Morgunblaðið - 11.02.1968, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.02.1968, Blaðsíða 30
30 MORGUN'BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 19ff8 Margra ára draumur Norð- mannsins rættist í gær — Hann er jafnbezti göngumaður heims síðustu árin, en hefur aldrei sigrað á stórmóti — fyrr en nú DAGURINN í gær varð mikill gleðidagur fyrir Norðmanninn Harald Grönningen — og reynd- ar alla Norðmenn. Grönningen hefur um langt árabil verið einn traustasti og jafnbezti göngumað ur heims, en aldrei fyrr hefur „allt tekizt fullkomlega" þegar hann hefur verið þátttakandi í stórmótum. Enginn á glæsilegri feril undanfarin ár en hann — nema á stórmótunum. Þar hefur hann komið við sögu en ekki hreppt hin stóru verðlaun og eftir sóttu titla. En í gær skeði það loksins. Hann vann 15 km göngu og hafði forystu alla leið og var rúma sekúndu á undan meistar- anum frá síðustu OL, Eero Mæn tyranta frá Finnlandi, sem nú vann sín önnur verðlaun í Gren oble (áður brons). Brautin var mjög erfið og krefjandi og ofan á bættist að færi var misjafnt og þess vegna gat mat manna á snjó og hvaða áburð skyldi nota ráðið miklu. í þeim efnum er Grönningen sér fræðingur Hann t.d. skipti um á burð á síðustu stundu hjá Berit Mödre, sem vann silfur í göngu keppni kvenna í gær. Grönningen hafði rásnúmer 5 og fór geyst þegar í byrjun. Hann virtist ákveðinn í að láta ekki sömu mistök henda sig og í 30 km göngunni, en þar mistókst honum illa — eitt af fáum skipt um. Hann hafði við fyrsta póst beztan tíma og var þar hálfri mín útu á undan næsta manni Jan Halvorsen. Það kom í ljós í upphafi að meistarinn ítalski í 30 km göngu hafði ekki valið rétt skíði eða réttan áburð og þrátt fyrir góðar tilraunir var hann úr sögunni fljótt. Grönningen fór fram úr öll um þeim fjórum, sem á und- an honum voru ræstir (með Harald Grönningen % mín. millibili) og kom fyrst ur í mark. En þar sem Mæn- tyranta hafði rásnúmer 29 var ekki enn ljóst hvað honum tækist. Hann kom svo í mark á kröftugum endaspretti — en í ljós kom að Norðmaðurinn hafði rúml. sekundu betri tíma. Minna gat það varla ver ið eftir 15 km — og loksins hafði draumur þessa trausta norska göngumanns rætzt — Olympíugull. Haukar í kvöld 1 KVÖLD kl. 8,15 heldur 1. deild arkeppnin í handknattleik áfram. Fyrst mætast Valur og Víkingur og er það síðasti leikur fyrri um- ferðar mótsins. Valsmenn verða vart í vandræðum með að sigra botnliðið, en Víkingsliðið ætlar sér ugglaust að komast af hættu- svæðinu og væri sigur í þessum leik stórt spor í rétta átt. Seinni leikurinn er milli Hauka og Fram. Haukarnir byrj- Verðlaun uðu illa í mótinu en hafa sótt sig með hverjum leik. Jafntefli eða sigur Hauka í þessum leik gæti komið mikilli spennu í mót- ið á nýjan leik. Á undan þessum leikjum fer fram leikur milli ÍR og ÍBK í ann arri deild og hefst sá leikur kl. 7,15. Gangan varð annars mikill sig ur fyrir Norðurlönd — meiri en um langan tíma á slíkum mót um. Og Norðmenn sérstaklega hafa sýnt stórstígar framt'arir í göngu. Það ríkir að vonum gleði gleði I norsku búðunum í Greno ble — og heima fyrir ekki síður. 1. Harald Grönningen Noregi, 47.54,2 2. Eero Mæntyranta, Finnlandi, 47.56.1 3. Gunnar Larsson, Svíþjóð, 48.33,7 4. Kalevi Laurila, Finnlandi, 48.37,6 5. Jan Halvarsson, Svíþjóð, 48.39.1 6. Bjarne Anderson, Svþjóð, 48.41.1 Vélritunarstúlkan sem vann guliið. Finnsk vélritunarstúlka vann gull í 1500 m hlaupi — og á nú gull-, silfur- og brons- verðlaun frá Olympíuleikum 27 ÁRA gömul, ljósfhærð finnsk vélritunarstúlka, Kaija Muston- en, vann Finnlands fyrsta gull á þessu mvetrarleikum er hún sigraði í 1500 m skautahlaupi í gærmorgun. Hún átti fyrir silf- urverðlaun frá síðustu OL-leikj um í Innsbrurk. Þá varð hún önn ur í þessari grein á eftir hinni ósigrandi Skoblikovu frá Sovét. En nú bætti hún Olympíumet hennar. Á sömu leikum vann bronsverðlaun í 1000 m. hlaupi. Svo nú getur hún „leikið sér“ með gull, silfur og brons. 30 stúlkur kepptu í 1500 m hlaupinu, tvær og tvær saman. Fyrst af stað var Ludmila Titova sem vann gullið í fyrradag í 500 m hlaupi og hún náði 2:26.8. Er á leið dugði það afrek hins ný- bakaða OL-meistara skammt og hún varð usn það er lauk að láta sér nægja 7. sætið. Mustonen fór geyst af stað og fipaðist hvergi. Hún ihafði þegar beztan millitíma og fór æ lengra framúr einni af bandarísku stúlk unum, sem silfur unnu í 500 m hlaupinu, Diönu Holuan. Holum sagði eftir á: „Hún náði slíku forskoti er á leið, að ég var að hugsa um að gefast upp“. Að keppni lokinni var sex fyrstu stúlikunum skipað inn í læknastofu í höllinni ásamt þeim er urðu nr. 10, 16, 18 og 22. Þar var tekin þvagprufa og sann reynt að enginn 'þeirra hefði neytt örvandi lyfja. Úrslit: 1. Kaija Mustonen, Finnl. 2:22.4 (OLmet) 2. Carry Ceyssen, Holland 2:22.7 3. Stien Kaiser, Hoilland 2:24.5 4. Sígrid Sundlby, Noregi, 2:25.2 5. L. Kauniste, Sovét 2:25.4 6. Keskivitikka, Finnland 2:26.8 7. L. Titova, S’ovét 2:26.8 8. Schleiermacher, A-Þýzkaland 2:27.1 Sigurvíma Frakka breytt- og stig | ist í vonbrigði Silfur Gull Bronzj Noregur 12 1 Finnland 111 Frakkland 1^1 0 Svíþjóð 10 1 Rússland 10 0 ítalia 10 0 Bandaríkin 0 3 0 Holland 0 11 Sviss 0 0 1 í hinni óopinberu stiga-' keppni Olympíuleikanna^ standa stigin þannig: Noregur 24.5 stig, Finnlandj 23.5, Svíþjóð 17, Rússland 12.5, Bandaríki og Frakkland' 12.5, Holland 11, ftalía 10, | Austurríki 5 og Sviss 4. — er tvítug austurrísk stúlka sigraði óvænt í bruni kvenna OLGA Pall, íturvaxin 20 ára gömul brúneyg stúlka frá Austurriki færði landi sínu og þjóð fyrsta gullið á þessum OL- leikjum er hún sigraði í bruni kvenna í gærmorgun. Sigur hennar kom allmjög á óvart og segja má, að hún hafi „stolið“ sigrinum úr höndum fyrrver- andi OL-meistara, landa sínum Christil Haas og frönsku stúlk- unni Isabell Mir. Af þessum þremur fór Christ- el Haas fyrst í brautinni og náði beztum tíma fram að því og vonir um gull blöstu við. En þær vonir stóðu ekki lengi. Örskömmu síðar fór Isa- bell Mir brautina og náði ör- litlu betri tíma en Haas, eða sem nam 8/100 úr sek. Fögnuð- ur Frakka varð gífurlegur, því nú sáu þeir fram á annað gull í brunkeppni (Frakki vann brun karla). Þáð var eiginlega ekki beðið eftir öðru en keppninni væri lokið og Frakkar voru þegar farnir að fagna vel. Þá kom röðin að Oigu Pall. Hún fór brautina af feikilegu öryggi og miklum hraða. En sumir horfðu ekki á hana, svo vissir voru þeir um sigur frönsku stúlkunnar. En í ljós kom að Olga hafði unnið allgóð- an sigur, var 5/10 úr sek. á und- an Mir. Henni var vel fagnað — og heitast og mest af Austuxríkis- mönnum, sem mistókst illa, mið- að við fyrri getu, í brunkeppni karla. Þetta var góð og kær- komin uppbót áð hljóta nú gull og brons. Úrslit: 1. Olga Pall Austurriki 1:40.87 2. Isabell Mir Frakkland 1:41.33 3. Christil Haas Austurr. 1:41.41 4. B. Seiwald Austurriki 1:41,82 5. Annie Famose Frakkl. 1:42,15 6. F. Field England 1:42.87 7. F. Bochatay Sviss 1:42.87 8. M. Goitschel Frakkl. 1:42.95 Japani helur for- ystu í tvíkeppni I GÆR lauk stökkkeppninni í norrænu tvíkeppninni, en gang- an fer fram síðar. Að stökkinu loknu er Japaninn Itagaki fyrst ur með 221.5 stig, Franz Keller, V-Þýzkland 217.3 st., Erwin Fiedor Pólland 215,4 st., 4. Dragin Sovét 208.4 st., 5. Tani- gushi, Japan 206.8 st. og 6. Gjert Andersen, Noregi og Mak- ara, Sovét 204.4 stig. Markus Svendsen, Noregi, sem er sterk- ur göngumaður og „stærsta von“ Noregs í tvíkeppninni er í 10. sæti eftir stökkið með 197.3 stig. Fundur hjá íþróttafélagi Keflavíkur Kefflavík, 10. ferbúar. ÍÞRÓTTAFÉLAG Keflavíkur heldur fund þriðjudaginn 13. febrúar í Æskulýðsheimilinu kl. 8,30. Rædd verða íþróttamál, og Guðmundur Þorsteinsson, íþrótta kennari, talar um íþróttir og sýn ir franska íþróttamynd. fþrótta- félag Keflavíkur er tiltölulega nýstofnað, en hetfur tekið upp mjög virka og ákveðna afstöðu í íþróttamálum og þessi fundur á þriðjudaginn er einn liður i starfsemi þeirra. Er vonast til að allir íþróttaáhugamenn komi þangað til fundar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.