Morgunblaðið - 13.06.1967, Side 27

Morgunblaðið - 13.06.1967, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1987. 27 -gia.. TIL HÆGRISNÖ! Þessi mynd er söguleg að því leyti, að á henni sjást her- toginn og hertogaynjan af Windsor í fyrsta sinn í fylgd með Elizabeth Englands- drottningu, sem er þriðja frá vinstri. Við hlið hennar er maður hennar, Filippus prins. Windsorhjónin eru lengst til hægri. Myndin er tekin, þeg- ar Englandsdrottning afhjúp- aði minnismerki um Maríu drottningu við Marlborough- höllina í London. Fjölmenn bændaför til Noröurtanfl: f eftir Edwin Shanke Stokkhólmi AP. BRÁTT roun umferðinni í Svíþjóð á einni nóttu verða snú- ið yfir á hægri hönd og þannig breytt þeim venjum akandi og gangandi fólks, sem ríkt hafa síðan á 18. öld. H-dagurinn (H stendur fyrir „höger“ eða hægri) er sunnudag inn 3. september n.k. Það mun þó hafa kostað fjögurra ára skipu lagningu og undirbúning sérstakr ar stjórnarnefndar og 600 mill- jónir sænskra króna (5 milljarða isl. króna) að koma breytingunni á. Svíar eru síðastir allra þjóða á meginlandi Evrópu að taka upp haegri handar akstur. Aðeins evrópsku eylöndin Stóra Bret- land, írland og ísland halda á- fram að aka á vinstri vegarbrún, og íslendingar hyggjast breyta til innan skamms. Annars staðar í heiminum halda þó nokkur lönd enn fast við vinstri handa akstur, svo sem Japan, Indland, Ceylon, Australía og hluti af Afríkulöndunum. Það var kappinn Karl tólfti, sem lögfesti vinstri handar um- ferð með konunglegri tilskipun árið 1734, en hann lét þó stríðs- menn sína halda sig hægra meg in á herferðinni um meginland Evrópu. Hvers vegna ákvað sænska ríkisstjórnin þá að gera þessar kiostnaðarsömu og erfiðu breytingu, eftir svo langan tíma og í trássi við vilja almennings? Allar grannþjóðir Svía aka hægra megin á götunni, og um- ferð yfir landamæri Svíþjóðar eykst stöðugt. Embættismenn umferðarmála spá því, að 15 til 20 milljónir bifreiða muni ár- lega aka yfir landamæri Svíþjóð ar upp úr 1970. Tala umferðar- slysa, sem erlendir ökumenn, ó vanir vinstri handar akstri, eiga þátt í, er þegar orðin há og mun án efa halda áfram að stíga, ef Svíar halda við ósamræminu. Umskiptin kunna því að draga úr þessum slysum. Önnur ástæða er sú, að stýri flestra sænskra bifreiða er vinstra megin. Þetta leiði það af sér, að sænskir ökumenn þurfa að sveigja langt yfir á öfuga (hægri) vegarbrún, áður en þeir sjá, hvort nokkur kemur á móti eða þeim er óhætt að aka fram úr bílnum á undan. Þetta er orsök maTgra slysa. H-dagurinn er undirbúinn með sömu gætni og nákvæmni og her foringjaráð skipuleggur innrás. Dagskrá umskiptanna er sem hér segir: 1. KL. 10 f.h. laugardaginn 2. september hefst 29 klukkustunda almennt ökubann í Stokkhólmi, þ.e. til kl. 3 e.h. á sunnudag. 2. Kl. 1 eftir miðnætti aðfara- nótt sunnudagsins 3. september hefst 5 klukkustunda umferðar- bann í allri Svíþjóð. Einu undan tekningarnar verða leigufoifreið- ar, strætisvagnar, bifreiðar á leið út úr landinu, vegavinnufoílar og bifreiðar með sérstakar undan- þágur. En þær verða einnig að nema staðar kl. 4:50 í 10 miínútur og taka síðan að aka á hægri vegarbrún kl. 5. 3. Kl. 6 f.h. hefst hægri handar umiferð utan Stokkhólms. 4. Eftir breytinguna hefur há- markshraði verið ákveðinn 40 kílómetrar á klukkustund í bæj- um, en 60 km á klst. úti á landi fyrstu 3 dagana. 5. A.m.k. í 4 vikur eftir 6. sept- emfoer verður hámarksihraði í bæjum 40 km á kist, en hækkar í 70 km í sveitum. Á hraðbraut- um má aka 90 km á klst. Enginn hámarkshraði er nú lögfooðinn í Svíþjóð, nema í þéttbýli, 50 km. Það eru ekki aðeins 1,800,000 ökumenn í Svíþjóð, sem munu sjá nýja hlíð á umferðinni og eiga nokkra áhyggjufulla daga í byrjun septemfoer. Yfirvöldin eru alveg eins kvíðandi um hina fótgangandi. „Fótgangandi fólk er i mestri hættu, sérstaklega gamalt fólk, sem orðið er vant því að líta fyrst til hægri, áður en það gengur út á götuna, „sagði Olov Nellborn, vegamálastjóri Svíþjóðar. „Það mun taka langan tima að breyta venjunum, og það verður erfitt að ná til alls gamla fólksins, jafnvel með fjölmiðlun- artækjum nútímans". H-dagurinn verður íþróttaunn endum þungur í skauti. Sunnu- dagur er venjulega bezti dagur vikunnar til iðkunnar utanhúss- iþrótta og til að halda mót, en allt slíkt hefur verið bainnað. Þess í stað hefur Svíum verið ráðlagt að halda sig heima og horfa á sjónvarpið, þar sem út- varpað verður frá Oslo landsleik milli Svia og Norðmanna. 50 milljóna sænskra króna aug lýsingaherferð, til að fræða öku- menn og almenning yfirleitt um breytinguna, er nú að fara af stað. En aðalátakið hefst þó ekki fyrr en í ágúst. Þá verða allar sjónvarps- og útvarpssendingar undirlagðar. Jafnvel teiknimynda þátturinn „Andrés önd“ mun að einhverju leyti fjalla um umferð armál. Hálfri milljón litprentaðra korta verður dreift á heimili í Stokklhólmi, svo að í-búar borgar- innar rati um hana eftir breyt inguna. Barnaskólarnir munu hefjast 24. ágúst, viku fyrr en venja er til, svo að hægt verði að kenna börnunum nýju um- ferðarreglurna og þjálfa þau í því að ganga yfir götur með hægri handai umferð. Mánuðum saman hafa verka- menn unnið að því að grafa upp götur til að leggja leiðslur fyrir nýja umferðarvita, skipta um umferðarmerki og breyta gatna mótum. í Stokkhólmi einum er verið að hreyta 30 þúsund um- ferðarskiltum, 180 umferðarvit- um 2 þúsund viðkomustöðum langferða- og sporvagna 200 bið stöðum leigubifreiða og 20 stór- um gatnamótum. Þá er' verið að koma upp tugum þúsunda „H“ skilta (stafurinn H með gulri endurskinsmálningu á bláum fleti) meðfram öllum þjóðvegum til að minna ökumenn á breyt- inguna. Þau munu verða látin standa a.m.k. eitt ár. Strætisvagnarnir í Stokklhólmi verða lagðir niður á H-daginn. En í Gautaborg, sem gengur höf- uðborginni næst að stærð, er þeg ar farið að nota strætisvagna, sem eru fyrir hægri handar um- ferð. Þeim er nú ekið aftur á bak, en á H-daginn verður þeim snúið við. Á H-daginn og næstu daga þar á eftir munu um 7 þúsund lög- regluþjónar og 3 þúsund her- menn líta eftir og stjórna um- ferðinni. Umferðareftirlitsmið- stöð verður sett á stofn og hefur samband við alla landshluta. Þyrl ur frá sænska hernum verða á sveimi yfir hættulegustu umferð arsvæðunum, viðbúnar að koma strax á slysstað. Herferð er hafin til að safna saman 50 þúsund sjálfboðaliðum til að standa vörð á um 18 þúsund stöðum, þar sem gangforautir liggja yfir fjölfarna vegi. Lars Skioeld, yfirmaður skipu lagsnefndar hægri handar akst- ursins, segir, að allur undirfoún- ingur sé á undan áætlun. Til að gefa frekari hugmynd um geysi- legt umfang breytinganna, má geta þess að búið er nú þegar að endursrmða 3 þúsund lang- ferðabifreiðar fyrir hægri hand ar akstur, kaupa 2,300 nýjar slikar bifreiðar og 1600 í viðtoót eru í smíðum. Það hefði verið auðveldara og ódýrara að framkvæma umskipt in árið 1943, þegar fyrst var stung ið upp á þeim í þinginu, því að þá voru aðeins um 100 þúsund farartæki á vegunum. Nú er á- ætlað, að um 1,800,000 einkabif- reiðar og 150 þúsund atvinnubif reiðar séu í Svíþjóð. Sænska þingið hafði sex sinn- um fellt tillögur um hægri hand ar akstur, áður en frumvarp þess efnis náði fram að ganga 10. maí, 1963, með 294 atkvæðum gegn 50. Þingið ákvað að kioma þessari breytingu á þrátt fyrir þá and- úð meirihluta Svía á henni, sem kom fram við þjóðaratkvæða- greiðslu um málið árið 1955, þeg- ar 82,9% kjósenda lýstu sig and víga umskiptunum. Skoðanakann anir, sem gerðar hafa verið í seinni tíð, benda þó til þess að menn séu almennt að verða hlynntari breytingunni. í maí virtust um 45% vera með breyt ingunni, en aðeins 34% haustið éður. STÓR hópur íslenzkra bænda og eiginkvenna þeirra, alls 82, fór í kynnisför til Norðurlanda í dag, með leiguflugvél frá Loft- leiðum. Þetta fólk, sem er víðs- vegar að af landinu verður er- lendis til 25. júní. Agnar Guðna- son, ráðunautur, sem er annar fararstjóra, sagði Morgunblað- inu að fyrst yrði farið til Staf- angurs, siðan verður farið um Rogaland og vestur Agðir, m.a. biedmsótt verksmiðja, sem fram- leiðir verkfæri til heyvinnslu. Hópurinn situr boð bænda- samtakanna í Rogalandi og æskulýðssamtök þar sjá um skemmtun eitt kvöldið. Til Kristiansand verður farið þann 16. og verið þar 17. júní. Þar verður heimsótt íslenzk bona, Soffía Lundfoerg, sem heldur upp á þjóðlhátíðardaginn með þeirn. Að morgni þess 18. verður farið til Hirtshals á Jótlandi, ekið um VendsysseQ og skoðað- ur búgarður í Store Vildimose. Þá um nóttina verður gist í Álafoorg og síðan farið í heim- 9Ókn til norður-józika bænda- skólans í Nibe, og einnig til bónda skammt frá Vifborg, sem sýnir nýjustu tækni við hirð- ingu og nýtingu búfjáráfourðar. Heiðafélagið danska hefur svo skipulagt kynnisferð eftir há- degið. Gist verður í Árósum en daginn eftir farið til Vejlfoy í Risskov og þar skoðuð ný józk stöð í Kolding, sem þurrkar og (kögglar gras. Óðinsvé verða tnæsti gististaður og daginn eftir Iverða skoðaðir þrir stórir bú- garðar á Fjóni og blóma- og) grænmetisræktarstöð. Um kvöld' ið verður komið til Kaupmanna- haifnar og næstu fjórum dögum DALSÁ og Héraðsvötn flæddu yfir bakka sína á sunnudaginn og ollu töluverðum vega- skemmdum. Flóðið hófst með þvi, að svo mikill vöxtur bljóp í Dalsá i Blönduhlíð að hún fór yfir veginn og gerði hann ófæran um tíma. Vegwgerðar- mönnum tókst þó að koma hennl í sinn rétta farveg, en þá tók ekki betra við. Héraðsvötn- eytt þar. 22. júná verður skoð- ,Uð hin mikla landlbúnaðarsýn- ing á Bellafoöj. Margir munu eyða næsta degi þar á eftir til að skoða sýninguna, e<n. aðrir fara til Málmeyjar og Iskoða sig þar um. Laugardagur- inn verður einnig notaður til 'kynnisferða, en síðan haldið foeim á leið daginn eftir. Farar- stjóri með Agnari er Stdna Gísladóttir. - ÍÞRÖTTIR Framh. af bls. 26 fær knöttinn eftirn nokkurt þóf spyrnir að marki og knötturinn lendir í stöng og í netið. Vind- ur hafði einnig áhrif á þá mark- spyrnu. Það voru því utanaðkomandi aðstæður sem ákváðu sigurinn í þessum leik frekar en yfir- burðir annars liðsins. Ef um yfir burði var að ræða fólust þeir I leik Akureyringa úti á vellin- um. Síðari hálfleikur var tíðinda- lítill, nokkur sæmileg færi en engin opin tækifæri. ★ Liðin Beztir hjá Akureyringum voru Skúli Ágústsson, Guðni og Samúel Gústavsson markvörður og verður hann ekki sakaður ura mörkin. Hjá Val var Árni kjölfesta í vöm sem fyrr. Einnig áttu Reynir, Bergsveinn og Hermann sæmilegan leik en ekki meir enda var aðstaðan erfið og til- viljanir réðu miklu. Hreiðar Ársælsson dæmdi leik- inn vel. ■—A. St. in sjálf byrjuðu að flæða, upp við Vindheimabrekkur og yfir Vallhólminn þannig að vegur- inn varð aftur ófær. Seinni- part dagsins sjatnaði þó vatnið, en ekki var talið þorandi ann- að en hafa vaktmenn á staðn- um alla nóttina, til að fylgjast með. Vegurinn er nú fær aftur en skemmdir á honum urðu töluverðar. Synishom af skiltunum, sem sett verða upp við sænska þjóð- vegi. Skiltið til hægri á myndinni verður notað fram að breyting- nnni (til 3. september) til að búa menn undir hana, en H-skiltið til vinstri, verður noléJ i eitt ár til að minna menn á að aka rétt um megin á veginum. (AP). Héraðsvötn og Dalsá flæddu yfir bakka sína

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.