Morgunblaðið - 07.09.1967, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. SEPT. 1967
EFTIR 25 ára valdatíð hefur
íranskeisari, Mohammed Reza
Pahlavi, ákveðið að láta
krýna sig með pomp og pragt
svo og konu sína Farha Diba.
Verður hún fyrsta keisara-
inna ,sem Persar eignast í
2.500 ár. Krýningin fer fram
Pahlavi tók völd sem keis-
ari í Persíu árið 1941 í miðri
heimstyrjöldinni síðari, er
land hans var setið brezkum,
bandarískum og rússneskum
hermönnum. I>á var ástand í
landinu og öllum heimi svo
alvarlegt, að lítil ástæða var
til að halda gleðilega krýn-
ingarhátíð. Auk þess var
landið og þjóðin í slíkri niður-
níðslu og fjárhagur svo bág-
borinn, að Pahlevi ákvað að
láta ekki krýna sig fyrr en
hann hefði gert eitthvað fyrir
fólkið til þess að verðskulda
keisarakrónuna. Nú er svo
komið, að hann telur sig geta
sýnt nokkurn árangur af
starfi sínu. Viðamiklar um-
bætur hafa verið gerðar á
flestum sviðum þjóðlífsins, í
málum landbúnaðarins þar
sem þörfin var mjög brýn.
Jarðeignum var skipt upp
fyrir nokkrum árum og tækni
aukin bæði í jarðrækt og
kvikfjárrækt. Fangelsin, sem
áður voru full af pólitískum
föngum halda nú fáum slík-
um að því þeir segja, sem
Framhald á bls. 19
Keisarahjónin í fran.
'Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
iRitstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
ŒUtstjórn og afgreiðsla:
Auglýsingar:
í lausasölu:
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-J100.
Aðalstræti 6. Sími 02-4-80.
7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
OFREMDARASTAND
¥ gær birti Mbl. frétt þess
efnis að íslenzkt síldar-
skip, sem var að veiðum 800
mílur frá íslandi, hefði orðið
að leita læknisaðstoðar hjá
rússnesku spítalaskipi vegna
alvarlegs sjúkleika eins skip-
verja. Skipstjórinn á síldar-
skipinu sagði í viðtali við
Mbl. í gær: „... ég vil helzt
ekki hugsa um hvað hefði get
að gerzt, ef við hefðum þurft
að stíma í fjóra sólarhringa
((
Þessi atburður sýnir glögg-
lega þær hættur, sem því eru
samfara, þegar fiskiskip okk-
ar leita á svo fjarlæg mið.
Mannslíf getur verið í veði, ef
læknisaðstoð er víða fjarri.
Að þessu sinni tókst betur til
en áhorfðist vegna þess að
rússneskt spítalaskip var á
svipuðum slóðum og veitti
nauðsynlega aðstoð.
Alþingi veitti ríkisstjórn-
inni á síðasta þingi heimild
til þess að ráða lækni til
starfa í þágu síldarflotans en
allar tilraunir ríkisvaldsins
til þess að fá lækni til þess-
ara starfa hafa fram til þessa
reynzt árangurslausar.
Hér er um ófremdarástand
að ræða, sem ekki verður við
unað. Ríkisvaldið hefur gert
tilraun til þess að ráða lækni
án árangurs. Einstætt virð-
ist að læknasamtökin sjálf
taki mál þetta til meðferðar
og beiti sér fyrir því að lækn-
ir fáist til þessara starfa. Því
verður ekki að óreyndu trúað,
að einhver ungur læknir fá-
ist ekki til slíkra starfa. Það
er raunar mikill sómi fyrir
ungan lækni að fá tækifæri
til þess að starfa meðal síldar-
sjómanna okkar á hinum fjar-
lægu miðum. Vonandi verð-
ur þessi atburður til þess, að
úr rætist og læknir fáist til
starfa á miðunum. Sú skylda
hvílir ekki einungis á ríkis-
valdinu heldur einnig á
læknasamtökunum.
AUKIN TÆKNI-
ÞEKKING OG
NÝJAR FRAM-
LEIÐSLU-
GREINAR
¥ útvarpsviðtali fyrir nokkr-
um dögum sagði Bjarni
Benediktsson, forsætisráð-
herra, að hann teldi tímabært
að hefja nú á ný athuganir
á því hvort kleift sé að
byggja olíuhreinsunarstöð
hér á landi, en sem kunnugt
er fóru slíkar athuganir fram
fyrir nokkrum árum á vegum
einstaklinga og olíufélaganna.
Þegar hefur verið sýnt
fram á, að olíuhreinsun
hér á landi mundi verða
ábatasamt fyrirtæki, en ekki
er síður mikilvæg sú tækni
þekking, sem skapast mundi
í landinu með byggingu slíkr
ar stöðvar.
Bygging stöðvarinnar
mundi skapa töluverða at-
vinnu og víðtæka tæknikunn-
áttu og jafnframt gefast tæki-
færi til margvíslegrar ann-
arrar framleiðslu. Ein þeirra
er asfaltframleiðsla. Með hlið
sjón af þeim miklu verkefn-
um, sem óunnin eru hér við
gerð varanlegra vega mundi
slíkt þjóðarbúinu í heild mjög
mikilvægt. Þá skapast einnig
grundvöllur fyrir margvís-
legan efnaiðnað.
Margir hafa óttast, að við-
skiptum okkar við Sovétrík-
in yrði stefnt í hættu, ef olíu-
hreinsunarstöð yrði byggð
hér á landi. Þá hlið málsins
verður að kanna vandlega. En
kostir þess að koma á fót olíu-
hreinsunarstöð hér eru marg-
ir og þess vegna er ástæða
til að fagna yfirlýsingu for-
sætisráðherra um mál þetta.
BLANDAÐUR
ÁBURÐUR -
NÝ FRAM-
LEIÐSLA
¥ ræðu þeirri, sem Ingólfur
■*• Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, flutti á aðalfundi Stétt-
arsambands bænda ræddi
hann m.a. stækkun Áburðar-
verksmiðjunnar og sagði:
„Stjórn Áburðarverksmiðj-
unnar hefur látið fara fram
rannsóknir og áætlanir um
stækkun verksmiðjunnar og
breytingar á henni, til þess að
gera mögulegt að framleiða
blandaðan áburð. Gert er ráð
fyrir að þrenns konar bland-
aður áburður verði fyrir
hendi eftir breytingarnar.
Gert er ráð fyrir að breytingu
á verksmiðjunni verði lokið
um það leyti, sem virkjunin
við Búrfell tekur til starfa.
Til þess að svo megi verða
þarf undirbúningi að ljúka í
vetur og útboð að fara fram,
svo hefjast megi handa um
framkvæmdir á næsta ári.“
Landbúnaðarráðherra ræddi
einnig heykögglaframleiðslu
í ræðu sinni og sagði: „Hey-
kögglaverksmiðjan í Gunn-
arsholti hefur vakið athygli
og framleiðsla hennar er eft-
irsótt. Á þessu sumri verða
framleidd um 500 tonn af hey
kögglum. Framleiðsluafköst
verksmiðjunnar geta verið
um 800 tonn, ef unnið er á
þrem vöktum. Þar sem slík
verksmiðja er staðsett þarf
Krýningarhásæti keisarans — til vinstri, geimsteinabúið rúm og til haegri krýningarhásæti
keisarainnnnnar.
60% gjaldeyristryggingar Persa
notuð við krýningu keisarans..
að vera fyrir hendi nægilegt
gras og ræktunarmöguleikar.
Ýmsir hafa rætt um nauðsyn
þess að koma upp þess konar
verksmiðju á Norðurlandi,
þar eð heykögglarnir geym-
ast vel, eru helmingi ódýr-
ari í flutningi en hey, og því
mjög hentugt að mynda fóð-
urbirgðir með þessum hætti,
sem gætu komið landinu ollu
að gagni.“