Morgunblaðið - 07.09.1967, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.09.1967, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 7. SEPT. 1967 Annað reiöarslag - KR tapaöi 10-0 Skozka liðið var mörgum flokkum ofar okkur sagði Sveinn Jónsson þjálfari ANNAÐ reiðarslagið dundi yfir íslenzka knattspyrnuhreyf- ingu í gærkvöldi. KR-ingar, sem þátt taka í Evrópukeppni bikarmeistaraliða, léku fyrri leik sinn í 1. umferð keppn- innar móti skozka liðinu Aberdeen. Skotarnir sigruðu með 10 mörkum gegn engu. í hálfleik stóð 4-0. Þjálfari og farar- stjóri KR-inga, Sveinn Jónsson, sagði: „Það var ekkert við þessu að gera. Aberdeen-liðið er hreinlega mörgum klössum betra en við erum“. — Við fundum þegar í upp- hafi að mótiherjarnir voru okk- ur miklu sterkari, sagði Sveinn, er við ræddum við hann rétt efit- ir leiikinn. — Við reyndum að draga okkur í vörn til að forð- ast sitórtap. En leikhraðinn hjá Skotunum var svo mikliu meiri en hjá okkur að við fengum ekki við neitt ráðið. Ofan á bæittist að þeir höfðu — auk hins mikla hraða — algera yfir- burði í knatttækni. — í>eir notuðu kantana mjög, bruitust þar í gegnum vörn okk- ar og sendu síðan háar send- inigar fyrir markið og þar voru fyrir menn með þá getu í að skalla, að hver knötturínn af öðrum lenti í markinu. — Við reyndum að stöðva þessi gegnumbroit þeirra, en þó það tækist af og til, þá beittu þeir bara öðrum aðferðum, not- uðu þá ágætar skyttur sínar, sem skoruðu með lan.gskotum, glæsi- legum og óverjandi, flestum. Það voru sannkölluð dúndur- skot. — Það var fyrst oig fremst hraðinn og ákveðnin í spili þeirra, sem gersamlega yfirbug- aði okkur og gersiigraði. Við spurðum Svein hvort KR- ingar hefðu aidrei átt góð færi, eða hvort um hreinan varnar- leik hefði verið að ræða. Hann svaraði: — A-ð vísu áttum við nokkur Gullaldorliðið leikur í kvöld f DAG kil. 6.30 fer fram leikur í Bikarkeppni KSÍ. Þá leika á Melavelli lið Þróttar (A-lið) og B-lið Akraness en það gengur nú almennt undir nafninu gull- aidarlið, því í liðinu eru miargir af frægustu ieikmönnum Akra- ness, þá er það lið var upp á sitt bezta. upphlaup og sum allgóð. Einu sinni komst Sigurþór einn inn- fyrir með góða sendingu og stóð frammi fyrir markmanni einum. En hann brenndi af. — í annað skipti átti Eyleifur mjög gott skot, en það var var- ið. Með þessu eru upptalin hin góðu tækifæri er við áttum, sagði Sveinn. — Hér var bezta veður, sagði Sveinn. — Dómari og línuverðir voru hollenzkir og stóðu sig mjög vel. Þessi mynd er fra leik KR og Aberdeen í gærkvöldi. Guðmundur Pétursson bjargar þarna skotá frá Jim Storrie. En á öllu sést að það er ekki friðsælt við mark KR-inga. FH kærir ekki TVEIR leikir Bikarkeppni KSÍ voru leiknir um helgina. Á Melavelli mættu A-lið Víkings oð lið Hauka. Víkingar sigruðu með 3 mörkum gegn 2. í Vestmannaeyjum mættust Týr og lið FH, nýbakaðir meist- arar í, 2. deild. Leikurinn varð all sögulegur. í fyrri hálfleik náði FH 2-0 forskoti en Týr jafn aði í síðari hálfleik. Framleng- ing var en hvorugu liðinu tókst að skora. Hófst þá vítaspyrnukeppni liðanna, samkv. reglum keppn- innar, 5 spyrnur á hvort mark. Hvort liðið skoraði 4 mörk í spyrnum sínum og lauk því leik með jafntefli 6-6. Samkvæmt reglum var þá gripið til að kasta upp peningi um það hvort liðið skildi halda velli í kepninni. Vann Týr þða hlutkast. Ágreiningur kom upp um eina af vítaspyrnum Vestmannaey- inga, og fleiri dóma. Mátti heyra raddir um að FH hefði hug á að kæra leikinn. En við nánari athugun hættu FH-ingar við a.llt slíikt, og óska Tý langs áframhalds í þessari útsláttar- keppni. MOLAR Sextán ára gömnl norsk stúlka Anne Kirkerud stökk 1.58 í hástökki á unglinga- móti í Drammen. Komst hún með því í 3. sæti á afreka- skrá Noregs frá upphafi. Uwe Beyer, sá er vánn bronsverðlaun á OL í Tókíó í sleggjukasti, og sá er lék aðalhlutverkið í kvikmynd- inni „Sigurður Fáfnisbani" setti á mánudaginn nýtt vest- ur-þýzkt met i sleggjukasti 69.08 m. Hann átti sjálfur eldra metið 68.80. Hann átti nú þrjú köst yfir 68 m. Ausfri vunn unglingumót Austijnrðu UNGLINGAMÓT Austurlands í knattspyrnu var haldið á Vopna firði um helgina. Fjögur lið tóku þátt í keppninni. Úrslit urðu þau að Austri, Eskifirði sigraði hlaut 5 stig og sigur í aukaúrslitaleik. Þróttur, Norðfirði hlaut 5 stig, Einherjar, Vopnafirði hlutu 2 stig og Huginn, Seyðisfirði ekk- j ert stig. Úrslit einstakra leikja. Huginn — Einherjar 1-0. Síðar kom í ljós að Huginn var með tvo ólögilega leikmenn og voru Einherjum dæmd stigin). Austri — Þróttur 1-1. Einherjar — Austri 0-1. Þróttur — Huginr. 3-0. Þróttur — Einherjar 3-2. Austri — Huginn 6-1. í úrslitaleik vann Austri lið Þróttar 2-0. Keppt var um bik- ar sem gefinn var af útgerðar- félaginu Gunnar og Snæfugl Reyðarfirði. Var nú keppt um hann í 2. sinn en Austri vann einnig í fyrra. A-deild Einherja sá um mót- ið. Gísli Jónsson var mótsstjóri. Ingólfur r Oskursson þjólfur Ármenningu INGÓLFUR Óskarsson, hinn góð kunni landsliðsmaður úr Fram, verður þjálfari 2. deildar liðs Ármanns í handknattleik í vet- ur. Var fyrsta æfingin miðviku dag 6. september á Ármanns- velli. Þeir, sam ætla að vera með í vstur eru beðnir að mæta oig yera með frá byrj un. Upplýs- ingar á skrifstofu Ármanns. Um hreina afturför að ræða miðað við erlend lið - segir Sveinn Jónsson þjálfari KR Skúli Arnarson — hinn efnilegi ÍR-ingur er sigraði í stigakeppni í sveinaflokki á unglingameista ramótirui. Hér kastar Bkúli spjóti, en hann sigraði í þeirri grein. í SAMTALI við Svein Jónsson, þjálfara og farar- stjóra KR-inga í förinni til Aberdeen, spurði Mbl. hvort eitthvað sérstakt hefði hamlað KR-ingum í þessum Evrópubikarleik. Hann kvað nei við og sagði KR-liðið hafa verið eins vel undir leikinn búið eins og frekast hefði verið unnt. Allar móttökur hefðu verið góðar, liðið byggi á bezta hóteli bæjar ins og þar fram eftir göt- unum. — Þetta skozka lið — óg þá mörg fleiri — eru bara mörgum klössum ofar okk ur knattspyrnulega séð, sagði Sveinn. — Miðað við fyrri leiki okkar í þessum keppnum um Evrópubikar tel ég að um hreina afturför sé að ræða hjá íslenzkum knatt- spyrnumönnum. — Strákarnir lögðu sig alla fram og það var sann- arlega ekki með þeirra samþykki að mörkin urðu svo mörg og ósigurinn svona ofboðslegur. Þeir voru sumir hverjir með krampa í fótum af þreytu, svo mjög reyndu þeir að hamla gegn ósigrinum. Háði þetta mest Kristni bakverði og Herði Markan útherja. — En yfir móttökunum 1 getum við ekki kvartað, þó við munum seint gleyma þessum leik og hann er einn sá svartasti í allri leiksögu KR. — A. St.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.