Morgunblaðið - 14.06.1967, Side 4

Morgunblaðið - 14.06.1967, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. JÚNÍ 1967. BÍLALEIGAN -FERÐ- Dtaggjald kr. 350,- og pr. km kr. 3,20. SÍMI 34406 SENDUM MAGIMÚSAR SKIPHOITI 21 SÍMAR2H90 eftirlokun simi 40381 ~ sím' 1-44-44 \mim Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt ieigugjald. Bensín innifalið i leigugjaldl. Sími 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. f~j==*BUAir/GAN RAUOARARSTiG 31 SlMI 22022 SIGURÐUR HELGASON héraðsdómslögmaður Digranesvegi 18, Kópavogi. Simi 42390. Skíðaskólinn 1 Kerlingafjöllum Simi 10470 mánud. — föstud. kl. 4—6, taugard. kl. 1—3. Hópferbab'ilar allar stærðlr Símar 37400 og 34307. JM /J' 'y' w. - . . ■'S '/m ' v 'y '.' ' ■/ JANIS -jér Kosninga- sjónvarpið JÆJA, þá eru kosningarn ar afstaðnar og endanleg úrslit liggja fyrir. Stjórnin heldur velli hvort sem atkvæði I-list- ans í Reykjavík verða talin Al- þýðubandalaginu til tekna eða ekkL Fylgzt var með talningu at- kvæða af mikilli eftirvæntingu, þar sem spenningurinn og óviss an hélzt allt fram á síðustu stund, eða þar til talningu var lokið í síðasta kjördæminu. Óhætt er að fullyrða að mjög margir fylgdust með kosninga- fréttunum í sjónvarpinu, og ekki verður annað sagt en að sú nýjung hafi vel tekizt. Sjón- varpsmennirnir stóðu sig með ágætum. Magnús Bjarnfreðs- son var hressilegur þulur, en fleiri unnu þar að, þótt þeir birtust ekki eins oft á skerm- inum eða alls ekki. Og eins og Magnús sagði í lokin, unnu all- ir starfsmenn sjónvarpsins að þessari dagskrá á einhvern hátt. í>á verður talnameistaranum Guðmundi Arnlaugssyni ekki gleymt. Hann kom fram sem þaulæfður sjónvarpsmaður og lét ekkert koma sér úr jafn- vægi — jafnvel ekki þegar hann og aðstoðarmenn hans höfðu úthlutað 12 uppbótar- þingsætum, og hann tók að leita að skekkjunni fyrir fram- an starandi augu upptökuvél- anna. Þá var gaman í lokin að fá að heyra álit forystumanna stjórnmálaflokkanna á úrslit- unum. Þeir lögðu yfirleitt raun- hæft mat á þau, nema hvað Magnús Kjartansson virtist ekki gera sér grein fyrir — eða vildi ekki viðurkenna — að Hannibal hefir aukið fylgi Alþýðubandalagsins verulega með framboði sínu verði at- kvæðin á lista hans úrskurðuð samkvæmt mati landskjör- stjórnar. •jlr Tölvan og útvarpið Fréttastofa útvarpsins var einnig með nýjungar í sam bandi við kosningafréttirnar. Fylgzt var með athygii á sjá- dóma tölvnnar. Hún átti þó í nokkrum erfiðleikum með að spá um úrslit í kjÖrdæmunum utan Reykjavíkur þar sem fylgi ______ ..._____________gefur y§ur ferskan og ýalan ilm undir hendur, sem endisl allan dag- inn. Giörsamlega skaðlaust húð og fötum. Sjálfvirka kúlan ( flöskuopinu ber létt og ná- kvæmlega á það sem þér þurfið í hvert sinn. HALLDÓR JÓNSSON H.F. Heildverzlun Hafnarstræti 18 - Sfmar 23995 og 1 25 86 flokkanna er tnjög breytilegt eftir byggðalögum. Þetta kom t. d. mjög vel í ljós í Norður- landskjördæmi eystra, þar sem byrjað hefur verið að telja upp úr kössunum fra Akureyri og Eyjafirði, en síðan haldið aust- ur í Þingeyjarsýslur. Og vafa- laust hafa þeir, sem stóðu fyrir talr.ingu í Vesturlandskjördæmi gert tölvu-mönnum gramt í geði með talninga-aðferð sinni. Vegurinn um Kópavog Hafnfirðingur kom að máli við Velvakanda og hafði stór orð og hörð um það, hversu „Hafnarfjarðarvegurinn“ í Kópavogi væri lélegur. „Það er alveg ókeyrandi um Kópa- voginn," sagði hann. Hann hélt því hiklaust fram, að um fjár- skort væri ekki að ræða, held- ur dugleysi þeirra, sem um þessi mál eiga að sjá. Bað hann fyrir þau eindregnu tilmæli, að nú þegar yrði hafizt handa um viðgerð götunnar. if Sóðaleg umgengni úti í náttúrunni Maður kom að máli við Velvakanda í fyrradag og sagði honum frá hneykslanlegri um- gegni ferðamannahóps á tjald- gististað einum ekki allfjarri höfuðborginni. Hann sagði, að ferðamennimir í þessum hópi hefðu dreift í kringum sig flöskulokum, bréfarusli, tómum dósum og öðrum umbúðum, og látið það liggja eins og hrá- viði yfir tjaldstaðinn þegar horfið var á brott. Nokkur fleiri orð lét maður þessi fylgja um umgengni sem þessa en þau verða ekki endurtekin hér. Velvakandi efast ekki um það, að þessi maður hafi skýrt satt og rétt frá þvi, sem hann sá. Og það er satt, að það er hörmulegt til þess að vita, ef heila ferðamannahópa skoi c.ir þannig algerlega tilfinningu fyrir því að ganga snyrtilega um þar sem ekið er um landið, en rusl og úrgangur, sem dreift er á þá staði þar sem æskilegast og heppilegast er að hafa við- dvöl. Þeim, sem koma aðeins einu sinni á slikan stað, finnst kannski allt í lagi að skilja hann eftir ataðan ruisli og óþverra, en aðkoman verður öll önnur fyrir þá, sem næstir koma. Sjálfsagt er erfitt að hafa skipulagt eftirlit með þvi, að menn sóði ekki út þar sem þeir hafa viðdvöl úti í nátt- úrunni, því að margir áninga- staðir liggja illa við eftirliti, en ef ekki tekst að skapa sterkt almenningsálit gegn hvers kyns sóðaskap og draslaraumgegni ferðamanna úti 1 náttúrunni, þyrfti að taka upp viðurlög 1 einhverri mynd gegn slíkri ómenningarstarfsemi, sem veld- ur spjöllum á fögru umhverfi og spillir ánægju annarra ferðamanna og dvöl þeirra f annars ánægjulegu umhverfi. Margir ferðamenn einstakir snyrti- menn Þessi sóðalega umgengni einstakra ferðamanna úti 1 náttúrunni, er þvi leiðinlegri vegna þess, að þeir koma með þessu óorði á alla ferðamenn. En margir ferðamenn, ei.nkum þeir, sem mikið ferðast og hafa yndi af ferðalögum, eru ein- stakir snyrtimenn. Velvakanda er kunnugt um marga menn 1 þeirra hópi, sem eru einkar ná- kvæmir með það, að lát« aldrei minnsbu ögn af rusli eða úrgangi verða efitr í tjaldstað eða áningastað. Þessar um- gengnisvenjur þyrftu fleiri að taka upp. Það er verðugt um- hugsunarefni nú þegar sumar- ið er byrjað og ferðalög manna til ýmissa fagurra staða úti á landsbyggðinni komast í al- gleyming. Sumarbiistaður - veiðihús Til sölu er á góðu verði sumar- og eða veiðihús um 18 ferm. 2 herb. kojur fyrir 4. Húsið er hægt að flytja til á meðalstórum vörubíl. Upplýsingar í símum 11199 og 19813. Kópavogsbúar Nýkomið barnaskór, töfflur margar gerðir. SKÓVERZLUN KÓPAVOGS, Álfhólsvegi 7, sími 41754. Ranga litmyndasendingu hef ég undirritaður fengið frá Glostrup í Dan- mörku, eða númer 36 220. Sá sem hefur fengið númer 36 219 með myndum meðal annars af skáta- móti á Akureyri vinsamlegast hafi samband við mig. FRIÐRIK ÞORVALDSSON, Oddeyrargötu 36, sími 11202 Akureyri. Lokað frá hádegi í dag vegna útfarar Ludvigs C. Magnússonar, skrífstofustjóra. SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.