Morgunblaðið - 04.01.1968, Blaðsíða 16
16
MOHGÚNBLÁÐID, FIMM'f'UDÁGÚR 4. JANÚAR 190B
„Næg verkefni frnmundan”
* *
— Rætt við Olafsvíking, Isfirðing, Akureyring og
Á SUS. ÞINGI í haust hittum
við að máli nokkra kaupstaða-
menn og inntum frétta úr þeirra
byggðarlöjfum. Hér fara i. eftir
viðtöl við þá.
Svavar B. Magnússon, Ólafsfirði.
— Hefur verið næg vinna á
Ólafsfirði að undanförnu?
— Sjávarútvegur hefur alltaf
verið aðalatvinnuvegur á Ólafs-
firði og öll afkomaí landi bygg-
ist á því sem berst á land.
—• Hvernig hefur aflast?
— Við eigum reyndar ekki
nema eitt stórt skip, sem mik-
ils verður að vænta af í sam-
bandi við atvinnulífið, en aðr-
ir bátar sem eru þarna eru ekki
nógu stórir til að sækja á fjar-
læg mið. í haust voru þeir á
línuveiðum, en afli hefur verið
dræmur.
Svavar B. Magnússon, Ólafsfirði.
— Eru ekki töluverðar bygg-
ingarframkvæmdir á Ólafsfirði?
— Það er mikið byggt af íbúð
arhúsum og einnig nýhafin bygg
ing á elliheimili, sjúkraskýli og
gagnfræðaskóla. Aðalmál í sam-
bandi við uppbyggingu bæjarins
má segja að sé hafnargerðin og
við vonum að stórátak sé að
vænta í þeim efnum.
— Hvernig gengur félagslíf í
Ólafsfirði?
— Nú er rétt að byrja sá tími,
sem félagsstörf eru hvað blóm-
legust, en það má segja að fé-
lagsstarfsemin byrji ávalit á
svipuðum tíma og gagnfræðaskól
inn byrjar. í fyrra var stofnað
leikfélag innan gagnfræðaskól-
ans og starfaði það mjög mikið á
síðasta vetri. íþróttafélag er starf
andi og það er aðalfélagsskapur
æskufólks og einnig er töluverð
starfsemi hjá Leikfélagi Ólafs-
fjarðar. íþróttafélagið hefur á
prjónunum að byggja fullkomna
skíðastökksbraut á svokölluðu
Kleifarhorni og stökkæfinga-
braut fyrir unglinga, sem er
gert ráð fyrir samkvæmt skipu-
lagi. innan bæjarins. Segja má
að næg verkefni séu framundan
og má t.d. nefna, að þegar þessu
er lokið þarf að byggja togbraut
fyrir skíðamenn.
— Er mikill skíðaáhugi á
Ólafsfirði?
— Skiðaáhugi er mjög mikill
og sem dæmi má nefna, að á síð
asta vetri var þátttaka í skíða-
iðkun það mikil, að jafnvel skip
stjórar á bátunum notuðu frítím
ann til skíðaiðkana. Ólafsfirðing
ar hafa ávallt átt góðum skíða-
mönnum á að skipa og m.a. átt
íslandsmeistara í skíðastökki sl.
3 ár.
— Hvernig hefur verið með
síldarvinnslu í Ólafsfirði?
— Það er í fyrsta skipti nú í
Ihaust að síldarvinnsla hefur get
að farið fram innanhúss og
vinnuafköst virðast hafa aukizt
til muna við þessa hagræðingu,
að geta saltað síld hvernig sem
tíðarfar er. Sem dæmi um ágæti
þessarar vinnuhagræðingar má
nefna að um 1300 tunnur hafa
verið saltaðar á 8 tímum. Einn-
ig er töluvert fryst af síld og
flakað og það sem ekki er not-
hæft í fullkomnari verkun fer
í síldarbræðsluna á Ólafsfirði,
en vandamálið er að hráefni
vantar oft.
Jóhann Á. Kjartansson, ísafirði.
— Hefur verið næg atvinna á
ísafirði í haust?
— Já, ég myndi telja að at-
vinna væri næg, en ekki nógu
fjölbreytt.
— Eru nokkur spor í þá átt,
að auka fjölbreytni atvinnuveg-
anna?
— Það myndi ég segja að væri
allt of lítið. Á ísafirði er fyrir
hendi góður slippur og þar er
t.d. möguleiki til eflingar stór-
skipasmíða. íslendingar verða að
auka stórskipasmíðar sínar, því
að þeir hafa sýnt að þeir standa
fyllilega erlendum aðilum á
sporði í því efni.
— Hvernig er háttað félags-
málastarfi á safirði?
— Félagsmálaáhugi er ekki
mikill, enda skortir fullnægj-
andi aðstæður. Nú um tíma hef-
ur verið starfandi nefnd í bæj-
arstjórn. sem hefur verið að
kanna möguleika til að byggja
félagsheimili, en vegna þess að
mörg félög í bænum eiga eigið
húsnæði, þá er erfitt að hrinda í
framkvæmd byggingu á stóru
hiúsi.
— Hafa samgngur ekki batn-
að á Vestfjörðum á síðustu ár-
um?
Jóhann Á. Kjartansson, ísafirði.
— Jú, með tilkomu safjarðar-
flugvallar varð gjörbylting í
samgöngumálum kaupstaðarins
og nægliggjandi byggða. Sam-
göngurnar eru greiðar á sumrin,
erfiðari á veturna og þess vegna
verður að leggja á herzlu á að
fullvinna vegakerfið og í sam-
bandi við Vestfjarðaáætlunina er
stigið spor í rétta átt. í sumar
hefur verið unnið að vegalagn-
ingu að væntanlegum jarðgöng
um i gegn um Breiðdalsheiði.
— Hvað um skóla og félags-
mál fyrir vetrunin ?
— Skólar eru fullskipaðir og
engin vandræði hafa orðið í sam
bandi við ráðningu kennara. Til
tónlistarskólans hefur verið ráð
inn ungur tékkneskur tónlistar-
maður, sem miklar vonir eru
bundnar við.
Hörður Sigurvinsson, Ólafsvík.
— Eru miklar byggingarfram
kvæmdir í Ólafsvík?
— Já, þær eru mjög miklar
og mikið byggt að fbúaðrhús-
um, en einnig hafa verið stór-
framkvæmdir innan hreppsins í
sambandi við byggingu nýrrar
kirkju, sem nú hefur verið vígð.
Einnig er verið að byggja íþrótta
hús og sundlaug. á hafa verið
mjög miklar hafnarfarmkvæmd-
ir á undanförnum árum og eru
enn og hefur stórum áfanga ver
ið náð í þessum máluf þó að
ekki sé búið að fullvinna þessi
verkefni.
— Hvað er áætlað verð ein-
býlishúsa
— Ég myndi segja að áætlað
verð á sa. 120 ferm húsi sé um
1200 þús. kr. miðað við að hús-
ið sé tilbúið til að flytja inn í
það.
— Vinna mennirnir mikið
sjálfir við húsin?
— Já, mjög mikið og raunveru
lega þess vegna er uppbygging-
in jafn ör, og svo líka það. að
menn vinna mjög mikið hvem
virkan dag.
— Hvernig hefur gengið með
fisfcvinnslu?
Hörður Sigurvinsson, Ólafsvik.
— Afli hefur verið mjög sæmi
legur á undanförnum ánrm, en
hefur dregist mjög mikið saman
núna og viljum við þar kenna
þorskanetjaiveiðum um. Á tali
sjómanna hefur heyrst að í sjón-
um ihafi verið svo mikið af net-
um sl. vetur, að lögnin var þre-
föld víggirðing frá Öndverðar-
nesi að Bjargi og eru það skoð-
anir manna, að takmarka þurfi
þorskanetaveiðar innan Breiða-
fjarðar. Á fundi sem ungir Sjálf
stæðismenn héldu í haust í
Grundarfirði kom fram sú álykt
un, að banna yrði þorskaneta-
veiðar innan ákveðinna svæða
Breiðafjarða og jafnframt talið
að heppilegasta lausnin á þessu
máli væri að leyfa netaveiðar frá
1. marz til vertíðarloka og jafn
vel loka algjörlega hrygningar-
svæðunum.
— Hvað með félagsstörf i
Ólafsvík?
— Félagsstörf eru mjög lítil og
stafar það fyrst og fremst af því,
að atvinna hetfur verið mjög mik
il á sðíustu árum. Menn hafa
ekki gefið sér tíma til að sinna
þeim málum og því hafa þauver
ið lítil. Aðstaðan hefur í raun
og veru verið slæm fyrir félags
starf vegna húsnæðisskorts. Ur
þessu vandamáli hefur nú rætzt
með tilkomu hinnar nýju kirkju,
þv íað í kirkjunni er safnaðar-
heimili, sem mun leysa þann hús
næðisvanda, sem hefur háð okk-
ur í almennri félagsstarfsemi.
Þórir Ottóson, Akureyri.
— Hvernig er ástandið í at-
vinnumálum á Akureyri?
— Atvinnuástand fyrir norðan
er slæmt og það er ekki meir en
svo að fólk geti fengið vinnu og
Ólafsfirðing
búið er að loka Gefjunarverk-
smiðjunum og saumastofunni
Burkni og fleiri iðnfyrirtæki
heima vantar nú verkefni. Þó
nokkuð hefur verið um þð að
fólk á Akureyri hafi leitað at-
vinnu í öðrum landshlutum. Sér-
lega verður ástandið slæmt í vet
ur, því að þá er ekki hægt að
vinna við byggingarvinnu úti
eða neina útivinnu almennt.
— Hvernig hefur togaraútgerð
in gengið sl. sumar?
— Hún hefur gengið alveg
ágætlega og togararnir hafa afl-
að vel. Þeir hafa lagt aflann upp
í frystihúsin á Akureyri og það
hefur skapað nokkra atvinnu.
Aðkallandi er að endumýja tog-
arana því að þeir eru farnir að
ganga úr sér.
— En afli smærri skipa?
— Trilluútgerð er nokkur og
ÞAÐ hafði ég haldið að hin
djúpu dýru go blóðugu spor er
njinkainnflutningur hefur mark-
að í þjóðlíf okkar íslendinga
hefðu eftirskilið reynslu er ekki
yrði á villst hvernig taka bæri,
en svo virðist ekki ætla að verða,
því nú er stofnað til nýs inn-
flutnings með nýju frumvarpi á
Alþingi.
Það má til furðu teljast hve
margir menn þótt greindir telj-
ist, eru glámsfcyggnir á rök
reynslunnar þótt augljós virðist
og skýr. Það er öllum ljóst, þeim
til þekkja, að innflutningur
minka hefur bakað þjóð okkar
stórtjón, böl og kvöl á ýmsum
sviðu.m.
Þegar fyrra frumvarpið var
flutt. er leyfa skyldi á ný inn-
flutning minka til stórhags fyrir
minkaskinnaframleiðendur, benti
ég á hve hæpin væri sú fratn-
leiðslugrein er byggðist á auð-
kvenna duttlungum. Nú hefur á
daginn komið að minkaskinn
hafa stórfallið á verði á heims-
markaði, og hvernig tókst ekki
til hérna á árunum þegar hafin
voru með stórum kostnaði kaup
á Blárefum til ræktunar, og bygg
ing Bláretfabúra, er fyrr en varði
sögðu pjattkonur í veröld úti
— Við viljum ekki sjá Blárefja-
skinn meir, — og allar stórgróða
vonirnar voru að engu orðnar,
og allir biðu stórtjón er út í
gróðavona-áhættuna höfðu flan-
að.
Nú er það svo. að ekki er það
einasta hin fjárhagslega ánættu-
hlið sem þetta nýskipaða minka-
frumvarp hefur áhrif á, heidur
miklu fremur þær afleiðingar og
það ástand sem skapast hefur
með þjóð okkar við minkainn-
flutninginn. Hve misfcunariaus
kvalavaldur hann hefur reynst
öllu lífi er hann hefur við ráðið
til dráps.
Ég gjöri ráð fyrir að ég og
sonur minn Sigurður, sem nú býr
að Geitaskarði getum talist í
hópi þeirra er bitrasta reynslu
hafa hlotið af kynnum við þá
villiminkahjörð er nú herjar vítt
um landsbyggðina.
Nú vil ég spyrja ykkur alla þá
á Alþingi, sem eruð að fikta vtð
frumvarp til laga, er heimili
minkainnflutning til landsins á
ný. Hefir nokkur ykkar komið
nærri hænsnakotfa og hlustað á
kvalavein hænsnanna, þar sem
minkurinn var að dráps- og kvala
verfcnaði sínum? Hefir nokkur
ykkar séð rjúpuna, sem ham-
ingjusöm af móðurást sveif lip-
urfætt og hreyfingamjúk eftir
lyngmóum dalshlíðarinnar með
12 dálítið stálpaða unga- sína
sækja þær helzt til fanga mið-
svæðis í Eyjafirði. Síldarbátarn-
ir sækja á miðin fyrir austan
land, en koma þó stundum með
síld í Krossanes.
— Er ekki stöðugt unnið að
gatnagerð á Akureyri?
— Nokkuð hefur verið mal-
bikað í bænum, en herða þarf
róðurinn í því efni.
— Er blómlegt félagslíf á Ak-
ureyri?
— Félagslíf er mjög gott.
íþróttir eru mikið stundaðar og
má segja að mikill félagsáhugi
sé á Akureyri. Aðalíþróttasvæð-
in á veturna eru íþróttaskemm-
an, sem byggð var í fyrra, og
er 'hún mikið notuð af íþrótta-
fólki og þá sérstaklega hand-
bolta og körfuboltafólki. Einn-
ig er nú mjög góð aðstaða til
skíðaiðkana í Hlíðarfjalli og ný-
lega var lokið við að reisa hina
fullkomnu skýðalyftu, sem nær
frá Hótelinu í Hliðafjalli og upp
í svokallðan Stromp. — Á. J.
aftan við stél sitt. móðurgleði
hennar var auðsæ — en háski
miskunarleysisins og dauðans
var ekki langt undan. Minkur-
inn kom skríðandi neðan skorn-
inga hlíðarinnar neðan frá ánni,
og eftir örstutta stund hafði
hann drepið og tætt sundur öll
12 rjúpubörnin. Rjúpunni náðf
hann ekki til dráps, því hún gat
flogið. Getið þið ekki hugsað
ykkur hvílík sviðasár litla rjúpu
móðurhjartað hefur hlotið við
slíka sjón. Líklega hefur heldur
enginn ykkar rekist á lamhsmóð-
urina er lá á grundinni í Sauð-
burðargirðingunni og karaði ný-
burð sinn. Hún átti sér einskis
ills von, móðurgleðin blikaði í
augum hennar. Minkurinn kom,
beit stykki framan úr hálsi
lambsins og dró það til hliðar,
því slíkt linmeti kærði hann sig
ekfci um til átu, en annað var
honum í hug er ljúfara myndi
á bragðið. Hann réðist á lambs-
burðarsjúka ána og reif undan
henni -tálmafullt júgrið og át
lyst sína af. Getið þið ekki getið
ykkur nærri um líðan ærinnar —
andlega og líkamlega, þar sem
hún varð að liggja fleiri klukku-
stundir. þar til á hana var ráðist
til aflítfunar?
Ég gjöri ráð fyrir að allir þið
er styðjið framgang þessa nýja
frumvarps séuð drengir góðir að
gerð, sem engum viljið kvöl eða
böli valda, og því verðið þið að
fá notið hins gullvæga gamia boð
skapar, að ykkur verði að fyrir-
gefast að því að þið vitið ekki
hvað æ þið gjörið með hinu
ofangreinda frumvarpi ykkar
nú.
En hitt verður ykkur ekki
fyrirgefið ef þið viljið ekki á
hlýða að aðhyllast ábendingar
þeirra manna er frammi fyrir
ykkur standa með fang sitt fullt
glerharðra raunhæfra sanninda
og staðreynda er ótvírætt sýna
hvílík fjarstæða væri :.ð fara að
stofna til nýs minkainnflutnings
nú.
Ég veit þið segið: Það er eng-
in hætta á að minkarnir slyppu
út nú.
En ég segi: Eins og ég veit að
auistrið ’er á móti vestrinu, eins
veit ég að minkar þeir cr nú
yrðu inn fluttir, myndu út
sleppa og valda viðbótar skað-
ræði. Við íslendingar höfum
löngum verið, erum enn, og nmn
um áfram verða — athyglissljóir
trassar. — Því segi ég til ykkar
minkafrumvarpsmenn nú: Hætt-
ið þið — tafcið frumvarpið aftur.
Þorbjörn Björnsson.
frá Geitaskarði.
Minkafrumvarpið
á Alþingi nú