Morgunblaðið - 30.06.1967, Blaðsíða 3
MORQUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1967.
3
— Já, það er óhætt að
segja, að skipið hafi verið
hætt komið, sagði Ævar Þor-
geirsson, skipstjóri á sand-
dæluskipinu Grjótey, en það
lenti í nokkrum hrakningum
út á Sundunum, eins og kem-
nr fram annars staðar í blað-
inu. Blaðamaður Mbl. fór um
borð í skipið, þegar unnið var
að þvi að moka til leðjunni í
lestinni, og ræddi þá við
nokkra af áhöfninni. — Það
flæddi inn á dekkið fyrst eftir
að hallinn kom á það, hélt
Ævar áfram, og á tímabili
vantaði aðeins fet upp á að
það flæddi upp fyrir lúgu-
karmana. Hefði slíkt gerzt,
hefði skipið sokkið.
. . þair var því snúið við og siglt á hægri ferð inn í Vatnagarða
Grjdtey í hrakningum inn á Sundum
Leðjufarmurinn rann til í lestinni og skipið hallaðist mikið
Þessi mynd er tekin af Grjótey úr lofti í gær, þegar það var
Við Engey, en það var látið reka allt frá Kjalarnesi og inn
á Sundin .. ,
Ævar kvaðst hafa verið í
„koju“, þegar hallinn kom á
skipið, og ráðlagði okkur því
að ræða við 1. stýrknann,
Einar Eggertsson til að fá
alla sólarsöguna. Og Einar
sagði okkur eftirfarandi:
— Við vorum að húa okkur
undir að fara að losa út af
Kjalarnesi, þegar þetta gerð-
ist. Við urðum varir við að
öriítill halli var á skipinu á
leiðinini, en gáfum því ekki
frekar gaum. Nokkur velting
ur var þarna út af Kjalarnes-
inu, og skyndilega, um 10 leyt
ið, lagðist skipið á bakborðs-
hliðina. Vantaði þá aðeins fet
upp á að sjórinn næði að
renna inn í lestina.
Þeir sem voru þá í „koj-
um“ voru strax ræstir, og
tveir gúmbj örgunarbátar
settir út. Síðan dældum við
strax sjó í siðugeymana á
stjórnborðshlið, og rétti skip-
ið sig þá við 5 gráður, en
hafSi áður hallað um 26 gráð-
ur eða meira. Það þótti samt
öruggara að áhöfnin, að und-
anskildum skipstjóra og
fyrsta vélstjóra, yfirgæfu
skipið, og fórum við yfir í
Sandey á gúmbátunum.
Þeir tveir, sem eftir urðu,
létu skipið síðan reka inn á
Sundin á móts við Engeyjar-
ta.gl svonefnt, þar sem því
var snúið og síðan siglt inn
í Vatnagarða, sagði Einar að
endingu.
Sem fyrr segir hefur Grjót-
ey sloppið algjörlega óskemmt
úr þessu ævintýri, en óvíst er
hvenær það fer út aftur, því
ekki er hægt að segja um
það með neinni vissu, hvenær
lokið verður við að moka leðj
•unni til í lestinni, þannig að
skipið rétti sig að fullu.
Al Bishop skemmtir
v/ða úti á landi
Bass'asögvarinn A1 Bishop er
orðinn Reyikvíkingum að góðu
feuinraur fyrir sinn sérstæða sönig.
Undantfarið hetfuir hann stoemmt
á Hótel Borg, en nú ætflar hawn
að iegigja land undir fót og
ferðast um landið og skemmta
ósamt dan&hljómeveitinni Faxar.
A1 Bishop er fæddiur í Balti-
more í Myrylandtfyilki í Banda-
ríkjumum. Kam fyrst tál íslandis
árið 1959 með Deep Riverboys
og síðan atftur árið 1962, en þá
voru þeir i hnattferð og hötfðu
hér aðeins stutta viðlkomiu en
Reytovíkingum gatfst þó aðeins
toostur á að heyra í þeim í bæði
skiptin. Árið 1963 hætti A1 Bis-
hop að syngja með Deep River-
boys og tfluttist til Sviþjóðar en
þaðan tifl Noregs árið 1964 og hef-
ur stoemmt á ölium Norðurlönd-
uniuim, og gietfið út fjöldann allan
atf plötum, sem náð hafa miklium
vinsældium.
Hljómisiveitin Faxar, sem tfer
mieð A1 Bi®hop um landið, mun
leika á danslleikjum, en þar ætl-
ar hann að stoemmta. Hljámisveit-
in er skipuð tfimm ungum
hlíjómisveitarmöninum, þeir heita:
Tómas Sveinbjörnsson, solo gít-
ar, Páli Dungai, bassi, Þorigils
Framhald á bls. 12
Oturinn á Siglufjarðarflugvel 1L
Flugsýn hefur hug
19 sætu skrúfuþotu
FORRÁÐAMENN Flugsýnar
hafa að undanförnu verið að
skoða og reynslufljúga 2 hreyfla
,De Havilland Otter skrúfuþotu
sem þeir hafa hug á að kaupa
etf nauðsynleg leyfi fást. Otur-
inn tekur 19 farþega, þarf mjög
stutta flugbraut og hefur nokk-
uð meiri flughraða en DC-3.
Framhald á bls. 12
: . Húsgögnin fáið þér hjá Valbjörk „67" sófosettið er í senrt fallegt og vandað. Stólfætur undir sófa og stól- um, sem snúa rnó að vild. Velja mó um ýmsar gerðir af innlendum og 'erlendum óklæðum. „67” sófasettið er tízkan í ár.
Verzlunin VALBJÖRK Laugavegi 103, Simi 16414 Reykjavik og Glerárgötu 28, Akureyri
STAKSTEIMAR
Alþýðublaðið og
úiilíf Reykvíkinga
Alþbi. tókst ekki ýkja vel upp
i skrifum sínum sL miðvikudag.
I gær var í þessum ðálki gerður
að umtalsefni þvættingur hlaðs-
ins um afstöðu Mbl. til fundar,
sem fulltrúar Víetkong efndu tU
hér í borg og að þessu sinni veið
ur ekki komist hjá þvi að benda
á hrokafullan vaðal um „útílif
í Reykjavík“ sem „Herjólfui*
skrifar sama dag. Þar er í fyrsta
lagi vikið að Heiðmörk og seg-
ir um hana: „Hún átti að verða
skemmtigarður Reykvikinga og
er prýðilega til þess faUin. Si
draumur hefur hins vegar aldrei
rætzt. Þvert á móti hefur verið
haffzt handa um svokallaða skóg
rækt í Heiðmörk og því þar með
spillt, að hún yrði þaS, sem von-
ir og loforð stóðu til." Eins og
kunnugt er hafa fjölmörg félags-
samtök og einstaklingar unnið
mikið starf við skógrækt í Heið
mörk og hefur sú skoðun ekkj
séð dagsins ljós áður að það
hafi „spillt“ því að Reykviking-
ar legffu leið sína þangað að
sumarlagi heldur þvert á móti
Geysilegur fjöldi Reykvíkinga
fer í Heiðmörk um helgar og
getur „Herjólfur“ þessi fengið
staðfestingu á þvi leggi hanb
leið sína þangað um einhverja
góðviðrisíhelgina. Þeir sem lagt
hafa að mörkum mikið starf
við skógrækt í Heiðmörk muna
hins vegar taka eftir þessu asna-
sparki AlþbL
Viðey
Skrif Alþbl. um Viðey eru þó
enn furðulegri. Þar segir: „Bót
er samt í máli, ef Viðey kemur
í leitirnar innan skamms, en
hún hefur verið Reykvikingum
týnd Iengi þótt við bæjardyr
þeirra sé. Þessi fagri forvitnilegt
og sögufrægi staður, virðist
loksins ætla að komast í eigu
Reykvíkinga. Ber mjög að fagna
því. Hitt vekur furðu, að ráða-
menn Reykjavíkur láta ekkert
uppi um fyrirætlanir sánar í
þessu efni. Hverjar eru ráða-
gerðir þeirra um framtíð Viðeyj
ar? Svo sem kunnugt er hefur
Viðey lengi verið að mestu í
einkaeign. Reykjavíkurborg á þó
hluta eyjunnar og heíur gert
itrekaðar tilraunir til þess að
eignast hana alla, en kaupverð-
ið 'hefur verið svo hátt, sem
sett hefur verið upp að það værl
algjört ábyrgðarleysi í meðferð
almannafjár að kaupa eyjuna
því verði. Hins vegar hefur ríkið
eignast Viffeyjarstofu og land-
skika í kringum hana og munu
allir landsmenn fagna þvi að
endurreisn Viðeyjarstofu er ekkt
langt undan. En mælir Alþbl.
með þvi að tugum millj. af ié
skattgreiðenda í Reykjavik verðl
varið til þess að kaupa Viðey
að öðru leyti fyrir óhóflegt verff? .
Laugardalur
Eftir að Alþbl. hefur ausið
aur, á þá, sem unnið hafa aff
skógrækt i Heiðmörk og farið
með endileysu í sambandi við
Viðey snýr blaðið sér að Laug-
ardalnum og þykir það firn mik-
il að áhorfendastúka í Laugar-
dalnum skuli enn vera „þak-
laus.“ I Laugardalnum hefur
verið byggður glæsilegur íþrótta
völlur, stærsta og fullkomnasta
sundlaug landsins og mesta
íþróttahús landsins. Þessar fram
kvæmdir hafa kostað offjár og
hafa þegar orðið íþróttalífi höf-
uðborgarinnar mikil Iyftístöng.
íþróttamenn og íþróttaunnend-
ur í Reykjavík kunna vel að
meta þessar framkvæmdir og
skilja að ekki er allt hægt að
gera í einu. Alþbl. er annarar
skoðunar. Mundi svo vera ef hér
væri um ríkisíramkvæmd að
ræða?