Morgunblaðið - 17.04.1968, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.04.1968, Qupperneq 2
2 MORGUNBLA.ÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1!>6S Hárskerar Irskka verðið í 73 kr. — telja tilganginum náð HÁRSKERAR lækkuðu í gær verð á klippingu í 73 krónur, sem er það hámarksverð, sem verðlagsnefnd samþykkti fyrir nokkru, en svo sem kunnugt er af fréttum hafa hárskerar um nokkurt skeið selt klippingar á 80 krónur og ekki viljað una á- kvörðunum verðlagsnefndar. Mbl. sneri sér í gær til Vil- helms Ingólfssonar, formanns verðlagsnefndar Meistarafélags hárskera og spurðist fyrir um Bókomarkoður- inn í Unuhúsi orsakir hinnar breyttu afstöðu hárskera. Vilhelm Ingólfsson sagði að hárskerar teldu tilgang- inum náð með deilu þeirri sem þeir hafa átt við verðlagsyfir- völdin, þar eð þeim hefði nú ver ið stefnt fyrir verðlagsdóm og sagði Vilhelm að með því mundi þeim gefast tækifæri til þess að fá fram þann grundvöll, sem verðlagsnefnd byggi ákvarðanir sínar um gjaldskrá á en þann grundvöll teldu hárskerar sig ekki hafa haft undir höndum til þessa. Leikrit Odds Björnssonar, Tíu tilbrigði, hefur vakið athygli og hlotið lofsamlega dóma gagn- rýnenda. Þriðja sýning verður í Lindarbæ í kvöld kl. 21, og skal bent á, að fáar sýningar eru fyrirhugaðar að þessu sinni. Sveit Benedikts Jóhannssonar 5. sveit Simonar Símonarson- arsonar 41 st. BÓKAMARKAÐURINN í Unu- húsi stendur enn yfir og hafði Mbl. tal af Ragnari Jónssyni í Smára í gær og spurði hann, hvernig markaðurinn gengi. — Það hefur verið mikil ös hérna, sagði Ragnar, og markað urinn stendur til mánaðamóta. Verður reynt að tína fram nýjar bækur eftir hendinni. — Hvaða bækur seljast helzt? — íslenzku skáldsögurnar, ævisögur og bækur um þjóðlegt efni seljast mest. Þar má nefna verk Kambans, Skálholt, Vítt sé ég land og fagurt og Meðan hús- ið svaf, Sögusöfn Hagalíns, bæk ur Kristmanns, Guðmundar Daní elssonar, Laxness og Nordals. Það er athyglisvert við þennan markað, að fólk kaupir aðeins góðar bækur. — En eftirprentanirnar? — Já, fólk kaupir minni mynd irnar nokkuð til fermingjar- gjafa, þær sem prentaðar eru á lakkeraðan pappír og hægt er að þvo af óhreinindi. Það eru smá- myndir Kjarvals, Ásgríms o.fl. Guðmundur Jensson lútinn GUÐMUNDUR Jensson fram- kvæmdastjóri og eigandi Nýja Bíós, lézt í Landsspitalanum að morgni hins 15. apríl. Hafði hann átt við vanheilsu að stríða að und anförnu, en hann var á 76. aldurs ári, er hann lézt. Guðmundur Jensson fæddist í Reykjavík 26. september 1892, sonur Jens Björnssonar, sjó- manns og konu hans Ingibjarg- ar Guðmundsdóttur. Árið 1911 brautskráðist Guðmundur frá Verzlunarskóla íslands, en var síðan bókhaldari um hríð. Frá 1920 var Guðmundur eigandi og framkvæmdastjóri Nýja Bíós í félagi við Bjarna Jónsson. Guðmundur var kvæntur Þór- dísi Sigríði Sigurðardóttur frá Þórarinsstöðum við Seyðisfjörð. Islandsmeistari í bridge ÍSLANDSMÓTIÐ í bridge fór fram um páskana, og urðu úr- slit þar sem hér segir: Úrslit í sveitakeppni meistara- flokks: fslandsmeistarar: Sveit Bene- dikts Jóhannssonar 53 st. Benedikt Jóhannsson, Jóhann Jónsson, Jón Arason, Sigurður Helgason, Lárus Karlsson, Ólafur H. Ólafsson. 2. sveit Steinþórs Ásgeirssonar 48 st. Steinþór Ásgeirsson, ViL'hjálmur Sigurðsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Sigurhjörtur Pétursson, Rósmundur Guðmundsson, Stefán Jónsson. 3. sveit Hjalta Elíassonar 47 st. Hjalti Elíasson, Ásmundur Pálsson, Jón Ásbjörnsson, Kari Sigurhjartarson, 99 IMeue Zuricher Zeitung 66 Einar Þorfinnsson, Jakob Ármannsson. 4. sveit Hannesar Jónssonar Akranesi 45 st. 6. sveit Agnars Jörgensonar 33 st. 7. sveit Gísla Geirs Hafliða- sonar 29 st. 8. sveit Gunnars Sigurjónsson- ar Keflavík 27 st. 9. sveit Ólafs Guðmunds- sonar Hafnarfirði 22 st. 10. sveit Jóns Stefánsonar 15 st. Gríska stjórnin fer á stúfana aftur selt í Sovétríkjunum Zúrioh, 16. apríl NTB. SVISSNESKA dagblaðið, „Neue Ziiricher Zeitung", sem í þessari viku verður til sölu í Sovétríkj- unum, fyrst ókommúnískra dag- blaða frá Vesturlöndum, upplýs- ir í dag, að Sovétstjórnin hafi átt frumkvæðið að sölu blaðsins. Segir blaðið, að það hafi ekki reynt að fá aðgang að markaði í Sovétríkjunum þar sem yfir- leitt hafi verið vonlaust að fá seld þar vestræn dagblöð önnur en kommúnisk. Því hafi tilboð Sovétstjórnarinnar komið mjög á óvart. Einhverjir hafa haldið þvi fram, gð Sovétstjórnin hafi tekið þessa ákvörðun fyrir atbeina vestrænna aðila á vettvangi kaup sýslu eða ferðamála, en blaðið S'egir, að ekkert bendi til þess að svo sé. „Neue Zuricher Zeitung" er 190 ára og hefur verið talið með tíu beztu dagblöðum í heimi. Stuðlaði Beria að dauða Masaryks? — mikil blaðaskrif í Tékkóslóvakíu Vín, Prag, 16. apríl. NTB, AP. MÁLGAGN tékkneska komm- únistaflokksins, Rude Pravo, hvatti í gær sovézku stjórnina til að veita aðstoð við að upplýsa um nánari atvik við dauða fyrrv. utanríkisráðherra landsins, Jan Masaryk, árið 1948. Blaðið segir berum orðum, að ráðherrann hafi ekki framið sjálfsmorð, eins og tilkynnt var opinberlega á sínum tíma, held- ur hafi þarna verið framið póli- tískt morð, sem aðstoðarmenn Beria, yfirmanns sovézku örygg islögreglunnar, hafi haft af- skipti af. Rude Pravo skrifar ennfremur, að ekki megi taka neinum vettlingatökum á þessu máli, þar sem vitað sé hvert hlutverk Beria var í ofsóknum á hendur ýmsum starfsmönnum tékkneska kommúnistaflokksins á árunum 1949-1954. Blaðið lýk- ur hugleiðingum sínum á þann veg, að ef til vill liggi persónu- Iegur harmleikur að baki dauða ráðherrans, að hann hafi ef til vill framið sjálfsmorð vegna þess að hann átti ekki annars úr- kosta. Annað tékkneskt blað, Lidova Democracio, birti á föstudaginn langa grein eftir Önnu Pavel- kova, fyrrverandi starfsmann í utanríkisráðuneytinu. Þar segir, að skýrslu um dauða Masaryks hafi verið stolið af skrifborði tékkneska fulltrúans hjá Sam- einuðu þjóðunum árið 1948. Pavelkova segir, að ætlunin hafi verið að lesa skýrsluna upp hjá Sameinuðu þjóðunum og sá sem stal henni, hafi unnið við sendiráð Tékkóslóvakíu í Banda ríkjunum. Svo sem áður hefur verið greint frá hefur verið sett á stofn nefnd í Prag til að rannsaka nánar öll atriði um dauða Masa- ryks. Tékknesku blöðin, sem ekki eru ritskoðuð lengur, hafa síðustu daga birt ýmsar greinar um Masaryk-málið, og viðtöl við fólk, sem sá Masaryk daginn sem hann lézt. Einn sjónarvotta kveðst hafa séð far við annað eyra ráðherr- ans, er hann var borinn burtu úr garðinum, þar sem hann fannst. Æskulýðsblaðið Mlada Fronta segir, að stjórnarvöldin reyni að koma í veg fyrir að sjtjöl og plögg frá valdatíma fyrrv. stjórn ar, verði eyðilögð. Samkvæmt frásögn balðsins var stórum vörubíl hlaðirm skjölum, ekið brott frá forsetahöllinni skömmu áður en Antonin Novotny sagði af sér hinn 22. marz sl. Aþenu, Amsterdam, London 16. apríl. NTB. TVEIR fyrrverandi forsætisráð- herrar Grikklands, hafa að nýju verið settir í stofufangelsi, að því er upplýst var í Aþenu í gær- kvöldi. Eru það Georges Papan- dreu og Panajotis Kanellopolos. Samkvæmt NTB-fréttum voru verðir settir við heimili þeirra á mánudagskvöld- Báðir voru handteknir í fyrra, er hershöfð- ingjar hrifsuðu völd í Grikklandi. Siðar var þeim sleppt og sagt, að þeir færu héðan í frá frjálsir ferða sinna. Þá var fyrrverandi iðnaðar- málaráðherra landsins Ioannis Zigdis kallaður fyrir grísku ör- yggislögregluna í gær og varað- ur eindregið við að gefa nokkr- ar pólitískar yfirlýsingar. Gríski utanríkisráðherrann Pip inellis er staddur í Amsterdam, þar sem hann situr NATO fund. Hann neitaði að segja nokkuð um þessar nýju aðgerðir gegn Papandreu og Kanellopolos og kvaðst ekkert um þær vita. Frá London berast þær frétt- ir, að brezka stjórnin hafi lýst yfir því fyrir helgi, að hún hefði sannanir fyrir því, að pólitískir fangar á eyjum Grikklands væru beittir pyntingum. Hins vegar vildi talsmaður stjórnarinnar ekk ert segja um það, hvort stjórnin mundi gera einhverjar ráðstaf- anir vegna þessa. Johnson undirrítar húsnæðis- málalögin Blökkumönnum tryggð — aukin réttindi í búsnœðismálum Washington, 16. apríl NTB—AP Á SKÍRDAG undirritaði Lyndon B. Johnson, forseti Bandaríkj- anna, lög, þar sem bannað er að beita kynþáttamisrétti við sölu og leigu á húsnæði í Bandaríkj- unum. Einnig eru ákvæði, sem banna hvers kyns misrétti ann- að, svo sem á grundvelli trú- arbragða. Frumvarp að lögum þessum hafði verið samþykkt í fulltrúa- deild bandariska þingsins dag- inn áður, en afgreiðsla þess á þinginu tók um eitt ár. Undir- skrift laganna var mjög fagnað af öllum forystumönnum rétt- indabaráttu blökkumanna. Sam- kvæmt þeim er líka bannað að beita hvers konar þvingunum. eða hótunum til þess að koma í veg fyrir að blökkumenn not- færi sér þau réttindi, sem þeim eru þannig tryggðt í húsnæðis- málunum. Er gert ráð fyrir að mál, er varða framkvæmd lag- anna sé hægt að reka fyrir al- ríkisdómsstóli. Lög.n koma til framkvæmda á næstu tveimur árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.