Morgunblaðið - 25.11.1967, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓV. 1967
31
Gullæðið nær hámarki
f - Þrengt að dollarnum
Dollarinn verður ekki fslldur
London, San Antonio, París,
Ziirich og Jóhannesarborg,
24. nóvember. NTB-AP.
„Gullæðið" í kauphöllum
í London og París náði há-
marki í dag og bandaríski
dollarinn varð fyrir auknum
þrýstingi, en Johnson, forseti,
hyggst ekki fella gengi doll-
arins, að því er blaðafulltrúi
hans sagði í San Aantonio í
dag. Hann bætti því við, að
gullforði Bandaríkjanna væri
nægilegur við þær aðstæður
er nú ríktu.
f London var eftirspurnin ett
ir guili enn meiri en undan-
farna daga. I París nam veltan
í gær 30.8 milljónum franka og
var það algert met, en í dag
tvöfaldaðist veltan og nam 62.8
milljónum franka. í Zurich stöðv
uðu fimm helztu barikar borgar
innar sölu á gulli til braskara er
reyndu að hagnast á hiniun al-
þjóðlegu gjaldeyrisvandræðum. í
Jóhannesarborg greip einnig um
sig gullæði, ogy gullverðbréf
hækkuðu um 10% að meðaltali.
„Það er ekkert lát á eftirspurn
inni og ef þessu heldur áfram
fáum við allir taugaáfall“, sagði
sérfræðingur í London. Ekkert
getur stöðvað gullbraskið, ekki
einu sinni yfirlýsingar frá
Bandaríkjunum þess efnis að
bandaríska stjómin hyggist
verja dollarinn jafnvel þótt liún
yrði að eyða öllum gullforða sín
um.
í París er sagt, að það séu að-
allega „minni háttar spákaup-
menn“ sem standi á ba.t við
gullæðið þar. Þetta bendir til
þess að traust manna á albjóð-
leguim gjaldeyri hafi beð ð mik
inn hnekk eftir fall steríings-
pundsins og að ýmsir óttist að
Bandaríkjamönnuim takist ekki
að verja dollarann. Eitt af því
sem ýtti undir hina miklu gul‘1-
sölu í dag voru lausafregnir um,
að Belgir og ítalir 'hyggist segja
siig úr hinum svokallaða ,,gull-
sjóði“ sem átta auðugu.ríu ríki
heims eiga aðild að. Síðan í júní
hafa Frakkar neitað að taka þátt
í störfum sjóðsins og fjármála-
menn í París segja að Frakkar
safni nú kröftum til að knýja
fram hækbun á gullverð'nu.
Ahyggjur í Bandaríkjunum.
Bandaríiskir embættísmenn
hafa haft þungar áhyggjur af
gullæðimu í Evrópu síðustu daga,
en ekki l'á'tið í Ijós ugg um gengi
diollarans.
Þegar blaðafulltrúi Joi" ns;>ns
forseta, George Ohristian, va” að
því spurður í San Antonio í dag
hvað áhrif gullæðið hefði á doll
arann, vitnaði hann í þá yfir
lýsingu Jolhnsons forseta frá 18.
nóvember, að Bandaríkin sfandi
fast við þá skuldbindingu sína
að kaupa og selja gull á nú'/er-
andi gengi sem er 35 iollarar
fyrir únsuna. Ohristian játaði,
að ástandið á hinum alþióðlega
gullmarkaði væri „óstöðugt", en
bætti þvi við að seðlabankar í
Evrópu að Frakklandi undan-
skildu væru sammála Bandaríkja
mönnum um, að gullverðið msgi
ekki hækka.
Eftir fall sterlingspundsins var
við því búizt að dollarinn yrði
fyrir erfiðleikum, og á það er
bent að kaup á gulli aukist allt
af þegar alvarlegt áitand rík-
ir, eins og í styrjöld Araba og
tsraelamanna í sumar. En em-
bættismenn í Washington játa,
að guMbraskið í þessari viku
bendi til þess að sú skoðun sé
útJbreidd að verð á gulli mu;ii
hækka.
Síðan 1934 hafa Bandaríkja-
menn tryggt að gull á alþjóða-
markaði sé stöðugt í verði og
boðizt til að kaupa eða selja
erlendum seð'labönkum gull fyrir
35 dollara únsuna. Ef gull hækk
ar í verði fá seðlabankar fleiri
dollara fyrir gullið, og þá get-
ur svo farið að gengi doUarans
lækki. Síðan 1958 hefur gengið
á gullforða Bandaríkjamanna ár
frá ári og heildartapið nemur
6.849 milljónum dollara.
370 lestir seldar?
í New York áætlaði sérfræðmg
ur í alþjóðaviðskiptum, dr.
Franz Pick, að undanfarna daga
hefði verið hamstrað sem nem-
ur 370 lestum gulls sem er að
verðgildi 425.98 milljónir doll-
ara. Hann kveðst hafa eftir he:m
ildum í Evrópu, að braskarar
hefðu keypt 150 lestir í dag. 100
lestir í gær og 120 lestir í fyrra
dag. Hann taldi, að Bandarík-
in hefðu tapað 600 milljóaum
dollara síðan gengi steríings
pundsins var fellt.
Pick sagði, að 400 únsa gull-
stengur væru seldar fyrir 36.35
dollara á únsuna eftir lokunar-
tíma í Sviss og 31-únsa gull-
stenigur á 35.80 dollara. Seðla-
bankinn í New York vill ekk
ert lóta uppi um hve miklu
Bandaríkjamern hafa tapaó af
gulli siðuistu daga.
í Bretlandi eru embættismerm
og fjármálasérfræðingar sann-
færðir’um, að gullæðið eigi m.a.
rót sína að rekja til ákveðian-
ar tilraunar af hálfu de Gaull-
es Frakklandsforseta til þess að
hrifisa forystuhlutverkið í a;-
þjóðafjármálum úr höndam
Bandaríkjamanna.
Eitt af því sem Bandaríkja-
menn geta gert í varnarskyni er
að binda enda á fjárfestingar sín
ar í Evrópu, einkum Frakklanói
og þurrausa þanniig dollaraforða
þann, sem Frakkai hafa ti! um-
ráða til þess að breyta í gull.
Önnur gagnráðstöfun er Banda-
ríkjamenn geta gripið til er að
hætta guUtryggingu dollarans
og losa þannig um gull að verð
mæti 10 milljarðar dollara. Sér-
Framhald á bls. 12
Stórtap Verkamanna-
flokksins í Matlock
Matlock, Englandi, 24. nóv.
— AP—NTB —
STJÓRN Verkamannaflokksins í
Bretlandi varð fyrir enn einu
áfallinu í dag, er úrslit voru
kunn í aukakosningunum í land
búnaðarhéraðinu Matlock á Mið
Englandi. Lenti frambjóðandi
Verkamannaflokksins þar í
þriðja sæti og tapaði um 13%
atkvæða yfir til íhaldsflokksins.
Frambjóðandi íha ldsflokksins
var James Soott Hoþkins — fyrr
um ráðuneytisstjóri ‘ Lndbún-
arráðuneytinu. Hann hlaut 16.
319 atfcvæði, en frambjoðandi
Verkamannaflokkisinis, Robii Cor
bett, aðeins 5.284 atkvæðL Með
þessuim únsUtum heifur enn lækk
að meirihluti Verkamannaflokks
ins í Neðri má'lstofunni. Hann
hefiuir nú 354 þingmenn o.g íhalds
filokkurinn 255.
Formaður íihaldsflokksins, Ant
hony Barber, kvaðst mjög ánægð
ur með úrslitin og sagði, að þau
væru dómur kjósenda yfir geng
isfel'lingu stjórnarinnar ag fram
komu hennar í efnahagsmálum
landsins yfirleitt.
Íhaldsflokkuírinn hefur haft
þetta kjördæmi frá þvi árið 1950
og kiom því ekki á óvart, að
hann skyldi sigra. öllu athygl-
isverðara er hversu mikið at-
kvæðamagn hann hefur lekið
frá Verkamannaflokknum, sé
miðað við fyrri kosningar — eða
um 13%. Frambjóðandi Frjáls-
lynda flofcksins hlaut 5.692 at-
kvæði og Óháðu/r frambjóðandi
R. Goodall, hlaut 1496 atkvæði.
Fyrirhugaðar eru aukakosning
ar í fjórum kjördæmum á næst-
unni — þar af þremur, sem
Verkamannaflokkurinn hefur
haft lengi og er úrslitanna þar
beðið með mikilli eftirvæntingu.
Alla jafna er minni bátttaka
i aukakosningum en í þiigkosr-
ingum. í kosningunum í Matlock
var nú þátttaka til dæmis 64 5%
en var í síðustu bingkosningum
83,4%.
í NTB frétt frá London segir,
að sfcoðanakönnun nýlega hafi
æitt í ijós, að meirihluti brezkra
kjósenda muni telja réttmætt, að
Wilson forsætisráðherra eíni
til nýrra kosninga nú. 54%
þeirra, sem spurðir voru, töldu
að stjórnin ætti að segja af sér
og efna til kosninga, 43% voru
þvi andvígir.
Ökumaður þessarar Volvo Lapplander bifreiðar var "einn þeirra
sem varaði sig ekki á hálkunni í fyrradag. Afleiðingin var sú að
hann missti stjóm á henni og lenti fyrir utan veginn — á hliðinni.
Skemmdir á bifreiðinni urðu talsverðar en engin slys á mönnum.
Ölvaðir menn virðast hafa ríka tilhneigingu til að taka upp hægri
akstur, og ökumaður fólksbifreiöarinnar á þessari mynd er annar,
sem á fáum dögum líður fyrir þessa tilhneigingu. Hann var að aka
suður eftir Réttarholtsveginum — á hægri akrein — þegar hann
mætti vörubifreið. Ökumaður vörubifreiðarinnar kom norðan að,
hélt að hinn ætlaði að fara út á autt svæði hægra megin vegarins
og beygði því. En hinn fylgdi fast á eftir og ók á mikilli ferð inn
í hlið vörubifreiðarinnar. Farartæki hans stórskemmdist, en báðir
sluppu mennimir ómeiddir.
Kjarasamningar far-
manna framlengdir
— til 31. júlí, með ýmsum breytingum
1 SAMKOMULAGI um lausn
farmannadeilunnar segir meðal
annars að kjarasamningar við-
komandi aðila skuli framlengjast
til 31. júlí 1968 með þeim Dreyt-
ingum sem hér fara á eftir, auk
þeirra atriða sem gerðatdómur
úrskurðaði 30. október 1967.
Frídagarnir 20 sem greindir
em í kjarasamningum stýri-
manna, vélstjóra og loftskeyta-
manna skulu jafngilda 23 almain
aksdögum og þeir fridagar sem
ekki em teknir skulu greiddir
með 1/30 af mánaðarkaupi að
viðbættu 60% álagi.
Gjlda í styrktar- ag sjúkra-
sjóði viðkomandi stéttarfélaga
skal verða kr. 3 í stað kr. 2. Þeg
ar flutt eru skotfæri eða sprengi
efni fyrir varnarliðið skal áhöfn
fá 10% álag á allt kaup msðan
varningurinn er um borð og þá
tvöfa'ldast einnig líf- og örorku-
trygging skipverja.
Þá skal níu manna nefnd eem
skila á áliti fyrir 1. júní n.k.
taka til gagngerðrar athugunar
kaup og kjör hlutaðeiga'nd; far
manna svo og samlbærilega starfs
hópa í landi, kjarasamninga og
löggjöf á hinuim Norðuriöndun-
um er fjalla um skattfríð'ndi sjó
manna. Sérstaklega skal nefndin
kanna hvers konar ákvæði um
sérstaka þóknun fyrir vakta-
vinnus, aukagreiðslu vegna fjar
veru frá heimili og hnattlegu
og ófriðarhættu. Þá skal nefnd-
in kanna og gera tillögur um
ef komið verði við breyíinaum
á vinnutilhögun og a'hafnar-
stærð bættum tækniútbúr.aði
um borð og við land, senn bætt
geti rekstrarafkomu skipafélag-
anna, með það fyrir augum að
bæta kjör samningsaðila. Verði
hækkun á meðaltalskaupi verka-
manna í Reykjavík fyrir 1. júlí
1968, skuilu kauptaxtar samnings
þessa hækka hlutfallslega.
Þetta var undirritað með þeim
fyrirvara að ríkistjórnin beitti
sér fyrir eftirfarandi atriðum:
Þar eð vitað er, að breyting
á lögunum um tekjufrádrátt til
skatts vegna hlífðarfatakostnað-
ar fyrir aðra sjómenn en fiski-
menn, sem samþykkt var á sl.
vori, hefur ekki verið framfy'.gt
til fullnustu við álagningu tekju
skatts og tekjuútsvars á árinu
1967, heitir ríkisstjórnin því, að
beita sér fyrir að úr þessu verði
leiðrétt á þeim sjómönn rn, sem
ekki hafa fengið þann tekjufrá-
drátt, sem þeir eiga rérí á, sam
kvæmt framangreindum lögum.
2) Ríkisstjórnin heitir að beiia
sér fyrir, að þeir meðlimir F.F.S.
í., sem ekfci hafa átt kost á út-
hlotun ílbúða, sem byggðar hata
verið á vegum framkvæmda-
nefndar byggingaráætlu \armnar,
vegna veru sinnar í stéctarfé-
lagi utan A.S.Í., skuli, ef sömu
skiLmálar eru uppfylltir og hjá
meðlimum Alþýðusamb? ndsins,
njóta hliðstæðrar fynrgreiðslu,
ef viðkomandi stéttarsamtök ráð
ast í slíkar byggi igarfram-
kvæmdir.
3) Til þess að leysa deilu þá,
sem yfir stendur, bjit'X rík's-
stjórnin að beita sér fyrir breyr-
ingu á lögunum um tekjuskatt
og eignarskatt á yfirstandandi
þingi, á þann veg, að kr. 3.000.00
pr. mánuð, frádráttur fvnr hvern
fiskimann, nái til allra islenzkra
sjómanna, skráða á islenzk skip,
enda hafi þeir verið skioverjar
á nefndum skipum eigi skemur
en (6) sex mánuði.
Ástin er tímaþjófur
— segja Kínverjar
Prag, 24. nóv. AP.
„ÁSTIN er einskær tímaeyðsla og
væri betur, að fólk notaði timann
í þjónustu föðurlandsins og hug-
sjónanna“ hefur tékkneskt dag-
blað eftir grein í kínversku
blaði.
í kínversku greininni er sagt,
að gönguferðir ungra elskenda
í kvöldhúminu, setur þeirra á
bekkjum í skemmtigörðum sé
vítavert og dýrmætur tími fari
þax til sþillis.
Blaðið bætti við, að verkamenn
og stúdentar fari alltof snemma
að þýkjast verða ástfangnir og
hugsa til að stofna heimili. Þetta
séu ill áhrif frá úreltu borgara-
legu þjóðfélagskerfi. Líta verði
á slík ástarævintýri sem afleitar
freistingar frá óvinum alþýðunn.
ar og þetta tefji ungt fólk frá
því að taka þátt í uppbyggingu
stjórnarkerfis og hætta á að hug
sjónir byltingarinnar dvíni og
týnist, ef ekki verður gripið til
róttækra aðgerða gegn hinum var
hugaverða tímaþjófi heimsvalda-
sinna: ástinnL