Morgunblaðið - 01.02.1967, Qupperneq 5
MVJKliUlVBL,A*M*), MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1&67.
Stemma verður stigu
við vaxandi ávísanafölsun
Stúlka óskast
Stúlka með bókhaldskunnáttu óskast til afgreiðslu-
starfa. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 10. febrúar,
merkt: „8748“.
— segir Þörcur Björnsson, yíirsokadómari
ÞÓRflUR Björnsson, yfirsaka-
dómari, flutti í gærkvöldi yfir-
lit yfir mál, sem dómur hefði
fallið í í Sakadómi Reykjavik-
ur, og ræddi um ýmsa mála-
flokka. sem vöxtur hefði verið
í á sl. ári.
Hann ræddi um auðgunarbrot
in, og kvað hann þar mikinn
vöxit vera t.d. í ávísana- og
tékkafölsunuim. Sagði Þórður að
gera yrði meira en verið hefði
til þess að stemma stigu við
ófögnuði þessum, og kaemi þar
margt til. Bankar og sparisjóðir
yrðu að vanda betur val þeirra
manna, sem þeir treystu til að
eiga tékkareilkning, veita al-
menningi meiri fræðslu um
tékka og meðferð þeirra, og
segja miun rækilegar frá dómum
og refsingum fyrir tékkabrot op
inberlega, en gert hefði verið.
Þórður vék að viðskipta- og
bóklhaldsbrotum, sem hann kvað
flóknustu mál, er Sakadómi bær
ust, þar sem þau væru oftast
margþætt og erfið rannsóknar.
Tæki því meðferð sli'kra mála
venjulega langan tíma, og réðu
dómstólar ekki alltaf hraða
þeirra. Bann sagði að sl. ér
hetfðu engir dómar gengið í Saka
dóimi R/vk. í flóknum viðskipta-
og bókhaldsbrotamálum. Hins
vegar hefðu mörg slík verið
kærð og í þau lögð miikil vinna.
Dómurinn hefði a.m.k. fengið
átta slík mál til meðferðar sl
ár og þar af fjögur frá embætíi
ríkisskattstjóra. Væru flest þess
ara mála enn á rannsóknarstigi
dóms.
Þórður sagði enmfremur, að á
sl. ári hetfði verið kveðnir upp í
Sakadómi dómar í 618 málum,
Þórður Björnsson.
eða 90 fleiri en árið áður. Fang-
elsis- og varðihaldsdómar hefðu
verið 353 og sektamdómar 231,
en hreinir sýknunardómar eða
friávísunar voru 14, en 17
árið áður. Samanlögð fangelsis-
retfsins ó sl. ári var 39 fanigelsis-
ár en voru 47 árið áður. Saman-
lögð varðhaldsvist var 10 ár, og
samanlögð dæmd sektarfjórhæð
var 3.6 millj. kr.
Þórður kvað sviptinigu öku-
leyfa fara vaxandi, og kvað 380
menn hafa verið svipta ökuleyíi
eða réttindi til þess að öðlast
það með dómi ó sd. ári, þar af 65
ævilangt, auk þess sem 152
menn voru sviptir ökuleyfi með
sátt.
Hann kvað núml. 4600 mál
hafa verið afgreidd í Sakadómi
Reykjavíkur ó sl. ári án máls-
höfðunar, þar af nær 3800 með
því að sökunautur saniiþykkiU
greiðlslu sektar, en 800 með
áminningu.
Vegna útgáfu jöfnunarhlutabréfa eru hluthafar
Breiðfirðiiigaheimilisiiis hf.
beðnir um að framvísa hlutabréfum sínum á skrif-
stofu félagsins eigi síðar en í febrúarlok. — Skrif-
stofan verður opin alla virka daga milli kl. 2 og 4,
nema laugardaga.
STJÓRNIN.
Stýrimaður og matsveinn
óskast á 100 lesta netabát frá Patreksfirði strax.
Upplýsingar í síma 40909.
Hópferðabíll - Sendibíll
Til sölu er Mercedes Benz 0319D, 17 farþega,
árgerð 1962, í mjög góðu ásigkomulagi. —
Upplýsingar í síma 10820 eftir kl. 7 á kvöldin.
TIGER TICER
Hin margeftirspurðu karlmanna- og drengjakulda-
stígvél frá TIGER nýkomin. — Stærðir: 37—45.
Kven- og telpnakuldastígvél frá TIGER nýkomin.
Stærðir: 36—42.
Vorum einnig að taka upp mikið úrval af vestur-
þýzkum töfflum með innleggi.
Pantanir óskast sóttar hið fyrsta.
SKÓTÍZKAN,
Snorrabraut 38. — Sími 1-85-17.
Tilboð óskast í eftirfarandi:
1 stk. Strætisvagn Volvo ’51.
1 stk. Yfirbyggð vörubifreið, Ford ’42.
3 stk. Loftþjöppur Sullivan 210 cfm.
1 stk. Þriggja-tromlu götuvaltari, Buffalo 14 tonna.
1 stk. Miðstöðvarketill ca. 15 ferm.
Ennfremur 2 stk. hjólbarðar 2100x24”.
Ofangreint verður til sýnis í porti Vélamiðstöðvar
Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 1, fimmtudaginn 2.
og föstudaginn 3. febrúar nk.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonar-
stræti 8, föstudaginn 3. febrúar nk. kl. 16:00.
t
PÁSKAFERDIR
1967
RHODOS
16 DAGAR . 19. MARZ
NOREGIIR
9 DAGAR . 21. MARZ
LONDON
8 DAGAR . 25. MARZ
FE RDAS KR I FSTOFAN LÖND & LEIDiR HF
ADALSTRÆTI 8 REYKJAVIK SiMAR 243 13 20800
Veiðimenn
Reyðarlækur í Vestur-Húna-
vatnssýslu er til leigu fyrir
atangaveiði sumarið 1967. —
Veiðitími frá 1. júlí til 15.
•eptember miðað við tvær
ítengur á dag. Tilboði sé
skilað til undirritaðs fyrir 1.
apríl nk. sem gefur frekari
upplýsingar.
Ágúst Jóhannesson
Sporði, Víðidal.
Laus staða
Staða lögreglukonu í Reykjavík er laus til umsóknar.
Byrjunarlaun samkvæmt 13. flokki launkerfis opin-
berra starfsmanna.
Upplýsingar um starfið gefur yfirlögregluþjónn al-
mennrar löggæzlu og varðstjóri kvenlögregludeildar.
Umsóknarfrestur er til 21. febrúar.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 1. febrúar 1967.
> Utsalan hefst í dag
Ódýrar blússur og peysur.
Vefnaðarvara — - mikill afsláttur.
Verzlunin Rósa
Aðalstræti 18. - - Sími 19940.
Húsbyggjendur
Kaupið miðstöðvarofnana þar sem úr-
valið er mest og bezt. Hjá okkur getið
þér valið um 4 tegundir.
Helluofninn
30 ára reynsla hérlendis.
Eiralofninn
úr áli og eir sérstaklega
hentugur fyrir hitaveitur.
Panelofninn
Nýjasta gerð, mjög hagstæð
hitagjöf.
JA-ofninn
Norsk framleiðsla — fáanlegur
með fyrirfram innstilltum krana.
Stuttur afgreiðslufrestur — Leitið tilboða.
%OFNASMIÐJAN
EINHOLTI 10 — SlMI 21220
I