Morgunblaðið - 01.02.1967, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.02.1967, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1967. Z7 * Afli línubáta í Faxa- f óa yfirleitt tregur Var þó með bezta móti í gœr og fyrradag AFLI Íínubáta í Faxaflóa hefur verið heldur tregur það sem af er, þó fengu Akranesbátar ágæt- an afla í fyrradag, og afli Kefla- vikurbáta var þá einnig með bezta móti. í Reykjavík hafa tveir bátar gert út á -línu, og hefur gengið fremur treglega hjá þeim. Annar hefur verið með 4 og upp í sjö Bíll veltur við # Mildi að farþegainir sluppu ómeiddir f GÆRMORGUN varð það slvs á veginum til Hnífsdals að Bronco-bifreið úr Bolungavík fór heila veltu, og skemmdist mjög mikið, en svo mildilcga vildi til að fimm menn, sem voru í bílnum, sluppu ómeiddir með öUu. Bifreiðin var á leið til Bolung arvíkur, er annar bíll kom á móti, og mun þá ökumaður á Bronco-bílnum hafa ætlað að hægja ferðina, og hemlað, tn hálka var á veginum. Við það rann bíllinn til og skall yfir, og lenti á þakinu. Lagðist yfirbygg ingin alveg saman að framan, en mennirnir munu hafa kastast aftiur í bílinn, og varð það þeim til happs. — H.T. — Kynnir sér Framhald af bls. 28. í Bandaríkjunum. Hann vissi ekki hvernig þau mál stæðu hér, en hann myndi kynna sér varnir íslenzkra heildbrigðis- yfirvalda í þeim efnum. Hann kvaðst ekki vita um ástæðuna fyrir vaxandi útbreiðslu sára- sóttar, en ýmsir teldu að auk- in ferðalög fólks hefðu áhrif í þá átt. Dr. Sigurður Sigurðsson skaut því hér inn, að hann ráðgerði að fara með þau hjónin í heimsókn í Heilsu- verndarstöðina, svo og að Reykjalundi. Dr. Watt kvað fund fram- kvæmdanefndar Who í Genf hafa verið m. a. haldinn til að undirbúa aðalþing samtak- anna í maímánuði n.k. Hið merkasta sem ákveðið hefði verið væri, að meiri áherzla verði framvegis lögð á skipu- lagningu heilbrigðisáætlana til lengri tíma. Dr. Watt kvað WHO leggja sérstaka áherzlu á baráttu gegn tveim sjúkdómum, malaríu og bólusótt. Hann kvað baráttuna gegn malaríu vera komna vel áleiðis. Um helmingur þeirra landa, sem hefðu átt í stríði við malaríu, hefðu sigrað sjúkdóminn. En ennþá væri mikið ógert, eink- um væru frumskógar Barzilíu og Afríku erfiðir viðfangs. Baráttan gegn malaríu yrði erfiðari en verið hefði. Um baráttuna gegn bólu- sótt sagði dr. Watt, að síðasta aðalþing WHO hefði sam- þykkt að hefja 10 ára áætlun um útrýmingu þess sjúkdóms. Nú þegar hefði verið unnið mikið skipulagningarstarf á því sviði. Þetta kostaði mikið fé, en það kostaði ennþá meira að hafast ekki að. Loks gat dr. Watt þess, að þau hjón hefðu ekki komið áður til íslands, en þó hefði hann eitt sinn haft hálfrar stundar viðdvöl á Keflavíkur- flugvellL >au hjón fara heim á morg un, fimmtudag. tonn í róðri, en hinn með 2—3 tonn. Ekki er talið líklegt að fleiri bátar fari á línu. Netabát- ar eru enn ekki byrjaðir. Afli Hafnarfjarðarbáta hefur einnig verið mjög tregur, en þar gera sex bátar út á línu. Hafa þeir verið með 2—4 tonn að meðallali í róðri, en afli var með bezta móti í fyrradag 4—6 tonn. Afli Keflavíkurbáta var með bezta móti í fyrradag, eða frá fjórum og upp í 7 tonn. Þar .unda 18 bátar linuveiðar, og hefur afli fram að þessu verið tregur. Engir bátar hafa enn byrjað netaveiðar, en gert ráð fyrir að þær byrji um miðjan mánuðinn. Munu sennilega 15— 18 bátar stunda netaveiðar. Akranesbátar fengu í fyrra- dag bezta afla, sem fengizt hefur þar á línu í mörg ár. Von var á 8—10 línubátum inn til hafriar þar í gæzkvöldi, en ekki var vitað um aflann. Tveir bátar stunda línuveiðar frá Hellissandi og afli verið tregur. Þar er einn netabátur byrjaður veiðar, en hefur aflað lítið. -- Vietnam Framhald af bls. 1 um hugsanlegar leiðir til friðar viðræðna. Talsmaður utanrikis- ráðuneytisins, sagði á fundi með fréttamönnum í dag, að Banda- ríkjastjórn hefði álhuga á öllum yfirlýsingum N-Vietnam, sem bentu á leiðir til friðarumleyt- anna. Talsmaðurinn var spurður álits á viðtali ástralsks blaða- manns við utanríkisráðherra N- Vietnam, en í viðtalinu sagði ráð herrann, að er Randaríkjamenn hefðu hætt loftárásum á N-Viet- nam og öðrum hernaðaraðgerð- um, væri hægt að hefja friðar- viðræður. Var á það bent, að ráð herrann hefði ekki sett brott- flutning alls herafla Bandaríkji manna frá Vietnam sem skilyrði eins og venja hefur verið af hálfu stjórnarinnar i Hanoi. Bkki vildi talsmaðurinn svara því til, hvort hann áliti að um stefnubreytingu væri að ræða hjá N-Vietnam. Slæm veðurskilyrði hömluðu að mestu loftárásum Bandaríkia manna á N-Vietnam. Notuðu þær sprengjuflugvélar, sem fóru í árásarferðir, ratsjár, til að finna skotmörkin, en þoka og lágskýjað var um % hluta lands- ins. Bandariski tundurspillirinn Keppler sökkti fimm fluthinga- prömmum og laskaði 17 aðra í 00 mínútna orustu í nágrenni Dong Hoi á Tonkinflóa í dag. Talsverðir bardagar voru á landi í Vietnam í dag. S-kóres'k hersveit skýrði frá því, að hún hefði fellt 71 skæruliða í þrigigja daga átökum án þess að missa sjálf mann. 1 fréttum frá Hanoi, segir að öll dagblöðin þar í borg, birti í dag yfirlýsingu frá Viet Cong, þar sem segir, að þeir styðji stefnu utanríkisráðherra N-Viet nam um friðarumleitanir í Viet nam, en sú stefna kom fram í viðtalinu, sem skýrt er frá fyrr í þessari frétt. Leilcsýning á Hellu LEIKFÉLAG Hveragerðis sýnir hið vinsæla leikriit Deleríum Bú'bónis á Hellu í bvöld. Er þetta þriðja sýningin á Hellu, en upphaflega hafði aðeins ein ver- ið fyrirhuguð. Troðfullt hús var á báðum sýningunum og því áku/eðið að hafa þriðju og sið- ustu sýninguna í kvöld. — Podgorny Framhald af bls. 1. Ítalíu, sem staðið hefur í sex daga. Gefin var út opinber yfir- lýsing að loknuim v'iðræðum Podgornys og Saragats Ítalíu- forseta, þar sem lýst er stuðningi við hugmyndina um fund Evrópu ríkja til lausnar á vandamálum í sambúð þeirra, áhyggjum vegna Vietnam-rcálsins, sem af stafi mikil ófriðarhætta og sagt að al- menn afvopnun sé nauðsyamál og vinda verði að því bráðan bug að haldin verði alþjóðleg afvopn unarráðstefna, en styðja beri jafnframt 18-rikja afvopnunar- ráðstefnuna í Genf til árangurs- ríkara starfs. Þá sagði einnig L yfirlýsingunni að Ítalía og Sovét rikin hefðu gert með sér samn- ing um samvinnu á sviði bifreiða og kvikmyndaiðnaðarins og um smíði mikillar gasleiðslu frá Síberíu til Trieste og kaup ítala á methan-gasi aí Sovétríkjunum. Loks var frá því skýrt er yfir- lýsingin var birt, að Giuseppe Saragat, Italiuforseti og Aldo Moro forsætisráðherra, hefðu þekkzt boð um að koma til Sovét ríkjanna, en ekki hefði verið á- kveðið hvenær af heimsókn þeirra yrði. Góður rómur hefur verið gerð ur að heimsókn Podgornys til Ítalíu og hún þótt vel takast. Þó heyrðust nokkrar óánægjuraddir úr hópi ítalskra kommúnista, sem þótti Podgorny og menn hans bera of mikið lof á einka- framtakið er þeir hældu Fiat- verksmiðjunum ítölsku á hvert reipi og L’Unitá, málgagn ítalska kommúnistaflokksins (sem telur 1,6 millj. félaga og er fjölmenn- astur kommúnistaflokka á Vest- urlöndum), gagnrýndi sovézka stórblaðið Izvestija, málgagn Sovétstjórnarinnar fyrir hlýleg ummæli um stjórn Fiat-verk- smiðjanna, sem eins og kunnugt er af fyrri fréttum eru nú að reisa mikla verksmiðju í Sovét- ríkjunum í samvinnu við sovézk yfirvöld. GULLFOSS mun nú vera staddur í Norður-Afriku, og heilsast öllum um borð mjög vel. Sigurlaugur Þorkelsson, blaðafulltrúi Eimskipafélags- ins átti í gær símtal við Gull- foss, og var skipið þá á leið til Casablanca í bliðskapar- veðri, og var ráðgert að það næði þangað kl. 7 í morgun. Síðasti viðkomustaður Gull foss var í Las Palmas á Kanaríeyjum, en þar var skipið í fimm daga. Hefur þar að undanförnu verið 24 stiga hiti, og var það því vel þegiö af Islendingunum, þegar að- eins og dró fyrir sól í fyrra- dag. Grímuball var um borð í fyrradag, og þóttist það tak- ast vel. Skoðunarferðir í landi hafa verið alls staðar, þar sem skipið hefur komið við, og verið mjög almenn þátttaka í þeim. í Casablanca verður dvalizt i tvo daga, en að því búnu siglt til Lissabon, þar sem fyrri ferðinni lýkur. Þaðan flýgur hópurinn svo á sunnu- dag til London, og dvalizt þar í tvo daga, en síðan flogið áfram heim. Seinni hópurinn flýgur út á sunnudag. Sigur- laugur tjáði blaðinu, að Eim- skip hefði borizt skeyti frá fólki, sem nú væri um borð, þar sem farið væri fram á að taka einnig þátt i síðari ferðinni. — Útflutningsgjald Framh. á bls. 28 kostnaður við akstur frá skips- hlið að verksmiðjuþró, 5 aurar á hvert kg. Afurðaverðmætið þarf því að nema einni- krónu á hvert kg. hráefnis, svo að svari lágmarki kostnaðar við að veiða og vinna loðuna. — Til saman- burðar skal tekið fram, að heild- arkostnaður að meðtöldum öll- um föstum kostnaðarliðum, er ekki breytast með úthaldstíma báta eða vinnslutíma verksmiðja, myndi . samkvæmt framlögðum áætlunum beggja aðila, nema einni krónu 51 eyri á hvert kg. hráefnis, einnig að meðtöldum aksturskostnaði. Afurðaverð- mæti nemur samkvæmt áætlun kaupenda 87 aurum á hvert kg. hráefnis. -Eftirgjöf útflutnings- gjaldsins nemur á sama grund- velli 6 aurum á hvert kg., þannig að eftirgjöf þess myndi hækka áætlun afurðaverðmætisins upp í 93 aura á hver kg. hráefnis. Með tilliti til þeirrar þýðing- ar, sem veiðar og vinnsla loðn- unnar getur haft fyrir þá, er þann atvinnuveg stunda, hefir ríkisstjórnin ákveðið að verða við þeim tilmælum er fram koma í greindu bréfi verðlagsráðs sjávarútvegsins. Mun ríkisstjórn in því leggja fyrir Alþingi frum- varp, að á yfirstandandi ári verði fellt niður útflutningsgjald af loðnumjöli og loðnulýsi, en í nú- galdandi lögum er gjald þetta 6% af fob verðmæti. Vill ráðu- neytið taka fram, að þessi ákvörð un ríkísstjórnarinnar gefur ekk- ert fordæmi að því er varðar út- flutningsgjald af öðrum afurð- um, þar sem ákvörðunin byggist á þeirri algjöru sérstöðu, er rýr- ar afurðir skapa veiðum og vinnslu loðnunnar. Hafa hlutað- eigandi aðilar fallizt á þennan fyrirvara. Hefur ráðuneytið til- kynnt þessa ákvörðun verðlags- ráði sjávarútvegsins í bréfi dag- settu 31. jan.“. — Fræbsla Framhald af bls. 2&. ið að undii'búningi málsins ásamt Ásmundi Matthilassyni, varð- stjóra, en nú he>fur verið s'kipuð framkvæmdanefnd, sem sér um fyrirkiamu'laig hvers klúíbbfund- ar. í nefndinni eiga meðal ann- ars sæti tvær fóstrur og prestuir. Eftir að þessi tilnaun hefur ver- ið framkvæmd er áíormað að taka upp (þetta fræðslufýrir- komulag strax næsta haust, og sagði Guttonmur, að eðlilegt væri að Slysavarnafélag íelands og samtökin Varúð á vegum tækju upp svipað fyrirkamulag úti á landsbyggóin ni. Loks saigði Guttormur, að und anfarin tvö ár hefði umferðar- fræðsla í barnasikólum verið stóriauki'n og tekið hefði verið upp ákveðið fræðsilufyrirkomu- lag, sem nú hefði verið fast mót- að, en markmiðio væri að kerf- isibundin umfer'ðarfr: ðsla næði til allra vegfarendia, jafnt akandi sem gangandi. — Kina Framhald af bls. 1 og linnir hvergi. í dag lásu Rauðu varðliðarnir sem vor-i þar fyrir dyrum úti með bifreiðar búnar hátölurum upp „dauða- dóma“ yfir sendiráðsstarfsmönn um og gerður var aðsúgur að tveimur atarfsmannanna, er þeir voru á ferð í bifreið sinni um borgina ásamt rúmenskum bíaða manni. Þykja „dómarnir“ hinir furðulegustu og ei u sovézk yfir- völd nú að grennslast fyr:r um það, hver alvara liggi að baki þeim. Mótmælaaðgerðir fóru einnig fram úti fyrir júgóslavneska sendiráðinú í Peking í dag og voru meiri en við franska sendi- ráðið en ekki þó eins miklir og við sendiráð Sovétríkjanna. Ekki hefur áður komið til möi-mæla- aðgerða við franska sendiráðið í Peking síðan Frakkland og Kína tóku upp stjórnmálasam- band í ársbyrjun 1964 og eng- ar mótmælaorðsendingar farið í milli rikjanna fyrr en nú. Mótmælaaðgerðir í Hanoi Málgagn Sovétstjórnarinnar, Izvestija, ihermir í dag að kín- verskir stúdentar og send'ráðs- starfsmenn í Hanoi hafi einr.ig haft þar uppi mótmælaaðgerðir úti fyrir dyrum sovézka send - ráðsins þar í borg. Þetta er í fyrsta skipti sem fréttir berast um slíkar mótmælaaðgerðir í Hanoi og er talið að með þelm sé N-Vietnamstjórn gert mjög erfitt fyrir um að halda hlutleysi sinu gagnvart leiðtogum hinna tveggja stórvelda heimskommún ismans. Nýtt valdakerfi Rauði fáninn, málgagn komm- únistaflokksins kínverska, heit- ir á alla stuðningsmenn Maos að taka saman höndum um að upp- ræta alla andspyrnu gegn menn- ingarbyltingunni og segir að ekki sé nóg að skipta um menn í stjórnarkerfinu, heldur verði að rífa niður allt það sem þar beri borgaralegan keim og koma á nýju kerfi, sem sé í betra sam- ræmi við sósíaliskt efnahags- skipulag. Vitnar blaðið í Marx og skrif hans um Parísar-komm únuna þessu til staðfestingar, og segir að Mao hafi skapað hið nýja Kína, en rotnun hafi grafið um sig innan ýmissa deilda stjórnarinnar og verði að kom- ast fyrir hana og berja niður alla andstöðu gegn byltingunni. Grafhýsi Lenins afgirt í nótt er leið unnu verka- menn að því í Moskvu í 30 gráðu gaddi og næðing austan úr Sí- beríu að setja upp girðingu um- hverfis grafhýsi Lenins við Rauða torgið. Opinberar fregnir herma að grafhýsinu Hafi verið lokað til bráðabirgða eða til 3. apríl n.k. vegna viðgerða, en það orð leikur á að hin raunverulega orsök þessa séu óeirðir þær sem urðu við grafhýsið í fyrri viku er til átaka kom með kínversk- um stúdentum og sovézkum lög- reglumönnum og óbrettum borg- urum. Enn eru í Moskvu um eitt hundrað kínverska stúdenta og búizt við því að fleiri muni leggja þangað leið sína frá Vest- urlöndum er þeir halda heim til Kina og talið að sovézk yfirvöld vilji koma í veg fyrir frekari óeirðir. Kínverskir kvikmyndatöku- menn og fréttamenn komu þegar á vettvang er þeir fréttu af við- búnaði þessuim við graShýsi Lenins og mynduðu í bak og fyrir. Sovézkir lögreglumenn komu þá á staðinn og héldu Kín- verjarnir þá þegar brott. Tass-fréttastofan sovézka sagði í dag frá heimferð kínversku stúdentanna, sem þátt tóku í óeirðunum á Rauða torginu í fyrri viku og kínversk yfirvöld sögðu hafa verið illa leikna af sovézkum lögreglumönnum. — Hafði Tass-fréttastofan það eftir lestarstjóranum sem fór með hóp inn að landamærunum sem skilja Sovétríkin og Kína, að þegar daginn eftir að lestin fór frá Moskvu hafi stúdentarnir tekið ofan allar sáraumbúðir, fatla og annað slíkt, sem þeir hafa haft við brottförina og hafi þá ekki verið sjáanleg nein meiðsl eða á- verkar á nokkrum manni. Ekki bar lestarstjórinn hópnum vel söguna að öðru leyti heldur kvað, þau hafa komið fram af stakri ókurteisi og heimtufrekju. Rauffir varffliffar til Tíbet. Tass hermir einnig að austan, að bardagar hafi átt sér stað víða í Kína og segir að Rauðir varðliðar hafi verið sendir til Tíbet að framfylgja menningar- byltingunni þar. Einnig segir Tass að Kínaher haifi fengið sér- staka heimild til þess að hand- taka og hegna án dóms og laga öllum þeim sem sýni einhverja andúð á eða mótspyrnu gegu menningarbyltingunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.