Morgunblaðið - 04.01.1968, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1968
23
Nefnd hefur gengið frá frnmvarpi
að staðli um almenna shilmála
um verkframkvæmdir
í DESEMBER 1959 skipaði þá-
verandi iðnaðarmálaráffherra
nefnd ,,til þess að athuga þann
hátt, sem á er um tilboð í verk
samkvæmt útboðum og gera til-
lögur um leiðir tii úrbóta, með
það fyrir augum, að reglur verði
settar um þau mál“.
Nefnd þessi lauk störfum á síð
astliðnu ári og lagði fram tillög
ur að almennum skilmálum um
útboð verka og verkamninga
Með bréfi dags. 7. marz 1967
fól iðnaðarmálaráðuneytið Iðn.
aðarmálastofnun fslands að gefa
út reglur um slíka skilmála í
formi staðals. Iðnaðarmálastofn-
unin íslands sneri sér til helztu
stofnana og félagasamtaka, sem
þetta mál einkum varðar, og ósk
aði eftir tilnefningu fulltrúa í
stöðlunarnefnd. essi nefnd hefur
nú gengið frá frumvarpi að
staðli um ,,Aknenna samnings-
skilmála um verkframkvæmdir".
Samkvæmt reglum um útgáfu
staðla skal frumvarp að þeim
liggja frammi trl opinberrar gagn
rýni í tvo mánuði. Iðnaðarmála-
stofniunin hefir nú gefið þetta
frumvarþ út og auglýst eftir at-
hugasemdum við það og skulu
þær hafá borizt stofnuninni fyr
ir 15. febrúar 1968.
Stofnunin afhendir öllum, sem
þess óska, ókeypis eintak af
frumvarpinu.
(Frétt frá Iðnaðarmálastofnun
fslands).
- FROSTHÖRKUR
Framh. af bls. 24
Illfært um ólafsfjörð
Á ÓUAFSFIRÐI var í gær norð-
-3» Kápusíðan á „Wel come to Iceland.“
Nýtt hefti af landkynningarriti Fí
i
Tvö gömol
féög hyggja
á sameiniaga
TU, ATHUGÍJNATt hefur verið
hjá M torvélaTtj árafélagi ís-
l'nds og VélsTjírafélagi fslands,
að wme'na þau í eitt félag með
c'nn' *<tj rn. Þetta hefur þegar
ve; ið samþykkt á aðalfundi
í ? l 'torvélstjórafélaginu en
aðalfundur Vélstjórafélagsins
mun væntanloga fjalla :im málið
: 'nn’hluta þessa mánaðar.
Æ.lunln er að styrk'ja aðstöðu
v-é' ijórastéttarinnar og til að
efia samstöðu hennar. Félögin
muni bæði leggja niður fána.
sína ef til kæmi, og taka upp
a nn sameiginlegan.
Mótorvélastjórafélag íslands
var stofnað árið 1942 og eru með
limir þess nú á sjötta hundrað.
Válstjórafélag íslandis er tölu-
vert eldra og eru meðlimir þess
um 600. í Mótorvélstjórafélaginu
eru vélstjórar sem hafa réttindi
t:l að stjórna vélum sem eru
900 hö. Véistjórafélags meðlimir
hafa hinsvegar réttindi til rð
stjórna síærri vélum.
an hvassviðri og snjókoma.
Dauft er yfir öllu atvinnulífi á
Ólafsfirði, en bátar komast ekki
á sjó vegna ógæfta. Eru menn
nú mjög uggandi um, að ísinn
leggist að landinu, ef áttin breyt
ist ekki.
Illfært var um allar götur í
kaupstaðnum og allir vegir ó-
færir innan fjarðar. f gær var
frostið á Ólafsfirði 12 til 16
stig.
Fóffurbætislaust á Vopnafirði.
RAGNAR Guðjónsson á Vopna-
firði sagði, að þar hefðu áramót
in verið mjög róleg og allt far-
ið friðsamlega fram. Veður var
gott en ikalt, en síðan herfi frost
ið og varð það mest um 20 siig.
-Ófært var um þorpið og ná-
grenni þess vegna snjóa og Rug
völlurinn lokaður. Verður reynt
að ryðja flugvöllinn strax og
snjókomu linnir, en um 30
manns bíða Þess að komas ’írá
Vopnafirði til náms og starfa.
17 stiga frost á Reyðarfirði
ARNÞÓR Þórólfsson á Reyðar-
firði sagði, að þar væri afar
kalt, sautján stiga frost og
stormur og allt lokað, hægt
væri að komast til Eskifjarðar.
en vegurinn um Fagradal væri
lokaður öllu nema snjóbílum.
Annars væri. ekkert sérstakt að
frétta, menn væru almennt að
jafna sig eftir áramótin.
70 bíða flugfars i Hornaflrði
GUNNAR Snjólfsson á Horna-
firði sagði þar vera afar kalt,
og þyrfti fólk að gæta vel kynd-
ingarinnar hjá sér, til að ekki
frysi Þar væri nú fimmtán stiga
frost og dálítið hvasst, eða um
sjö vindstig. Stæði vindurinn
þvert á flugbrautina austur þar.
og væri það mjög bagalegt, þcr
sem tvær flugvélar væru vænt-
anlegar. en hefðu ekki komizt
af þessum sökum. Var biðu nú
um 70 manns eftir fari tií Reykja
víkur. Von er úrbótar á föstu-
dag. Jörð væri annars auð, og
heiður himinn Vegurinn um
Oddskarð hefði verið mokaður á
þriðjudag, en hefði strax loka«t
aftur. þá um kvöldið Á miðviku
dag var svo aftur mokað, (í
gær) og var þá von á leikf'.okki
heim, en hann hefur verið að
sýna leikrit á Fáskrúðsfirði, en
þar hefur verið bylur undanfar-
ið.
ár
Fréttaritari blaðsins á Fagur-
hólsmýri sagði allt með kyrr-
um kjörum þar. Frost væri þar
fimmtán stig í fyrrinótt, en ekki
hvasst' 3-4 vindstig. Snjólétt er,
og ekki undan neinu að kvarta.
FLUGFÉLAG ísflands hefur
sent á markaðinn nýtt hefti af
ritinu „Weleome to Iceland".
Ritið kiom fyrst út 1962 og hefur
verið gefið út á hverju ári síðan.
Texti er prentaður á þremur
tungum, ensku, þýzku og
dönsku. Ritið er fyrst og fremst
landkynningarrit um ísland, is-
lenzk málefni og ísland sem
ferðamannaland, og fjallar auk
þess ítarlega um starf Flugfé-
lags íslands. Venjuílega birtast
og greinar og fróðleiksmolar um
Færeyjar og Grænland.
Þá er mikið af auglýsingum í
Innbrot um
áramótin
BROTIST var inn í Laugalækjar
skóla um áramótin og unnin þar
nokkur spjöll.
í öðru skólahúsinu var brot-
in rúða og augsýnilega leitað að
einhverju fémætu, en engu var
stolið. í hinu húsinu voru eyði-
lagðir hitaofnar í tveim kenn-
slustofum og hefði það getað
haft alvarlegar afleiðingar, ef
ekki (hefði verið tekið eftir
ispjöllunum í tæka tíð.
- FRAKKAR
Framh. af bls 1
það eina sem læknað geti mein-
semdirnar í efnahagslífi Banda-
ríkjanna sé að bundinn verði
endi á Vietnamstríðið og gull-
myntfótur verði aftur tekinn
upip í alþjóðasviðskiptum. Debré,
fjármálaráð'herra, gerir á laug-
ardag sérlegum sendimanni Joihn
sons, Katzenbaoh aðstoðarutan-
rikisráðtherra, grein fyrir við-
ho'rfi frönsku stjórnarinnar.
Frakkar segja, að aðgerðirn-
ar séu þess eðlis, að E'BE-lönd-
unum sé gart lægra undir höfð’.
en Bretlandi, Kanada, Japan og
einkum Suður-Ameríkuríkjun-
um og auk þess hafa Frakkar
áhyggjur af ráðagerðum Banda-
ríkjastjórnar um að efla útflutn-
ing til Vestur-Evrópu.
í London er sagt, að á peninga
mörkuðum í Evrópu sé nú óttazt
að mikill samdráttur muni eiga
siér stað vegna aðgerða Banda-
ríkjamanna. Óttazt er að vextir
hækki, og erfiðara verði en áður
að fá í'jármagn, sem nú muni
streyma til iðnaðarins í Banda-
ríkjunum. Pierre Mendes-
France, fv. forsætisráðherra
Frakka, sagði í dag, að de Gaulle
forseti ætti mikla sök á því
hvernig nú væri komið í pen-
ingamálum heimsins. Mendes-
France sagði að de Gaulle hefði
með þröngsýnni og óskynsam-
legri framkomu grafið undan
gengi pundsms með þeim af-
leiðingum að gengisfelling var
eina úrræðið.
ritinu, sem auka mjög gildi
þess. Eintakafjöldi er 25 þúsund
og er ritinu dreift í flugvéium,
á öllum skrifstofum F. í. og auk
þess sent út um allar trissur.
Ársheftið 1968 hefst á ávarpi
Arnar Ó. Johnson, forstjóra
Flugfélagsins, síðan er grein
eftir Mats Wi'be Lund jr: Sumar-
leyfi á íslandi, ný og sevintýra-
leg reynsla, grein er um Boeing
727 þotu félagsins, Þór Guðjóns-
son skrifar um lax- og silungs-
veiðar, Finnur Guðmundsson á
gnein um íslenzka fugla, Mats
Wi'be Lund jr. skrifar uiíi Bessa-
staði, Geir Hallgrímsson, borg-
arstjóri ritar grein um Reykja-
Ceusescu og
Tito hittast
Belgrad, 3. janúar — NTB —
RÚMENSKI kommúnistaleiðtog-
inn Nicolae Ceusescu og Josip
Broz Tito forseti Júgóslavíu
rædust við í dag í einangruðum
veiðikofa skammt frá landamær
um Ungverjalands, að því er til-
kynnt var í Belgrad í kvöid. Tal-
ið er aff aðalumræðuefnið hafi
verið tillaga Rússa um heimsráð
stefnu kommúnistaflokka sem
bæði Ceusescu og Tito eru and-
vígir.
í Belgrad er sagt að Ceusescu
reyni nú að afla stjórn sinni
stuðnings meðal hlutlausra
landa, en dregið er í efa hvort
Júgóslavar geti veitt Rúmenum
mikið lið. Tito fer bráðlega í
ferðalag til Asíu- og Afríku-
landa.
vík, Þorvarður Alfonsson um ís-
lenzkan iðnað, og Björn Þor-
steinsson skrifar um Færeyjar.
Auk þess eru upplýsingar um
veitingabús, sendiréð og ræðis-
mannsskrifstofur, upplýsingar
um Grænlandsflug og einnig er
kort af íslandi. Eins og fyrr segir
er mikill fjöldi auglýsinga í
beftinu og margar myndir prýða
hverja grein.
Verður Debray
látinn Iaus?
Ziiridh, 3. janúar. NTB.
RENE Barrientos, forsieti Bóli-
viu, gaf í sikyn í dag, að hann
væri fús að láta franska marx-
istann Regis Debray lausan í
skiptum við Bolivíumann, sie«n
skur í fangelsi á Kúbu. Debray
var dæmdur í 30 ára fangelsi í
fyrra fyrir þátttöku í hryðju-
verkum undir stjórn „Che“
Guevara, gamals vinar Fidels
Castros.
Barrientos, sem er í Ziirich til
að leita sér lækninga vegna
skotsárs sem hann hlaut fyrir
fjórum árum, sagði á blaða-
mannafundi, að ef hann ætti að
láta Debray lausan yrðu Kúíbu-
menn að sleppa úr haldi Bóli-
v'íumanninum Huíbert Matos,
sem er fyrrverandi samstarfs-
maður Castros og er talinn einn
af hetjum kú'bön'sku byltingar-
innar. Matos var dæmdur í 20
ára fangelsi *T'959 fyrir tilraun
til að grafa undan byltingunni.
Veiðitæhjum
stolið
SEX skota riffli, 6—8 pökkum
af skotum, veiðistöng og fleiru
var stolið úr geymslu við Ás-
garð í hádeginu í gær. Rann-
sóknarlögreglan biður þá, sem
kynnu að verða varir slíkra hluta
í umferð að hafa strax samband
við sig.
- UNDARLEGT
Framh. af bls. 24
tveimur á Reykjanesi, myndast
engin gufa, þótt þeir tæmist.
Heyrir maður síðan í vatninu
niðri í jörðinni, bæði suðu- og
rennslis'hljóm. Að svo búnu tek-
ur að hækka smátt og smátt í
hvernum að nýju og sama sag-
an endurtekur sig. Líður hálf
þriðjia klukkustund á milli þess,
er ihverirnir taemast.
Mikli hverinn frá 1918 er 3kki
nema í um 25 til 30 m fjarlægð
frá hverunum og virðist harm
vera á sömu sprungu. Hann tæm
ist ekki og sýður og bullar alla
jafna. Jón sagðist hafa komið
á hverasvæðið síðastliðinn
fimmtudag. Hafði hann þá ekki
áður tekið eftir þessu undarlega
háttalagi hveranna og ekki
sagðist hann vita, hvort ein-
hver hefði tekið eftir því áður.
í 'hverum þessum er töluvert
vatnsmagn og gizkaði Jón á. að
það væri um 3 rúmmetrar.
Tito Júgóslavíuforseti og kona hans kvöddu gamla árið í serbneska þinginu og virðast hafa
skemmt sér vel.