Morgunblaðið - 04.01.1968, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.01.1968, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1968 Jósef Jósefsson Míásstöðum — ÓÐUM falla nú stofnar þeir er úr grasi uxu um aldamótin síð- ustu og er skammt til loka þeirr- ar kynslóðar, sem við þau er kennd. Mættu þó gjarnan leng- ur loga þeir e'dar er þá brunnu bjartast og enn eimir eftir af. Einn þeirra aldamótamanna, sem kvaddi samferðamenn sína á líðandi ári, var Jósef Jósefs- son á Másstöðum. Verður hans lítillega minnzt hér, þótt seint sé og fyrr hefði mátt vera. Jósef heitinn fæddist að Helga vatni í Sveinstaðahreppi 26. sept. 1894 og var því orðinn ná- lega 73 ára, er hann lézt 16. ág. sl. Foreldrar Jósefs voru þáver- andi búendur á Helgavatni, Jós- ef Jóhannsson bónda á Auðunn- arstöðum og Sigríður Frímanns- dóttir bónda á Helgavatni. Stóðu þannig að honum á báða bóga sterkar bændaættir enda kom fram er stundir liðu að eigi var honum í ætt skotið með hneigðir til bústarfa. Föður sinn missti Jósef ungur. Brá þá móðir hans búi, var eftir það í húsmennsku með Jósef á- ýmsum stöðum. Skildu þau ekki samvistir meðan hún lifði. Eftr andlát móður sinnar var Jósef heitinn í vistum á ýmsum stöðum og hafði ávallt nokkuð’ af sauðfé og hrossum, en hann var hestavinur mikill og átti jafn an góða hesta, vel tamda, reista og ganggóða. Fækkar því enn um einn, af hinum gamla hesta- mannaskóla, við brottför hans. t Móðir okkar, Jónína Ásbjörnsdóttir Urðarstíg 13, andaðist í Landspítalanum 3. janúar. Börnin. t Systir okkar Jóhanna Þorsteinsdóttir frá Blönduósi, andaðist 2. þ. m. að heimili sínu Lokastíg 25 í Reykjavík. Svava Þorsteinsdóttir, Torfhildur Þorsteinsdóttir. t Móðir okkar og amma Sigríður Jensdóttir lézt á Hrafnistu 2. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda. Guðmunda Elíasdóttir, Þorgerður Elíasdóttir, Guðrún Guðlaugsdóttir, Einar Guðlaugsson, Kristján Guðlaugsson. t Móðir okjrar og tengda- móðir Guðleif Guðmundsdóttir Stóru-Mörk, sem andaðist á sjúkrahúsi Selfoss 1. janúar verður jarð- sett frá Stóra-Dalskirkju kl. 2 á laugardaginn 6. janúar. Bílferð verður frá Um- ferðamiðstöðinni kl. 8,30 f.h. Börn og tengdabörn. IVIinmng Árið 1940 kvæntist Jósef eftir- lifandi konu sinni, Ingibjörgu Jóhannsdóttur frá Hafragili, hinni mætustu konu (systir Gunn ars Jóhannssonar fyrrv. alþm.) og stofnuðu þau fljótlega til eigin heimilis. En svo var mikil tryggð Jósefs við sveit sína, að þar sem ekki lá laust fyrir jarðnæði inn- an hennar, kaus hann heldur að fara í húsmennsku og búa við skarðan hlut hvað jarðarfnot snerti en flytjast brott. Til marks um hve fast þetta sótti á, er að eitt sinn fluttist hann til Blönduóss í húsnæði, sem þau hjón höfðu tryggt sér, en undi þar ekki nema fáa daga. Sveit- in heirnti hann til sín aftur, þótt vafalaust hefði honum verið létt ari og hentari, að ýmsu leyti, bú- seta á Blönduósi, þar sem þá var liðið á ævidaginn og starfsþrek tekið að dvína. Síðasta áratug ævi sinnar, bjó svo Jósef á Más- stöðum. Kunni hann vel við sig þar þrátt fyrir nokkra annmarka á húsakosti og erfiða engjasókn og þaðan vildi hann ekki fara unz yfir lyki, enda búnaðist hon um þar vel, og voru þau hjónin sæmilega efnuð. Ekki varð þeim barna auðið, er á legg komust, en þar sem bæði voru mjög barnelsk tóku þau til fósturs bróðurdóttir Ingi- bjargar, Önnu Bjarnadóttir. Er hún nú uppkominn og gift kona, búsett í Reykjavík og flutti Ingi- björg til hermar eftir andlát bónda síns. Jósef var fremur lágur maður vexti en hneilinn, kvikur á fæti og harðskarpur til vinnu á yngri árum, en hin síðari bagaði hann mjög bflun í fótum og brjóst- veiki, var furða hverju hann kom í verk svo lasburða sem hann var oft, en ástin til sveit- arinnar ásamt fórnarlund hans ágætu konu bjargaði, og sízt má gleyma hjálpsemi og velvild góðra granna, sem ærið oft léttu róðurinn. Eins og getið var voru þau hjón mjög barngóð. Voru hjá þeim á hverju sumri unglingar, svo sem í sveit tíðkast og hafði Jósef mjög gott lag á þeim án þess að vera strangur Gat hann t Jarðarför konu minnar Guðrúnar Jónsdóttur frá Látrum í Aðalvík, er andaðist 27. des. sl. fer fram frá Keflavíkurkirkju 4. janúar .nk, kl. 14. Finnbogi Friðriksson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Jarðarför föðursystur minnar Láru Guðmundsdóttur frá Ofanleiti, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 5. þ.m. kl. 1,30. F. h. aðstandenda. Ingólfur Sigurðsson. t Systir mín Guðríður Ágústa Jóhannsdóttir Framnesvegi 57, verður jarðsungin laugar- daginn 6. jan. frá Fossvogs- kirkju kL 10.30. Blóm af- þökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar er bent á líkn arstofnanir. Guðbergur Jóhannsson. beinlínis talað þá til þeirra hluta, sem hann vildi og var þá tíðum glatt á hjalla enda mun hans lengst minnzt fyrir orðkynngi sína og glaðværð. VerðuT vart lengra komizt í þeim efnum. Og bergði hann á veigum Bakkusar, sem jafnan mátti teljast i hófi, flutu brandarar og snilliyrði af vörum hans. Var hann því aufúsu gestur þar sem hann kom og ekki var síður ánægjulegt að heim- sækja þessi gestrisnu hjón, er tóku hverjum sem að garði bar með rausn og glaðværð. Nú hefir líkami Jósefs heit- ins hlotið legstað í kirkjugarði sveitar hans og er það við hæfi. En lengra er hugsað. Að vísu veit enginn með vissu hversu til háttar hinumegin við landamær- in, en væri nokkuð óliklegt að búast við honum þar á hestbaki í hóp glaðra og góðra vina, varp andi glensi og snilliyrðum á báða bóga? Þannig kysi ég gjarnan að hitta hann. Á jólum 1967. — H. Kristján Guðjónsson — Minning Fæddur 12/10. 1888 Dáinn 24/12. 1967. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Ég kem eftir. kannske í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. Þessi orð hins kunna skálds komu mér í hug, er ég heyrði um andlát vinar míns, Kristjáns Guðjónssonar — og má vera að eitthvað þvílíkt komi mörgum í hug, er þeir frétta lát vina sinna og samferðamanna. Þetta er leiðin okkar allra. Stundum ber þetta mjög brátt að, eins og dæmin sanna, en eigi var það svo með Kristján heitinn. Hjá honum var um alllangan aðdrag- anda að ræða, og var honum sjálfum vel ljóst að hverju stefndi, og tók því með hinni mestu ró. Hann andaðist ó Land- spítalanum í þann mund, sem jólin gengu í garð. Kristján var fæddur að Efri- Brú í Grímsnesi og voru for- eldrar hans Katrín Kristjáns- dóttir Schram og Guðjón Jóns- son, trésmiður. Hann ólst þó ekki upp hjá foreldrum sínuim, held- ur tóku hjónin Margrét Eyjólfs- dóttir og Hannes Guðmundsson, sem bjuggu í Skógarkoti í Þing- vallasveit, litla drenginn í fóst- Sigríður Björnsdóttir — Minningarorð ALLAR sögur eiga sitt upphaf, og sagan um kynni okkar Sig- ríðar byrjaði á þann hátt, að sonur hennar Rögnvaldur kaf- færði mig í Tjörninni við Búnað- arfélagshúsið. Þótti mér maður- inn allur frumlegur og ólíkur öðr um mönnum frá fyrstu viðkynn- ingu. Af þessu atviki spratt órofa vinátta okkar, og innan tíðar var ég orðinn fastur heimilisvinur hjá móður hans og föður í Banka stræti 2. Á þessu fjölmenna heimili ríkti sá andi gestrisni og göðvildar sem næstum var yfirskilvitlegur, að minnsta kosti hafði ég aldrei kynnzt neinu þvílíku.Það rann fijótlega upp fyrir mér að sá nægtabrunur sem allir jusu af, var húsmóðirin Sigríður Biörns- dóttir. Börnin voru mörg og vin- sæl. og vinir þeirra urðu allir vinir foreldranna enda fór það svo, að þó börnin færu af landi brott til náms, héldum við heim sóknunum áfram. eins og ekkert hefði í skorizt því Bankastræti 2 var í rann og veru okkar ann- að heimili. Sigurión Markússon, sýslumaður er látinn fyrir nokkr- um árum, og nú er Sigríður dá- in. Já, — það er sagt svo, — en slíkí>r manneskiur deyja ekki meðan þeir lifa sem kynntust þeim. Lengi olli setning úr Brekku- kotsannáli Kiljans mér heilabrot um, en hún er svona: — að næs+ bví að missa móður sína sé fátt hollara ungum börnum en að missa föður sinn.“ Sviði þessara orða urðu Álf- grími litla bærilegri vegna þess, að hann sem þessi hollusta henti eignaðist afa og ömmu, og af varð fögur ?aga. Ég skildi sann- leik þessara orða. þegar mér varð hugsað til Sigríðar. Þeir voru ekki fáir Álfgrímanir sem áttu hana að athvarfi. þó ekki úæru þeir allir munaðarlausir og ekki allir á barnsaldri. f þeim gullastokk Guðs, sem Banka- stræti 2 var á þeim árum sem mér eru kunnust. o^-nuðu sér þar við elda manngerðu- margar. og ekki beinlínis innviðalíkar. Þar áttu athvarf námsmenn á ýmsum aldri, allt frá eilífðarstúdíósum ofan í busa, tónlistarséní af há- um gráðum og lágum, listamenn þjóðfrægir og lukkuriddarar, strákar og stelpur afdánkaðir embættismenn og veglausar vinnukonur úr sveit Ég var öll þessi ár að mæta þarna alls kon ar fólkf sem ég visi engin deili á, — og veit raunar ekki enn í dag — en þegnréttur þeirra á heimilinu var jafn óvefengjan legur og minn eigin. Allt þetta fólk átti sin einkamál við Sigríði. sem hafði tíma til að hlusta á alla. Þó ól hún aldrei á sjálfs- aumkun manna, heldur stappaði í þá stálinu, og leysti oft á eig- in spýtur þá hnúta sem öðrum tókst ekki einu sinni að höggva Aldrei upphóf hún siðaprédikan- ir þó einhverjum yrði á i mess- unni. eða skrikaði fótur á svelli borgaralegra dyggða, — en sagði í mesta lagi, — ,,aumingja mað- uinn ég er svo aldeilis hissa'. Þó held ég að hún — sem sjálf var þó vammlaus áreynslulaust, — hafi aldrei orðið sérlega hissa á neinu asnasparki heimsins. Mér er nær að halda að þó að ein- hverjir af þeim matardorum heimsstjórnmálanna sem hún hafði minnstar mætur á, eins og Hitler, Mússolini og Stalín bóndi í Kreml, hefðu klappað að dyrum í Bankastr. 2, hundelt- ir beindngamenn, hefði Sigríður skammtað í askana þeirra eins og annarra, og komið þeim í heiðarlega Vinnu. í Bankastr. 2 var meiri heimsborgarbragur á Framhald á bls. 15 ur, og þar ólst hann upp. Áttu hjón þessi jörðina Ásnes á Kjal- arnesi, og þar mun Kristján hafa byrjað búskap um tvítugsaldur. Kristján var einn af stofnend- um ungmennafélagsins Drengur á Kjalarnesi, en það félag var stofnað árið 1909, og mun Krist- ján haaf þótt góður liðsmaður þar, því að félagið gerði hann að heiðursfélaga á 45 ára afmæli þess, árið 1954. Kristján starfaði um skeið hjá Eimskipafélagi íslands, var t.d. kyndari á fyrsta skipi félagsins, Gullfossi, á fyrstu ferð hans til íslands. Seinna gjörðist hann kyndari við Gasstöð Reykjavík- ur, og þar starfaði hann um 25 ára skeið. Er hann varð að hætta því starfi vegna heilsu sinnar, tók hann sér fyrir hendur margvís- leg störf, því að hann var hagur vel og hafði gott verksvit. Seinni hlutu ævinnar var ég Kristjáni vel kunnugur, og tókst með okkur góð vinátta og sam- starf, þótti mér oft gott að hverfa til hans ef eitthvað bar út af — eitthvað billaði og þurfti lagfær- ingar við, því að hann kunni á mörgu skil og var hinn greið- viknasti hvenær sem til hans var leitað. Og ekki brast hann léttlyndið þó að á móti blési, gat hann oft gengið að hinum erfið- ustu verkum hlæjandi og hiífði sér í engu. Líka var gott að leita til hans ef maður þurfti á ljóði eða vísu að halda, því að hann var allvel hagmæltur. Og sumt, sem ég sá hjá honurn af því tagi, var vel þess virði að koma fyrir almenningsjónir. En slíku flíkaði hann ekki. Hann lætur eftr sig einn son og tvær dætur og hóp af barna- börnum — en einn son missti hann ungan. Útför hans er gerð frá Fossvogskirkju í dag. Um leið og ég vil lýsa þakk- læti mínu fyrir kynni mín af Kristjáni heitnum, vil ég tjá börnum hons og barnabörnum, svo og tengdabörnum, mína inni- legustu hluttekningu, og óska þeim alls góðs á ókomnum árurn. Magnús Helgason. Innilegar þakkir færi ég öll- um vinum og vandamönnum sem glöddu mig á áttræðisaf- mæli mínu 26. desember síðast liðinn, með heimsóknum, gjöf- um og heillaskeytum, og gerðu mér daginn ógleyman- legan. Guð blessi ykkur öll. Tómas Guðmundsson, Ásbyrgi, ísafirði. Innilegt þakklæti sendi ég öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og kve’ðjum á átt- ræðisafmæli mínu þann 21. des. s.l. Gleðilegt nýjár. Árni Helgason, Laugarbraut 7 Akranesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.