjarð- arseli. Ólafur ólst upp í foreldra- húsum í hópi margra systkina. Þar var stundum knappt um heimsins gæði en því meira af auðlegð andans. Voru þau for- eldrar Ólafs bæði vel greind og móðir hans hagmælt og sagna- t Siystir okkar Sigríður Halldórsdóttir andaðist að fcvöfldi 9. þ.m. — Jarðarförin ákveðin síðar. Marel Halldórsson, Þorsteinn Halldórsson t Jarðarför bróður okkar, Jóns Einarssonar, Borgartúni 20 (Defensor) fer fram frá Fossvx>gskirkj u fimmtudaginn 12. jan, fcL 3. Jónína Einarsdóttir, Pétur Einarsson. t Maðurinn minn og faðir ofldkar Gústaf R. Hákonsen verður jarðsunginn fná Foss- vogskkfcjiu Æöstudoginn 13. janúar kfl. 10.30 árdegis. Blóui vinsamlegast aflþökfcuð en þeim sem víldu heiðra minn- ingu hans er bent á Sjáilfls- björg, féflag lamaðra o^g fllatl- a'ðra. Þórný Gissursdóttir Hákonsen og dætur. t Þökfcum innilega samúð og hluittekningu við andliát og út- för eLskuLegrar fconu minnar, rnóður og ömmu Jóhönnu Pálsdóttur, Hellisgötu 21. Guð blessi yfckur ölfl. Guðjón Jónsson, Börn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð vfð andillát og jarðarflör mannsins míns, íöð- ur okfcar, tengdaflöður og afa, Péturs Sigurbjörnssonar, Höfðabraut 8, Akranesi. Guð ble&si ykkur öll. Helga Jónsdóttir, Börn, tengdaböm og baraaböm. fróð svo að orð var á gert. Mun Ólafur hafa verið mjög hand- genginn móður sinni og numið af vörum hennar kjarnyrt mál og lífsreynslu liðinna tíða, auk alls kyns fróðleiks, sem næmur barnshugur svalg í sig. En skóla göngu var þá ekki kostur, utan þess hversdags skóla, sem kenndi sparsemi, hófsémd og nýtni, svo að það gleymdist aldrei síðan. Þegar dró til fullorðinsára var Ólafur við búskap, fyrst í Vatns- fjarðarseli með Valdimar bróð- ur sínum, síðar á Eyri í ísafirði með Sigurði bróður sínum. Árið 1928 kvæntist hann Kristínu Önnu Gunnarsdóttur og voru þau þá í Hörgshlíð. Dóttur áttu þau eina, Kristínu Ólöfu Ólafs- dóttur, sem gift er Borgari Hall- dó.rssyni stýrimanni á ísafirði og eiga þau þrjú börn. Konu sína missti Ólafur sama ár, þrí- tuga að aldri. Árin eftir lát konu sinnar var Ólafur á ýmsum stöðum, við bú- skap og í húsmennsku meðal annars í Svansvík Reykjarfirði t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Þórðar Þorgrímssonar. Anna Þorgrimsdóttir, Biraa Jónsdóttir, Pétur Pétursson. t Þökk.um inniflega vinarbug, auðsýnda samúð og Muttekn- ingu við útflör sonar mins og bróður okkar, Finns Kolbjörns Nilssen. Julranna Marie Nilssen og systkini. t Innöegustu þakkir færum við öllum þeim er sýnt hafa okk- ur samúð og vináttu við and- lát og jarðarflör móður okkar, tengdamöður og ömmu, Þorsteinínu Þorkelsdóttur. Fyrir hönd vandamanna. Marinó Sólbergsson. t Ykkur 511 um, sem auðsýnduð minning,u, Sigurlaugar Erlendsdóttur frá Xorfastöóum, virðingu og okkur samúð og vinarlhug við andúát hennar og útflör. flærum við einlægar þakkir og óskum yfckur far- sældar á nýbyrjiuðu árL Gæfan fyflgi Biskuipstung- unum, sem hún unni svo mjög. Böra, tengdabörn og barnaböra. og Vatnsfirði. Árið 1936 kvænt- ist hann svo eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Ólafsdóttur og hófu þau búskap tveim árum síðar á Keldu í Mjóafirði og bjuggu þar ávallt síðan. Á Keldu liggur alfaravegur um hlað. Þótti þar mörgum notalegt að koma, enda var þeim hjón- um ljúft að veita gestum sínum vel. Voru þá oft gamanmál á vörum, því að húsbóndinn var glettinn og spaugsamur. En hann gat líka verið stórlyndur, ef honum þótti á sig leitað og jafnan var hann einarður í máli við hvern sem var. Það var fróðlegt að eiga tal við Ólaf, einkum ef talið barst að fyrri tíðum, verkmenningu og við- horfum eldri og liðinna kyn- slóða. Á því sviði átti hann gildan fræðasjóð, studdan óbrigðulu minni og næmri at- hyglisgáfu. í þeim sjóði mátti finna brotasilfur, sem gengið hefur í arf frá gengnum feðr- um. Síðustu árin var Ólafur ekki heill heilsu en bar það vel. Naut hann þá sem ávallt umhyggju og skilnings Guðrúnar konu sinnar. Dóttursonur hans, Ari Sigurjónsson, var þá einnig elli- stoð hans og vann ötullega að búi þeirra hjóna, að fyrirmynd afa síns, en Ólafur var einstakur snyrtimaður og verklaginn við öll störf. Jörðina Keldu sem er frekar kostarýr, hafði hann bætt mikið á seinni árum. Hann andaðist að heimili sínu hinn 27. nóvember 1966 eftir stutta legu. Hinn 3. desember var hann jarðsunginn í Vatns- firði og hvílir þar nú í þögulli hirð frænda og fornra sveitunga. Á. S. t Ininilegar þafckir fyrir alla samúð og vinarhug mér sýnda við flráfaM sonar máns, Péturs Kolbeinssonar. Fyrir hönd ættingja. Þóra Pétunsdóttir. t Þöfckum innilega aflla samúð og vinarhug við fráfa'll og jarðarflör móður ofltkar, tengdamóður og ömmu, Kristínar Guðríðar Jónsdóttur. Guðmundur Torfason, Jón Magnússon, Elías Magnússon, Helga Magnúsdóttir, tengdabörn og barnabörn. SÍÐASTA nóvemberhefti Kirkju- ritsins byrjar á frásögn undir fyrirsögninni: „Gjörðir Kirkju- þings 1966“. Fyrsta málið, sem þarna er hermt frá er frv. það til laga, um skipun prestakalla og prófastsdæma, er nú liggur fyrir Alþingi. Er frumvarpið upp runalega samið af þar til skip- aðri nefnd, en síðan yfirlitið og umrætt bæði af prestastefnu og Kirkjuþingi. Á fyrstu síðu frumvarpsins er meðal annars greint frá hvernig þessum málum skal skipað á Upphéraði. Lagt er til að Valla- nes- og Valþjófsstaðaprestaköll verði sameinuð — og að prestset ur hins nýja prestakalls verði að Valþjófsstað. — Þetta síðar nefnda ákvæði frumvarpsins er svo furðulegt, að ég ætlaði fyrst í stað, að þarna myndi bara vera að ræða um prenbvillu. — En nú hafa mér borizt bréf úr hin- um gömlu sóknum mínum, er sýna, að þetta um staðsetningu prestsetursins er ekki prentvilla, heldur bláköld alvara þeirra, sem að frumvarpinu standa, Umrædd bréf _hafa að geyma áskorun til mín um að skrifa um þetta. Og þar eð svo stendur á, að enginn núlifandi prestur mun vera kunnugri en ég aðstöðunni til prestþjónustu þarna á Upp- héraði, finnst mér að ég geti trauðla skorast undan því, að láta uppi álit mitt um málið. Ákvörðun um staðsetningu prestseturs í stóru prestakalli, þar sem miklu vetrarríki getur verið að mæta, er viðkvæmt mál fyrir þá, sem henni eiga að hlýta. Ef aðsetursstaður prests- ins er á mjög óhentugum stað, getur það haft í för með sér, bæði það, að allir aðdrættir til prestsheimilisins verði erfiðari og kostnaðarsamari en vera þarf, og eins hitt, að ferðir prestsins á messustaði og til' annarra þjónustustarfa baki honum óþarfan kostnað, erfiði — og áhættu, einkum þegar um er að ræða vetrarferðir. — Ekki er síður á það að líta, að mjög óhentug lega prestssetursins bak ar þeim sóknum, sem verst verða úti, ekki einasta stórum meiri kostnað en ella, þá ér kveðja þarf prestinn til auka- verka, beldur hlýtur það lika að leiða til hins, að preisturinn geri þar minna að um húsvitjan ir en í þeim sóknum sem nær liggja. * Ef umræddur liður prestakalla frumvarpsins, um staðsetningu prestsseturs á Upphéraði, verð- ur að lögum, munu allir þeir annmarkar, er ég hefi nú nefnt, mæða um ófyrirsjáanlegan tima á prestinum þar og stórum meirihluta sóknarbarna hans — og valda í senn miklum erfið- leikum og óánægju. — Fyrstu árin, sem ég var prestur í Vallanesi, hafði ég jafnframt á hendi þjónustu í Valþjófsstaðaprestakalli. Valla- nes er svo nærri miðju Upp- héraðs, og liggur svo vel við vegakerfinu, að þjónustan varð mér yfirleitt mjög auðveld, og hafði ekki í för með sér neinn alvarlegan ferðakostnað fjrrir sóknarbörn mín, þá er um var að ræða greftranir eða önnur aukaverk. — Á þessum árum gerði ég mér vel ljóst, hversu stórum erfiðara hefði verið fyrir mig að þjóna þessum fjórum sóknum, ef ég hefði búið á Val- þjófsstað — og jafnframt hve þjónustan hefði krafizt langtum meiri ferðakostnaðar. — Jafnvel Ássókn, er heyrir þó til Val- þjófsstaðaprestakalli, er talsvert auðveldara að þjóna frá Valla- nesi en Valþjófsstað. — Og sá aðstöðumunur hlýtur að ágerast með árunum, vegna fyrirsjáan- legrar þorpsmyndunar við norð urenda Lagarfljótsbrúar. — Um aðstöðu prests á Valþjófsstað til að þjóna Þingmúlasókn, er það að segja, að vegna legu Hall- ormsstaðahálsins, yrði prestur- inn fyrst að aka bíl sínum svo að segja út að Vallanesi, og hefja þaðan ferð sína, uppeftir aftur, I áttina til Skriðdalsins. Ferðir til aukaverka, alla þessa leið, myndu iðulega verða svo tilfinnanlega kostnaðarsamar og tímafrekar, að ólíklegt er að Skriðdælingar myndu sætta sig við, að hafa prestssetrið á stað, sem hefði svo mikið óþarfa óhagræði og óþarfa kostnað í för með sér, Um Vallaness- og Vaþjófs- staðasóknir er, af skiljanlegum ástæðum, óþarft að ræða. Hvor söfnuður fyrir sig myndi auð- vitað kjósa að halda prestinum. — En til þess ber að ætlast, engu að síður, að allir geti sætt sig við að presturinn búi þar, sem sanngjarnast er að hann sé og bezt hentar fyrir heildina. Um byggingar á þessum tveim prestsetrum, Vallarnesi og Val- þjófsstað, er það að segja að kirkjurnar mega báðar teljast veglegar, miðað við kirkjur úti á landsbyggðinni — einkum þá Vallarneskirkja, sem ég hefi heyrt marga ferðalanga telja eina af fegurstu sveitakirkjum á landinu. — íbúðarhús prestsins var á hvorugum staðnum alls kostar hentugt. — En nú hefur mér borizt frétt um að hin ungu og áhugasömu prestshjón í Vallarnesi séu þegar búin, af eigin ramleik, að gera miklar breytingar á íbúðarhúsinu þar, sem hljóta, etfir því sem mér hefur verið tjáð, að vera til mik- illa hagsbóta. Gripahús fyrir kýr, hesta og kindur — svo og safn- hús og heyhlöður, eru alveg ský- laust stórum betri í Vallarnesi en á Valþjófsstað, og bvíla á prestinum með litlu afgjaldi vegna þess, að þeim var komið upp með óvenjulega litlum kostn aði. — Og eins er um girðingar til geymslu búpenings í heima- högum. í Vallarnesi eru þær á járnstaurum og án afgjalds. Um aðstöðumuninn á þessum umræddu prestssetrum til að- drátta, nægir að vísa til upp- dráttar af Islandi útgefnum af einhverju ferðafélaganna. Að sumarlagi tekur ekki nema 25 mínútur að aka frá Vallarnesi út í Egilsstaðakauptún. Ferð á milli kauptúnsins og Valþjófs- staðar tekur þrefalda þá tíma- lengd. — Það hefði satt að segja verið mjög viðeigandi, að ein- hverjum af öllum þeim, sem hafa fjallað um þetta mál, hefði hug- kvæmst að líta á kortið, áður en shann tók afstöðu til væntan- legs aðsetursstaðar prestsins á Upphéraði. Kortið hefði þegar í stað fært honum heim sanninn um, að Vallarnes er nærri miðju héraðsins, en Valþjófsstaður svo nærri botni þess, að ekki veltur nema í fáum kílómetrum, að það sleppi við að kallast afdala- prestssetur. Ef Alþingi fellst á að sam- eina Vallarnes- og Valþjófsstaða prestaköll, er þess að vænta, að fengnum þessum upplýsingum, að það breyti umræddum lið frumvarpsins, og ákveði, að prestssetrið í hinu nýja presta- kalli s'kui vera í Vallarnesi. — Trúi ég ekki öðru, en að Alþingi vilji í svona máli hafa það sem sannara reynist og réttmætast, og afgreiða málið á þeim grund- velli. — Ætti og minningin um þjóðskáldið séra Stefán Ólafs- son — íslands Horatius — er bjó í Vallarnesi alla sína prestsskap- artíð, ekki að spilla fyrir réttri lausn málsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.