Morgunblaðið - 30.06.1967, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1967.
Þrjú landslið berjast í
Laugardal eftir helgina
IMorðmenn og Sviðr senda hing-
að yngri menn sína vegna 20
ára afmælis KSÍ
Á MÁNUDAGS- þriðjudags- og
miðvikudagskvöld fer fram á
Laugardalsvellinum þriggja
landa knattspyrnukeppni yngri
manna, eg er tilefni 20 ára af-
mæli KSÍ, sem var í marz sl.
Það eru Norðmenn og Svíar sem
sækja okkur heim og keppnin
stendur milli liða skipuðum
mönnum undir 24 ára aldri. ís-
lendingar hafa einu sinni gengið
tU landsleiks í þeim aldursflokki
— móti Dönum í fyrra og unnu
Danir 3-1.
KSÍ valdi að halda upp á tví-
tugsafmæli sitt á þennan hátt.
í*á er sambandið varð 10 ára
efndi það til þriggja landa
keppni A-landsliða milli Dana,
Norðmanna og íslendinga, og þá
var jafnframt um vígslumót að
ræða á Laugardalsvellinum —
fyrir grasvöll á íslandi.
ísl. landsliðið var valið í gær
og er skipað þessum mönnum:
1. Sigurður Dagsson Valur
2. Jóhannes Atlason Fram
3. Guðni Kjartansson ÍBK
4. Magnús Torfason, fyrirliði,
ÍBK
5. Ársæll Kjartansson K.R.
6. Þórður Jónsson K.R.
7. Bjöm Lárusson Í.A.
8. Kári Árnason Í.B.A.
9. Hermann Gunnarsson Valur
10. Eyleifur Hafsteinsson K.R.
11. Eimar Geirsson Fram.
Varamenn:
Kjartan Sigtryggsson Í.B.K.
Ævar Jónsson Í.B.A.
Sigurður Jónsson Valur
Jón Jóhannsson Í.B.K.
Hörður Markan K.R.
Er um 4 breytingar að ræða
frá landsleiknum á Spáni, mark-
vörður, v. bakvörður, v. fram-
vörður og h. útherji, en allar eru
breytingarnar vegna þess að hin
ir sem fyrir voru mega ekki
leika vegna aldurs.
íslendingar hafa nokkra sér-
stöðu í þessum leikjum. Þeir hafa
sitt A-landslið að undanskildum
4 breytingum, en hjá Svíum eru
2 landsliðsmenn og 3 hjá Norð-
rnönnum.
Þessi keppni ætti að geta orðið
mjög skemmtileg og ísl. knatt-
spyrnumenn að fá mótherja sem
þeim ber,
Norðmennirnir koma hingað í
kvöld 20 talsins, 16 leikmenn og
4 fararstjóra. Svíar koma á
sunnudagskvöld, 16 leikmenn, 4
fararstjóra og auk þess 6 menn
úr stjórn sænska knattspyrnu-
sambandsins.
Norðmennimir farja á laugar-
daginn í ferð um Reykjavík og
á sunnudag um Þingvöll og
Hveragerði. Sömu ferð fara
Svíar á mánudag og þriðjudag.
Á miðvikudagskvöldið að lok-
inni keppni heldur menntamála-
ráðuneytið boð fyrir liðsmenn og
gesti.
Ungir Hafnfirðingar að leik
# þ róffanámskeið
í Hafnarfirði
ÍÞRÓTTANÁMSKEIÐ verður
haldið í sumar (júlí-ág.) fyrir
drengi og stúlkur á aldrinum
7-13 ára. Kennt verður á þrem-
ur íþróttavöllum bæjarins, þ.e.
Hörðuvöllum — Hringbrautar-
vellinum — skólamót við Lækj-
arskóla. Á námskeiðinu verður:
fótbolti, handbolti, 'badminton,
leikir, göngur og fleira.
Innritun fer fram föstudag 30.
Fyrsta þátttaka Islands í Evrópubik-
arkeppni í frjálsum heppnaðist vel
— rætt v/ð Jóhannes Sæmundsson þjálfara
— ÞEGAR á heildina er litið
má segja, að fyrsta þátttaka ts-
lands í Evrópukeppni í frjáls-
um iþróttum hafi heppnazt með
ágætum, sagði Jóhannes Sæ-
mundsson þjálfari landsliðsins er
Mbl. ræddi við hann um írlands
förina. — Við gerðum okkur
grein fyrir því fyrirfram að við
höfðum enga möguleika til sig-
urs, en allir okkar menn stóðu
fyrir sínu og sett voru tvö glæsi
leg íslandsmet. Annars reiknuð-
um við með að írarnir væru
sterkari en raun varð á, og er
ekki fráleitt að segja það, að
með svolítið meiri heppni og
þátttöku allra okkar beztu
manna hefðum við átt að sigra
þá. Völlurinn sem keppt var á
2. deild
í KVÖLD kl. 20.30 fer fram á
Melavellinum í 2. deild íslands-
mótsins milli Þróttar og Sigl-
firðinga.
var mjög góður. Það eina sem
hefði mátt finna að, var niður-
koman úr hástökki og stangar-
stökki.
Síðan sagði Jóhannes okkur
stuttlega frá keppninni:
Hlaupagreinarnar
— Fyrst ber að nefna 800
metra hlaupið. 1 því tóku þátt,
auk Þorsteins Þorsteinssonar,
tveir hemsþekktir hlauparar.
Fyrstu 200 metra hlaupsins
leiddi Þorsteinn á 27,0 sek., en
þá fóru írinn og Belgíumað-
urinn frammúr. Fyrri 400 metr
arnir voru hlaupnir á 54.0 sek.
Þegar 250 metrar voru eftir í
mark varð Þorsteinn að sleppa
keppinautum sínum, en átti
svo ágætan endasprett og vann
þá heldur á þá aftur. Tíminn
á Þorsteinn var skv. minni
klukku 1:50,0 mín., en úrskurð-
ur tímavarðar hljóðaði upp á
1:50,2 mín. íslenzkt met. Þor-
steinn stóð vissulega ekki að
baki keppinautum sínum í öðru
en því að hann er ungur og
Hörð keppni hjá GR
HIN árlega „Fola Vola“ keppni
GoLfklúbbs Reykjaivíkur hófist í
fyrraikvöld og voru þá leiknar
12 holur. Alls er keppnin 72 hod-
ur. Verða leiknar 24 holur á
morgun, laugardag, og 36 holur
á sunnudag.
Bftir fyrstu 12 holur keppn-
innar var staðan þannig:
Helgi Jakobsson 50 högg
Einar Guðnason 53
Þorbjörn Kjærbo 54
Sveinn Eirilksson 55
Jón Þorsteinsson 56
Helgi Eiríksson 56
Ólafuir Hafliðason 56
IngólÆur Isebarn 57
Óttar Yngvason 67
Ólatfur Bjarki
Ragnarsson 58
ekki fullharðnaður sem íþrótta-
maður. Má mikils af honum
vænta í framtíðinni. Þá setti
Þorsteinn einnig unglingamet í
400 metra hlaupi og veitti harða
keppni allt þar til að kom á
beinu brautina en þá varð hann
að gefa eftir. írinn setti í þessu
hlaupi nýtt landsmet og hljóp
á 47.3 sek.
1 100 og 200 metra hlaupum
keppti Ólafur Guðmundsson.
Hann náði verri tíma en til stóð
í 100 metra hlaupinu, þar sem
hann „sat eftir“ í startinu.4
Þá höfðum við gert okkur
vonir um að Halldóri Guðbjörns
syni tækist að sigra írann í 1500
metra hlaupimu. Frá upphafi var
mikill hraði í hlaupinu og fylgdi
Halldór keppinautum sínum vel
eftir. En þegar um 3—400 metr-
ar voru eftir af hlaupinu, stífn-
aði Halldór upp og varð að gefa
eftir. Eigi að síður náði hann
sínum bezta tíma í ár í hlaup-
inu.
í 500 metra hlaupinu hljóp
Þórarinn Arnórsson prýðilega,
ekki sízt þegar tekið er tillit
til þess, að hamn hefur ein-
göngu æft millivegalengdir, en
ekki langhlaup. Náði hann sín-
um bezta tíma á þessari vega-
lengd. Sama má segja með
Trausta Sveinbjörnsson í 400
metra grindahlaupinu. Hann
hljóp prýðilega og getur örugg-
lega bætt tíma sinn til mikilla
muma, þegar hann er búinn að
læra að fara betur yfir grind-
urnar.
Stökk
— 1 hástökkinu höfðum við
reiknað okkur fyrirfram auð-
veldan sigur og var það reikn-
að út frá fyrri árangrum kepp-
enda. Svo fór að Belginn veitti
Jóni harða keppni. Báðir stukku
1.96 metra, og var það persónu-
legt met hjá Belganum. Átti
hann og betri tilraunir við 2.02
metra, en Jón. Augljóst var þó,
að Jón er miklu betri hástökkv-
ari en keppinautar hans, þó að
þetta væri ekki hans dagur.
í langstökkinu var keppnin
mjög spennandi. Ólafur stökk
um 7,20 metra, í ógildu fyrsta
stökki, en leiddi keppnina síð-
an unz Belginn tók forustuna í
4. umferð. Því svaraði Ólafur
með því að stökkva 6.96 metra
í 5. umferð og taka forustu á
ný. .í sömu umferð náði svo
Belginn að stökkva 1 sm. lengra
og sigraði hann á því stökki. í
síðustu umferð stökk Ólafur 7,00
metra, en stökkið var „hárfínt"
ógilt.
Páll Eiríksson náði 3. sæti í
stangastökkinu, en hann og ír-
inn fóru báðir byrjunarhæðina
3,60 metra, í annarri umferð.
Áttu við alls ekki von á öðru
en þriðja sæti í þessari grein,
þar sem írinn hafði áður náð
miklu betri órangri.
í þrístökkinu veitti Jón Þ.
Ólafsson íranum óvænt mikla
keppni og skildi aðeins einn sm.
á milli þeirra.
Köstin
— „Hvað skyldi Guðmundur
kasta langt um fimmtugt, ef
hann heldur svona áfram“, varð
fararstjóranum okkar Þórði B.
Sigurðssyni að orði þegar Guð'
mundur varpaði kúlunni 17,78
metra. í þessari grein var ekki
um neina keppni að ræða, þar
sem Guðmundur bar höfuð og
Framhald á bls. 19
júní á Hörðuvöllum við Lækinn
frá 9.30—12 og 1.30—4.30. Þátt-
tökuskírteini 25 kr. Geir Hall-
steinsson fþróttakennari sér um
námskeiðið. Mikilvægt er a@
vera með frá byrjun. Námskeið-
ið verður 5 daga vikunnar, þ.e.
frá mánudegi til föstudags, ef
næg þátttaka verður. Dagskrá-
in verður að líkindum þessi:
Fyrir hádegi:
9.30 — 10.30 drengir 7-10 ára
10.30 —i 11.45 stúlkur 7-10 ára
Eftir hádegi:
1.30 — 3.00 drengir 11-13 ára
3.00 — 4.30 stúlkur 10-13 ára
Nauðsynlegt að vera með
strigaskó.
-----♦♦♦-------
Mót 2. flohks
kvenna
ÍSLANDSMÓT í handknattleik
2. flokks kvenna verður háð 1
Vestmannaeyjum 22.—23. júlí
n.k. Þátttökutilkynningar berist
til Jóns Kr. Óskarssonar for-
manns handknattleiksráðs Vest-
mannaeyja fyrir 9. júlí í póst-
hólf 228.
----+♦+------
Heimsmet
RON CLARKE, Ástralíu setti 1
dag nýtt heimsmet í 2ja mílu
hlaupi í Vasteras, Svíþjóð. Tím
inn 8,19.8 er næstum þremur sek.
betri en eldra heimsmetið, sem
Frakkinn Michael Jazy átti, en
það var 8.22.6.
----♦♦♦------
Drengjameis’.-
oramótið
8. og 9. júlí
Keppnisrétt hafa drengir, sem
verða 18 ára á almanaksárinu,
svo og yngri drengir. Keppnis-
greinar fyrri dag eru: 110 m,
greind., 200 m., 800 m., 4x100 m,
kúluvarp, spjótkast, langstökk,
og hástökk.
Seinni dagur: 200 m. grind., 100
m., 400 m., 1500 m., kringlu-
kast, sleggjukast, stangarstökk
og þrístökk.
Þátttaka tilkynnist Frjáls-
íþróttaráði Akureyrar, pósthólf
112 fyrir 6. júlí.
(Frá Frjálsíþróttaráði Akur-
eyrarþ