Morgunblaðið - 07.09.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. SEPT. 1&67
5
íslenzk myndlistarsýning
opnuð í LUBECK í dag
— Til Berlínar í nóvember
í DAG verður opnuð, við há-
tíðlega athöfn, sýning á ís-
lenzkri myndlist í Liibeck í
Þýzkaiandi. Að sýningu þess-
ari stendur Myndlistarflagið,
en hún haldin i boði borgar-
stjórnar Lúbeck borgar. Ný-
lega hitti Mbl. að máli Finn
Jónsson formann Myndlistar-
félagsins og frú Juttu Guð-
bergsson og bað þau að segja
frá aðdraganda sýningarinn-
ar.
Jutta sagði það upphaf
málsins að hún hefði á ferða-
lagi um Þýzkaland hitt hr.
Schmalenback í Liibeck.
Hann er forstjóri listasafna
borgarinnar og kunnur lista-
gagnrýnandi.
Hjá Schmalenback hefði
komið fram mikill áhugi
fyrir því, að fá íslenzka
myndlistasýningu til Lúbeck.
ísland og íslenzk myndlist
væri lítt þekkt í Norður
Eitt málverkanna á sýningunni. Hrafnabjörg, eftir Juttu
D. Guðbergsson.
Þýzkalandi, og vildi hann
beita sér fyrir því að slík sýn
ing yrði haldin.
Eftir heimkomu snéri Jutta
sér til Finns Jónssonar list-
málara, formanns Myndlist-
arfélagsins, og tók hann
málið upp í stjórn félagsins.
Þar kom fram mikill áhugi
um aðild. Barst félaginu
síðan formlegt boð Lubeck
borgar og var því tekið.
Þegar undirbúningur sýn-
ingarinnar hófst barst félag-
inu ennfremur boð frá Ber-
línarborg um að sýningin
kæmi þangað og var því
einnig tekið.
Þau Finnur og Jutta hafa
síðan haft veg og vanda af
undirbúningnum hér heima
ásamt stjórn félagsins. Er
Jutta nú farin utan til að
vera viðstödd opnunina fyrir
hönd félagsins. Sagði hún
það skemmtilega tilviljun að
Lubeck væri einmi’.t fæðing-
arborg sín.
Sýningin, sem nefnist ís-
lenzk málaralist — í gær og
í dag, verður sett af ræðis-
manni íslands í Lúbeck,
Franz Siemsen.
Verður hún haldin í einum
nýjasta og stærsta sýningar-
sal borgarinnar Dom-Muse-
um. Stendur hann nærri dóm
kirkju borgarinnar og dregur
af því nafn sitt. Sagði Jutta
að frá þeim tíma sem félag-
inu hefði borizt boðið, en
síðan væri liðið á annað ár,
Finnur Jónsson formaður Myndlistarfélagsins og Jutta D.
Guðbergsson listmálari.
hefðu sýningar staðið þar
stanzlaust yfir. Meðal annars
nokkrar sýningar frá öðrum
Norðurlöndum.
Finnur Jónsson sagði, að
sýningin mundi standa yfir
í mánaðartíma í borginni eða
til 7. október. Hinn 9. nóv-
ember yrði hún svo opnuð
aftur í V-Berlín og stæði þai
einnig yfir í mánuð.
Félaginu hefði borizt tií-
boð um opnun í Wien og
Múnchen en af því gæti lík-
lega ekki orðið.
82 myndir yrðu á sýning-
unni eftir eftirtalda listamenn
Ásgrím Jónsson, Finn Jóns-
son, Gunnlaug Blöndal, Helgu
Weisshappel, Jóhannes Kjar-
val, Jón Gunnarsson, Juttu
D. Guðbergsson, Pétur Frið-
rik, Sigurð Kr. Árnason,
Svein Björnsson.
Bótagreiðslur
ALMANNATRYGGINGA í REYKJAVÍK.
Greiðsla ellilífeyris hefst þegar fimmtudaginn
7. septeinber.
Aðrar bætur verða greiddar á venjulegum tíma.
Athygli skal vakin á að stofnunin er lokuð á
laugardögum til septemberloka.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
að það er ódýrast og oezt
að auglýsa í Morgunblaðinu.
Speglar — speglar
Fjölbreytt úrval í alla íbúðina. Baðherbergisspeglar,
forstofuspeglar, handspeglar og skrautspeglar.
Spegill er hentug tækifærisgjöf, einnig snyrti-
vöruúrval.
Spegla- og snyriivörubúbin
búð Gleriðjunnar, Skólavörðustíg 22 A.
TOYOTA CROWM 2300
*
Japanska Bifreiðasalan, Armúla 7
Glæsilegur og vandaður 6 manna bíll. —
Traustasti bíllinn á markaðnum. — Byggð-
ur á sjálfstæðri ferstrendri X-laga stál-
grind. — 6 cylindra 115 ha. vél með yfir-
liggjandi knastás og 7 höfuðlegum. Fáan-
legur með sjálfskiptingu.
Hagstætt verð.
Innifalið í verði m.a.: Riðstraumsrafall (Alternator),
hvítir hjólbarðar, Toyota ryðvörn, þykk teppi,
tveggja hraða rúðusprautur, rafmagnsrúðusprauta,
þriggja hraða miðstöð með kerfi fyrir fram- og aft-
ursæti, tvöföld aðalljós, mælaborðshilla, loftræsti-
kerfi, bakkljós, tvöfaldur þéttikantur á hurðum,
verkfærataska o.fl.
Tryggið yður Toyota