Morgunblaðið - 09.03.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.03.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 54. árg. — 56. tbl. FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Andstaða magnast gegn Mao i SA-Kína Pekimg, Tókíó og Moskvu, 8. marz, NTB og AP. í FRÉTT Moskv'U-útvarpsins d gærkvöldi saigði að andstaðan gegn Mao Tse Tung hefði nú magnazt svo í suð-austurh luta Kína að jafna mætti til uppreisnar landshlutans gegn leið- togunum í Peking. Sagði útvarpið að stuðningsmenn Maos, sem nýverið hefðu komizt til valda í Kiangsi-fylki, hefðu nú snúizt gegn Pekingstjórninni. Charle6 de Gaulle Frakklandsíor seti greiðir atkvseði sitt í kosn- inpnum sl. sunnudag. tJtvarpsstöð í Kiangsi sagði frá uppreisninni á mánudag og fylgdi það sögu þá að skömmu áður hefðu einnig verið gerðar uppreisnir gegn Mao í fyikjun- um Kwantung og Tsínghai og í borginni Wuhan í Hupei-fylki. Fregnir frá Tíbet hafðar eftir Moskvu-útvarpinu iherma að þar riki enn ólga og andstæðingar Maos hafi engan veginn verið brotnir á bak aftur, en frá Darjeeiing í Indiandi berast þær fregnir að útvarpið i Dhasa, höfuðborg Tíbets, hafi 1 dag til- kynnt miklar breytingar á skipu- lagi kommúnistafiokksins þar og miði breytingarnar að því að efla völd stuðningsmanna Maos. >á hermir Moskvu-útvarpið einnig að Kínaher setji nú niður af mikilii hörku og grimmd and- spyrnu gegu Mao í mörgum hér- uðum og nefnir m. a. borgina Wuhan á bökkum Yangtse-ár, Szechuan-íylki og fleiri staðL Ónáð aflétt I Peking hafa nú margir opin- berir embættismenn, sem féllu í ónáð þegar menningarbyltingin stóð sem hæst, aftur horfið til starfa sinna í kyrrþey og aiit virðist nú ganga þar ólíkt skap- legar til en áður og er einkum þakkað Chou En-iai forsætisráð- herra. Á fréttaspjöldum á götum úti má nú aftur sjá nöfn ýmissa framámanna sem áður vom dregnir um götur höfuðborgar- innar og hæddir á alla lund, lög- reglumenn og öryggisverðir sem sviptir voru embættum sínum hafa heimt þau aftur og gagnrýni liggur nú að mestu niðri á mörgu því er áður var haft á oddL Betra seint en aldrei Eins og áður hefur verið skýrt frá, hafa sveitir þjóðvarðliðs Kína sem eru vopnaðar sveitir borgara í hinum ýmsu héruðumo landsins, er hafa eiga það hlut- verk að vera Kínaiher sjáifum til trausts og halds ef á reyni, nú verið hvattar dyggilega til starfa bæði við landvarnir og vorverk á ökrum. Þjóðvarðliðinu hefur Jítt verið hampað til þessa og fáum sögum fer af hlutdeiid þess í menningarbyltingunni og telja sumir að margir þjóðvarðliðar hafi verið orðnir þreyttir á sinnu leysi yfirvaldanna um þá og því sé þessi alda tilmæla til þjóð- varðliða um allt Kínaveldi runn- in að Pekingstjórnin viiji tryggja sér stuðning þeirra áður en o«f seint reynist. De Gaulle varar landa sína við kommúnistum Paris, 8. marz — NTB — I»E OAllLLE Frakklandsforseti lagði í dag óvænt orð í belg varðandi kosningarnar á sunnu- •ðag n.k. og lét í það skína aS lýðræðinu væri hætta búin. ef kommúnistum vegnaði vel í kos- ingunum. 1 tilkynningu, sem gefin var út að Joknum stjórnarfundi i Frakklandi í dag, sagði De Gaulle, að á sunnudag, er Frakk ar gengju til kosninga öðru sinni, væri í veði stjórnskipu- Jag Frakklands og stofnanir all »r. Ekki nefndi forsetinn komra únista á nafn en kallaði „áhrjfa mestu aðila í hópi stjórnarand- stæðinga" og sagði þá ekki draga dul á fyrirætlanir sínar. Sautján ráðherrar De Gaulie taka þátt í annarri umferð kosn inganna á sunnudag n.k. og eiga allir við að etja andstæðinga úr vinstri fiokkunum utan Maurice Couve de Murville, utanrikisiáð herra, sem fékk aðeins tæp tvö þúsund atkvæða fram yfir and- 0 Inrast í flng- slysi í Pnkistnn Karachi, 8. marz, NTB — AP —. 1 DAG varð það slys við brú eina skammt utan við Karachi að flutningavél af gerðinm Cor- vair, í eigu fransks flugfélags.. hrapaði þar niður og varð ellefu manns að bana. Slysið var fáeinum sekúndum eftir að vélin hóf sig á loft af flugvellimum. Var ferð hennar Framfhald á blaðsíðu 31. stæðing sinn, Dupont, sem nýt- ur stuðnings Mi&flokksins, flokks Lecanuets. >rír ráðiherrar aðrir en de Murville eru sagðir ugg- andi nokkuð um sæti sín. Leiðtogar vinstri manna láta vel aí kosningunum það sem af er og sagði Mitterand í sjón- varpsræðu í gær að vinstri flokk arnir hefðu samanlagt fengið 1.3 miJljón fieiri atkvæði en gaullistar si. sunnudag. Mendes- France lét líka til sin heyra og hvatti kjósendur til að styðja vinstri flokkana, þeir einir ættu nokkra framtið fyrir sér. >að er þó almennt hald manna að gaullistar muni fá meirihluta á þingi eftir sem áður, þótt sum ir spái þvi að hann verði ekki eins mikill og fyrr. Sl. sunnu- dag tryggðu gaullistar sér 68 þingsæti, eins og áður hefur ver ið frá skýrt í fréttum og at- kvæðamagn er þeim í hag í 210 kjördæmum öðrum. Warren-skýrslan ekki sannfærandi — segir málgagn Páfastóls Pofagarði, 8. marz, AP. MÁLGAGN Páfastóls, „L’Osser- vatore della Domenica” sem kemur út vikulega, sagði í dag aS Warren-skýrslan um morð Kennedys forseta væri ekki sannfærandi. >að var sérfræðingur Páfa- sitóls í utanríkismálum og erlend um fréttum, Federico Alessandr- ini, sem svo komst að orði í grein eir hann reit um rannsókn Garrisons saksóknar í New Or- leans í málinu. Sagði Alessandrini, að enginn gæti talið sig vita hvernig í þessu máli lægi, svo flókið væri það orðið. Alesandrini kvað morð Kennedys forseta og allt því tengt ekki snerta Bandarikja menn eirwa, heidur menn um all- an heim og sagði að ekki faeri hjá því að venjulegu fólki þætti sem þar hlyti eitthvað að búa undir sem svo miklu moldvirðí væri þyrlað upp. Alessandrini minnti á að atis hefðu 1S þeirra er á einn eðe annan hátt hefði mátt bendla við morðið, horfið á dularfull- an hátt og taldi ekki óliklegt að eitthvað nýtt kynni að koma fram í málinu fyrir tilstilli Garr- isons saksóknara og rannsóknar hans og jafnvel að hugsanleg sönnunargögn kynnu að benda til samsæris utan Bandaríkj- anna. „Warren-skýrslan og niður- stöður hennar“ sagði Alessandr- ini, hafa ekki reynzt sanniær- andi“. Yfiigripsmikil ræða Jóhanns Hafsteins um heilbrigðismál á Alþingi í gæn Fjárveitingar til heilbrigiismála hafa aukizt um allt að 140% f rá '58 — Víðtæk umbótalöggjóf á síðustu árum — IHargvíslegar nýjungar í stjórnsýslu í YFIRGRIPSMIKILLI ræðu í Sameinuðu Alþingi í gær, gerði Jóhann Hafstein, heil- brigðismálaráðherra ítarlega grein fyrir viðhorfum í heil- brigðismálum og upplýsti m.a. að fjárveitingar til heil- brigðismála hafa aukizt um 100—140% frá 1958 til 1967 miðað við verðlag I96ö en á sama tíma heíur íjölgun þjóð arinnar verið um 15—20%. Á þesisiu tímabili hafa fjár- veitingar til rikisspítala auk- izt um 139,8%, rekstrarkostn- aður ríkis&pítala hefur aukizt um 133,9%, byggingastyrkir til sjúkrahúsa o>g læknisbú- staða haía aukizt um 119,4%, reks.trarstyrkir ti'l einka- sjúkrahúsa hafa aukizt um 111,9% og re'kstrarstyrkix til um heilsuverndarstöðva 109,3%. Jóhanm Hafstein, ræddi yfirstjóm heilbrigðismála og nefndi þrjár leiðir til breyt- inga á stkipulagi hennar. í fyrsta lagi stofnun sérstaks heilhrigðismálaráðuneytis, sem hanm hefur sjálíur sett fram hugmynd um, í öðru Framkald á blaðsíðu 31. Jóhsuin Bafstein.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.