Morgunblaðið - 25.11.1967, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓV. 1««7
iwinittMftfrffr
Útgefandi: Hf. Árvakur, R'eykjavík.
Framkvæmdastj óri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur.
' Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
VINNUFRIÐUR
F|agurinn í gær var við-
** burðarríkur. Seðlabanki
fslands gaf út tilkynningu
um að gengi íslenzku krón-
unnar hefði verið lækkað um
24,6% miðað við bandarískan
dollar. Forsætisráðherra lýsti
því yfir að frv. um greiðslu
verðlagsuppbótar á laun skv.
nýju vísftölunni hinn 1. des.
n. k. yrði væntanlega lagt
fyrir Alþingi í dag og mið-
stjórn Alþýðusambands ís-
lands tók ákvörðun um að
mæla með því við þau aðild-
arfélög sín, sem boðað hafa
verkfall að þeim verði aflýst.
Þannig hafa í skjótri svipan
verið leyst ýmis erfið vanda-
mál, þótt önnur fylgi í kjöl-
farið til úrlausnar eins og
alltaf er.
Öllum landsmönnum mun
vafalaust þykja mest um
vert, að nú má búast við að
vinnufriður hafi verið tryggð
ur um sinn a. m. k. Ríkis-
stjórnin hefur fyrir sitt leyti
stuðlað að því með því að
leggja til vegna breyttra að-
stæðna að verðlagsuppbót
jrerði greidd á laun 1. des.
n. k. um leið og forsætisráð-
herra hefur lýst því skýrt
yfir að það sé óhagganleg
skoðun ríkisstjórnarinnar að
sjálfkrafa vísitöluhækkun
launa sé mjög varhugaverð
á þeim tíma, sem áhrif geng-
islækkunarinnar eru að koma
fram og að ríkisstjórnin muni
í samræmi við það leggja til
að lagaákvæði um vísitölu-
bindingu launa verði numin
úr gildi en það verði samn-
ingsatriði milli verkalýðs-
samtaka og vinnuveitenda,
hvort og að hve miklu leyti
hún verði tekin upp á ný.
Alþýðusamband íslands
hefur af sinni hálfu sýnt sam-
komulagsvilja sinn með því
að mæla með því, að verk-
föllum verði aflýst vegna of-
angreindrar ákvörðunar rík-
isstjórnarinnar enda er sú
afstaða í samræmi við fyrir-
hugaða kröfugerð verkalýðs-
félaganna. Enn einu sinni
hefur því tekizt að varðveita
vinnufriðinn í landinu og hef
ur hann nú staðið samfleytt
að mestu um fjögurra ára
skeið. Þessi mikilsverði ár-
angur hefur ekki sízt náðst
vegna þess að gagnkvæmt
traust hefur skapazt milli
forustumanna ríkisstjórnar-
innar og verkalýðssamtak-
anna. Þessum málalokum
munu landsmenn fagna og
treysta því, að þær samninga-
viðræður sem síðar verði
vafalaust teknar upp beri
einnig jákvæðan árangur.
Það hefur legið ljóst fyrir
frá því að gengi sterlings-
pundsins var lækkað sl. laug-
ardag, að óhjákvæmilegt
mundi verða að breyta gengi
íslenzku krónunnar. Um það
hefur enginn ágreiningur
verið en þær athuganir sem
síðan hafa farið fram hafa
beinzt að því að meta hve
mikil gengisbreytingin skyldi
verða.
Seðlabankinn hefur nú í
samráði við ríkisstjórnina
ákveðið að lækka gengi krón-
unnar um 24,6% miðað við
bandarískan dollar. Sú
ákvörðun byggist á því, að
þar sem gengisbreyting var
óumflýjanleg vegna falls
pundsins væri eðlilegt að
miða gengisbreytingu krón-
unnar við það, að heildar-
lausn fengist á þeim erfið-
leikum, sem við hefur verið
að etja í íslenzku efnahags-
og atvinnulífi að undanförnu
vegna verðfalls og aflabrests.
Gengislækkunin nú miðar að
því að undirstöðuatvinnuveg-
ir þjóðarinnar geti starfað
styrkjalaust um leið og ýms-
ar greinar iðnaðar hljóti
bætta rekstraraðstöðu.
Það skiptir nú höfuðmáli,
að sú gengisbreyting krón-
unnar sem ákveðin hefur ver-
ið, verði til þess að skapa við-
unandi jafnvægi í efnahags-
lífinu og að hið nýja gengi
geti staðið til frambúðar jafn-
framt því sem rekstrargrund-
völlur atvinnuveganna verði
treystur svo sem kostur er
og nauðsynlegar umbætur
verði gerðar í ýmsum grein-
um atvinnuveganna til þess
að auka framleiðni þeirra og
verðmætasköpun. Til þess að
svo megi verða er nauðsyn-
legt að víðtækt samstarf tak-
izt milli ríkisvalds, atvinnu-
rekenda og verkalýðssamtaka
um ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir örar verð-
lags- og kaupgjaldshækkanir
í landinu. Sá vinnufriður,
sem nú hefur væntanlega
skapazt um sinn a. m. k. er
þýðingarmikil forsenda þess,
að slíkt samstarf takizt. Geng
islækkunin verður til þess að
örva mjög allt atvinnulíf í
landinu og má þá búast við
að atvinna aukizt og þar með
tekjur verkafólks. Þess vegna
benda allar líkur til, að tekj-
ur launþega geti aukizt tölu-
vert, þótt ekki komi til al-
mennra og verulegra launa-
hækkana.
Óvæntir atburðir erlendis
hafa nú orðið til þess að
vandamál íslenzks efnahags-
og atvinnulífs verða leyst eft-
ir öðrum leiðum en ráðgert
var. Ef gengi íslenzku krón-
Panaoytis Pipinellis, - nýi utan-
ríkisráðh. grísku herstjórnarinnar
SKYNDILEGA hefur athygli
alls heims verið beint að eynni
Kýpur að nýju og þeirri
hættu, að til styrjaldar kunni
að draga milli Grikkja og
Tyrkja vegna eyjarinnar. —
Ólíklegt er annað, en bæði
þessi ríki vilji forðast svo vá-
legan atburð í lengstu lög, en
samt er greinilegt, að takmörk
eru fyrir því, hve langt þau
vilja ganga til móts við hvort
annað í því skyni að forðast
styrjöld. Kýpurdeilan er þeim
greinilega viðkvæm, og það
svo, að svo virðist, sem þau
kjósi heldur að láta vopnin
skera úr, en verða að láta í
minni pokann hvort gagnvart
öðru, að þvi er Kýpur varðar.
Hvort úr þessu máli rætist, er
mjög komið undir því, hvern-
ig Panayotis Pipinelli, hinn
nýi utanríkisráðherra Grikk-
lands heldur á spilunum. —
Hann var skipaður í stöðu
sína fyrir nokkrum dögum og
hefur ástæðan sennilega verið
framar öðru sú, að talið var,
að hann yrði líklegur til þess
að megna að leysa deiluna á
viðunandi hátt fyrir Grikki,
án þess að til styrjaldar dragi,
en þá var Ijóst, að deilan milli
Grikkja og Tyrkja vegna
Kýpur var að komast á háska
legra stig en nokkru sinni áð-
ur og er þá langt til jafnað.
Pipinelli, utanríkisráðherra,
er 68 ára gamall. Hann er
mikill fylgismaður konung-
dæmisins í Grikklandi og
styður herforingjastjórn þá,
sem nú hefur völdin í sinni
hendi þar í landi. En það er
ekki einungis Kýpurdeilan,
sem orðið hefur þess vald-
andi, að Pipinelli varð utan-
ríkisráðherra. Þessi ráðherra-
stóll hefur verið auður í
nokkrar vikur og skipun Pipi-
nellis í stöðu utanríkisráð-
herra hefur sennilega verið
málamiðlun milli konungsins
annars vegar og hins sterka
manns herstjórnarinnar hins
vegar, þ.e. Georgs Papadop-
oulos ofursta. Sennilega á
þetta einnig að vera vísbend-
ing til annarra, sem til hægri
eru, að þeir geti líka átt að-
gang að ráðuneyti herstjórn-
arinnar, ef þeir eru reiðu-
búnir. til þess að fallast á
„hina nýju skipan“.
Pipinelli lýsti því yfir hinn
5. okt. sl., að hann styddi her-
stjórnina, en í mörg ár hefur
hann verið ráðgjafi konungs-
fjölskyldunnar í stjórnmálum
og m.a. fylgt henni, þegar
hún hefur neyðzt til þess að
fara í útlegð. Samtímis stuðn-
ingsyfirlýsingu sinni við her-
stjórnina skoraði hann á
Grikki að gefa herstjórninni
tækifæri til þess að sýna,
hvers hún væri megnug.
Sennilega er það framar
öðru þessi yfirlýsing og klofn-
ingsstarfsemi, sem Pipinelli
hefur haft í frammi á meðal
hægri manna, sem andvígir
eru herstjórninni, er valdið
hefur því, að Pipinelli var
gerður að utanríkisráðherra.
Hann er mjög ákveðinn samn-
ingamaður, en afturhaldssam-
ur í skoðunum og virðist líta
á hverja tilraun til þess að
koma á frjálslegra nútíma-
fyrirkomulagi í grískum
stjórnmálum sem samsæri, er
kommúnistar standi að baki.
Pipinelli hefur hins vegar
talsverðan feril að baki sér
sem stjórnmálamaður. Hann
var utanríkisráðherra 1950,
forsætisráðherra 1963 og sam-
ræmingarmálaráðherra í
stjórn Kanellpopoulos, for-
sætisráðherra, unz stjórn hins
síðarnefnda var steypt af stóli
'af hernum í apríl sl.
Kýpurmálið verður sjálf-
sagt eitt örðugasta viðfangs-
efni, sem Pipinelli hefur
nokkru sinni átt við að etja
og það þolir enga bið. Við-
ræður þær, sem fram hafa
farið á milli tyrknesku og
grísku stjórnarinnar, og eng-
an árangur báru, síðan úr-
slitakostir Tyrkja og loks frá-
vikning Grivasar hershöfð-
ingja, sem yfirmanns herliðs
Grikkja á Kýpur, allt er þetta
til þess fallið að draga úr
hinni takmörkuðu virðingu,
sem Grikkir bera fyrir her-
stjórninni.
Ef Pipinellis tekst ekki að
finna lausn í samkomulagsátt
milli grísku og tyrknesku
stjórnarinnar, sem svo mikið
er undir komið nú, er eins
víst, að ferill hans sem utan-
ríkisráðherra grísku her-
stjórnarinnar verði ekki lang-
Pólitískir fangar
í Grikklandi pyndaðir
London, 24. nóv. NTB-Rauter
BREZKUR lögfræðingur, Cedric
Thornberry, sem er nýkominn frá
Grikfclandi, ritar í dag grein í
blaðið .,Guardian“. Þar eru ljót-
ar lýsingar á pyndingaraðferðum
sem grískir fangar eru beittir, að
sögn Thornberrys. Hann segir,
að fangar séu pyntaðir á kerfis-
bundinn og' þrautskipulagðan
hátt, ýmist með barsmíðum, raf-
magnslosti og sýndar-aftökum.
Greinarhöfundur segir. að
margir þeirra, sem pyntaðir voru
hafi nýlega verið leiddir fyrir
rét í Aþenu og dæmdir eftir þau
réttarhöld, sem enga lagalega
stoð hafa haft. Thornberry kveðst
hafa upplýsingar sínar frá fólki,
sem náin afskipti hafði af réttar
höldunum og að hann trúi þeim
fastlega.
Hann segir, að stúdína ein hafi
í fangelsinu verið klædd úr
hverri spjör og Iamin til óbóta
og ekki hætt fyrr en allur líkam
inn var blár af mari. Verðirnir
tveir, sem framkvæmdu pynding
arnar á stúlkunni sneru síðan
upp á brjóst hennar. og þegar
hún þverskallaðisst enn, reittu
þeir öll hár af kroppnum á henni
og neyddu hana til að éta þau.
Annar kvenfangi var einnig af
klæddur, hvert líkhár reitt af
og undirbúin var aftaka henn-
ar. En í Ijós kom, að það var
aðeins liður í andlegri misþyrm-
ingu. f fimm klufckustundir var
stúlkan lamin linnulaust og lög-
regluforingi einn sat kyrfilega á
mjöðmum stúlkunnar til að hún
gæt-i sig ekki hreyft.
Einn kvenfangi var sett í
myrkraklefa, sem var einn og
hálfur fermetri að stærð. Þar
var hún látin hírast matarlauis
í fjóra sólarhringa og allan tím
an sprautuðu fangaverðir vatni
á gólfið. Eftir vistina í myrkra
stofunni var hún slegin undir
iljar með járnstöng og með sand
pokum annars staðar á skrobk-
inn.
Meðan því fór fram sat fanga
vörður afan á stúlkunni til að
koma í veg fyrir að hún gæti
streitzt á móti.
Fanga einum var sagt, að
hann yrði skotinn, ef hann
leysti eklki frá skjóðuni. Síðan
var bundið fyrir augun á hon-
um og lögreglumenn drógu byss
ur upp úr pússi sínu og skuibu
mörgum skotum allt í bringwm
hann. Greinarthöfundur segir
þetta mjög tíðkaða pyndingar-
aðferð.
Eitt kvöld kom lögreglan með
mann. Við sáum hann ekki, en
við heyrðum í vélinm, þeg.ar
hún var sett af stað og við heyrð
um hrópin. Það voru ekki eins og
óp mannlegrar veru. Fjórar næt
ur í röð var maðurinn pyndað-
ur með þessum hætti frá klukk-
an hálf ellefu á kvöldin til hálf
fimm næsta morgun
Thornherryi segir, að gríska
tónskáidið Mikis Tlieodorakis
hafi verið fluttur úr kiefa sín-
um tiil að koma pyndingar vél-
inni fyrír.
unnar hefði ekki verið lækk-
að í kjölfar á gengisfalli
sterlingspundsins hefði það
þýtt um 400 milljón króna
áfall, fyrir útflutningsat-
vinnuvegi okkar, sem þeir
með engu móti hefðu getað
staðið undir á sama tíma og
verðmæti útflutningsins hef-
ur þegar lækkað um fjórðung
og lækkar líklega enn meir
þegar litið er á árið í heild.
Nú hefur nýtt blað verið
brotið í íslenzkum efnahags-
og atvinnumálum. Mikilvægt
er, að þær ráðstafanir sem
gerðar hafa verið beri já-
kvæðan árangur. Til þess að
ná þeim árangri getum við
byggt á reynslu fyrri ára og
því, sem þá hefur farið öðru
vísi en ætlað var. í þeim efn-
um er þýðingarmikið að víð-
tæk samvinna takist milli
allra þeirra, sem hafa sýnt að
þeir vilja vinna af ábyrgðar-
tilfinningu að lausn vanda-
mála þjóðarinnar.