Morgunblaðið - 04.01.1968, Blaðsíða 24
AUGIYSINGAR
SÍMI 2E.4.8Q
FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1968.
KSKUK
SuÖurlandsbraut 14 — Simi 38550
Frosthörkur um land allt
- rætt við nokkra f réttaritara IVibl.
FROSTHÖRKUR eru nú
um land og snjókoma og rok
á NA-Iandi. Blaðið hafði tal
af nokkrum fréttaritara sinna
og sagðist þeim svo:
PatreksfirSingar brenna báts-
flak.
TRAUSTI Árnason á 'Patreks-
firði tjáði blaðinu, að áramótin
hefðu farið mjög vel fram. Mik
il ánægja hefði verið með ára-
mótadansleikinn þar í bse. hefðu
einnig verið haldnar tvær ára-
mótabrennur. Bátsflak var og
brennt þar í fjörunni og var það
til talsverðra þrifa fyrir bæinn,
svo að þeir hefðu sameinað
skemmtun og skipulag. Bærinn
hefði verið mjög vel skreyttur.
Engar markverðar ferðir hefðu
verið farnar til bæjarins eða frá,
og engar ófarir heldur, svo sem
íkveikjur eða slysfarir. Mæli-
fellið hefði komið með saltfarm
fyrir áramót og legið þar um ára
móíin. Kvað hann mjög kalt
þarna ,eða átján stiga frost, en
logn. Sagði hann fólkið ánægt,
meðan ekki frysi hjá því olían.
Landfastur ís við Hornbjarg
JÓHANN Pétursson vitavörður
í Hornbjargsvita sagði mjög
kalt hjá sér utandyra, fimmtán
stiga frost og fimm til sex vind-
stig. Gott skyggni væri. og ís-
spöng, sem fyrir utan hefði leg-
ið væri föst á fjöru og önnur á
leið að landi. Mikið jakahrafl
væri á siglingaleið og augljóst
að mikill ís væri fyrir ut-
an, því að ládeyða væri mikil,
Allt væri þarna alhvítt og
þótt verið gæti tiibreyting að
þvi að líta fyrsta snjóinn á
haustin, þá yrði það leiðigjarnt
til lengdar. Vitavörðurinn
sagðist eiginlega vera iagst
ur í bóklestur. svona rétt eins
og aðrir iegðust í eiturlyí, en
var ekki að berja sér, heldur dá
sama það að vera laus við heims
ins ys og argaþras.
Framhald á bls. 23
Nauðlenti á þjcðvegi
EINS HREYFILS flugvél af
Cessna gerð, nauðlenti á þjóð-
veginum vestast á Fellsströnd í
gærdag. Hún var á Ieið frá
Reykjavík vestur til Reykhóla til
þess að ná í fólk, en yfir Klofn-
ingi fannst flugmanninum mót-
orinn farinn að ganga óreglulega
og ákvað að lenda strax til að
vera viss um að hafa vélarafl
í nauðlendingunni.
Nú er það svo að íslenzkir
Undarlegt háttarlag
hvera á Reykjanesi
STÖÐUGAR breytingar eru á
jarðhitasvæðinu við Reykjanes-
vita, að þvi er Jón Jónsson, jarð
Bið á nýjum
fisk í soðið
„VIÐ höfum haft nægan fisk
á boðstólum það sem af er ár
inu“, sagði Steingrímur Magn
ússon, forstjóri Fiskhallarinn
ar. í samtali við Mbl. í gær
en við höfum þurft að sækja
hann til Ólafsvíkur, Stykkis-
hólnus og á Suðurnesin.
Eins og ástandið er nú, get
ur orðið nokkur bið á því,
að Reykvíkingar fái nýjan
fisk í soðið, en við eigum til
töluverðar birgðir af frosn-
um, reyktum og signum fiski,
þannig að enginn skortur er
framundan. þótt illa horfi í
bili vegna ógæfta.
fræðingur tjáði Mbl. í gær. Svæð
ið, sem mest er virkt færist
stöðugt í norðaustur. í sömu átt
og sprungurnar liggja. Þó er það
stórt og mikið um sig og á stund
um er erfitt að gera sér grein
fyrir breytingunum. Smáglufur
opnast, leirpyttir myndast og
hluti svæðisins er nú vart mann
gengur, sem áður var þurrt land.
Jón sagði, að hverirnir, sem
mynduðust í jarðskjálftanum
fyrir skömmu, væru farnir að
haga sér mjög undarlega. Vatn-
ið í þeim hækkar smátt og smátt
og það sýður og bullar. Annar
hveranna gýs smá gosum, urn
það bil 70 til 80 cm. en þegar
vatnslborðið hefur náð á'kveðinni
hæð í báðum, hættir suðan og
þeir tæma sig aftur.
Erfitt er að skýra þetta, sagði
Jón, en þannig haga goshvenr
sér, að öðru leyti en því, að
þeir spýta vatninu upp og frá
sér. Myndast þá heilmikil gufa,
er þeir tæmast. en í hverunum
Framhald.á bls. 23
þjóðvegir þykja ekki of góðir
fyrir bifreiðir hvað þá að fýsi-
legt sé að nota þá sem flugvelli,
en fiugmaðurinn átti ekki um
annan kost að velja. Lendingin
tókst líka ágætlega, en vind-
sveipur beindi vélinni út af veg-
inum, með þeim afleiðingum að
nefhjólið laskaðist lítillega, og
einnig vængendi. Hins vegar
fékk flugmaðurinn ekki svo mik
ið sem skrámu. Viscount fluigvél
frá F.í. sem var á ferð ekki langt
undam, lagði lykkju á leið sína
og flaug lágt yfir litlu vélina.
Var þá flugmaðurinn kominn út,
og veifaði til þeirra. Skömmu
síðar bar þarna að mjólkurbíl,
sem flutti hann til Búðardals.
Vélin verður að öllum líkindum
flutt til Reykjavíkur í dag, og
er jafnvel gert ráð fyrir að hægt
verði að fljúga henni þamgað eft
ir smávægilega viðgerð. >ess má
geta að fluigmaður Cessnunnar
hefur að baki sér á þriðja þúsund
flugtíma.
Nú er frost á FRÓNI
ÞESSA mynd tók Ijósm. Mbl.
Kr Ben. á Grandagarði í gær
er m.s. Ver var nýkomið að
austan Mikill klaki hafði hlað
ist á skipið, og það svo að
stög og vírar ofanþiljavoru
margföld að gildleika, eins
og ljóslega má sjá.
Miklir erfiðleikar framund-
an ef ekki dregur úr frostinu
— Rætt við hitaveitustjóra
ÞAÐ eru miklir erfiðleikar
framundan í hitaveitumálunum,
ef ekki dregur úr frostinu,
sagði Jóhannes Zoega, hitaveitu
stjóri, í samtali við Mbl. í gær.
Allar endurbæturnar, sem
teknar hafa verið í notkun að
undanförnu, hafa reynzt vel, og
á hitaveitan nú að geta þolað
allt að átta stiga samfellt frost
um nokkurn tíma.
En tíðin undanfarna daga hef-
ur verið verri en hitaveitan þol
ir. Eftir hádegið í gær tæmdust
allir geymar — én fram að þeim
tíma hafði ástandið verið slark-
fært — og tók þá strax að bera
á heitavatnsskorti.
Sagði hitaveitustjóri, að
mögulegt væri að safna um 25.
000 tonna varabirgðum, en há-
marksafköst hitaveitunnar eru
um 100.000 tonn á sólarhring.
Ef áframhald verður á þessu
mikla frosti reynum við að
miðla heita vatninu eftir getu,
sagði hitaveitustjóri, en aðstaða
til slíks er mjög takmörkuð,
vegna þess hve samtengt kerfið
er.
Eins og útlitið er nú, eru mikl
ir erfiðleikar framundan, en við
skulum vona, að veðurguðirnir
verði okkur hliðhollir, sagði
hitaveitustjóri að lokum.
Öfært um Norðurland í gærdag
Eðlileg fœrð um Suður- og suðvesturland
ÓFÆRT var um Norðurland
vegna snjóa og veðurs í gær en
umferð um Suðurland og Borg-
arfjörð með eðlilegum hætti. Ó-
fært er um veginn í Gilsfirði
vegna snjóflóðs, en um Svina
da] er fært stórum bílum. Veg-
ir á Austurlandi eru flestir lok
aðir, en þó var talið fært um
Fagradal í gær.
Um Snæfellsnes er færð góð,
n-ema hvað Bláfeldará í Staðar-
sveit flæddi yfir veginn og er þar
nú aðeins fært stórum bílum.
Snjóflóð féll úr Drífandagili í
Gilsfirði og lokar það veginum
á um 100 m. löngum kafla Verð
ur reynt að moka veginn þegar
færi gefst.
Vegurinn um Holtavörðuheiði
lokaðist síðdegis í fyrradag, en
verður ruddur á föstudag, ef að-
stæður leyfa. Flutningabílar á
leiðinni Reykjavík — Hólmavík
komust að Brú í Hrútafirði í
fyrrakvöld og í gær var þeim
hjálpað norður Strandir. Klukk-
an 15.00 í gær var bílalestin
stödd á Stikuhálsi og var þá
með öllu óvíst, hvort hún kaem-
ist á leiðarenda.
Vegurinn um Bröttubrekku
var óviss í gær. Stórhríð var
í Húnavatnssýsium og ófært um
vegi. I fyrrakvöld kom bílalest
frá Akureyri í Varmahlíð og hélt
hún áfram til Blönduóss í gær-
morgun. Þaðan hélt bílalestin
svo áfram vestur, en varð að
snúa við hjá Lækjarmóti í Viði-
dal vegna veðurs.
í Skagafirði var vonzkuveður
í gær og flestir vegir illfærir, eða
tepptir, og flestir vegir í Eyja-
firði voru ófærir. Til Húsavíkur
er ófært um Vaðlaheiði. Færð
á Austurlandi var ótrygg í gær,
en þó talið fært um Fagradal.
Oddsskarð opnaðist smáistund í
fyrradag en er nú ófært með
öllu.
9 tíma frá Akur-
eyri til Húsavíkur
Húsavík, 3. janúar.
f GÆR fór áætlunarbíllinn héð-
an til Akureyrar þrátt fyrir vont
veður, því að hér biðu tuttugu
farþegar Lagt var af stað klukk
an eitt með aðstoð veghefils, á
leiðinni, og gekk sæmilega til
Akureyrar. Bíllinn var kominn
þangað kl. 7 um kvöldið.
Klukkan 8 var svo snúið aft-
ur heimleiðis og voru þá átta
farþegar með, en þegar ''omið
var að Vaðlaheiði urðu menn
frá að hverfa vegna blindihríðar.
Um ellefu leytið um kvöldið rof
aði aðeins til og lagði bíllinn þá
af stað, en aðeins með tvo far-
þega því að hinum leist ekki 4
ferðalagið. >að tók líka bdlinn
alla nóttina að komast hingað,
og það var efcki fyrr en um morg
uninn klukkan átta, sem þeir
renndu í hlað. Ekki verður reynt
að fara fleiri ferðir til Akureyr-
ar fyrr en veðrinu slotar. Mjólk
urflutningabílarnir hafa ekki
gengið samkvæmt áætlun í dag,
en venð er að brjótast hingað
úr sumum sveitum. Veðurathug
unarmaðurinfi á Mánárbakka
segist ekki sjá teljandi ís- að-
eins jakaihröngl á fjörðum.
— Fréttaritari.