Morgunblaðið - 03.01.1968, Page 24
Sfówgnstfcf&frtfe
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍIVII 1Q.10D
tiri0íituií»!ÍRÍ>i^
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1968.
AUGLYSIN6AR
SltVll S,2»4.BO
Brunaboðar í Reykjavík óöruggir
vegna skemmda á rafmagnstöflu
ELDUR kom upp í gömlu slökkvi
stöðinni við Tjarnargötu 12,
laust eftir klukkan eitt í fyrri-
nótt, og urðu nokkrar skemmd-
ir á húsinu, en erfitt reyndist að
Þungfært
í Reykjavík
MJNGFÆRT var víða í Reykja
vík í gær, og jafnvel nokkur
brögð að því að menn yrðu að
skilja bila sína eftir í sköflum
og brjótast áfram gangandi. Þeg
ar Morgunblaðið hafði samband
við lögregluna um kl. 10 ■ gær-
Framh. á bls. 16
komast að eldinum. Eldurinn
kom upp í rafmagnstöflu á
neðstu hæðinni, en við hana eru
tengdir allir brunaboðar í
Reykjavík. Þar hefur slökkvi-
liðið jafnan vaktmann og varð
hann eldsins var og tilkynnti
um hann.
Kveikt í bálkestinum á Miklatúni kl. 11.
Áramótin voru óvenju friösæl
Færra fólk við brennurnar
í Reykjavík en venjulega
Auk þessarar varðstofu eru
þarna til húsa Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur og Starfsmannafé-
lag Reykjavíkurborgar, og urðu
nokkrar skemmdir á báð-
um stöðum .Rúnar Guðmunds-
son, siökkviliðsstjóri, sagði
Morgunblaðinu, að slökkvistarf-
ið hafi verið nokkuð erfitt vegna
þess, að timiburgólf er í húsinu
og komst eldurinn þar á milli
og auk þess í loftræstinga-
strokka. Þurfti að rjúfa vegg til
að komast að eldinum.
Slökkvistarfinu var þó lokið
eftir um eina og hálfa klukku-
Framh. á bls. 16
var virkur félagsmálamaður og
átti lengi sæti í stjórn Blaða-
mannafélags íslands og var for-
maður þess um skeið.
Jón Magnússon var kvæntur
Ragnheiði Eðvaldsdóttur Möll-
ers kaupmanns á Akureyri.
GAMLA árið kvaddi og hið nýja
kom án þess að nokkur meiri
háttar slys eða óhöpp yrðu. Tel-
ur lögreglan að þetta sé með al-
friðsömustu áramótum í árarað-
ir. Brennur voru víða í bænum,
en fremur fátt fólk safnaðist í
kringum þær, og mún veðrið
hafa valdið þar mestu um.
Kveikt var í flestum bálköst-
unum klukkan 10, en í aðalborg-
arbrennunni á Miklatúni klukk-
an 11. Urðu engin teljandi óhöpp
við brennurnar, og fór allt hið
bezta fram. Lögreglan tjáði Mbl.
að fólk hefði verið í færra lagi
við þær, enda fremur kalt í
veðri. Talsverð bílaumferð var
t.d. i grennd við Miklatúnið, en
þó minni en oft áður. Þurfti lög-
reglan aðeins að hafa þar af-
skipti af nokkrum piltum, sem
gerðu sér leik að-því að sprengja
kínverja í göngunum undir
Miklubraut, þar sem fólk var á
lefð með börn sín að brennunni.
MIKIÐ frost var um land allt
í gær og varð mest á Hveravöll-
um. 30.4 stig. Á Grímsstöðum
varð það 25 stig, á Egilsstöðum
20 stig og á Nautabúi í Skaga-
firði 21 stig. í Reykjavík varð
það um 15 stig. Gert var ráð fyr
ir að síðastliðna nótt yrði frost-
Tók lögreglan kinverjana af pilt-
unum.
Götulögreglan upplýsti, a'ð í
miðbænum hefði verið sérstak-
lega friðsamt á gamlárskvöld.
Mjög lítið hefði verið um manna-
ferðir þar, og lögreglumenn
hefðu vart þurft að hafa afskipti
af nokkrum manni, sem þar var
á ferð. Hefði kvöldið og nóttin
Framh. á bls. 16
ið víða 20 stig, sérstaklega ef
lægði. 1 dag var hinsvegar bú-
ist við að eitthvað hlýnaði. Þess
má geta að frost í Reykjavík er
nokkuð breytilegt, þar sem borg
in nær yfir stórt svæði, og ekki
er sama hvar mælarnir eru.
Mikiö frost um land allt
30,4 sticj á Hveravöllum
Jón Magnússon,
fréttastjóri látinn
J Ó N Magnússon, fréttastjóri
Ríkisútvarpsins, varð bráðkvadd
nr á götu í gær, en hann varð
58 ára á nýársdag.
Jón Magnússon
Jón fæddist á Sveinsstöðum
i Þingi í Austur-Húnavatns-
sýslu, sonur Magnúsar Jónsson-
ar, bónda þar og Jónsínu Jóns-
dóttur. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
1931 og lauk fil. cand. prófi frá
háskólanum í Stokkhólmi 1937 f
norrænum málum, ensku og bók
menntasögu.
Árið 1941 varð hann frétta-
stjóri Ríkisútvarpsins og gegndi
því starfi til dauðadags. Hann
kostar frá 1. janúar kr.
120,00 á mánuði. Auglýs-
ingaverð kr. 75,00 pr. ein-
dálka cm. Lausasöluverð
er óbreytt kr. 7,00.
Dr. Pál'l ísólfsson við orgelið í Dómkirkjunni. (Ljósm. Ól. K. M.)
Dr. Páll ísólfsson lætur af störfum
sem Dómorganisti eftir 27 ár —
DR. PÁLL ísólfsison, tón-
skáld, hefur látið af starfi
organista Dómkirkjunnar í
Reykjavík, starfi, sem hann
gegndi í 27 ár. Við árdegis-
messu í Dómkirkjiunni á ný-
ársdag skýrði séra Jón Auð-
unsv dómprófastur, frá þessu
og fór miklum viðurkenning-
arorðum um dr. Pál og list
hans. Risu kirkjugestir úr
sætum í þakkar- og virðing-
arskyni við dr. Pál.
í ræðu sinni á nýársdag
sagði séra Jón Auðuns, dóm-
prófastur, urn störf Dr. Pá'ls
ísólfssonar sem dómorgan-
ista:
,,í dag minnumst vér þess
í dómkirkju landsins, að dóm-
organistinn, dr. Páll ísólfs-
son, lætur af starfi hér í
kirkjunni með deginum dag.
Það er oss saknaðarefni mik-
ið, en verður svo að veTa.
Ekki aðeins hér í Reykja-
vfk, heldur um landslbyggðina
a'lla, hafa menn notið Iþeirrar
fráibæru listar, sem enginn
íslenzkur onaður hefur skapað
við orgel fyrr en Páill ísólfs-
son settist að því hljóðfœri.
Á stórum stundum þjóð-
lífsins hefir hann verið mað-
uirinn, sem ekki var bægt að
vera án. En um tiitt er ekki
minna vert, að á þeim stund-
um, sem ihversdagslegri eru
kallaðir, hefk hann ekiki síð-
Framh. á bls. 16
Eldur í gömlu
slökkvistöðinni