Morgunblaðið - 30.06.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.06.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JUNI 1967. Bí LALEIGAN - FERÐ- Daggjald kr. 350,- og pr. km kr. 3,20. SÍMI 34406 SENDU M V® SÍM11-44-44 mniF/Bifí Hverfisgötn 103. Siml eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 1L Hagstætt leigugjald. Bensín innifaliS í leigugjaldi. Sími 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Siml 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. RAUDARARSTlG 31 SÍMI 22022 Flest til raflagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki Útvarps- og sjónvarpstæki Raf mag nsvörubiiðin sf Suðurlandsbraut 12. Simi 81670 (naeg bílastæði). VESTURROST*hf GARÐASTRÆTI 2.SiMi:1677Q ■fc Mælir með „afslöppun“ Velvakandi — föstudagsblað .. Jórunn Sörensen skrifar: „Mig langar til að senda „ljósmóður“ línu til þess að leið rétta misskilning hennar varð- andi afslöppun kvenna í sam- bandi við fæðingar. Býst ég við, að hún sé þar að sneiða að af- slöppunartímum Huldu Jens- dóttur, yfirljósmóður á Fæð- ingarheimili Reykjavíkur. Það er alrangt, að konunum sé talin trú um, að fæðingin sé alveg sársaukalaus. Hulda tekur einmitt skýrt fram, að svo sé ekki, en að draga megi úr sársaukanum á margan hátt. Fræðslan miðar að því að kenna konum, hvað sé að ger- ast í hverjum þætti fæðingar- innar fyrir sig, og að losa kon- urnar við hræðslu og kvíða í sambandi við fæðinguna. „Ljós móðir“ ætti að vita, að allt gengur verr, ef konan er hrædd og þar af leiðandi spennt og stíf. Svo geta auðvitað verið konur, sem nenna ekki eða vilja ekki reyna að slappa af. Því að auðvitað er það erfitt, þegar líkaminn vill vera stífur. En það er ekki æfingunum að kenna, þó að þær konur kenni þeim um. En það vita allir, sem einhverntíma hafa fengið sprautu, hve miklu sárara það er, ef vöðvinn er stífur, en finnst varla, ef slakað er á. Sömu sögu er að segja um tannaðgerðir o. fl. o. fl. Mín reynsla er sú, að það sé miklu betra að hafa farið í þessar æfingar og lært að slappa af. Er ég átti eldri telp- una mína, hafði ég aldrei heyrt um neina afslöppun; var því auðvitað stíf og tók þessu illa. Fannst ég eiga ósköp bágt og vera alveg hjálparvana. En er sú yngri kom, hafði ég búið mig undir fæðinguna með af- slöppunaræfingum Huldu Jens dóttur, og hvílíkur munur! Nú hafði ég nóg að gera við að anda rétt og slappa af, en bylti mér ekki í algjöru tilgangs- leysi eins og fyrr. Þess vegna segi ég ykikur, kæru væntanlegu mæður, látið ekki orð ,ljósmóður“ hræða ykkur með því að fæðing sé þvílík þjáning, að ekkert megi gera til að lina þær, heldur farið í afslöppunaræfingar. Æfið ykkur vel — og notið svo æfingarnar, þegar þar að kem- ur. Gangi ykkur vel. Jórunn Sörensen. Velvakandi þakkar bréfið. — Eitthvað þykir honum „afslöpp- un“ leiðinlegt orð. Er ekki betra að segja „vöðvaslö(kun“ og „að slaka á (vöðvum)" í stað þess „að slappa af“? Skólabúningarnir Velvakandi hefur orðið greinilega var við áhuga fólks á skólabúningum, og eru það ekki sízt telpur, sem sent hafa honum bréf um þá, og verið þeim hlynntar. — Velvakandi hefur stundum stolizt til þess að taka hitt og þetta upp úr „Æskunni", ef honum finnst það eiga erindi til fleiri en æskufólks. í þetta skipti lejrfir hann sér að birta eftirfarandi grein eftir Andreu Oddsteins- dóttur, sem birtist í síðasta tbl. Æskunnar. „Að mínum dómi er skóla- búningur nauðsynlegur í öllum löndum heims og ekki sízt hér í fámenningu, þar sem allir þekkja alla. Börn og unglingar Raðhús í Háaleitishverfi Til sölu mjög vandað raðhús við Álftamýri. Allar innréttingar nýtízkulegar og af beztu gerð. Teppi á gólfum. Húsið allt í 1. fl. ástandi. Húsið er alls að flatarmáli um 260 ferm. með innbyggðum bíl- skúr. Glæsileg húseign í einu eftirsóttasta hverfí borgarinnar. GÍSLI G. ÍSLEIFSSON, HRL., Jón L. Bjarnason fasteignaviðskipti. Hverfisgötu 18. — Sími 14150 og 14160. Heimasími 40960. metast um hver eigi mesta fata valið. Slíkur metnaður kann að reynast unglingum skaðlegur og foreldrum dýr, og á ég ekki aðeins við útgjöld þau, sem fatakaupum fylgja. Af þessari áráttu leiðir svo, að fjöldi nem- enda fer að slá slöku við nám og verður því ef til vill gjör- samlega fráhverfur, enda snýst hugurinn ekki um annað en föt og aftur föt. Fataskipti eru höfð daglega að heita má, af því að það er álitinn hálfgerður ósiður að koma dag eftir dag í sömu fötunum i skólann, og gildir það sama oftast þegar dansleikir eru haldnir þar. Það fer víst ekki sjaldan á þá leið, að það, sem átti að heita dans- leikur, endar sem hégómleg og fáránleg fatasýning. Vonandi skilur enginn orð mín svo, að ég sé að amast við tízkusýning- um, öðru nær, enda eiga þær fullan rétt á sér á sínum stað og stundu. Æskufólk og reyndar fólk flest hugsar bara um að eiga sem mest til skiptanna, en virðist aftur á móti ekki leggja eins mikla áherzlu á að eiga föt úr góðu efni. Þetta er mikill misskilningur, af því að reynd- in er sú, að væn flík og vel sniðin er alltaf klæðileg á með- an nokkuð er eftir af henni og svo framarlega sem hún er hrein. Hér sannast eins og svo oft áður, að smekkvísi og snyrti mennska er þyngri á metaskál- unum en fullir skápar af óhreinu fatarusli og ódýru. Skólabúningur á að vera ein- faldur og íburðarlaus klæðn- aður úr vönduðu efni. Slíkur búningur yrði að vera sniðinn eftir ríkjandi tízku samtímans að vissu marki • að minnsta kosti, og af þeim ástæðum væri kannski ekki úr vegi að bryta honum, ef mikil umbrot yrðu 1 heimi fatatízkunnar. Rétt væri, að hver skóll hefði sinn sérstaka búning og skólamerki. Skólastjórar barna- og gagnfræðaskóla svo og flestir framhaldsskóla ættu að skylda alla nemendur til að ganga í skólabúningi kennslu- dag hvern innan skólans allt skólaárið um kring. Utan skól- ans væri þeim aftur á móti leyfilégt að' klæðast eins og þeim þóknaðist, enda gætu of strangar reglur gert illt verra. Hver á að teikna búningana og velja kynni einhver að spyrja. Það er nú lóðið. Heppi- legasta leiðin væri ef til vill að efna til samkeppni meðal nem- enda hvers skóla og fela síðan dómnefnd skipaðri skólastjóra, tveimur kennurum og tveimur nemendum það hlutverk að velja og veita verðlaun fyrir þrjár beztu teikningarnar. Færi svo, að engin teikning reyndist verðlaunahæf, þá yrði ekki komizt hjá að hafa samkeppn- ina á breiðari grundvelli". HÚSAVÍK íbúðarhúsið Hringbraut 1 Húsavík er til sölu. Húsið er til sýnis sunnudaginn 2. júlí frá kl. 2—6 síðdegis og gefur þar undirritaður allar upplýs- ingar. VERNHARÐUR BJARNASON sími 23173, heima 23418. Úrvals éfnl um sjón- varp, sjónvarpsmál, og margt fleira. Vlkan Sjónvarpsdagskrá vikunnar fæst í næstu búð VERÐ AÐEINS KR. 5.- Heimílistæki sf. HAFNARSTRÆTI 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.