Morgunblaðið - 16.04.1967, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1967.
SejgfæðtBr tónlásfarvíðburfar;
Eyvindur Brems íslandi
kemur hingað 30. apríl
EFTIR riokkra daga er vænt-
anlegur hingað til lands, í
fyrsta sinn, ungur íslendingur
og ísler.zkur ríkisborgari, Ey-
vindur Brems íslandi, sonur
Elsu Brems, hinnar víðfrægu
dönsku sörigkonu og Stefáns
íslandi Hann er þessa dag-
ana að ljúka burtfararpróli í
Danmörku, við tónlistarsjtól-
ann í Aarhus, og kemur beint
frá prófborði að „deputera“,
halda sína fyrstu opinberu
hljómleika í föðurlandi sínu.
Eyvindur kemur hingað á veg
um Tónlistarfélagsins, og
syngur tvisvar í Austurbæjar-
bæjarbíói fyrir styrktarfélaga
þess, en ekki voru ráðgerðir
neinir opinberir tónleikar hér
að þessu sinni.
En nú hefur hann fallizt á
að halda eina opinbera hljóm-
leika á vegum hinnar nýstofn-
uðu kvennadeildar Rauða
kross Islands, og rennur ágóð-
inn til mannúðar- og líknar-
starfs télagsins.
Eyvind Brems íslandi er 26
ára gamall og hefur undan-
farið sambliða tónlistarnámi
starfað sem teiknari. Hinn
ungi söngvari hefur himin-
fagra rödd, eins og faðir hans,
og um margt ekki ólíka. Hann
hefur að sjálfsögðu fengið
ákaflega víðtækt tónlistar-
uppeldi, fer fallega með texta,
meðal annars íslenzkuna.
Ragnar Jónsson í Smára, sem
heyrt hefur hinn unga lista-
mann syngja, lét svo um
mælt við blaðið: „Reykvík-
ingar eiga eftir að standa á
öndinni af hrifningu. Hjá
þessum landa okkar fer rllt
saman, raddfegurð, framúr-
skarandi túlkun, falleg ís-
lenzka og fallegur maður og
glæsilegur.“ Má eflaust full-
yrða, að hinn ungi söngvari
eigi eftir að bera hróður ís-
lands vítt um heim eins og
faðir hans.
Eyvindur mun syngja hér
óperuaríur og sönglög, einnig
íslenzk sönglög, sem hann að
sjálfsögðu syngur á íslenzku,
eins og það væri hans móður-
mál.
Rauðakrosskonur munu
sjálfar selja aðgöngumiða á
fjórum stöðum í bæni'.m. í
Bókaverzlun ísafoldar, Aust-
urstræti, Helgafelli, Lauga-
vegi 100, hjá Lárusi Blöndal,
Skólavörðustíg og í Háskóls-
bíói, og treysta þær því að
selja alla miðana á einum
degi. Miðasalan fer fra.m á
morgun og er verð miða 150-
200 krónur.
íslandsvinur hsiðr-
aður / Noregi
Norski íslandsvinurinn Harald byrjaði því að safna fé um 1950
Hoþe hlaut 1500 norskar krónur og þrjátíu þúsund girðingar-
í heiðurslaun úr Andersson Rysst staurar voru sendir hingað sem
sjóðnum hinn þrettánda þessa gjöf.
mánaðar fyrir þátt sinn í að j Hann hefur einnig gengizt fyrir
styrkja vináttusambandið milli; söfnun á munum til Skálholts-
íslands og Noregs. Harald Hope, j kirkju og safnað 200.000 norskum
sem er aðstoðarprestur í Bergen, I krónum til styrktar lýðháskóla
kom til íslands fyrir mörgum ár- ! sem þar á að reisa. Morgunblaðið
um og sá þá nauðsyn þess að hafði samband við herra Sigur
girða okkar fátæklega sk 'glendi björn Einarsson, biskup, sem
til varnar g“gn bnpeningi. Hann 1 sagði að Hope hefði komið hing-
Holla Haraldsdóttlr
sýnír í Skíðahötelinu
Siglufirði 12. apríl: — Ég
frétti það í gær að listakonunni
<rú Höllu Haraldsdóttur hefði
verið boðið norður á Akureyri
til að sýna þar listaverk sín á
Skíðahótelinu. Ég brá mér heim
til listakonunnar til að fá nán-
ari fréttir. Jú, það stóð heima,
Höllu haSði verið boðið að sýna
verk sín um næstu helgi 14. til
16. apríl í Skíðahótelinu.
Halla hefur áður haldið sýn-
Ingar, bæði á Siglufirði og Akur-
eyri við mikla hrifningu, enda
prýða listaverk hennar nú mörg
heimili víða um land. Aðspurð
sagði Halla, að fólk gerði mikitð
að því að skrifa sér eða tala við
sig til að biðja um listaverk til
kaups, en Halla á erfitt með að
fullnægja eftirspurninni og staf-
ar það af því, að hún er þriggja
barna mJJir og sinnir fyrst heim
ilinu, síðan listaverkunum. Ann-
ars er vinnuaðstaða Höllu slæm
því að vinnuherbergi hennar er
eldhúsið bæði til heimilisstarfa
og lista, þótt handverk hennar
■beri þess ekki vott, því að verk
hennar eru undursamleg.
Mestum vinsældum hafa náð
hin svokölluðu mósaikmyndir
hennar, en þær eru þannig gerð-
ar, að brúnn límpappír er mál-
aður ýmsum litum, síðan rifinn
í smáagnir þar næst límt á fleti
eftir ákvdðnu munstri, sem lista
konan rissar upp. Eru myndirn-
ar bæði abstrakt og normalar,
allt eftir þvi hvað fólk vill.
Að þessu sinni sýnir Halla fjór
ar vatnslitamyndir og tíu til
tólf mósaikmyndir. Annars hef-
ur hún líka fengizt við olíumál-
verk o.fl. — Fréttaritari
að til lands þegar Skálholtskirkja
var vígð 21 júlí 1963. Hefði þá
verið tekin skóflustunga fyrir
lýðháskólanum. Herra Sigurbjörn
sagði Harald Hope vera einstak-
an mann. Hann léti sér mjög
annt um náttúruvernd og forn-
minjavernd og hefði m. a. gefið
út bækling í tilefni 900 ára af-
mæli Bergen, þar sem hann
benti á fornminjar sem þegar
hefðu verið eyðilagðar, og aðrar
sem enn mætti bjarga. ísland
væri ekki eina landið sem Hope
hefði sýnt velvild, fyrir nokkrum
árum hefði hann farið með pen-
ingagjöf til Færeyja til að hjálpa
við endurbyggingu Kirkjubæjar-
dómkirkjunnar gömlu.
— R K. í.
Framihald af bls. 32
verið mjög mikil og stóraukizt,
þannig að nú er nauðsynlegt að
bæta við þessi rúm, og ekki sízt
barnarúmum. Verður það eitt
fyrsta vérkefni hinnar nsýtofn-
uðu kvennadeildar.
Þá skýrðu konurnar ennfrem-
ur frá því, að þær hafi í hyggju
að koma á fót sölubúðum í
andyrum sjúkrahúsa, þar sem
þær mundu afgreiða sjálfar og
selja blóm, ávexti snyrtivörur
o.fl. Hafa konurnar fengið vil-
yrði fyrir að koma upp slíkri
starfsemi í Landspítalanum nýja
og er þaið von þeirra, að þetta
muni auka drjúgum fjáröflunar-
möguleika þeirra.
í stjórn hinnar nýstofnuðu
kvennadeildar íslands eru auk
Sigríðar Thoroddsen sem fyrr
getur, Geirþrúður Bernhöft, vara
formaður, Katrín Hjaltested, rit
ari, Halla Bergs gjaldkeri, Björg
Ellingsen, formaður fjáröflunar-
nefndar, og meðstjómendur þær
Guðrún Marteins og Sigríður
Helgadóttir. Stofnfélagar kvenna
deildarinnar voru 120.
Hjálpaibeiðni
NÝLEGA varð stórbruni á
bænum Krossi á Skarðsströnd í
IDalasýslu. Brann íbúðarhúsið til
kaldra kola á skammri stundu
'og missti bóndinn, Ágúst Breið-
dal, og fólk hans að mestu allar
.eigur sínar, því sáralitlu var
unnt að bjarga. Var hyort
tveggja hús og innbú lágt vá-
tryggt, og hefur því fjölskyldan
'OrðÍ5 fyrir mjög tilfinnanlegu
tjóni og er hjálpar þurfi. Því
hefur verið ákveðið að hefja
fjársöfnun henni til handa til
að létta undir í mestu erfiðleik-
unum. Mun undirritaður veita
framlögum viðtöku, einnig kaup-
Finnbogason, ráðunautur í Búð-
ardal. Þá hafa daglblöðin góð-
fúslega lofaið að taka við fram-
lögum.
Ingiberg J. Hannesson,
sóknarprestur Hvoli
Hvað geiizt
í kvöld?
í KVÖLD verður í Lindarbæ
fundur sá, sem nokkrir
óánægðir Alþýðubandalags-
menn hafa boðað, til þess að
ræða sameiginleg viðbrögð
vegna aðgerða kommúnista
gegn þeim á hinum fræga
fundi Alþýðubandalagsins sl.
mánudag.
Á fundi þessum er stefnt að
því að stofna nýtt stjórn-
málafélag vinstri manna, sem
síðan bjóði fram í Reykjavík
í vor. Kommúnistar munu
hafa uppi einhvem viðbúnað
til þess að koma í veg fyrir
að slíkt gerizt og má þvi bú-
ast við nokkrum tíðindum í
Lindarbæ í kvöld.
Fiambjóðendafundii HeimdaUai
N.K. mánudagskvöld efnir Heim
dallur til frambjóðendafundar í
Valhöll við Suðurgötu og hefst
hann kl. 20.30.
Gestur fundarins verður Ólaf-
ur Bjömsson, prófessor, 6. maður
á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, við Alþingiskosning-
arnar í vor.
— Saigon
Framhald af bls. 1
flóttamanna frá Norður-Víet-
nam var saman kominn. Fórust
83 borgarar í þeirri árás, 10
týndust og 176 særðust.
Loftárásir voru í dag gerðar
á stöðvar í Norður-Víetnam, og
segjast Bandaríkjamenn hafa
misst eina flugvél í árásunum.
Hafa þeir þá frá upphafi styrj-
aldarinnar misst alls 505 flug-
vélar yfir Norður-Víetnam að
eigin sögn. Auk þess hafa þeir
misst 168 flugvélar yfir Suður-
Víetnam, og 325 þyrlur hafa
verið eyðilagðar í átökunum í
Suður-Víetnam, en fimm skotn-
ar niður yfir Norður-Víetnam.
Ekki er þetta allt flugvélatjón
Bandaríkjamanna á þessum slóð
um, því þeir segja að 618 flug-
vélar til viðbótar hafi eyðilagzt
af öðrum sökum en hernaðar-
legum, eins og í slysum eða
vegna bilana, og auk þess 468
þyrlur.
Ky forsætisráðherra skýrði
fréttamönnum í dag frá víggirð-
ingunni nýju, sem er rétt sunn-
an við landamæri Norður-Víet-
nam. Vinnur sveit úr verkfræð-
ingadeild hers Suður-Vietnam
að girðingunni, sem verður um
30 kílómetra löng. í víggirðing-
unni eru jarðsprengjubelti,
gaddavírsflækjur og skotbyrgi.
Talsmenn Bandaríkjahers gátu
engar upplýsingar gefið um vig-
girðingu þessa, og segja frétta-
menn að sumir þeirra hafi ekk-
ert verið hrifnir af þessum fram
kvæmdum stjórnarinnar.
HEILDARAFLINN í janúarmán
uði síðastliðnum varð 50.155
tonn, þar af síld 36.687 tonn og
rækja 204 tonn. Hlutur bátanna
í aflanum var 45.929 tonn og
togaranna 4.226 tonn.
SpiEakvöld
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Garða-
og Bessastaðahrepps heldur spila
kvöld næstkomandi mánudag 17.
apríl kl. 20:30. — Þá hefst ný
þriggja kvölda spilakeppni. —-
Spilað verður í samkomuhúsinn
að Garðaholti eins og venjulega.
Sjálfstæðisfólk, mætið stundvís-
lega og takið með ykkur gesti.
í janúarmánuði 1966 var heild
araflinn 28.842 tonn, þar af síld
17.448 tonn og rækja 101 tonn.
Bátarnir öfluðu 25.452 tonn, en
togararnir 3.390 tonn.
Janúaraflinn nú
mun meiri en 1966